Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 Fæðingarheimili Reykjavíkur eftir Ingólf S. Sveinsson Staða Fæðingarheimilis Reykja- víkur hefur verið í óvissu síðustu mánuði síðan lagt var til og síðan samþykkt í fjárlögum Alþingis að minnka rekstrarfé heimilisins úr 60 í 20 milljónir á ári. Skyldi það fé fært frá Borgarspítala yfir til rekst- urs Landspítalans. Þessi ráðstöfun var möguleg í framhaldi af þeirri ákvörðun frá 1987 að reka Borgar- spítalann með fjárlögum sem væri hann ríkisfyrirtæki. Þá var Borgar- spítalinn í raun sviptur fjárræði sínu og sjálfræði að verulegu leyti. Einn- ig koma hér til þau verkaskiptalög, sem færðu endanlega allan rekstur sjúkratrygginga og heilbrigðisþjón- ustu frá sveitarfélögum yfir til ríkis- ins árið 1990. Sú gjörð, sem allir harma, var hrein afurð landsbyggða- vælsins sáluga, gerð til að hlífa smáum sveitarféiögum. Reykvíking- ar fylgdu með í þeim pakka. Við búum því í dag við ríkisrekst- ur sjúkrahúsa og flestra þátta heil- brigðisþjónustu sem og ríkiseinokun sjúkratrygginga. Einstaklingar og sveitarfélög hafa lítið vald í eigin heilbrigðismálum. Þar ræður ríkið sem þó virðist í meiri neyð en flestir í þessu landi. Sem áhugamaður um valfrelsi í heilbrigðisþjónustu og varaborgar- fulltrúi, vil ég rita nokkur orð um þetta mál. Hlutverk Fæðingarheimilisins Fæðingarheimilinu var komið á fót af brýnni þörf. Það gerðu samtök einstaklinga. Bandalag kvenna beitti sér fyrir því að Reykjavíkurborg setti heimilið á stofn. Bamshafandi konur höfðu löngum búið við óvissu um hvort þær fengju pláss á fæðing- ardeild til að ala börn sín. Þrengsli, aukarúm, hrakningar og vandræða- gangur eru enn í minni foreldra, sem bjuggu við það aðstöðuleysi. Varð Fæðingarheimllið vinsælt og eins og fram hefur komið skipti þar miklu máli hugsjónin um eðlilega fæðingu þar sem konan er í virku hlutverki sem móðir fremur en sem sjúklingur á spítala. Hulda Jensdótt- ir ljósmóðir varð innflytjandi á fræðslu og menningu. Hún lagði áherslu á slökun, náin tengsl móður, barns og fjölskyldu, góða hvíld eftir fæðingu og með nýjum hætti kenndi hún konum að annast sig eftir að þær komu heim. Starf heimilisins hafði og hefur enn áhrif á þjónustu annarra stofnana í landinu. Valfrels- ið sjálft skipti miklu máli þama eins og í allri þjónustu. Aðsókn að Fæðingarheimili Reykjavíkur minnkaði nokkuð eftir 1976 þegar ný álma var tekin í notk- un við fæðingardeild Landspítalans með bættum aðbúnaði og tækni sem þá var ný. Veitti hún aukið öryggi væru horfur á erfiðleikum í fæð- ingu. Vegna þessarar minnkuðu að- sóknar þótti stjórn Borgarspítalans rétt að nýta betur húsnæði Fæðing- arheimilisins með því að leigja tvær neðstu hæðirnar tímabundið undir aðra lækningastarfsemi unz aðsókn yrði meiri. Er húsnæðið til staðar ef á þarf að halda. Á síðasta ári var húsnæði efstu hæðar endurbætt og fæðingum fjölgaði á ný (464 alls). Nútíma mæðraeftirlit greinir áhættuþætti fyrirfram sem gefur áreiðanlegar vísbendingar um hvort vænta megi eðlilegrar fæðingar. Öryggi á Fæðingarheimili Reykja- víkur er þess vegna með því besta sem fáanlegt er. Markmið heimilisins er að sinna eðlilegum fæðingum með áherslu á að fæðing er ekki sjúkdóm- ur. Langflestar fæðingar eru heil- brigðar og eðlilegar. Sá sem þetta ritar þekkir þess fjölda dæma úr starfi sínu að móðir sem er þreytt eftir meðgöngu þarf hvílandi sængurlegu. Langþreyttri konu sem tekur að sér umönnun bams með öðrum störfum er hætt við heilsufarslegu niðurbroti sem of oft varir árum saman. Ekki þurfa allar konur á langri sængurlegu að halda, en mikilvægi hennar er afger- andi fyrir aðrar. Ráðherrasparnaður ákveðinn fjarri þessum vettvangi er dýr. Staðan í dag er krafa um það að einstaklingar og sveitarféiög þurfa að ráða meiru um eigin mál en nú er. Hlutverk borgarstjórnar Borgarstjórn Reykjavíkur hefur gert sitt besta til að tryggja tilveru heimilisins. Þar hafa verið í forystu stjórnarmenn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar (Borgarspítal- ans), þeir Árni Sigfússon og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson. Ut úr þeirri baráttu hefur komið það loforð heil- brigðisráðherra og stjórnar ríkisspít- ala að staða Fæingarheimilisins verði tryggð með þeim hætti að fæðingar geti farið fram á vænt- anlegum sérstökum gangi á fæðing- ardeildinni. Konur sem þess óska geti fætt þar við aðstæður líkar þeim sem ríktu á Fæðingarheimilinu. Standi þeim síðan til boða að flytj- ast með börnin upp á Fæðingarheim- ilið. Vissulega gengur ýmsum treg- lega að trúa á þetta fyrirkomulag. Það kostar breytingar á Landspítala, sem eftir er að framkvæma. Sam- fella fæðingar og sængurlegu yrði rofin. Fæðingardeild Landspítalans hefur oft barist í bökkum vegna yfirálags undanfarin ár og ekki hef- ur verið gert ráð fyrir fjölgun starfs- fólks vegna þeirra 460 fæðinga sem bætast kunna við. Starfsþreyta á yfirkeyrðri spítala- deild þýðir venjulega sameiginlega eymd sjúklinga og starfsfólks. Slík staða má aldrei koma upp á fæðing- arstofnun. Tal um valfrelsi yrði hjá- róma við þær aðstæður. Kostnaðarhliðin Skuldsetning ríkisins ræður öllum þessum gjörðum. Sagt er að breyt- ingamar skuli spara um 20 milljónir á ári en það dæmi má teygja á allan veg. í miðstýrðri ríkisrekinni þjón- eftir Ásmund Brekkan Undanfamar viku hafa fjölmiðlar gefíð nokkum gaum að þeim erfíð- leikum sem nú steðja að stærsta og sérhæfðasta spítala landsmanna, Landspítalanum. Fréttaflutningur fjölmiðla um þann mikla vanda sem stofnunin er nú stödd í vegna niður- skurðar fjármuna til hennar hefur verið réttur og, eins og raunar mátti ætla, í þeim anda að bera þjóðinni raunsanna mynd af þeirri kreppu sem steðjar að þessum mikilvæga þætti heilbrigðiskerfísins. Vegna stöðu minnar serp formaður læknaráðs Landspítalans hefur það að talsverðu leyti komið í minn hlut að mega túlka sjónarmið sjúkrahúss- ins og starfsliðs þess. Eir.s og fyrr segir hefur yfirleitt verið mjög skil- víslega og rétt eftir haft, en nokkur em þau atriði sem ég hef komið á framfæri við alla þá fréttamenn allra fjölmiðla sem við mig hafa rætt og engum hefur greinilega þótt ástæða til að tíunda. Ég vil því leyfa mér að nefna þau hér og nú og skýra stuttlega fyrir lesendum. Milli Landspítalans og læknadeild- ustu er erfitt að finna verð á nokkr- um hlut. Talið hefur verið að hver barnsfæðing ásamt sængurlegu hafi verið dýrari á Fæðingarheimilinu en á fæðingardeildinni miðað við undanfarin ár. Reiknaðar hafa verið út tölurnar 90.000 og 120.000. Það kann að skekkja dæmið Fæðingar- heimilinu í vil að dvalartími er að jafnaði heldur lengri þar. Þá er al- gengt að konur flytjist á sjúkrahús heimabyggða til sængurlegu eftir fæðingu á Landspítala. En þrátt fyrir alla óvissuþættina kann þarna að vera kostnaðarmun- ur. Hver á að borga hann ef hægt er á krepputímum að fæða barn fyr- ir 90 þúsund krónur. Það mætti tii sanns vegar færa að dýrari leiðin sé munaður þeirra sem hafa dýrari smekk. Þá kemur upp spurningin: Er hægt að reka Fæðingarheimili Reykjavíkur ef 90 þús. krónur fengj- ust frá sjúkratryggingum fyrir hveija fæðingu. Eru einhveijir til sem vildu greiða umframkostnaðinn, foreldar, ættingjar eða aðrir? Þó væri best ef neytandinn greiddi hlut- fall, t.d. 10% alls kostnaðar, trygg- ingin afganginn. Þá hafa allir gagn- kvæma ábyrgð og aðhald neytandi, þjónustustofnun og trygging. Ef við viljum hafa valfrelsi fremur en skömmtun þurfum við að þora að tala á þessum nótum. Það myndi hressa upp á verðskynið í heilbrigðis- þjónustunni þar sem oft sér ekki handa skil. Vissulega hefur sú hugmynd kom- ið fram að Reykjavíkurborg tæki að sér að halda Fæðingarheimilinu í rekstri. Borgin,. „stór og rík“, gæti vafalaust varið til þessa 40-60 millj- ónum á ári, væri áhugi nægur. En þótt Fæðingarheimilið eigi marga velunnara, eru engu að síður fleiri sem velja fæðingardeildina. Þar með væri borgarstjórn að veija skattfé á vafasaman hátt þar sem borgarbúar hafa þegar greitt framlag til fæðing- ardeildar í sköttum til ríkisins. Lausnir mála með aukinni notkun skattfjár eru ekki uppáhaldsaðferðir sjálfstæðismanna. Sjálfstæðisstefnan leggur áherslu á frelsi einstaklinga til að ráða mál- ar Háskóla íslands eru mjög náin og langvinn tengsi. Allt frá stofnun fyrir rúmlega sextíu árum hefur Landspítalinn verið höfuðaðsetur kennslu læknanema og nema úr öðr- um heilbrigðisstéttum. Enda þótt ekki skuli á neinn hátt vanmetinn hlutur annarra sjúkrahúsa í þeirri sögu er samt mjög stór hluti kennslu og náms læknanema, hjúkrunar- nema, meinatæknanema, röntgen- tæknanema, sjúkraþjálfara og fleiri stétta tengdur Landspítala. Þetta á jafnt við um kennslu og rannsóknir. í öllum þeim erfíðleikum, sem við eigum við að glíma, uppsöfnuðum og nú stórauknum, hefur ekki enn tekist að kæfa þá viðleitni að haldið sé uppi kennslu og rannsóknum inn- an stofnunarinnar, sem raunverulega standa undir nafni og þola saman- burð við ágæti slíkra stofnana í ná- grannalöndum okkar. Ég get ekki látið hjá líða að minn- ast á að fyrir rúmri viku fór fram úthlutun úr Vísindasjóði Landspítal- ans. Enda þótt ánægjulegt væri að sá sjóður væri mun öflugri, þá var samt úthlutað rúmum fjórum milljón- um króna til fjölda vísindaverkefna sem unnin eru af læknum Landspítal- ans og samstarfsfólks þeirra. Öll voru þessi verk á þann veg, efnislega Ingólfur Sveinsson „Til að stofnanir séu góðar þurfa þær að vera sjálfbjarga, fjár- hagslega sjálfstæðar, fjármagnaðar af þeim sem þær þjóna, tryggð- um einstaklingum í raunverulegu mannúð- arþjóðfélagi.“ um sínum sjálfir að sem flestu leyti, andstætt forræðishyggju af öllu tagi og opinberri forsjá. A þrengingar- tímum ríkisins snýst forsjáin við. Þá verða einstaklingarnir að sjá fyrir hinum opinbera ofneyslusjúklingi, greiða skuldir hans og fórna hagsmunum sínum. Öryggi hinnar opinberu forsjár verður lítið og kröfuharka ofneyslusjúklingsins mikil. En ríkið er ekki þjóðin. Ríkið er aðeins tæki, fyrirtæki sem reynst hefur nær ómögulegt að stjórna. Enginn á þetta fyrirtæki og engum þykir vænt um það. Þessu fyrirtæki er ekki treystandi fyrir rekstri sjúkrahúsa né sjúkratrygginga okk- ar. Við höfum enga tryggingasamn- inga, aðeins síbreytilegar tilskipanir. Þjónustuframboð hinna ríkisreknu sjúkrastofnana er skammtað. Krepp- utímar og neyðarástand hafa verið dagskipanir sjúkrahúsarekstursins í mörg ár. Hvað er til ráða? Það er ótrúlegt að fólk sem vant er að búa við valfrelsi í lífi sínu yfir- leitt og vill annast börn sín þokka- lega sætti sig við að búa við eymd „Sú þekking, sem safn- ast hefur fyrir í Land- spítalanum og hefur fram undir þetta leyft að hér sé hægt að veita bestu læknishjálp og aðhlynningu sem völ er á, má ekki glatast.“ sem vísindalega, að hvaða stofnun og háskóli sem er væri vel sæmdur af þeim og þeim þrótti, sem þannig kemur í ljós. (Til að fyrirbyggja mis- skilning, nú í efnahagsumræðunni, er rétt að geta þess að fjármunir til sjóðsins koma bæði frá meðlimum læknaráðs spítalans og af hluta tekna frá göngudeildum hans.) Það er nauðsynlegur þáttur í rekstri og framþróun sérhvers spít- ala, að ekki sé minnst á háskóla, að eiga aðgang að bókasafni. Besta, stærsta og metnaðafyllsta læknis- fræðibóksafns landsins er rekið af Landspítalanum og Háskólanum og í húsakynnum Háskólans á Landspít- alalóðinni. Sú þekking, sem safnast hefur fyrir í Landspítalanum og hef- ur fram undir þetta leyft að hér sé og leiðindi ríkisrekinnar heilbrigðis- þjónustu til lengdar. Opinber rekstur er óhagkvæmur hvar sem er í heim- inum. Ekki þarf að fara lengra en að minnast Bæjarútgerðar Reykja- víkur, sem kostaði þorgarbúa nær hálfa milljón á dag, eða Skipaútgerð- ar ríkisins, sem kostaði landsmenn um eina milljón daglega. Nú eru þær horfnar. Enginn saknar þeirra. Út- gjöldin hurfu. Starfsemin batnaði að öllu leyti. Það myndi leysa marg- an vanda einstaklinga og byggða í þessu landi að leggja niður ríkisút- gerð heilbrigðismála. Ríkið myndi minnka mjög og auðveldara yrði að stjórna því. Alþingismenn þyrftu ekki að rökræða smáatriði í spítala- rekstri á sjálfu löggjafarþinginu. Ábyrgðin á rekstri sjúkrastofnana, eins og t.d. Fæðingarheimilis Reykjavíkur, myndi færast í hendur þeirra sjálfra. Þær gætu síðan lifað og dafnað ellegar dáið á eigin ábyrgð án aðstoðar ráðherra. Tryggingar einstaklinganna leysa málin Stefna sjálfstæðismanna í heil- brigðismálum, samþykkt á síðasta landsfundi, gerir ráð fyrir endurreisn sjúkratrygginga, sem yrðu á ný í höndum einstaklinga. Stefnan gerir ráð fyrir því að minnka í engu samfé- lagslega ábyrgð, heldur auka hana. Tryggingar yrðu áfram skylda og engir ótryggðir. Tryggingagjöld yrðu tengd tekjum og aðrir skattar lækkuðu sem þeim næmi. í byijun yrðu tryggingagjöldin væntanlega innheimt samhliða sköttum en vand- lega aðgreind frá tekjum ríkisins. Rekstur tryggingafélaga (sjúkra- samlaga) mætti vera í höndum sveit- afélaga, byggðasamlaga eða einka- tryggingafélaga. Aðalmálið er að ríkið komi hvergi nærri. Um leið og einstaklingar eru komnir með tryggingar í eigin hend- ur eru þeir orðnir borgunarmenn fyrir heilbrigðisþjónustu. Viðskipta- frelsi og valfrelsi er þar með komið á og einokun ríkisins útrýmt. Einok- un og valfrelsi fara aldrei saman. Svokallað velferðarkerfi með ríkis- einokun og miðstýringu tilheyrir lið- inni tíð. Við eigum nóg af góðu fag- fólki til að reka góðar stofnanir. Til að stofnanir séu góðar þurfa þær að vera sjálfbjarga, fjárhagslega sjálfstæðar, fjármagnaðar af þeim sem þær þjóna, tryggðum einstakl- ingum í raunverulegu mannúðar- þjóðfélagi. Hugvit og hagkvæmar lausnir fæðast um leið og við þorum að gefa sósíalismanum frí. Svo ein- falt er það. Höfundur er læknir og varaborgarfulltrúi íReykjavík. Ásmundur Brekkan hægt að veita bestu læknishjálp og aðhlynningu sem völ er á, má ekki glatast. Við þær fjárhagslegu og tæknilegu aðstæður sem spítalinn hefur mátt búa við um margra ára skeið, og nú hafa enn snarversnað, er það raunar kraftaverki næst að faglegur metnaður iæknaliðs hans og annars starfsliðs skuli ekki löngu vera niðurbrotinn. Ofangeindar at- hugasemdir sýna þó að svo er ekki. Á hinn bóginn er nú mál að linni og að uppbygging, jafnt innan sem ut- an, fái að verða. Höfundur er formaður læknaráðs Landspítalans. Kennslu- og vísindahlut- verk Landspítalans

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.