Morgunblaðið - 30.05.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992
39
Við orlofshús í Constant.
íbúðarhúsin höfðu nöfn og svo vildi
til að okkar hét einmitt Bergerac.
Tvö uppbúin svefnherbergi voru á
efri hæð, en eldhús, stofa og
geymsla niðri, þrjú snyrtiherbergi
fylgdu. Þægileg húsgögn, sjónvarp,
ísskápur og öll æskileg eldhúsáhöld.
Eitt húsanna var til sameiginlegra
nota, með gufubaði, borðtennis,
knattborði, tækjum til líkamsþjálf-
unar, setustofum og sal þar sem
kvöldvökur voru haldnar til kynn-
ingar og skemmtunar fyrir dvalar-
gesti.
Tvær upphitaðar sundlaugar
voru á staðnum og breitt yfir þá
minni um nætur, ennfremur að-
staða til tennis- og boltaleikja úti,
en ekki golfvöllur sem fylgir þó
flestum orlofsbúðanna.
Dordogne-fljótið rennur um þetta
hérað og sannarlega margt og
merkilegt að skoða þar um slóðir.
Bændur komu tvisvar í viku og
héldu útimarkað fyrir dvalargesti,
seldu ávexti, vín o.fl. Vínið var
ódýrt, t.d. kostaði 5 lítra kútur af
rauðvíni aðeins 280 kr. íslenskar.
Sveitaverslun var þar rétt hjá og
fjölmargir skemmtilegir veitinga-
staðir í nálægum bæjum og þorpum.
Auðvelt var að rata um héraðið.
Stærstu nálægar borgir voru
Perigueux í norðri og Bergerac 20
km suðvestur af Constant. Víða
voru útimarkaðir og fjölskrúðugt
mannlíf.
Hvarvetna blöstu við fornir kast-
alar á hæðum meðfram ánum, enda
í auglýsingum talað um 1001 kast-
ala í héraðinu Perigord. Mörgum
þeirra er vel við haldið, byggingar-
4. Lögfræðistofa Arnar Clausen
hrl. (Þröstur Þórhallsson) 10 v.
5. Optima (Tómas Bjömsson) 9 v.
6. Verzlunarmannafélag Reykjavík-
ur (Eiríkur Bjömsson) 8 v.
7. Fiskbúðin Grímsbæ (Benedikt
Jónasson) 8 v.
8. Nesti hf. (Árni Á. Árnason) 8 v.
9. IKEA-Kringlunni (Sölvi Jónsson)
7'/2 v.
10. Lögfr.st. Höfðabakka 9 (Ingvar
Jóhannesson) 7‘/2 v.
11. Verkakvennafélagið Framsókn
(Jón V. Gunnarsson) 7‘/2 v.
12. íslúx hf. (Sævar Bjarnason) 7'Zz
v.
13. Rafvirkjadeildin hf. (Þorsteinn
Davíðsson) 7 'h v.
Aðrir sem komust í úrslit vora
Penninn, Edda hf., Sjómannasam-
band íslands, Verkamannasamband
Islands, Vaka bókaútgáfa, Sónn
radíóverkstæði, Mjólkursamsalan
og Vestfjarðaleið.
Verðlaun voru veitt einstakling-
um fyrir fjögur bestu mót þeirra
og varð lokaröðin þessi:
1. Sævar Bjarnason 43'/2 v. af 56
mögulegum.
2. Olafur B. Þórsson 41 v.
3. Sigurður Daði Sigfússon 39 v.
4. Þráinn Vigfússon 39 v.
5. Guðmundur Gíslason 37 Vi v.
Unglingaverðlaun hlutu:
1. Ingvar Jóhannesson 36 v. af 56.
2. Bragi Þorfinnsson 31'/2 v.
3. Jón V. Gunnarsson 31 '/2 v.
Kvennaverðlaunin hreppti Anna
B. Þorgrímsdóttir, sem hlaut 16 v.
af 56 mögulegum.
lag sannkallað augnayndi, leiðsögu-
menn segja stoltir sögu þeirra og
útsýn frá turnspírum er víða frá-
bær.
Við dvöldum 2 vikur í Constant
og flesta daga fóram við könnunar-
ferðir um þetta merkilega og sögu-
fræga hérað. Víðlendar vínekrur
blöstu við sjónum, einkum suður
af borginni Bergerac. Elsti hluti
þeirrar borgar þykir merkilegur
vegna fornrar byggingarlistar.
Dordogne-fljótið rennur gegnum
borgina, fjöldi skemmtibáta var þar
á ferð og menn æfðu kappróður.
Veitingahúsið Nautica, á fljóts-
bakkanum, er þekkt fyrir fjöl-
breytta sjávarrétti, sem flestir
smökkuðust vel.
Ekki má gleyma hinum stór-
merkilegu forsöguhellum, sem
þetta hérað er frægt fyrir. Við
heimsóttum fáeina hinna helstu.
Upplýstar kristalssúlur Le Grand
Roc era ógleymanlegar, þar sem
farin var hringferð um þessi stór-
kostlegu listaverk móður náttúru.
„Kristalskirkjan", öðra nafni
Gouffre de Proumeyssac, nálægt
Sarlat, er stórmerkilegur neðan-
jarðarhellir. Öldum saman vissu
menn um op á jörðinni í eitthvert
gímald. Óvinum stjórnvalda var
gjarnan stungið niður um opið, og
voru þar með úr sögunni. Er líða
tók á þessa öld vora grafin 350 m
löng göng inn að þessum helli, sem
mjög líkist kirkjuhvelfmgu að lög-
um, með fjölmörgum kristalskert-
um og vissulega fundust þar beina-
hrúgur fórnarlambanna á gólfinu.
Nú er búið að fjarlægja beinin,
gangstígar lagðir allt um kring og
dulmögnuð tónlist hljómaði í þess-
ari meistaralegu hvelfingu svo
hrifningarhrollur gagntók gesti.
Síðast en ekki síst vil ég svo
nefna til sögunnar stolt Frakka,
sjálfa Lascaux-hellana, nálægt
Montignac.
Sauðtján ára piltur, Marcel
Ravidat, sem var þar á ferð með
fáeinum vinum sínum, rakst á op
þeirra 8. september árið 1940.
Fjórum dögum síðar fóru þessir
félagar í rannsóknarleiðangur til
hellanna, fjarlægðu runna og
stækkuðu opið og fundu þá hin
fornu og stórkostlegu málverk á
veggjunum. Veiðidýr frammanna,
rist og máluð í mörgum litum, þöktu
veggina. Þau elstu eru talin allt að
25 þúsund ára gömul. Drengimir
sögðu siðan kennara sínum frá
þessum merkilega fundi.
Kennarinn varð að sjálfsögðu
stórhrifinn og fljótt spurðust tíðind-
in. Vísindamenn komu til sögunnar
og almenningi var leyfður aðgang-
ur. Finnendum voru veittar orður
og margskonar virðingarvottur og
viðurkenningar. Árið 1963 var að-
gangur hinsvegar bannaður vegna
skemmda.
Aðeins örfáir vísindamenn og
rannsakendur koma nú þangað. Til
þess að laða að ferðamenn hefur
verið gerð nákvæm-eftirlíking af
þessum hellum, þar nálægt. Gröft-
urinn hófst í gamalli gijótnámu,
listamenn gerðu mjög nákvæmar
eftirlíkingar hinna fornu listaverka
og þessi staður hefur verið nefndur
Lascaux II. Ég fagna því að hafa
lagt þangað leið mína og litið aug-
um þessi stórkostlegu verk.
Frá Lascaux II var okkur vísað
til Thot, þar sem við skoðuðum
glæsilegt safn með myndum af hell-
amálverkunum, líkönum forsögu-
dýra og merkilegt yfirlit um þróun
mannsins frá Neanderdal-Cro-
magnon til vorra daga. Rétt hjá var
dýragarður með stóram dýram og
öílum til furðu, stæðilegum mamm-
út með ferlegar tennur. Hann
reyndist vera vélknúinn og íjar-
stýrður, hreyfði fætur, eyra, augu
og haus, saug vatn upp í ranann
og sprautaði því umhverfis. Að lok-
um rak hann upp dimmt og mikið
gaul svo 10 ára drengur lagði grát-
andi á flótta.
Styttur af framstæðum, vopnuð-
um veiðimönnum stóðu umhverfís,
albúnir þess að leggja til atlögu við
risann.
Fransmenn leggja sig sannarlega
fram við að laða að ferðamenn.
Ekki má sleppa því að minnast á
hinn merkilega „Prehisto Park, eða
forsögugarð, sem útbúinn hefur
verið í Vezere-dalnum í Tursac.
Þetta litla skógi vaxna dalverpi
sýnir veiðidýr, bústaði og lifnaðar-
hætti Neanderdal-veiðimanna. Við
blasa veiðidýr í niðurgröfnum gildr-
um, atlaga að Ijóni í klettóttri hlíð,
fláning og aðgerð veiðidýra,
skinntjöld, styttur af fjölda fólks.
Virkar ótrúlega raunverulegt.
„Allt tekur enda, sem okkur er
veitt,“ þessar 2 vikur vora liðnar,
með þakklátum huga kvöddum við
samfélagið í Constant og þetta
skemmtilega hérað. Sannarlega góð
tilbreyting frá hinum hefðbundnu
sólarferðum. Ennþá var 14 gráðu
hiti í Bordeaux er við lögðum heim
á leið, enda þótt kominn væri 7.
nóvember.
Ferðin heim gekk að óskum. Nú
þarf að huga að næstu ferð á vegum
Sólarseturs og HPB. Ætti það að
vera skíðaferð til Austurríkis, sóiar-
ferð til Miðjarðarhafsins eða
Flórída? Helst að sjá og reyna sem
flest og mest.
Höfundur er fyrrverandi
yfirflugumferðarsijóri.
Skálholt, skrúði og áhöld
°g
íslenzk fornrit
Áskriftartilboð vegna framangreindra
bóka hefur verið framlengt til
16. júní nk. vegna líflegrar
eftirspurnar síðustu daga.
Dragið ekki að eignast öndvegisverk
íslenskrar menningar.
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMKNNTAKKLAG
SÍIH Ml'l.l 21 • h'»STHÓI.nfa> • 12«HK\ kj\\ ÍK • SÍMI ‘>U>?MK>0
M ■ .... ...‘--
M
SOLIGNUM
olíuviðarvörn
ad þínu sumarskapi!
Solignum Architectural fæst nú í
14 litum - einn þeirra er örugglega
að þínu sumarskapi.
Einnig bjóðum við Solignum grunnefni
og gróðurhúsaefni.
Fæst í flestum málningarvörubúðum.
^SKAGFJORÐ
Kristjón Ó. Skogfjörð hf. Umboðs- og heildverslun
G.Á. Pétursson hf
Ildttuvéla
maritaðurinn
“ [K,
Raðgreiðslur
Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
ODYRA AMERISKA
SLÁTTUVÉLIN
Frábær vinnuhestur. Nú meö aflmeiri
BRIGGS og STRATTON
fjórgengisvél 3,75 hestafla.
kr. 16.737,-
-MTD042
- Þrælsterk amerisk sláttuvél meö öryggi í
handfanginu fyrir hnífinn.
- Vildarkjör Visa eða Eurokredit:
- Engin úíborgun og jafnar mánaðarlegar
greiðslur
Viöurkennd viöhalds- og varahlutaþjónusta.
- Gerið verð- og gæðasamanburð!
- Rafeindakveikja
Grassafnari (auka)
Opið laugardaga
frákl. 10-16.
Sunnudaga í júní
frákl. 10-14.