Morgunblaðið - 20.08.1992, Side 38
— 38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
FRJALSIÞROTTIR / SJO ÞJOÐA KASTLANDSKEPPNI
FRI hættivið og barviðfjárhagsörðugleikum:
Ekki við ólympíu-
nefnd að sakast
ÓLYMPÍUNEFND íslands segir það fyrirslátt hjá formanni Frjáls-
íþróttasambandsins að hœtt hafi verið við á síðustu stundu að
senda íslenska keppendur á sjö þjóða kastlandskeppni, sem
hefst íTékkóslóvákiu n.k. laugardag, vegna þess að ólymptu-
nefnd hafi ekki greitt FRÍ umsamda fjárupphæð. Rétt sé að ekki
sé búið að greiða allt út, en sama gildi um öll sérsambönd og
FRÍ viti að peningar frá ólympíunefnd eru tryggir peningar.
|Jins og Morgunblaðið greindi frá
í gær var ákveðið að senda
flóra menn í umrædda keppni, en
síðan dregið ( iand á miðvikudag.
„Við höfum ekki fengið þá fjármuni
frá ólympíunefnd sem okkur var
lofað,“ var haft eftir Magnúsi Jak-
obssyni, formanni FRÍ, en Gísli
Halidórsson, formaður ólympíu-
nefndar, sagði að þetta væri fyrir-
sláttur.
„Það er rétt að við höfum ekki
gert upp við sérsamböndin, en þau
vita að við fáum 40% umsamdra
peninga frá ríkinu í ágúst, sept-
ember og október og þá verður
dæmið gert upp. Þess vegna hefði
verið hægur vandi fyrir FRÍ að fá
lán til skamms tíma út á þessa
peninga, þv( um örugga innistæðu
er að ræða. Þetta eru tryggir pen-
ingar og það veit Frjálsíþróttasam-
bandið."
Gfsli sagði að samið hefði verið
um að FRI fengi 1,8 mil|jónir króna
og hefði þegar fengið rúmlega millj-
ón. „Sambandið fær afganginn á
næstunni, en ég er óánægður með
hvað sambandið hefur haft úr litlu
að spila. Út frá því er gengið að
viðkomandi sérsamband leggi jafn-
mikið af mörkum til ólympíufara
þess og ólympíunefnd, en það hefur
FRÍ ekki gert og eru íþróttamenn-
irnir sáróánægðir með það.“
í máli Magnúsar kom jafnframt
fram að ólympíunefnd ætti erfítt
um vik vegna þess að handbolta-
landsliðið hefði bæst í ólympíuhóp-
inn skömmu fyrir Óiympíuleikana
( Barcelona, en Gísli sagði það ekki
rétt.
„Um ieið og handboltaliðinu var
boðin þátttaka hófst sérstök fjáröfl-
un og hefur hún þegar skilað góðum
árangri. Þátttaka iiðsins kemur
ekki niður á öðrum sérsamböndum
og við gerum full skil við þau eins
og um var samið."
KNATTSPYRNA / HATTVISI
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
KSI og Vlsa veittu viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í gær. Á mynd-
inni eru frá vinstri: Eggert Magnússon, formaður KSÍ, Ólafur Kristjánsson,
fyrirliði FH, Sigrún S. Ottarsdóttir, fyrirliði UBK, Auður Ásgrímsdóttir, Hetti,
Bjarni Sveinbjömsson, Þór, og Þórhallur Vilhjálmsson frá Visa.
Bjarni og Sigrún valin
prúðustu leikmennirnir
BJARNI Sveinbjörnsson, mið-
herji Þórs, og Sigrún S. Ottars-
dóttir, fyririiði Breiðabliks, voru
KAPPAKSTUR
Hrakfalla-
bálkurinn loks
heimsmeistari
^retinn Nigel Mansell varð um
síðustu helgi heimsmeistari í
kappakstri þrátt fyrir að enn séu
fímm keppnir eftir á tímabilinu.
Hann varð í öðm sæti í keppni í
Ungvetjalandi á sunnudaginn og
er kominn með 92 stig, eða 52 stig-
um fleira en næsti keppandi.
Mansell hefur verið kallaður
óheppni maðurinn í kappakstrinum,
því hann hefur þrisvar venð nálægt
því á tólf ára ferli að verða heims-
meistari, en alltaf orðið fyrir ein-
hverju óhappi sem hefur kostað
^hann titilinn.
En þetta árið hafa honum ekki
orðið á nein mistök. Hann hefur
þegar unnið í átta keppnum, og er
fyrsti Bretinn til að ná titlinum sið-
an 1976, þegar James Hunt varð
heimsmeistari.
„Eg veit ekki hvað skal segja,“
sagði Mansell eftir keppnina í Ung-
veijalandi. „Þegar maður hefur
þrisvari sinnum verið svona nálægt
því þá er þetta það besta sem fyrir
mann getur komið. En það em fimm
keppnir eftir og ég ætla að reyna
að vinna að minnsta kosti tvær í
viðbót. Ég hef aldrei unnið í Japan
og Ástralíu og stefnan er sett á
sigur þar. Ef ég næ að bæta sigmm
þar í safnið hef ég náð öllu sem
hægt er, og það er að sjálfsögðu
stefnan," sagði Mansell.
KNATTSPYRNA
LIÐ 14. UMFERÐAR
Reuter
Nigel Mansell gat ekki leynt tilfinningum sínum eftir að ljóst var að hann
var orðinn heímsmeistari í kappakstri, þrátt fyrir að enn séu eftir fimm keppnir
á tímabilinu.
valin prúðustu leikmennirnir í
íslandsmótinu í knattspyrnu,
Bjarni eftir 12 umferðir í Sam-
skipadeildinni og Sigrún fyrir
leiki í júní og júlí í 1. deild
kvenna. FH fékk fæst spjöld á
tímabilinu og var því prúðasta
liðið hjá körlunum, en Höttur,
Egilsstöðum, hjá konunum.
KSÍ og Visa gerðu með sér
tveggja ára samning með því
markmiði að stuðla að prúðum og
drengilegum leik og eru viðurkenn-
ingamar, sem veittar eru þrisvar á
tímabili, til að leggja áherslu á mik-
ilvægi góðrar framkomu knatt-
spyrnumanna utan sem innan vall-
ar. Fyrstu viðurkenningarnar voru
veittar_ eftir sex umferðir, en að
loknu íslandsmótinu verða veittar
viðurkenningar fyrir allt tímabilið.
Á fundi KSÍ í gær kom fram að
starfsmaður Knattspyrnusam-
bandsins færi víða um land til að
kynna og efla íþróttina og ávallt
væri lögð áhersla á háttvísi, en enn
þyrfti mikið átak til að bæta hegð-
un leikmanna og eins væri nauðsyn-
leg^t að þjálfarar, forystumenn, for-
eldrar og forráðamenn ungra knatt-
spyrnumanna sýndu gott fordæmi
í þessum efnum. Þetta væri í raun
eilífðar verkefni, menn yrðu alltaf
að vera á varðbergi og höfða fyrst
og fremst til unga fólksins.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagði að almennt hefði fram-
koma leikmanna batnað til mikilla
muna í kjölfar hljóðnemamálsins
svonefnda. Það hefði haft i för með
sér hugarfarsbreytingu og greini-
legt væri að margir hefðu tekið sig
á, en KSÍ og Visa skoruðu á for-
ystumenn íslenskrar knattspymu
að leggja meiri rækt við háttvísi
og drengilegan leik en nú er og
sýna viljann í verki.
GOLF
Sterict golfmót á Hellu
BLAÐAMANNAFÉLAG íslands
heldur sitt árlega golfmót á
Hellu á laugardaginn. Þar
munu fjölmiðlamenn reyna
með sér en einnig hefur sterk-
um kylfingum verið boðið til
keppninnar.
ótið, sem nefnist „Media
Masters", er tvískipt. Ann-
ars vegar keppa þeir sem starfa á
fjölmiðlum landsins og hins vegar
er sérstakt boðsmót þar sem 13
sterkir kylfingar taka þátt. Þar eru
þrír atvinnumenn, þeir Arnar Már
Ólafsson kennari hjá Keili, Philip
Hunter kennari hjá GS og Sigurður
Pétursson kennari hjá GR.
Aðrir keppendur í þessu sterka
móti verða Sigurður Hafsteinsson,
Hannes Eyvindsson og Ragnar
Ólafsson úr GR, Sigurður Sigurðs-
son og Gylfi Kristinsson úr GS,
Björgvin Sigurbergsson, Tryggvi
Traustason og Guðmundur Svein-
björnsson úr Keili. Frá Akureyri
koma Björn Axelsson og Björgvin
Þorsteinsson.
Þessir kappar hafa hampað ís-
landsmeistaratitlinum 15 sinnum
alls og ekki er að efa að þeir eiga
eftir að berjast hart fyrir sigri í
mótinu. Meistararnir hefja leik kl.
12 á hádegi.
Eins og endranær eru fjölmörg
önnur mót um helgina:
Sveitakeppni unglinga
Mótið hefst í dag hjá GR og lýkur á sunnu-
dag. Keppt er í tveimur flokkum, 14 ára
og yngri og 15-18 ára.
Sveitakeppni öldunga
Mótið fer að þessu sinni fram í Leirunni,
hefst á laugardag og lýkur á sunnudag.
Samskiptamótið
Haldið á laugardag og sunnudag á Dalvtk.
TM-mótið
Haldið á Blönduósi laugardag og sunnudag.
Haustmót
Haldið á Húsavík á laugardag og sunnudag.
ísafjörður
Mót á ísafirði laugardag og sunnudag.
Hljómkó
Haldið á laugardag hjá Keili.
Opna Spalding
Fyrsta Spalding-mótið sem haldið hefur
verið á landinu verður í Mosfellsbænum á
laugardag og verða leiknar 18 holur með
og án forgjafar. Ræst verður út milli 8 og
10 og síðan aftur milli 13 og 15.
Timburmenn
Haldið á Selfossi á sunnudaginn. Pjórleikur
með og án forgjafar.
i
í
í
í
í
í
í
(
i