Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/LESBOK 121. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Falsað fé tíl höfuðs íröskum efnahag Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. YMIS ríki hafa undir forystu Bandaríkjamanna smyglað ómældu magni af fölsuðum pen- ingum inn í Irak í þvi skyni að grafa undan efnahagslífi landsins, að því er dagblaðið The New York Times hefur eftir bæði vestrænum og arabískum embættismönnum í Jórdaníu. Að sögn hefur fölsuðum dínörum verið smyglað yfir landamæri Jórd- aníu, Saudi-Arabíu, Tyrklands og írans að Irak og standa auk Banda- ríkjamanna Saudi-Arabar, íranir, ísraelar og ónefnd vestræn ríki að baki þessum aðgerðum. Einnig hefur fölsuðum dollaraseðlum verið smygl- að inn í landið. Hvers kyns leynilegar aðgerðir til að valda glundroða í Irak hafa færst mjög í aukana undanfarna mánuði. Talið er að það hafi gerst eftir að Bandaríkjamenn ákváðu í febrúar að gefa grænt ljós á slíkt. Þetta mál hefur valdið fraksstjóm það miklum vanda að smyglið hefur verið fordæmt harkalega og lögð fram mótmæli hjá Sameinuðu þjóð- unum (SÞ). Tilraun var gerð til að draga úr smyglinu með þungum refs- ingum. Aðild að dreifingu falsaðs fjár getur kostað lífstíðarfangelsi og smygl varðar dauðarefsingu. Falsaða féð hefur kynt undir verð- bólgubálinu, sem var nógu slæmt fyrir í írak vegna þess að stjómvöld hafa eftir að Persaflóastríðinu lauk látlaust prentað peninga til að greiða hækkandi laun og endurreisn lands- ins. f þokkabót er auðvelt að falsa dínarinn vegna þess að hann er nú prentaður á verri pappír en áður. Dínarinn hefur einnig misst kjöl- festu vegna þess að írakar hafa gengið mjög á gjaldeyris- og gull- sjóði sína við innkaup á varningi framhjá viðskiptabanni SÞ. Reuter Óbreyttir borgarar birgja sig upp af brauði í Sarajevo í gær en þar er ríkir nú annars mikill matvælas- kortur af völdum átakanna í Bosníu. Skoskar kindur éta fugla London. Daily Telegraph. KOMIÐ hefur í Ijós að kindahjörð á eynni Foula á Hjaltlandseyjum í Skotlandi étur sjó- og farfugla lifandi en kindurnar eru af stofni sem barst til eyjunnar með víking- um. Dýrafræðingar frá háskólunum í Glasgow og Cambridge hafa dvalist í Foula og rannsakað lifnaðarhætti kindastofnsins. Stóðu þeir kindurnar að verki og sannreyndu með því gamlar munnmælasögur um fuglaát grasbítanna. Kindurnar em 60 talsins og létu þær til skarar skríða á varptímanum og átu þá nokkur hundmð unga, aðallega kríu- og skúmsunga. Talið er að kindurnar séu að bæta sér upp fæðuefnaskort með fuglsát- inu, aðallega kalk- og fosfórskort. Bryðja þær venjulega höfuð unganna eða lappir og stundum vængbein en leifa síðan því sem eftir er af hræinu. Hörðustu árásír Serba í Króat- íu og Bosníu frá því fyrir jól Ályktun um allsherjar viðskiptabann talin vera í höfn í Öryggisráði SÞ Belgrad, New York. Reuter. SERBAR héldu uppi gífurlegri eldflauga- og stórskotaliðsárás á borg- ir í Króatíu og Bosníu-Herzegovínu í gær og skutu herskip meðal annars án afláts á sögufrægar byggingar í miðborg Dubrovnik. Að- gerðir Serba eru þær hörðustu í hálft ár og sögðu vestrænir stjórnar- erindrekar í Belgrad í gær að þeir virtust ekki hræðast yfirvofandi alþjóðlegar efnahagslegar refsiaðgerðir. I gærkvöldi var ályktun um refsi- aðgerðir gegn Serbíu og Svartfjalla- landi nánast í höfn í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og stefndi allt í að atkvæðagreiðsla uni hana færi fram í dag, laugardag. í texta ályktunarinnar var gert ráð fyrir allsheijar viðskiptabanni, flugbanni og banni við íþróttasamskiptum. Einnig að eignir Júgóslavíu erlendis yrðu frystar. Vesturveldin leggja ofurkapp á að ályktunin kveði á um olíusölubann en því eiga Rússar, sem sagðir voru styðja tillöguna að öðru leyti, erfitt með að kyngja. Sýnt þótti að Kín- verjar myndu sitja hjá við atkvæða- greiðsluna. Carrington lávarður, sem reynt hefur að miðla málum í deilum fyrr- um lýðvelda júgóslavneska ríkjasam- bandsins fyrir hönd Evrópuband- alagsins (EB), sagði í gær að refsiað- gerðirnar væru næstsíðasta úrræðið til að stöðva bardagana. Ef þær dygðu ekki væri einungis eitt ráð til enn, hernaðarleg íhlutun. Richard Boucher, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði að ekki væri hægt að fullyrða um það fyrirfram að refsiaðgerðir dygðu til þess að knýja yfirvöld í Belgrad til þess að stöðva hemaðar- aðgerðir sínar í Bosníu og Króatíu. Fulltrúar SÞ sögðu í gær að átök- in í Bosníu hefðu hrakið a.m.k. 1,5 milljón manna á flótta frá heimilum sínum og hungursneyð blasti við um milljón manns sem innlyksa væru í mörgum þorpum og bæjum í landinu. Major vill opna EB til austurs London. Daily Telegraph. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur boðið leiðtogum þriggja rílqa Mið-Evrópu, sem allir áttu ríkan þátt í að hrinda oki kommúnismans af viðkomandi þjóðum, til fundar í London í haust sem haldinn verður í þeim tilgangi að leggja frekari drög að inngöngu ríkjanna I Evrópubandalagið (EB). Leiðtogamir eru Lech Walesa Póllandsforseti, Vaclav Havel Tékkóslóvakíuforseti og Jozsef Antall, forsætisráðherra Ungveij- alands. Með því að bjóða þeim til til London er Major sagður vilja undirstrika að Bretar munu leggja áherslu á stækkun EB eftir að þeir taka við forystuhlutverki í bandalaginu í júlí. Vilja þeir að fyrmm austantjaldsríkjunum verði boðin aðild þegar efnahags- ástand þeirra leyfir. Major lauk í gær fjögurra daga heimsókn til Póllands, Tékkóslóv- akíu og Ungveijalands en það er fyrsta utanför hans eftir þing- kosningarnar í Bretlandi í byijun apríl. Búist er við að hann fundi með leiðtogum þessara ríkja skömmu fyrir leiðtogafund EB í Edinborg í desember nk. Hann er sagður áforma að leggja að leiðtogum EB að samþykkja á Edinborgarfundinum yfirlýsingu um að ríkin þijú fái aðild að bandalaginu þegar efnahagur þeirra verði nægilega þróttmikill, líklega þegar nær dregur alda- mótum. Reuter John Major heilsar óbreyttum borgurum á gönguferð um markað í miðborg Búdapest í gær. Eistartaka upp krónu Moskvu. Reutcr. NYR gjaldmiðill verður tekinn upp í Eistlandi ásamt rússnesku rúblunni og verður hann nefnd- ur króna eða „kroon“. Verður upplagið takmarkað til að byrja með og aðeins notað þegar rúbl- useðlana skortir. Ekki var tilkynnt hvenær krón- an kæmi í umferð en Eistlendingar verða hugsanlega fyrstir sovétlýð- veldanna fyrrverandi til að taka upp eigin gjaldmiðil. Eru önnur ríki að huga að því líka en rúblan er samt ennþá allsráðandi. Efna- hagsumbæturnar í Rússlandi og mikið aðhald í peningamálum valda því hins vegar, að oft skort- ir rúblur og hafa til dæmis Úkraín- umenn brugðist við því með útgáfu nokkurs konar skömmtunarseðla eða úttektarmiða, sem notaðir eru sem gjaldmiðill manna í millum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.