Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGOR 30. MAl WM
33
Sigorn AlþýðuflokKs-
félags Reykjavíkur:
■ EFNT verður til sérstaks heim-
ilislistadags í Kolaportinu sunnu-
daginn 31. maí þar sem um 100
aðilar hvaðanæva af landinu munu
sýna og selja fjölbreyttan heima-
gerðan varning, en eins og venju-
lega verður einnig fjölbreytt mark-
aðstorg í öðrum hlutum hússins.
Með heimilislíst er átt við hvers
konar listir og handiðju í víðtæk-
asta skilningi og má t.d. nefna gler-
list, leirlist, vefnað, prjónaskap,
saumaskap, smíðar og útskurð,
skartgripagerð, skúlptúra, grafík
og listmálara, en varðandi þá síð-
astnefndu má einnig minna á að
galleríið í Kolaportinu verður með
sérstaka hátíðarsýningu þennan
dag. Um allt land eru starfandi
samtök og klúbbar fólks, sem og
einstaklingar, sem fást við heimil-
islist og ætlunin með þessum sér-
staka degi er að gefa þeim kost á
að koma verkum sínum á fram-
færi. Frumkvæðið að þessum við-
burði kom frá fólki í Vestmannaeyj-
um, en mikill áhugi hefur verið
fyrir þátttöku og hafa um 100 aðil-
ar skráð sig fyrir plássi, segir í
frétt frá Kolaportinu. Á sunnudag-
inn verður Kolaportið opið kl.
11-17 og verður þetta jafnframt
síðasti sunnudagur sumarsins í
Kolaportinu en það verður opið á
laugardögum eins og venjulega í
allt sumar^, ,,„ö„......d
Efnislega
rétt afstaða
fulltrúans
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi tilkynning:
„Stjóm Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur harmar þau málalok
sem orðið hafa í kjölfar afgreiðslu
Menntamálaráðs á tillögu um
bókaútgáfu Menningarsjóðs. Telur
stjórnin að fulltrúi Alþýðuflokks-
ins í Menntamálaráði, Ragnheiður
Davíðsdóttir, hafí tekið efnislega
rétta afstöðu til tillögunnar, enda
samrýmdist efni hennar ekki lög-
boðnu hlutverki Menntamálaráðs.
Stjórn Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur telur að æskilegast
hefði verið að ná sáttum í máli
þessu, fremur en að knýja fram
þau málalok sem orðið hafa.“
KYNNING á fyrirhuguðu fyrsta
sameiginlega grafíkverkstæði ís-
lands sem rekið verður af félag-
inu íslensk grafík og væntanlega
hefur starfsemi sína að hluta til
Klúbbur Listahátíðar
starfræktur á Hressó
Klúbbur listahátíðar verður
starfræktur í veitingahúsinu
Hressó á meðan Listahátíð í
Reykjavík stendur dagana 30. maí
til 19. júní. Klúbburinn er opinn
vettvangur fyrir íslenska listamenn
og verður reynt að gera öllum list-
greinum jafnhátt undir höfði, segir
í fréttatilkynningu frá klúbbnum.
Dagskrá klúbbsins er síbreytileg
vegna þess að margir bætast við
á síðustu stundu en eftir því sem
best er vitað er dagskrá þriggja
fyrstu daganna eftirfarandi:
Hressó og nágrenni laugar-
dag kl. 13.30:
Blásarasextettinn Stalla hu.
Ungir listamenn sjá um ýmsar
uppákomur á Hressó og í næsta
nágrenni.
• Hressó kl. 22:
Gleðisveitin Júpíters. Harpa og
Ásta Arnardætur og Bára Lyngdal
Magnúsdóttir flytja örleikrit.
Dansarar frá Kramhúsinu dansa
afródans. Sjón - upplestur.
Hressó sunnudag kl. 21:
Hljómsveit Jóns Páls og Árna
Scheving. Skosk-íslenski leik-
hópurinn Low - Life Theatre
Company flytur brot úr verkinu
The White Whore and the Bit Play-
er eftir Tom Eyer. Leikarar eru
Amanda Beveridge og Graeme
Dallas. Bragi Ólafsson - upplest-
ur. Jón Hallur Stefánsson flytur
ljóð.
Hressó mánudag kl. 21:
Tríó Karls Möller og Andrea
Gylfadóttir. Kristján Hreinsson
flytur ljóð.
’ -
> 8'^. T-S’ «NÍNT ■'*
ur Islandsbanka
HALDINN verður skógræktardagur íslandsbanka í dag
Er það í annað sinn sem slíkur dagur er haldinn meðal starfsfóíl
bankans.
Á síðasta ári var ákveðið að ís-
landsbanki gæfi þjóðinni fjórar tijá-
plöntur fyrir hvert fætt barn á árinu
1991. Alls fæddust 4.533 börn og
mun starfsfólk íslandsbanka og fjöl-
skyldur þeirra, ásamt liðsmönnum
skógræktarfélaga, því gróðursetja
um 20.000 plöntur í ár.
í dag mun starfsfólk bankans og
útibúanna í Reykjavík koma saman
og gróðursetja plöntur við Grunn-
vötn í Heiðmörk, starfsfólk útibúsins
í Kópavogi í Rjúpnahæð, Garðbæ-
ingar gróðursetja í Smalaholti,
Hafnfírðinga í Kjóadal, Keflvíkingar
við Rósaselsvötn og Mosfellsbæingar
ofan við bæinn Teig.
Starfsfólk útibúsins á Akranesi
ætlar að koma saman við skógrækt-
arsvæðið við Akrafjall 2. júní til að
gróðursetja og ísfirðingar neðan til
í Seljalandsmúla. Þá mun starfsfólk
útibúsins á Siglufírði koma saman i
landi Saurbæjaráss 2. júní og Hús-
víkingar 10. júní og gróðursetja upp
með Búðará.
Á árinu 1991 gaf íslandsbanka
90.000 plöntur til skógræktar. Af
þeim gróðursetti starfsfólk bankans
liðlega 25.000.
Lokaprédik-
anir í dag
Þrír guðfræðinemar flytja loka-
prédikun í Háskólakapellunni í dag,
laugardag, kl. 14. Stúdentamir em
Jón Pálsson, Kristín Pálsdóttir og
Þórir Jökull Þorsteinsson. Athöfnin
er öllum opin.
Opið hús í yersl-
unar skóla íslands
OPIÐ HÚS verður í Verslunarskóla íslands laugardaginn 30. maí nk.
kl. 14-18. Nýútskrifuðum grunnskólanemum og aðstandendum þeirra
gefst kostur á að skoða húsakynni skólans og ræða við kennara og
nemendur um skólalífið.
Kennarar verða til viðtals við
væntanlega umsækjendur og for-
eldra þeirra og nemendur sýna ýmis-
legt úr félagslífí og starfí nemenda.
Bókasafn skólans, sérkennslustofur
og íþróttahús verða opið og gestir
geta skoðað tækjabúnað skólans.
(Úr fréttatilkynningu)
Tónleikar
á Hvolsvelli
RANGÆINGAKÓRINN í Reylqa-
vík heldur tónleika að Hvoli á
Hvolsvelli í kvöld, laugardaginn
30. maí, kl. 20.30.
Rangæingakóriunn í Reykjavík
syngur undir stjórn Elínar Oskar
íslensk sönglög fyrir og síðar. Ein-
söngvari með kórnum er Kjartan
Ólafsson.
Tónleikarnir verða fluttir í sama
formi og í Finnlandi í júní nk. en
þangað em Elín Ósk og Rangæ-
ingakórinn boðin á íslenska menn-
ingarviku í Rovaniemi.
haustið 1992. Kynning verkstæð-
isins er haldin í fyrirhuguðu hús-
næði á Tryggvagötu 15, 2. hæð,
á sunnudaginn kl. 14 og verður
opin frá kl. 14-18 um helgar og
16-18 á virkum dögum til 14. júní.
í húsnæðinu hafa félagar í ís-
lenskri grafík komið fyrir kynningu
á starfsemi grafíkverkstæða svo og
óformlegri sýningu á verkum félags-
manna, þar sem megináhersla er
lögð á að sýna það ferli er liggur
að baki gerð grafíkmynda í hinum
ólíku miðlum grafíkurinnar. Al-
menningi gefst þannig kostur á að
kynnast hvom tveggja í senn, hinum
fjölbreytta miðli og fyrirhugaðri
nýrri starfsemi félagsins.
Félagið íslensk grafík var endur-
reist í sinni núverandi mynd 1969.
Milli 40 og 50 myndlistarmenn taka
þátt í starfsemi þess.
Sýnum ábyrgð, flokkum sorp
og notum gámastöðvar
Timbur • málmar • garðaúrgangur • pappír • spilliefni • grjót
Gámastöðin þín er í næsta nágrenni:
• Mosfellsbær: Við hesthúsabyggðina í Mosfellsbæ.
• Noröausturhverfi Reykjavíkur, Austurbær,
Fossvogur og Árbær: Viö Sævarhöfða.
• Hafnarfjöröur, Garöabær og Bessastaöahreppur:
Miöhrauni 20, Garðabæ.
• Seltjarnarnes og Vesturbær: Við Ánanaust.
• Kópavogur: Við Dalveg.
• Breiöholt: Viö Jafnasel.
• Grafarvogur: Við Gylfaflöt.
Stöövarnar eru opnar alla daga frá 10:00 - 22:00.
Tekið er á móti förmum allt að tveimur rúmmetrum.
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Frá grafíkverkstæðinu. Morgunbiaðið/Sverrir
Stofnun sameiginlegs
grafíkverkstæðis