Morgunblaðið - 07.08.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992
Króati og Serbi vinna saman við hlaupabrautina í Laugardalnum
„Fólkið heima
aðeins þolendur
í harmleiknum“
KRÓATI frá Bosníu og Serbi
frá sjálfsstjórnarhéraðinu
Kosovo vinna saman við lagn-
ingu nýrrar hlaupabrautar á
Laugardalsvelli þessa dagana
ásamt þremur félögum sínum
frá fyrrum sambandsríkjum
Júgóslavíu. Króatinn, sem heit-
ir Franjo, er verkstjóri vinnu-
flokksins sem er hér á vegum
þýsks verktakafyrirtækis. A
meðan hann hefur starfað hér
á landi hefur ólýsanlegur harm-
leikur gerst í heimabæ hans í
Bosníu eins og víðar í landinu,
harmleikur sem snertir hann
persónulega.
Franjo hélt að blaðamaður og
ljósmyndari væru komnir til að
forvitnast um hina nýju hlaupa-
braut sem verið er að leggja á
Laugardalsvöll, en tók okkur samt
vel þegar við kváðumst hafa frétt
af ógæfu hans. „Liðssveitir Serba
réðust inn í þorpið og skutu á
allt kvikt. Bróðir minn varð fyrir
skotum í fótlegg og í höfuð, og
særðist illa. En hann lifir af,“
sagði Franjo.
Hann á fimm bræður og móður
á lífi og bjuggu þau saman í húsi
fjölskyldunnar, ásamt eiginkonu
Franjos og bömum. Þau flýðu til
Zagreb. „Þeim líður vel í Zagreb.
Þar em menn af öllum þjóðemum
og þar er ró og spekt,“ sagði
Franjo.
Franjo sagði að serbneskir her-
menn hefðu stolið öllu steini létt-
ara úr húsinu, sem Franjo hafði
unnið fyrir með hörðum höndum
í tuttugu ár. Síðan bára þeir eld
að húsinu og fleygðu hand-
sprengjum inn í eldinn. Hann
sagði að Serbar hefðu lagt
heimabæ sinn í rúst, rænt banka
og þar með hefði hann tapað öilu
sínu sparifé sem hann hefði lagt
fyrir í tuttugu ár, kveikt í sjúkra-
húsum, ellihéimilum og bama-
heimilum. Móðir sín hefði lifað
af tvær heimsstyijaldir og hún
myndi enn helför nasista, en það
sem Serbar væra að gera í Bos-
níu væri grimmilegra.
„Ég verð að byrja upp á nýtt
með tvær hendur tómar. Ég er
allslaus. En það sem mest er um
vert er að fjölskylda mín slapp
lifandi frá þessu og er nú óhult í
Zagreb," sagði Franjo. Hann
sagði að svipað væri ástatt um
vinnufélaga sína, sem vora að
hætta vinnu þennan dag og taka
saman verkfæri sín í nepjunni.
Franjo og Muaran fyrir utan vinnuskúrinn í Laugardal.
Allir væru þeir heimilislausir en
fjölskyldur þeirra væra á lífi.
Franjo sagði að honum og
Muaran, Serbanum frá Kosovo,
kæmi vel saman, enda þótt þeir
kæmu frá stríðandi löndum.
„Fólkið heima er aðeins þolendur
í harmleiknum og laust við þá
illsku sem sprytti af stjómmála-
legum deilum," sagði hann.
Franjo sagði að sér liði vel á
ísiandi, fólkið væri vingjarnlegt,
en hér væri kalt. Hann fer til
Þýskalands í lok næstu viku og
ráðgerir að hitta fjölskyldu sína í
Zagreb í endaðan ágúst.
Samkvæmt utreikmngum Handsals hf. er samdráttur í sjávarátvegi minni en fram hefur komið:
Kvóti Granda eykst um 7,3 %
HANDSAL hf. hefur sent frá sér samantekt um áhrif kvótaskerð-
ingar á nokkur íslensk sjávarútvegsfyrirtæki. Samantektin er
gerð til þess að reyna að segja fyrir um gengi hlutabréfa í fyrir-
tækjunum. Niðurstaða Eddu Helgason sem vann að þessari saman-
tekt er sú að sé miðað við sama þorskígildisstaðal fyrir næsta
fískveiðiár verði samdráttur í sjávarútvegi ekki eins mikill og
fram hefur komið.
Hjá einstökum fyrirtækjum sem
samantekt Eddu Helgason nær til
mun kvótinn mældur í þorskígild-
um breytast hlutfallslega mest hjá
Granda hf. í Reykjavík þar sem
hann eykst um 7,3-%. Síldarvinnsl-
an hf. á Neskaupstað missir mest,
eða 2,3 %. Ámes hf. í Þorlákshöfn
fær aukinn kvóta um 4,6 %, kvóti
Haralds Böðvarssonar hf. á Akra-
nesi eykst um 3,3 %, kvóti Sjóla
hf. í Hafnarfirði um 5,4 %. Skag-
strendingur hf. í Skagaströnd
missir_2,2 % af kvóta sínum, en
kvóti Útgerðarfélags Akureyringa
stendur nær í stað.
Edda Helgason annar fram-
kvæmdastjóra Handsals hf. segir
að samantekt hennar taki ekki til
þeirra áhrifa sem breytt samsetn-
ing á afla hefur á fískvinnsluna.
Þá kemur einnig fram í samantekt
Eddu að fleiri þættir en aflaheim-
ildir munu hafa áhrif á gengi
hlutabréfa þessara sjávarútvegs-
fyrirtækja. I því sambandi nefnir
hún söluverðmæti sjávarafurða
erlendis, hagræðingu í rekstri og
nýtingu fískistofna.
Samkvæmt nýrri reglugerð mun
þorskígildisstuðull breytast þann
1. september næstkomandi og það
kann að breyta þessum niðurstöð-
um Handsals hf.
Vinna við flug-
skýli stöðvuð:
Starfsmenn
óvarðir í
25 m hæð
Vinnueftirlitið stöðvaði vinnu
nokkurra starfsmanna við ný-
byggingu flugskýlis Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli í fyrradag
vegna ónógra fallvama. Starfs-
menn unnu þar í allt að 25
metra hæð óvarðir með öllu, að
sögn Gests Friðjónssonar vinnu-
eftirlitsmanns.
Gestur sagði að nauðsynlegt
væri að koma fyrir öryggisneti til
að grípa menn ef þeim skrikaði
fótur. Sperrur flugskýlisins eru í
25 metra hæð og er beint fall nið-
ur, að sögn Gests. Ekki er hægt
að koma við örýggislínu.
Gestur sagði að haldinn yrði
fundur í dag með viðkomandi verk-
tökum og rætt um viðunandi lausn
á málinu. Vinna á jörðu niðri og
í lítilli hæð heldur áfram og sagð-
ist Gestur ekki telja að starfsmenn
þyrftu að búa við verkefnaskort.
Morguriblaðið/KGA
Á skotæfingu
með stolnar
byssur
Hér sjást byssumar fjórar,
sem teknar voru ófrjálsri hendi
í geymslu við Flúðasel fyrr í
vikunni. Tvítugur maður hefur
nú játað stuldinn og ætlaði
hann að sögn rannsóknarlög-
reglu að eiga byssumar sjálf-
ur. Þjófurinn reyndist hafa
verið á skotæfíngu með byss-
urnar daginn sem lögreglan
handtók hann, en þá hafði
hann brotizt aftur inn um nótt-
ina til þess að sækja sér skot-
færi.
Meint
alsæla
reyndist
hjartalyf
STAUKUR með 30 pillum
fannst á samkomusvæðinu á
Eldborgarhátíðinni um versl-
unarmannahelgina. Pillurn-
ar gáfu jákvæða svörun við
amfetamini við litaprófun.
Vaknaði þá grunur um að
amfetamín eða jafnvei aisæla
væri þarna á ferðinni.
Bjöm Halldórsson hjá Fíkni-
efnadeiid lögreglunnar segir að
nánari rannsókn hafi leitt í ljós
að um hvorugt þessara efna
var að ræða, heldur vora þetta
hjartalyf fengin í apóteki sam-
kvæmt lyfseðli. Bjöm segir að
sá sem hugðist neyta lyfsins
eða dreifa pillunum virtist ann-
að hvort hafa týnt stauknum
eða losað sig við hann viljandi.
Sjóprófum vegna strands Eriks Boye frestað um óákveðinn tíma
Flestum
yfirheyrsl-
um lokið
Guðmundur kvað sjóprófín hafa staðið frá
morgni þriðjudags fram yfír miðnætti. „Við
yfírheyrðum skipstjórann, sveitarstjóra Breið-
dalshrepps og björgunaraðila,“ sagði hann.
„Endurrit verður gert af málsgögnum og þau
send til hlutaðeigandi aðila hér á landi sem og
í Danmörku. Síðar mun koma í ljós hvaða
skýrslur verða gerðar frekar í málinu.“
Erik Boye var tekinn í slipp á Neskaupstað
á miðvikudag. Fyrirtækið Dráttarskip hf. hef-
ur fest kaup á skipinu. Forráðamenn fyrirtæk-
isins stefna að því að gera við skemmdir flutn-
ingaskipsins og selja það að viðgerðum lokn-
um.
Á myndinni sést hvernig botn skipsins rifn-
aði þegar það steytti á skeri fyrir utan höfn-
ina í Breiðdalsvík.
SJÓPRÓFUM vegna strands danska skips-
ins Eriks Boye hefur verið frestað um
óákveðinn tíma. Guðmundur Þór Guð-
mundsson, settur héraðsdómari Austur-
lands, sagði að flestum yfirheyrslum væri
nú lokið. Þó ættu málsaðilar eftir að vega
stöðuna og meta, en mögulegt væri að
send yrði réttarbeiðni til Danmerkur í
þessu sambandi. Skemmdir á botni Eriks Boye.
I
i
I
i
I
I
I
I