Morgunblaðið - 30.05.1992, Síða 34
Verkalýðsfélagið Eining:
Björn Snæbjörnsson tek-
ur við formennsku af
Sævari Frímannssyni
FORMANNSSKIPTI urðu í Verkalýðsfélaginu Einingu á aðalfundi
félagins sem haidinn var á miðvikudagskvöld. Björn Snæbjörnsson
tók við formennsku í félaginu af Sævari Frímannssyni, sem verið
hefur formaður Einingar síðastliðin 6 ár.
Fjárhagsstaða félagsins á síðasta
ái'i var þokkaleg, en bókfærður
hagnaður allra sjóða félagins var
11,5 milljónir króna á liðnu ári, en
af þeirri upphæð eru 10,5 milljónir
króna vegna matshækkunar á
hlutabréfum félagins í Útgerðarfé-
lagi Akureyringa og Eignarhaldsfé-
lagi Alþýðubankans.
Innborguð félags- og vinnurétt-
indagjöld námu á árinu röskum
22,2 milljónum króna, sem er 2,33%
aukning frá árinu á undan og segir
í fréttatilkynningu frá Einingu að
það gefi glögga vísbendingu um,
að atvinnutekjur verkafólks hafí lít-
ið aukist á síðasta ári. Bótagreiðsl-
ur Sjúkrasjóðs námu 17,7 milljón-
am á árinu 1991, en iðgjaldatekjur
voru 20,9 miiljónir. Bókfærðar
eignir félagsins námu í árslok 182,5
milljónum króna.
Heildartala félagsmanna við ára-
mót var 4.447 og hafði fjölgað um
184 milli ára, en aðalfélagar eru
3.565 og aukafélagar 882.
Á aðalfundinum voru Sævari
Frímannssyni fráfarandi formanni
færðar þakkir fyrir störf í þágu
félagsins og þá var honum einnig
færð gjöf frá þeim sem með honum
hafa starfað í stjórn félagsins á
undanfömum árum.
Stjórn Einingar er nú þannig
skipuð, að Björn Snæbjömsson,
Akureyri er formaður, Þórir Snorra-
son, Akureyri er varaformaður, Sig-
ríður Rut Pálsdóttir, Ólafsfírði, rit-
ari, gjaldkeri er Ema Magnúsdótt-
ir, Akuryeri og meðstjómendur
Guðrún Helgadóttir, Hilmir Helga-
son, bæði á Akureyri og Ólöf Guð-
mundsdóttir, Grenivík.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Formannsskipti urðu í Verkalýðsfélaginu Einingu á aðalfundi sem
haldinn var í vikunni, er Björn Snæbjörnsson tók við formennsk-
unni af Sævari Frímannssyni.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Frá fyrstu þríþrautarkeppni sumarsins, sem haldin var í Mývatnssveit fyrir skömmu.
Mývatnssveit:
Kristján Haukur fyrstur í þríþrautinni
FYRSTA þríþrautarkeppni sumarsins fór fram í nágrenni Reykja-
hlíðar í. Mývatnssveit fyrir skömmu í ágætu veðri og þótti takast
með ágætum.
Þátttakendur komu frá Akur-
eyri og Reykjavík auk heima-
manna, en keppnin felst í því að
synda 750 metra, hjóla síðan 20
kílómetra og hlaupa loks 5 kíló-
metra.
í karlaflokki urður úrslit þau
að Kristján Haukur Flosason úr
Reykjavík varð fyrstur, með tím-
ann 1.10,37, þá Viðar Örn Sæv-
arsson, Mývatnssveit, með tímann
1.11,44 og Kári Hreinsson, Akur-
eyri varð þriðji með tímann
1.13,30.
Ein kona tók þátt í keppninni,
Þóra Baldursdóttir frá Akureyri,
og fékk hún tímann 1.26,54.
Keppendur voru á ýmsum aldri,
eða frá 15 til 52 ára, en keppnin
var haldin á vegum ungmennafé-
lagsins Eilífs í Mývatnssveit.
Eigið fé Slippstöðvarinnar nær uppurið:
Sljórn heimilað að auka
hlutafé um 100 milljónir
Heildartapið 237 milljónir á síðasta ári
HLUTAFÉ Slippstöðvarinnar var lækkað úr 108 milljónum króna í
21,7 miiyónir á hluthafafundi sem haldinn var fyrir aðalfund fyrirtækis-
ins í gær. Á aðalfundinum var stjórninni heimilað að auka hlutafé um
allt að 100 milljónir króna, en viðræður við forráðamenn rafeindafyrir-
tækisins DNG um kaup á hlutafé í Slippstöðinni eru í fullum gangi.
Þá standa einnig yfir viðræður við fyrirtæki á sviði málmiðnaðar á
Akureyri um kaup á hlutafé. Heildartap Slippstöðvarinnar á liðnu ári
nam 237 milljónum krón og er eigið fé stöðvarinnar komið niður í 2
milljónir króna.
Hólmsteinn Hólmsteinsson for-
maður stjómar Slippstöðvarinnar
sagði að á hluthafafundi sem haldinn
var fyrir aðalfundinn hefði verið sam-
þykkt að færa hlutafé fyrirtækisins
niður um 80%, en það væri nær raun-
verulegri eiginfjárstöðu þess. Þannig
að eftir niðurfærslu var hlutaféð
lækkað úr 108 milljónum króna í
21,7 milljónir. í framhaldi af því var
stjóm fyrirtækisins heimilað að auka
hlutafé um allt að 100 milljónir
króna.
Viðræður standa nú yfir við raf-
eindafyrirtækið.DNG um kaup þess
á hlutafé í Slippstöðinni, en auk þess
eru einnig í gangi viðræður við önn-
ur fyrirtæki, sem einkum starfa á
sviði málmiðnaðar og sagði Hólm-
steinn að þar vekti hagræðing og
samstarf á þessu sviði. Þær viðræður
eru með fullri vitund og vild DNG-
manna.
Kosningu stjómar var frestað á
aðalfundinum um þijár vikur, en
framhaldsaðaifundur verður haldinn
19. júní næstkomandi. Tíminn verður
notaður til að freista þess að ná end-
um saman í þeim viðræðum sem nú
standa yfir, þannig að ef nýir aðilar
koma inn í reksturinn verði hægt að
mynda nýja stjórn með þátttöku
væntanlegra hluthafa.
Heildartap á rekstri Slippstöðvar-
innar á síðasta ári nam 237 milljón-
um króna, en þar af er niðurskrift
eigna upp á 185 milljónir. Hólm-
steinn sagði að þar væru menn að
taka nokkurra ára skell af smíði
nýsmíðaskipsins B-70, eða allt frá
árinu 1987 er smíði þess hófst.
Vaxtakostnaður vegna skipsins á síð-
asta ári nam um 30 milljónum-
króna.„„Við tökum þennan skell á
okkur núna í einum pakka, það er
fyrst mögulegt nú vegna þess að
okkur tókst að selja skipið. Þó við
höfum fengið lágt verð fyrir skipið,
Dagskráin hefst í göngugötu kl.
10, þar sem m.a. verða fimleika- og
júdósýningar, sýning og keppni í
boccia og bekkpressukeppni.
Krabbameinshlaupið hefst kl. 12 á
hádegi við Dynheima, en þar verða
flutt ýmis erindi er varða hreyfingu
eftir hádegið.
í Kjamaskógi hefst þríþrautar-
keppni kl. 10.30, en á milli kl. 14
og 16 verður fjallganga að skála
Skátafélagsins við Löngukletta og í
Fálkafell, þá gefst gestum kostur á
að fara í ratleik eða reyna sig á risat-
rambólíni. Eldri borgurum er boðið
upp á sérstaka gönguferð með létt-
um æfingum í Kjarnaskógi
Á golfvelli verður kynning og
kennsla frá kl. 16 til 18 og Reið-
skóli Léttis og ÍTA verður kynntur
á svæði Léttis við Lögmannshlíð þar
sem fólki gefst einnig kostur á að
bregða sér á hestbak. Ferðafélag
Akureyrar efnir til gönguferðar kl.
14 og Siglingaklúbburinn Nökkvi
efnir til kynningar á siglingum á
svæði sínu við Höepfner. Á félags-
mátu menn stöðuna þannig að skárra
væri að selja það, en halda áfram í
óvissu," sagði Hólmsteinn.
Um 20% veltuaukning varð á milli
ári, en veltan á síðasta ári var 714,5
milljónir á móti um 600 árið á und-
an. Aukninguna má fyrst og fremst
þakka auknum verkefnum vegna
smíði Þórunnar Sveinsdóttur VE.
Eftir afskriftir eigna og fleira er eig-
ið fé Slippstöðvarinnar nú um 2 millj-
ónir króna.
Á síðasta ári var hlutfall nýsmíða
29% af starfsemi stöðvarinnar, við-
gerðarverkefni 64% og önnur verk-
efni 7% starfseminnar.
svæðum Þórs og KA verður sumar-
starfið kynnt og í íþróttahúsinu á
Bjargi verður heilsuræktin kynnt
sem og ýmsar íþróttagreinar sem
stundaðar eru af félögum í Akri,
vegg- og borðtennis, boccia og bog-
fimi.
Ókeypis aðgangur er að sundlaug-
um bæjarins og um morguninn geta
áhugamenn kynnt sér vatnaleikfimi
eða horft á Möllersæfingar á laugar-
bakkanum, auk þess sem almenning-
ur getur gengist undir þolpróf og
æfingaáætlun í sundi.
Tennis- og badmintonfélag Akur-
eyrar kynnir badminton í íþróttahúsi
Glerárskóla frá 15 til 17, en þeir
verða einnig á tennisvellinum við
sundlaugina frá 13 til 18.
Ungmennafélag Akureyrar verð-
ur með kynningu á frjálsum íþróttum
kl. 13 á íþróttavelli og verður keppt
í 60 og 100 m hlaupi. Þá verður
svæði Skautafélags Akureyrar opið
frá kl. 10 til 20, en um morguninn
verður ókeypis kynning á línuskaut-
um og notkun þeirra.
Fjölbreytt dagskrá á
íþrótta- og útivistardegi
íþrótta- og útivistardagur verður haldinn í þriðja sinn á Akureyri
næstkomandi laugardag og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á
útivistar- og íþróttasvæðum víða um bæinn. Iþrótta- og tómstundaráð
Akureyrar stendur að þessum degi.