Morgunblaðið - 30.05.1992, Page 28

Morgunblaðið - 30.05.1992, Page 28
MOKGUNiBLAtílÐ LAUGARDAGUR 30. MAI 1992 Honecker ekki afhentur strax Patricio Aylwin, forseti Chile, hafnaði í gær kröfu Þjóðverja um að Erich Honecker, fyrrum leiðtogi Austur-Þýskalands, sem dvelst í sendiráði Chile í Moskvu, yrði afhentur þýskum stjómvöldum þegar í stað. Hafði aðstoð- arutanríkis- ráðherra Þýskalands afhent forset- anum bréf frá Helmut Kohl kanslara á miðvikudag þar sem slík krafa var sett fram í kjölfar þess að formleg ákæra hafði komið fram í máli Honec- kers. Aylwin sagði í yfirlýsingu að hann hefði alls ekki í hyggju að leyfa Honecker að vera til eilífðar í sendiráðinu en sam- kvæmt samningum sem Chile hefði gert við Rússland og Þýskaland yrði að taka mál hans fyrir hjá rússneskum dóm- stól áður en hægt væri að af- henda hann Þjóðveijum. Þúsundir flýja heimilisín Sex þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín á suðurhluta Kúbu eftir öflugan jarðskjálfta á mánudag. Jarðskjálftinn, sem mældist 6,3 á Richterkvarðan- um, er sá öflugasti á Kúbu síð- an 1962. 760 íbúðir og 50 skrif- stofubyggingar skemmdust að sögn yfirvalda og fímmtíu manns særðust í skjálftanúm. Schmidt segir Ríóráðstefnuna prúttsamkomu Helmut Schmidt, fyrrum kansl- ari Vestur-Þýskalands, sagði í gær að umhverfísráðstefna Sameinuðu þjóðanna væri „haliærisleg prúttsam- koma“ milli þróaðra og vanþróaðra ríkja o g að litl- ar líkur væru á að hún myndi skila einhveijum árangri. Gagnrýndi hann það mjög að ekki yrði rætt nógu mikið um fólksfjölg- un í heiminum á ráðstefnunni og sagði að ef ekkert yrði gert í þeim efnum væri ólíklegt að mannkynið myndi verða til í lok næstu aldar. Lét Schmidt þessi orð falla í setningarræðu ráð- stefnu samtaka sem nokkrir fyrrum þjóðarleiðtogar standa Górbátsjöv gagnrýnir stjórri Jeltsíris hárðle'ga;' Varar við óstjóni og einræðis- tílhneigingum Rússlandsforseta Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, gagnrýn- ir rússnesku stjórnina harðlega í viðtali sem birtist í rússneska dagblaðinu Komsomolskaja Pravda í gær. Hann sagði að stefna sljórnarinnar gæti haft hörmulegar afleiðingar fyrir efnahag Rúss- lands og leitt til alvarlegra óeirða. Hann gaf jafnframt til kynna að hann væri staðráðinn í að taka virkan þátt í rússneskum stjórn- málum og beijast gegn „einræðistilhneigingum“ Borís Jeltsíns Rússlandsforseta, eins og hann komst að orði. Þetta er í fyrsta sinn sem Gorbatsjov gagnrýnir sljórn Jeltsíns, en áður hafði hann lofað að beita sér ekki gegn henni svo hún gæti komið á nauðsyn- legum umbótum. „Valdamennirnir kunna að rífa niður en þeir hafa ekki enn sýnt að þeir geti byggt upp,“ sagði Gorbatsjov í viðtalinu. „Ég spái því að þetta hafí hrikalegar póli- tískar og efnahagslegar afleiðing- ar... Það má búast við spreng- ingu hvenær sem er, alþýðan er að missa þolinmæðina." Gorbatsjov sagði að aðgerðir stjórnarinnar í fjármálum hefðu leitt gjaldþrot yfír búgarða og fyr- irtæki í landinu og valdið gífurleg- um samdrætti í framleiðslu. Leið- togar fyrrum lýðvelda Sovétríkj- anna, sem stofnuðu Samveldi sjálf- stæðra ríkja, hefðu það aðallega að markmiði að halda í gamla skrifræðið frá valdatíma kommún- ista. Gorbatsjov kvaðst ekki vilja að stjómin segði af sér, heldur að hún breytti um stefnu. Hann sakaði Jeltsín um einræðistilburði og sagði stjórnina ekki hafa samráð við neina þar sem hún teldi sig vita allt betur en aðrir. Frá því Gorbatsjov sagði af sér sem forseti Sovétríkjanna 25. des- ember hefur hann hvatt Rússa og erlend ríki til að styðja umbóta- stefnu rússnesku stjórnarinnar og verið tregur til að gagnrýna hana opinberlega. Náinn samstarfsmað- ur hans sagði í gær að forsetinn fyrrverandi væri nú þeirrar skoð- unar að tímabært væri að láta í sér heyra til að vara við hættunum, auk þess sem honum fyndist að Borís Jeltsín væri að reyna að koma honum á kné. Jeltsín og liðsmenn hans sæta nú æ harðari gagnrýni fyrrverandi stuðningsmanna, til að mynda manna sem gengu til liðs við hann í Hvíta húsinu í Moskvu þegar harðlínukommúnistar reyndu að ræna völdunum í ágúst. Þeir saka Jeltsín um „ný-bolsévisma“, segja hann knýja fram efnahagslegar breytingar án þess að huga að þjóðfélagslegum afleiðingum þeirra og áhrifum til lengri tíma litið eins og bolsévíkar gerðu eftir að þeir brutust til valda 1917. Gorbatsjov kvaðst ætla að halda áfram að hvetja erlend ríki til að styðja stjórn Jeltsíns en áskildi ser rétt til að vara við hættunum. „Ég hef ekki sagt skilið við stjómmál- in.“ Þegar hann var spurður hvort hann hefði ekki svikið loforð sitt um að beita sér ekki gegn stjórn Jeltsíns svaraði hann: „Jeltsín er enginn Jesús Kristur og ég þarf ekki að veija gerðir mínar fyrir honum.“ Tékkóslóvakía: Mengunin kostar 50 milljarða Washington. Reuter. EF takast á að draga úr mengun og koma umhverfismálum í Tékkóslóvakíu í viðunandi horf þarf að verja til þess meira en 50 milljörðum dollara. Er frá þessu skýrt í nýjasta fréttabréfi Alþjóðabankans. „Tékkóslóvakía er eitt mengað- asta land í heimi og margir áratug- ir munu líða áður en bætt verður fyrir mestu umhverfísslysin,“ segir í fréttabréfinu en bankinn hefur ákveðið að lána Tékkóslóvökum 246 milljónir dollara til að minnka brennisteinstvísýrings- og ryk- mengun frá iðjuverum. Er hún gíf- urleg enda eldsneytið yfírleitt brúnkol og allur skógur á stórum svæðum í Bæheimi er nú dauður. Romanov erkihertogi jarðsettur Reuter Vladímír Kírilovitsj Ro- manov erkihertogi var borinn til grafar í Péturs- borg í gær. Hertoginn kom í fyrsta sinn til Rúss- lands í nóvember síð- astliðnum eftir valdaránið misheppnaða. Hann lést í síðasta mánuði er hann var í fríi í Flórída. Hertog- inn, sem fæddist bylting- arárið 1917, varð höfuð ættar sinnar árið 1938 er faðir hans, Kírill Vladím- íróvitsj, frændi Nikulásar II, lést. Útförin í gær var látlaus en meðal við- staddra voru ekkjan Leo- nída og dóttirin María. Kistunni var búinn staður í gólfi nýuppgerðrar kap- ellu við hlið dómkirkju Péturs og Páls í Péturs- borg. Vottar Jehóva kenndu mér að. Króna tekin upp í Eistlandi NÝR gjaldmiðill verður tekinn upp í Eistlandi ásamt rússnesku rúblunni og verður hann nefnd- ur króna eða „kroon“. Verður upplagið takmarkað til að byija með og aðeins notað þegar rúbluseðlana skortir. Ekki var tilkynnt hvenær krónan kæmi í umferð. Árás á forseta- þotu í Kabúl SIBGHATULLAH Mojadidi, forseti Afganistans, slapp ómeiddur þegar skotið var á þotu hans í gær. Þotan var í 100 metra hæð og var að lenda á flugvellinum í Kabúl þegar árásin vargerð. Skemmdir urðu á nefi þotunnar og annar flug- mannanna særðist en hinum tókst að lenda henni. að ljúga o g brjóta landslög - segir Norðmaðurinn Joseph Wilting sem skrifað hefur bók um reynslu sína af safnaðarstarfinu FYRRUM frammámaður Votta Jehóva í Noregi hefur gefið út bók þar sem hann dregur upp ófagra mynd af innviðum trúfélagsins. Segir hann að söfnuðurinn hafi sitt eigið dóms- og viðurlagakerfi sem valdi því að réttum yfirvöldum í Noregi sé ekki skýrt frá refsi- verðum verknaði eins og eiturlyfjaneyslu og sifjaspelli. Ennfremur nefnir höfundur að þrjátíu menn sem hann þekkir hafi framið sjálfs- morð í kjölfar lífsreynslu sem þeir öðluðust í trúfélaginu. Höfundur bókarinnar „Ríkið sem aldrei kom“ heitir Joseph Wilting og býr í Langasundi í Þelamörk. I fjörutíu ár hefur hann verið félagi í Vottum Jehóva, þar af þijátíu ár sem forstöðumaður og öldungur í söfnuðum í Austur-Noregi. Wilting ræðst í bókinni á hugmyndafræði Votta Jehóva og hugmyndir þeirra um manninn. Að sögn norska dag- blaðsins Aftenposten, sem fjallar ítarlega um bókina, er þetta í fyrsta sinn sem fyrrverandi frammámaður Votta Jehóva á Norðurlöndum skrifar bók um reynslu sína af safn- aðarstarfinu. „Ég saka leiðtoga Votta Jehóva um ábyrgðarleysi og að hafa gert mig að dómara og böðli,“ segir Wilting. Vísar hann til þess að í mörg ár átti hann sæti í dómstól safnaðar síns. Þar hafi hann ásamt fleirum tekið fyrir afbrot trúbræðra sinna án þess að vera í raun fær um að ijalla um slík mál. „Ég minn- ist þess að þegar um kynferðisaf- brot var að ræða þá gerðist það að „syndarinn" fékk alvarlegt taugaá- fall. Sumir meðdómenda minna sættu sig ekki við þá skýringu að viðkomandi hefði misst stjórn á sér. Oft á tíðum, einkum þegar konur höfðu brotið af sér, vildu dómararnir, sem allir voru karlar, fá nákvæma lýsingu á hinum synd- samlega verknaði," segir Wilting. Viðurlög við sektardómi eru ætíð útskúfun. Aðrir í söfnuðinum og ættingjar ef því er að skipta líta þá á brotamanninn sem látinn. Sjálfur hefur Wilting rekið sig á þetta því eftir að hann gekk úr söfnuðinum ásamt eiginkonu og fjórum börnum hafa ættingjarnir, sem eftir voru, rofíð öll tengsl. Wilting sakar leiðtoga Votta Je- hóva um að hafa kennt sér að ljúga og bijóta landslög. Trúfélagið gætti þess nefnilega að loka sig af fyrir umheiminum og halda vandlega leyndu öllu misjöfnu, sem innan vébanda þess gerðist. Þess vegna I sé norskum yfirvöldum ekki skýrt frá afbrotum sem tengjast safnað- armeðlimum eins og fíkniefna- { neyslu og kynferðisafbrotum. Leið- togarnir segi að rétt sé að leyna fjendur Guðs sannleikanum. Wilting nefnir ennfremur að starfi félagi í söfnuðinum á lækna- eða lögmannsstofu þá beri honum að láta öldungum safnaðarins í té allar upplýsingar um aðra félaga jafnvel þótt slíkt stangist á við trún-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.