Morgunblaðið - 30.05.1992, Síða 26

Morgunblaðið - 30.05.1992, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 Kennaraháskóli Islands: Afmælisrit tileinkað Jónasi Páls- syni fyrrver- andi rektor KENNARAHÁSKÓLI íslands hef- ur ákveðið að gefa út afmælisrit tileinkað Jónasi Pálssyni, fyrrver- andi rektor skólans, en hann verð- ur sjötugur í haust. í ritinu verða tuttugu greinar eftir kennara á ýmsum skólastigum, þar sem fjall- að verður um íslenska skólastefnu og stöðu skólans í samfélaginu. í fréttatilkynningu frá Kennara- háskólanum kemur fram að Jónas Pálsson hafí um Iangt árabil haft afskipti af íslenskum skólamálum og víða komið við. Hann hafí skipu- lagt og stjórnað sálfræðiþjónustu í skólum Reykjavíkur, um árabil verið skólastjóri Æfínga- og tilraunaskóla KHÍ og seinast rektor Kennarahá- skólans. í afmælisritinu verði fjallað um íslenska menntastefnu frá ýms- um hliðum og meðal annars reynt að svara spurningum á borð við þess- ar: Hver er staða skólans í samfé- lagi okkar? Hvers konar menningu miðlar hann? Til hvers er ætlast af honum? Hver eru tengsl heimilis og skóla? Enn fremur verði vikið að stöðu kennarans og til hvers sé ætl- ast af honum. í ritnefnd afmælisritsins sitja Hjalti Hugason, Indriði Gíslason og Ólafur H. Jóhannsson. Þá kemur fram í fréttatilkynning- unni, að afmælisritið verði fyrsta hefti Tímarits Kennaraháskóla Is- lands. Þar sé ætlunin að fjalla á faglegan hátt um uppeldis- og menntamál, huga að tilrauna- og þróunarstarfserni og kynna nýjungar á þessu sviði. Áætlað sé að tímaritið komi út einu sinni á ári. Morgunblaðið/Svemr Nýstúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík, er brautskráðir voru í fyrradag, stilla sér upp fyrir myndatöku við suðurenda Háskólans. 177 nýstudentar frá Mernitaskólan- um í Reykjavík á uppstigningarda^ Rúmar 26,4 milljónir fyrir 2. áfanga Artúnsskóla BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að taka 26.441.432 milljón króna tilboði lægstbjóðanda Amars Ulf- ars Andréssonar, í 2. áfanga Ártúnsskóla. Tilboði er 85,07% af kostnaðaráætlun, sem er 31.082.000 milljónir króna. Þijú tilboð bárust í verkið og átti Al-verk hf. næst lægst boð rúmar 27 millj. eða 87,29% af kostnaðará- ætlun. Ártak hf., bauð rúmar 28 millj. eða 91,10% af kostnaðaráætl- un. SKÓLASLIT og brautskráning stúdenta frá Menntaskólanum í Reykjavík átti sér stað við hátíð- lega athöfn í Háskólabíói á upp- stigningardag. Við upphaf at- hafnarinnar söng kór skólans undir stjórn Þórunnar Guð- mundsdóttur. Rektor Mennta- skólans, Guðni Guðmundsson, flutti yfirlit yfir starfsemi skól- ans, og afhenti prófskírteini og verðlaun til nýstúdenta og rem- anenta. Þá flutti rektor ávarp til nýstúdenta. Einnig héldu afmæl- isstúdentar ræður og færðu skól- anum gjafir. Að því loknu sagði rektor starfsári Menntaskólans í Reykjavík lokið og skólanum var slitið í 146. sinn. Rektor hóf ávarp sitt með því að minnast Hildar Hjörleifsdóttur, nemanda í 6. bekk, er lést á árinu. í yfirliti rektors um skólastarfið kom meðal annars fram að hús- næðismál væru nú í betra lagi en oft áður, en aðeins þyrfti að kaupa tvö hús og lóðir á torfunni tíl að byggja mætti íþróttahús og kennsl- ustofur fyrir skólann. Skólinn var settur 2. .september í Dómkirkjunní og hófst kennsla E ' sápfíi ' ,:ÉsMk Bkgr £4 .. Álfasala S AÁ er hafin HIN árlega Álfasala SÁÁ hófst í gær og stendur fram á sunnu- dag. Álfurinn er Iítill og loðinn karl, appelsínugulur á lit með bláan hatt og hvíta fjöður og kostar 400 krónur. Álfurinn er seldur til fjáröflunar fyrir SÁÁ. Að þessu sinni er ætlun- in að veija hagnaðinum af sölu Álfsins til að auka forvamir í þágu ungs fólk um allt land og til að efla ráðgjöf og meðferð fyrir unga alkóhólista. Rúmlega 500 þeirra sem komu í meðferð á Vogi í fyrra voru 29 ára eða yngri. Þar af voru 106 yngri en 20 ára. Ungu fólki í með- ferð hefur stöðugt farið fjölgandi undanfarin ár. Því telur SÁA brýnt að efla forvamastarf fyrir ungt fólk. Stofnuð hafa verið samtök Ungs fólks í SÁÁ og eru félagar nú 70 talsins, allt ungir alkhólistar í bata. Þetta unga fólk tekur virkan þátt í skipulagningu og sölu Álfsins að þessu sinni. Þórarinn Tyrfingsson selur Jóni Baldvin Hannibalssyni, utanrík- isráðherra, álf sem seldur er til styrktar SÁÁ. Sölufólk SÁÁ verður á ferðinni um allt land og fram á sunnudag og vonast SÁA til að Álfurinn fái góðar viðtökur. W$k : " ÆSfÆmk. . i Baldur Steingrímsson. daginn eftir. Að afloknu fyrra miss- eri, 19. desember, var jólaleyfi til 6. janúar, er skólastarf hófst að nýju. Haldið var upp á 145 ára af- mæli skólans á útmánuðum. Innritaðir nemendur voru í upp- hafi skólaárs 903 talsins, 283 í þriðja bekk, 230 í fjórða bekk, 208 í fímmta bekk og 182 í sjötta bekk. Stúlkur voru 127 fleiri en piltar. Til prófs í vor gekk 881 nemandi, 701 til millibekkjaprófa og 180 til stúdentsprófs. Við skólann störfuðu alls 74 kennarar, en þó aldrei fleiri en 72 samtímis. Fastir kennarar voru 39. Af alls 177 stúdentum voru 55 brautskráðir úr máladeild, 67 úr eðlisfræðideild og 55 úr náttúm- fræðideild. Níu nemendur hlutu ágætiseinkunn, 71 hlaut I. einkunn, 72 hlutu II. einkunn, 25 hlutu III. einkunn, og þrír nemendur stóðust ekki. Dúx árgangsins er Baldur Stein- grímsson, 6. X, með ágætiseinkunn 9,38. Semi-dúx varð Katrín Ásta Gunnarsdóttir, 6. X, ágætiseinkunn 9,35. Aðrir nemendur 6. bekkjar, sem hlutu ágætiseinkunn, vom Matthildur Sigurðardóttir, 6. R, ág. 9,24, Einar Agústsson, 6. X, ág. 9,11, Ingibjörg Jóna Guðmunds- dóttir, 6. M, ág. 9,09, Anna Mar- grét Halldórsdóttir, 6. S, ág. 9,06, og Björg Þorsteinsdóttir, 6. X, Jó- hann EIí Guðmundsson, 6. S, og Guðlaug Kristjánsdóttir 6. C hlutu Katrín Ásta Gunnarsdóttir. ág. 9,05. Hæstu einkunn remanenta hlaut Sædís Sævarsdóttir, 3. F, ágætis- einkunn 9,41. Er hún dúx scholae. Aðrir remanentar, er hlutu ágætis- einkunn, voru Lena R. Ásmunds- dóttir, 3. O, ág. 9,36, Ingileif Hall- grímsdóttir, 4. X, ág. 9,27, Anna Guðmundsdóttir, 4. Y, og Svanhild- ur D. Ólafsdóttir, 3. B, ág. 9,27, Auður Jóhannesdóttir, 3. A, og Hjördís Sigurðardóttir, 3. I, ág. 9,18, Gunnar M. Zoega, 5. M, ág. 9,13, Ingólfur Ágústsson, 4. T, ág. 9,12, Hildur Pálsdóttir, 5. S, ág. 9,04, Hildur Ingvarsdóttir, 3. E, og Birgir A. Briem, 3. O, ág 9,00. Afhentur var fjöldi bóka- og pen- ingaverðlauna. Bæði vom verðlaun- aðir nemendur sem sköruðu fram úr, remanentar og nýstúdentar, svo og embættismenn. Verðlaunin vom veitt úr ýmsum sjóðum, frá sendi- ráðum og ræðismönnum, fyrirtækj- um og félagasamtökum, og frá skólanum sjálfum. Þegar rektor hafði lokið ávarpi sínu til nýstúdenta, tóku til máls fulltrúar eldri stúdenta. Fyrir hönd 60 ára stúdenta talaði Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi íþróttafull- trúi. Jón Aðalsteinn Jónsson, fyrr- verandi orðabókarritstjóri, tók til máls fyrir hönd 50 ára stúdenta, og fyrir hönd 40 ára stúdenta tal- aði Guðmundur Pétursson, for- stöðumaður á Keldum. Að vanda talaði fulltrúi 25 ára stúdenta síð- astur, og var það Auður Sveinsdótt- ir, landslagsarkitekt. Færðu fulltrú- arnir skólanum ýmsar gjafir fyrir hönd árganga sinna. Rektor þakkaði afmælisstúdent- um hlý orð, góðar gjafir og vinar- þel, og að því loknu sagði hann Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 146. sinn. Baldur Steingrímsson, dúx Dúx árgangsins var Baldur Steingrímsson, 6. X, með ágætis- einkunn 9,38. Blaðamaður Morgun- blaðsins náði tali af honum eftir athöfnina, og lék forvitni á að vita hvernig farið væri að því að dúxa. „Það er nú bara að stunda nám sitt vel og lesa samviskusamlega,“ svaraði Baldur hógvær. „Mest er um vert að halda jafnvægi og gera sitt besta.“ — En hvað stendur nú fyrir dyr- um að afloknum þessum áfanga? „Ég ætla í rafmagnsverkfræði og eðlisfræði í háskólanum. Að því loknu býst ég við að fara í fram- haldsnám til útlanda, þótt ekki sé ég búinn að ákveða hvar.“ Blaðamanni varð litið á bóka- staflann sem hinn nýbakaði stúdent hélt á, og spurði hversu mörg verð- laun hann hefði hlotið. „Mér telst nú til að hér séu fimm bækur og fjögur umslög,“ svaraði Baldur, og vildi síst gera mikið úr. Katrín Ásta Gunnarsdóttir, semi-dúx Aðspurð um leyndarmálið á bak við ágætiseinkunnina 9,35 svarar Katrín Ásta Gunnarsdóttir, semi- dúx, að það sé einfaldlega að læra samviskusamlega. Blaðamaður þrýstir á og spyr hvort maður þurfi ekki að vera svolítill „kúristi". Katr- ín Ásta hlær við og viðurkennir að sumir líti eflaust þannig á. — En hver eru framtíðaráform- in, hyggurðu á frekara nám? „Já, ég ætla í rafmagnsverkfræði við Háskóla íslands og sjá hvernig það á við mig.“ — Hvernig varð þér við þegar þú heyrðir að þú værir semi-dúx? „Ég vissi ekki af þessu fyrirfram, svo það kom mér á óvart þegar ég heyrði það,“ sagði Katrín. Aðspurð kvaðst hún hafa hlotið átta verð- laun. Katrín Ásta kvaðst munu halda upp á áfangann með fjöl- skylduboði hjá afa sínum og ömmu. -GL.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.