Morgunblaðið - 30.05.1992, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992
og í öðru lagi milljörðum — jafnvel
milljarðatugum — í almannafé. Alls
staðar hjá siðuðum þjóðum er sönn-
unarbyrði eignamyndunar einstak-
linganna sjálfra — ekki skattalög-
reglunnar. Erlendis kemur skatta-
lögreglan í heimsókn og biður menn
að gera grein fyrir eignamyndun
þeirra, ef hún er ekki í samræmi
við tekjur samkvæmt framtali.
Þetta eru mennirnir með vinnu-
konuútsvörin hér á landi.
Við stöndum frammi fyrir því
stórbrotna verkefni að færa með
einhverjum hætti vaxta- og verð-
bólgugróðann aftur til yngri kyn-
slóða þessa lands. Þetta hlýtur að
verða að gerast í gegnum skatta-
kerfið, með eignarsköttum, hærri
persónufrádrætti, breytilegum
skattþrepum eða þvílíku. Það er
ekki hægt að segja stopp einn góð-
an veðurdag árið 1979 og hengja
síðan afkomendurna. Það vita það
allir hvaða áhrif þetta skref hefur
haft á afkomumöguleika allra. Það
þarf ekkert að segja mér að þeir,
sem eiga uppkomin börn, viti ekki
í hvaða örðugleikum þau eru.
Gjaldþrot heimilanna blasa við
og einn þyngsti bagginn er að
kaupa mat — að fæða fjölskylduna
og klæða. Verð á matvöru á ís-
landi, sem hlutfall af launum, er
svívirðilega hátt.
Við getum tekið svo víða til hend-
inni áður en við förum að ráðast á
sjúkt fólk og kasta því út af spít-
ölum eins og gert hefur verið. Gott
dæmi um það er rándýr og gagnslít-
il utanríkisþjónusta. Það er enginn
að biðja okkur að vera með sendi-
ráð t.d. á Norðurlöndunum. Ég sé
engan mun á því að segja upp
nokkrum sendiherrum og að segja
upp fiskverkunarfólki. Raunar er
mér miklu sárara um fiskverkunar-
fólkið.
Enginn er því sammála að allir
flutningar á fólki og varningi að
og frá landinu skuli vera í eigu
nokkurra einstaklinga. Enginn.
Við verðum að taka fiskveiði-
stefnu þjóðarinnar til endurskoðun-
ar. Einhvers staðar fór eitthvað úr
skorðum þegar menn fóru að selja
fiskveiðiheimildir. Sala á kvóta og
sú tilfærsla á afkomumöguleikum
innan greinarinnar getur ekki átt
rétt á sér.
Stjarnfræðilegir möguleikar
En fyrst og fremst eigum við að
efla menntun og rannsóknir í land-
inu. Það er ekki nóg að vera íslend-
ingur og tala íslensku, menn verða
að geta sagt eitthvað af viti á ís-
lensku. Engin fjárfesting skilar sér
betur en menntun og ekkert eitt
atriði mun skila okkur lengra fram
á veginn en menntunin. Þar bíða
tækifærin.
Þau bíða líka í nýjum og spenn-
andi orkusölumöguleikum, í nýjum
og spennandi útflutningsmöguleik-
um í þjónustu, svo sem ferðaþjón-
ustu og fjársýsluþjónustu, í flutn-
ingum, tollfijálsum umskipunar- og
framleiðsluhöfnum, forritagerð,
heilbrigðisþjónustu og matvæla-
framleiðslu. Þau bíða í útflutningi
á þekkingu á sviði verkfræði, fisk-
veiða, virkjana, veðurfræði og þátt-
töku í verkefnum erlendis. Þau bíða
í kvikmyndagerð, listum, fatagerð
og listiðnaði, jafnvel skógerð úr
steinbítsroði.
En tækifærin bíða í unga fólk-
inu. Og án hlutverks hefur lífið lít-
inn tilgang. Þegar við höfum hlúð
að þessu hlutverki með því að rétta
hlut núverandi og komandi kyn-
slóða með nokkrum augljósum og
sanngjörnum breytingum á þjóðfé-
lagi okkar munum við halda áfram
að vera til og eiga samskipti á jafn-
réttisgrundvelli við allar þjóðir, öll
samtök þeirra og við allar þær að-
stæður, sem við kjósum.
Ég er ekki hræddur við að vera
Islendingur — en ég er hræddur
við að vera bara íslenskur.
Höfundur er markaðsstjóri.
Uppboð Sotheby’s og Barnaheilla:
Sérfræðmgiir Sotheb-
y’s í norrænni mynd-
list stýrir uppboðinu
ENGLENDINGURINN Michael Bing verður uppboðshaldari á upp-
boði Sotheby’s og Barnaheilla á Hótel Sögu sunnudaginn 31. maí.
Hann hefur verið uppboðshaldari lyá Sotheby’s í 10 ár og stjórnað
uppboðum víða í Evrópu á þeim tíma. Bing hefur sérhæft sig í
norrænni málaralist 19. og 20. aldar og ferðast mikið um Norður-
löndin í tengslum við störf sín, en hann er nú að koma til íslands
í fyrsta sinn.
Michael Bing segir að Sotheby’s
hafi verið stofnað árið 1744 og sé
í dag stærsta uppboðsfyrirtæki í
heiminum. Aðalstöðvar þess séu í
London en haldin séu uppboð á
vegum þess í flestum helstu borg-
um Evrópu, Bandaríkjunum, Japan
og Ástralíu.
Bing hóf störf hjá Sotheby’s
fyrir þrettán árum að loknu lista-
sögunámi við Lundúnaháskóla og
undanfarin 10 ár hefur hann verið
uppboðshaldari hjá fyrirtækinu.
Um leið er hann yfirmaður þeirrar
deildar fyrirtækisins, sem annast
sölu á 19. aldar málverkum frá
öðrum Evrópulöndum en Bretlandi
og hefur stjórnað uppboðum á þeim
í London, Amsterdam, Munchen
og Zurich. Hann hefur einnig sér-
hæft sig í norrænni list 19. og 20.
aldar og stýrt uppboðum á slíkum
verkum í London, New York og
Stokkhólmi.
Hann segir afar mikilvægt fyrir
uppboðshaldara að tryggja góða
reglu á uppboðunum þannig að þau
geti gengið snurðulaust fyrir sig.
Enn fremur þurfi þeir að vera at-
hugulir og glöggir á tölur en oft
reyni á hæfni þeirra til að reikna
í huganum. Sumir uppboðshaldar-
ar geri mikið til að sýnast á upp-
boðunum en sjálfur leggi hann
meira upp úr nákvæmni og fagleg-
um vinnubrögðum.
Michael Bing uppboðshaldari
Sotheby’s.
Bing hefur aðalaðsetur sitt í
London en segist ferðast mikið um
Evrópu vegna starfa sinna. Þannig
hafi hann ferðast töluvert á hinum
Norðurlöndunum. Þetta verði hins
vegar fyrsta heimsókn sín til Is-
lands og hlakki hann mikið til kom-
unnar.
I ÍSLENSKIR kjötdagar sem er
fýrsta fagkeppni í kjötiðnaði hér á
landi fer fram þessa dagana.
Keppnin er haldin á vegum Meist-
arafélags kjötiðnaðarmanna í sam-
vinnu við Rannsóknastofnun land-
búnaðarins og Markaðsnefnd land-
búnaðarins. Kjötmeistari 1992
vérður valinn og verðlaun fyrir
bestu kjötvörurnar afhent í húsa-
kynnum Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins laugardaginn 30. maí
kl. 16. Keppt er í fimm vöruflokk-
um: Hráum og soðnum kjötvörum
úr vöðvum, hrápylsum og geijuðum
pylsum, áleggspylsum, búðingum
og soðnum pylsum, kæfum og paté
og sérvörum og nýjungum. Keppnin
er sniðin eftir reglum Interfair-
keppninnar sem haldin er árlega í
Herning í Danmörku á vegum
meistarafélags kjötiðnaðarmanna
þar í landi. Rétt til þátttöku hafa
félagar í Meistarafélagi kjötiðnað-
armanna og sveinar þeirra ásamt
verkstjórum eða framleiðslustjórum
•f kjötvinnslufyrirtækjum innan Fé-
lags íslenskra iðnrekenda. Þátttaka
er afar góð. Alls skráðu 13 fyrir-
tæki sig í keppnina og 38 einstak-
lingar með 94 vörutegundum.
Nýkomið ótrúlegt m
úrval af fallegum ■
ítölskum 1
garðhúsgögnum. I
Margar stærðir og }
gerðir, henta vel í
garðinn, garðskálann
eða á svalimar. —
Vönduð húsgögn sem auðvelt er að
stafla og fara því vel í geymslu.
Aklæði og sessur í smekklegum litum,
Eigum einnig
RAINBOW
sumarhúsgögn úr /
sérstökum gæða m
harðviði, sem er ||
viðhaldsfrrr og getur
staðið úti allt árið.
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070,