Morgunblaðið - 20.08.1992, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
29
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Stjórn og varastjórn ásamt útvarpsstjóra fagna eftir að fyrirtækið
hóf útvarpsútsendingar. Frá vinstri til hægri eru: Hermann Ragnars-
son, Böðvar Jónsson, Ástþór B. Sigurðsson, Guðbrandur Einarsson
útvarpsstjóri, Sigurbjörn Sigurðsson sljórnarformaður, Kristján Jó-
hannsson og Jóhannes Högnason. Nýr miðill er fyrsta fyrirtækið á
íslandi sem stendur að útvarpsútsendingum og blaðaútgáfu.
FRAMTAK
Utvarpsútsending-
um Brossins fagnað
Xpjölmiðlafyrirtækið Nýr miðill hf.
Jl á Suðurnesjum fagnaði nýlega
þeim áfanga að verða fyrst á íslandi
til að standa að fréttablaðaútgáfu
samhliða útvarpsrekstri. Nýr miðill
hf. gefur út Suðurnesjafréttir sem
kemur út vikulega og er dreift án
endurgjalds um öll Suðurnesin og
nú hafa þeir Miðilsmenn einnig haf-
ið útvarpsútsendingar. Útvarpið
heitir Bros og er útvarpað allan sól-
arhringinn á FM 96,7 og nást send-
ingarnar um öll Suðumes og allt til
Hafnarfjarðar.
Útvarpsútsendingar hófust 13.
ágúst og sama dag fluttu Miðils-
menn í nýtt og glæsilegt húsnæði
við Hafnargötu 15, sem var sérstak-
lega innréttað með starfsemina í
huga. Móttaka var fýrir gesti við
þetta tækifæri þar sem Sigurbjörn
Sigurðsson stjórnarformaður Nýs
miðils hf. þakkaði þeim sem lögðu
hönd á plóginn til að ná þessum
merkilega áfanga í fjölmiðlun og að
nú væri bara að standa sig og vera
traustsins verðir.
BB
COSPER
---Ég hef enn aðdráttarafl, sjáðu hvernig karlarnir
snúa sér við til þess að horfa á eftir mér.
VANSSKOtX
DANSKENNARANAM
Getum bætt við tveimur nemum ídanskennaranám.
Upplýsingar ísíma 20345 kl. 10-22 næstu daga.
__________________ r
NYJAR VORUR
Krmglunni 8-12, sími 689150.
„ Hittumst
í grillinu! “
Libby’s tómatsósur,
tvenns konar flöskur- tvenns konar bragð!