Morgunblaðið - 30.05.1992, Qupperneq 29
MORGUNELAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992
29
Civic hefur verið endurhannaður með
nýjar kröfur samtímans í huga. Nútímabílar
þurfa að vera kraftmiklir og þægilegir, en
jafnframt taka tillit til umhverfisins.
Efnin sem notuð eru í Civic eru 80%
endurvinnanleg sem hefur mikið að segja
þegar horft er til framtíðarinnar. VTEC er
nýjung í Civic sem opnar ventlana í
hlutfalli við snúningshraða vélarinnar.
Þessi tækni dregur mjög úr mengun og
eyðslu en eykur kraft vélarinnar.
Civic er búinn skemmtilegum innrétt-
ingum. Hver hlutur er á hinum eina rétta
stað. Sætin eru mjúk og þægileg.
Civic fellur undir reglugerð um virðis-
aukaskatt og fæst því einnig án vsk.
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24,
mánudaga til föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
Verð frá: 969.000,- stgr.
Verð frá: 778.313,- stgr. án VSK
Greiðslukjör við allra hæfi.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, sími
671800
Mú er fjör í bílaviðskiptum!
Vantar á skrá og á staðinn
allar gerðir af nýlegum
bílum.
OPIÐ SUNNUDAG
KL. 14 - 18
Mercury Cougar sport '83, blár, sjálfsk.
ek. 120 þ., rafrúöur, krómfelgur, V6-2.8,
eðalvagn. V. 830 þús., skipti á ód.
MMC Colt GLX '90, blásans, 5 g., ek. 30
., rafm. í rúðum o.fl. V. 850 bús.. sk. á ód.
Renault 21 Nevada GTX 4x4 station '90,
Ijósblár, 5 g., ek. 72 þús., rafm. í öllu, o.fl.
V. 1.120 þús. Sk. á ód.
Joseph Wiiting ber Vottuin Je-
hóva ekki vel söguna í bók sem
nýlega kom út í Noregi.
aðarskyldur í starfi. Guðs lög séu
lögum mannanna æðri. En í raun,
segir Wilting, koma „Guðs lög“ frá
höfuðstöðvum trúfélagsins i Brook-
lyn í New York.
Toyota Corolla XL Liftback '88, rauður, ek.
aðeins 46 þ., samlitir stuðarar, o.fl.
V. 680 þús. stgr.
Ford Escort XR3i ’88, svartur, 5 g., ek. 54
þ., ABS, sóll. o.fl. V. 980 þús., sk. á ód.
Peugout 309 XE ’88, 5 g., ek. 26 þ. Gullfal-
legt eintak. V. 480 þús. stgr.
Daihatsu Charade TS ’88, ek. 51 þ., 4ra
g. Fallegur bíll. V. 490 þús.
M. Benz 230 E ’81, sjálfsk., sóllúga, álfelg-
ur. Gott eintak. V. 620 þús., sk. á ód.
Chevroiet Biazer K-5, Silverado '83,
sjálfsk., 6,2 disel m/öllu. Toppeintak. V.
1050 þús., sk. á ód.
Chevrolet Suburban Silverado ’83, sjálfsk.,
ek. 75 þ., krómfelgur, upphækk., 36" dekk,
spil o.fl. Glæsivagn. V. 1490 þús., sk. á
ódýrari.
Daihatsu Charade Sedan SG ’90, 5 g., ek.
18 þ. Mjög fallegur bíll. V. 750 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade CX trubo look '87, ek.
45 þ., 5 g., 5 dyra, álfelgur o.fl. V. 460 þús.,
skipti á dýrari.
Honda Prelude 2,0i-16v, 4ws ’88, gullsans,
m/öllu, 5 g., ek. 60 þ. Glæsilegt eintak.
V. 1080 þús. stgr.
Reuter
Eldgos í Japan
Ferðamenn virða fyrir sér þykkan mökk frá eldgosi í Unzen-eldfjall-
inu í suðvesturhluta Japans í gær. Eldgosið kostaði 40 manns lífið
fyrir tæpu ári.
Tékkóslóvakía:
Yinstriflokkarnir
sækja í sig veðrið
Prag. Reuter.
SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun hafa vinstrimenn sótt í sig
veðrið fyrir þingkosningarnar í Tékkóslóvakíu á föstudag og laug-
ardag, en þær gætu ráðið úrslitum um hvort sambandsríkið heldur
velli.
Samkvæmt könnuninni nær
enginn flokkur meirihluta á þingi.
Könnunin gefur til kynna að
vinstriflokkar hafi aukið fylgi sitt
í tékkneska hluta landsins og að
vinstri- og þjóðernismenn fái veru-
legt fylgi í Slóvakíu.
Lýðræðisflokkur Vaclavs Havels
fjármálaráðherra, sem er hægri-
flokkur, og bandamenn hans í
Kristilega demókrataflokknum,
eru með forystuna í tékkneska
hlutanum, með um 20% fylgi.
Vinstrisamsteypan, sem fyrrver-
andi kommúnistaflokkur Bæheims
og Mæris á aðild að, er hins vegar
í öðru sæti, með 12-13%. Á eftir
honum koma tveir aðrir vinstri-
flokkar, Sósíal demókratar og
Frjálslynda sósíalsambandið.
Vinstriflokkarnir þrír gætu fengið
tæp 30% þingsæta í tékkneska
hlutanum.
í Slóvakíu skera þrír flokkar sig
úr hvað fylgi varðar og þeir beij-
ast allir fyrir aukinni sjálfstjórn
lýðveldisins. Hreyfing fyrir lýð-
ræðislegri Slóvakíu (HZDS), sem
er vinstriflokkur, er með 28% fylgi
samkvæmt könnuninni og Flokkur
lýðræðislegra vinstrisinna (fyrr-
verandi kommúnista) 13%. Slóvak-
íski þjóðernisflokkurinn (SNS),
sem vill að Slóvakía lýsi tafarlaust
yfir sjálfstæði, er í þriðja sæti.
Aðhaldsaðgerðir í Flórída:
Kennurum sagl upp og
fjölgað í bekkjum til
að lækka launakostnað
Fógetar stytta vinnuvikuna til að spara
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKIL fjárhagsvandræði og greiðsluhalli eru viðfangsefni
flestra ríkja og sveitarfélaga í Bandaríkjunum. Þing flestra
ríkjanna hafa á undanförnum mánuðum endurskoðað fjárlög
sín og gert tillögur um niðurskurð á fjölmörgum sviðum i
tilraunum til að ná endum saman fjárhagslega.
í Flórída hefur. verið fyrirskip-
aður samdráttur á flestum svið-
um stjórnsýslunnar. Er það gert
með ýmsum hætti, sem oft er
æði nýstárlegur í augum þeirra
sem alist hafa upp og lifað í evr-
ópsku velferðarþjóðfélagi.
Dómsmálayfirvöld í mörgum
sýslum Flórídaríkis riðu á vaðið
og skáru niður þjónustu sína.
Vegna minnkandi fjárframlaga
tilkynntu fógetar í nokkrum sýsl-
um starfsfólki sínu að vinnutími
þess yrði styttur og laun þess
lækkuð að sama skapi. Sumir
tilkynntu t.d. að felld yrði niður
vinna eftir hádegi á miðvikudög-
um. Þannig gátu þeir lækkað
launakostnað um 10—12%. Þetta
hefur að vonum mikil áhrif á
gang ýmissa dómsmála, því fyrir
skerðinguna hafði starfsfólkið
nóg að gera, og óleyst verkefni
lágu fyrir í hrönnum. En þessi
skerðing gekk hljóðlaust og
átakalaust fyrir sig.
Nú eru aðalátökin á niður-
skurðarsviðinu tengd skólum og
menntamálum og hafa yfirvöld
fyrirskipað róttækar aðgerðir,
m.a. niðurskurð á kennslu og
fjölgun nema í bekkjardeildum,
svo fækka megi kennurum og
draga þannig úr launakostnaði.
Kennurum hefur verið sagt upp
í tuga- og hundruðatali í ýmsum
sýslum, en hver sýsla hefur mik-
ilsvert vald í sínum menntamál-
um.
I nokkrum skólum var kennslu
hætt tveimur vikum fyrr en áætl-
að var, af því að fjárveitingin til
reksturs skólanna var uppurin.
Jafnframt eru þess dæmi að til-
kynnt hafi verið að 40 nemar
verði í hverri bekkjardeild á
næsta skólaári svo fækka megi
kennurum.
Nú hefur sú frétt borist að
laun skólanefndarmanna og eft-
irlitsmanna skóla í Flórída verði
lækkuð um allt að 60% frá og
með 1. júlí.
Það er ráðgefandi nefnd yfir-
stjórnar menntamála sem komist
hefur að þeirri niðurstöðu að
færa eigi laun þessa fólks í það
horf sem þau voru 1980, af því
að þau hafi ekki átt að hækka í
samræmi við hækkandi fram-
færslukostnað á sama hátt og
laun kennara á sama tíma. í blöð-
um eru nefnd dæmi um að ef
farið verði að niðurstöðum nefnd-
arinnar muni laun skólanefndar-
manna í einni sýslu lækka úr
23.247 dollurum á ári í 9.069
dollara á ári og í annarri úr
20.444 dollurum í 7.975 dollara.
Þessi ákvörðun nefndarinnar
hefur nú valdið miklu írafári í
skólanefndum og víðar. Er nú
miklum þrýstingi beitt á þjóðþing
Flórída í Tallahassee til að hrinda
með ótvíræðum lagabókstaf
þessari niðurstöðu ráðgjafar-
nefndarinnar.
Mikið er fjargviðrast yfir öllum
þessum ákvörðunum og ýmsum
öðrum í svipuðum dúr í blöðum
og sjónvarpsfréttum og foreldra-
fundir eru haldnir til formlegra
mótmæla. En allt gengur þetta
fyrir sig án verkfallsaðgerða og
fjöldauppsagna eins og fjölmörg
dæmi eru um í „gamla heimin-
um“.