Morgunblaðið - 30.05.1992, Side 25

Morgunblaðið - 30.05.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 25 Muniö spurningaleikinn á BVLG|UNNI laugardaginn 25. apríl, 9. maí, 23. maí og 6. júní á milli klukkan 15:00 og 1 7:00. ________aMatötum''® SÆKIÐ SUMARIÐ TIL OKKAR GRÓÐRARSTÖÐIN ^ITVIÖiK STJÖRNUGRÓF18, SÍMI814288 Hálendisferðir erlendra ferðaskrifstofa: Skylt verði að fá at- vinnuleyfi fyrir er- lenda leiðsögumenn - segir Halldór Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Safariferða hf. Talsmenn fyrir Hreinu lofti í heila viku. Þórðarson og Arni Einarsson. Morgunblaðið/Sverrir Frá vinstri: Þorvarður Ornólfsson, Helgi Guðbergsson, Geir Atak gegn tóbaksreyk og annarri loftmengun: Hreint loft í heila viku Mánudagurinn verði reyklaus dagur TÓBAKSVARNARNEFND vill vekja fólk til umhugsunar um loft- mengun og fá það til að stuðla að hreinna og ómengaðra andrúms- lofti og gengst fyrir átaki um „hreint loft í heila viku.“ Stefnt er að því að næstkomandi mánudagur verði reyklaus dagur. Nefndin hefur kallað fjölmarga aðila til samstarfs enda er Iitið til fjöl- margra atriða sem menga og forpesta andrúmsloftið. En forsvars- menn átaksins vöktu þó athygli fjölmiðlamanna á því að tóbaksreyk- ur væri stærsti mengunarvaldurinn á flestum vinnustöðum. Alþjóðlegi tóbaksvarnardagur- inn er haldinn árlega 31. maí. Á þessu ári vill Alþjóða vinnumála- stofnunin, WHO, helga daginn baráttunni fyrir reykleysi á vinnu- stöðum. Tóbaksvarnarnefndin íhugaði hvernig reykskýjunum yrði sem öflugast á brautu blásið á ís- landi. Allir ættu rétt á hreinu lofti. Varð það að ráði að leita eftir sam- starfi við fjölmarga aðila til að berjast gegn loftmengun og þá ekki einungis tóbaksreyk. Leitað var til samtaka atvinnulífsins, opinberra aðila, æskulýðsfélaga o.fl. Það varð sammæli að gera átak sem standa mun frá laugar- deginum 28. maí til föstudagsins 5. júní. Hreint loft í heila viku. Árni Einarsson var ráðinn sem framkvæmdastjóri átaksins og kynnti hann fulltrúum fjölmiðlanna hver áform eru til þess að hreinsa loftið. Átakið hefst í dag, laugar- dag, kl. 12 með heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins. Á sunnu- daginn er alþjóðlegi tóbaksvarnar- dagurinn. Á mánudag verður reyk- laus dagur og verður lögð höfuðá- hersla á reykleysi á vinnustöðum. Á þriðjudaginn verður athyglinni beint að mengunarvörnum í bílum en á miðvikudaginn verður litið til þeirra mengunar, heilsutjóns og umhverfisskaða sem hlýst af sorp- brennslu, sinubruna og vegna iðn- aðar. Á fimmtudeginum verður áherslan lögð á heilsufarsleg áhrif loftmengunar og athyglin mun beinast að þingi norrænna lungna- lækna sem verður haldið um þær mundir. Föstudagurinn 5. júní er alþjóðlegur umhverfisdagur og verður almenn umíjöllun um mengun og mikilvægi umhverfís- verndar. VINNINGUR í SUMARLEIK FJALLAHJÓLABÚÐAjHNNAR KOM A MIÐA NUMER Á blaðamannafundinum voru einnig tveir nefndarmanna í tób- aksvarnarnefnd, Þorvarður Örn- ólfsson framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélagsins og Helgi Guðbergs- son forstöðulæknir atvinnu- og umhverfissjúkdómadeildar Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur. Nefndarmenn lögðu mikla áherslu á að það væru mannréttindi að anda að sér hreinu lofti og að tóbaksreykur væri stærsti mengunarvaldurinn á flestum vinnustöðum og mikið vantaði á að markmið gildandi tóbakslaga um að starfsmenn sem ekki reyktu yrðu ekki fyrir skaða og óþægind- um af völdum tóbaksreyk á vinnu- stað sínum. Geir Þórðarson formaður starfs- mannafélags íslandsbánka greindi frá því að tekist hefði samvinna milli starfsmannafélagsins og stjórnenda bankans um það að stefna að reyklausum banka fyrir árið 2000. Könnun meðal starfs- manna hefði sýnt að 80% væru fylgjandi því að gera átak í þessu máli. Nú þegar væru tvö útbú bankans og nokkar deildir reyk- laus. Geir vildi að það kæmi fram að ekki væri verið að ráðast gegn reykingamönnum heldur heilsu- spillandi loftmengun. Tryggja rétt þeirra sem ekki reyktu. HALLDÖR Bjarnason, fram- kvæmdasljóri Safariferða hf., seg- ir að gera verði erlendum ferða- skrifstofum skylt að fá atvinnu- leyfi fyrir starfsfólk sitt hér á landi og sitja þannig við sama borð og íslenskar ferðaskrifstof- ur. Hann segir erlendu ferðaskrif- stofurnar hafa getað boðið lægri verð á hálendisferðum, m.a. vegna lægri launakostnaðar, og því hafi markaðshlutdeild þeirra farið sí- vaxandi undanfarin ár. í grein sem birtist í Morgunblaðinu á miðvikudag leggur Gunnlaugur Eiðsson leiðsögumaður til að leið- sögumenn, a.m.k. í öræfaferðum, taki á sig 10% kauplækkun í sumar frá því sem var í fyrra til þess að halda atvinnu og hafa tekjur. Halldór Bjarnason sagði í samtali við Morgunblaðið að auðvitað væri laun- alækkun leiðsögumanna vel þegin, en hitt væri þó eðlilegra að erlendar ferðaskrifstofur væru látnar sitja við sama borð og þær íslensku og borga þau laun sem eru á íslenskum mark- aði. „Það virðist vera þannig að erlend- ar ferðaskrifstofur komist upp með að flytja til landsins erlent starfslið, sem fær borgað litil sem engin laun fyrir að vera fararstjórar í ferðum um hálendi íslands og kokkar í tjald- ferðum, en á sama tíma borgum við auðvitað full laun og launatengd gjöld. Þetta gerir okkar samkeppnis- aðstöðu ákaflega ójafna. Fyrir utan þetta er svo margumtalaður innflutn- ingur ferðaskrifstofanna á matvæl- um í nafni farþeganna, sem þær selja þeim síðan eldaðan af þessum launalausu eða launalitlu kokkum. Eina raunhæfa hugmyndin er því auðvitað sú að erlendum ferðaskrif- stofum verði gert skylt að fá atvinnu- leyfí fyrir það starfsfólk sem vinnur fyrir það hér á landi, og þá auðvitað borga því sömu laun og íslenskar ferðaskrifstofur borga sínu starfs- fólki,“ sagði hann. Signý Guðmundsdóttir hjá ferða- skrifstofu Guðmundar Jónassonar hf. sagði að það væri ákveðið vandamál þegar reynslulaust fólk fengi undan- þágur til að stjóma erlendum ferða- hópum hér á landi. Reyndar hefði verið það mikill skortur á íslenskum leiðsögumönnum, að jafnvel þó er- lendu ferðaskrifstofurnar hefðu vilj- að fá þá til starfa þá hefði það ekki tekist. „Til að leysa þetta mál þarf því að mennta fleira fólk innanlands og banna það að reynslulausir útlend- ingar fái undanþágu til starfa hér á landi, en eftir því sem ég best veit hafa ekki verið gefnar undanþágur til starfa nema vegna þess að ekki hefur verið hægt að fá íslenskt fólk,“ sagði hún. HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 5820 Tré á íslandi Lauftré Hraustar og fallegar plöntur eru aðalsmerki okkar. Garðtré, skrautrunnar og limgerðisplöntur í miklu úrvali. Ráðleggjum um plöntuval. Sendum plöntur hvert á land sem er. Fáið vandaðan garðræktarbækling með plöntulista - ókeypis ILMBJÖRK EÐA BIRKI. (Betula pubescens) Birld er islenskt tré sem er mjög breytilegt eftir landslllutuni. oft kræklótt. Vinsælt garðtré og notað í limgerði. Gróðrarstððin Mörk tekur virkan þitt i verkefni um kynbætur i birki í samstarfi við vísindastofnanir og þegar hefur niðst umtalsveiður írangur í frærækt. ILMREYNIR. (Sorbus aucuparia) Heimkynni hans er Mið-Evrópa og Asía. Vfex einnig villtur i íslcnskum skógum. Tréð verður oft margstofna eða með greinamikfa krónu og er með algengustu garðbjim hér. Harðgert tré en þolir Ula sjávarseltu. Blómin hvit iimandi i stórum svcipum i júni og rauð aldin i haustin. Fallegir haustlitir. FJALLAGULLREGN. (Laburnum alpinum) Hebnkynni fjallagullrcgns er í pium Suður Evrépu. Það er litið tré sem með aldrinum verður alsetið gulum blómklösum fjónijilf. Aldininsemcrusmibaunirerueitruð. Þaðkýs frekar að vaxa í þurrum sendnum jarðvegi og er þi aiihaiðgerL Nútlðlnnl Faxafenl'llVltlínl 68 55 80

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.