Morgunblaðið - 28.08.1992, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ PÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992
Skákþing íslands
Helgi efst-
ur fyrir síð-
ustu skák
HELGI Ólafsson gerði jafntefli við
Hannes Hlífar Stefánsson í 10. og
næst síðustu umferð Skákþings
íslands í gærkvöldi og er einn
efstur með 8V2 vinning. Skák Mar-
geirs Péturssonar við Jón G. Við-
arsson fór í bið en er jafnteflisleg.
Margeir er í 2. sæti með 7V2 vinn-
ing og biðskák.
Óðrum skákum í 10. umferð lauk
þannig að Þröstur Þórhallsson vann
Þröst Ámason, Sævar Bjarnason
vann Bjöm F. Björnsson og Haukur
Angantýsson vann Jóp. Á. Jónsson.
Síðasta umferð Skákþingsins
verður tefld í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði í dag og
hefst hún klukkan 17.
♦ ♦ ♦
Fjármálanáms-
skeið VÍB
Bæta þurfti
við vegria
aðsóknar
MIKIL eftirspurn hefur verið eftir
þátttöku í námskeiðum um fjár-
mál fjölskyldunnar _ sem Verð-
bréfamarkaður íslandsbanka
stendur nú fyrir. Upphaflega átti
aðeins að halda tvö slík námskeið
en nú hefur verið ákveðið að bæta
þremur við svo þau verða fimm
alls.
Sigurður B. Stefánson fram-
kvæmdastjóri VÍB segir að biðlistinn
eftir plássi á tveimur upphaflegu
námskeiðunum hafí verið svo langur
að ákveðið var að bregðast við með
þessum hætti.
Fyrsta námskeiðið hófst í gær-
morgun en þau standa tvo morgna
hvert og komast 20 einstaklingar að
í einu. Sigurður B. Stefánsson segir
að hin mikla aðsókn að þessum nám-
skeiðum hafí komið VÍB þægilega á
óvart þó ekki sé ætlunin að bæta
þessum þætti við rekstur VÍB.
Tvennir glasatvíburar komnir í heiminn
Gekkeins
og í lyga-
sögu
- segir Árdís Indr-
iðadóttir móðir
annarra tvíburanna
AÐRIR íslensku glasatvíbur-
arnir fæddust á Landspítalan-
um árla á miðvikudag. Foreldr-
ar tvíburanna, tveggja pattara-
legra stráka, eru Ardís Indriða-
dóttir og Björn Ingi Óskarsson
frá Skagaströnd. Fyrir á Árdís
11 ára strák, Davíð. Fyrstu ís-
Iensku glasatvíburarnir fædd-
ust í liðinni viku.
„Meðgangan gekk mjög vel og
fæðingin eiginlega eins og í lyga-
sögu. Varla mátti tæpara standa
að ég næði á spítalann og allt var
yfírstaðið á íjórum tímum,“ sagði
Árdís í samtali við Morgunblaðið
en þess má geta að strákarnir
vógu 15 merkur hvor þegar þeir
fæddust. „Við erum búin að vera
Morgunblaðið/Kristinn
Glasatvíburarnir með fjölskyldu
Björn Ingi, Davíð og Árdís með tvíburana sem vógu 15 merkur hvor
við fæðingu.
héma síðan 10. ágúst vegna þess
að algengt er að tvíburar fæðist
hálfum mánuði fyrir tímann en
svo var ekki. Ég gekk með þá
næstum því fulla meðgöngu,"
bætti Árdís við.
Coldwater 1 Bandaríkjunum
Lágt gengi dollars dregur
úr birgðum af fiskflökum
-segir Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater
HALDIST hið Iága gengi á dollar áfram mun það hafa áhrif á fisk-
birgðir íslensku sölufyrirtækjanna í Bandaríkjunum. Magnús Gústafs-
son forstjóri Coldwater segir að enn sem komið er séu brigðir af
fiskflökum hjá þeim eðlilegar eða til næstu 3-4 mánaða. „Hinsvegar
getur hið lága gengi dollarans dregið úr áhuga framleiðenda að selja
vöru sína á þennan markað og minnkað birgðir. Við getum ekki
brugðist við þessu með því að hækka verðin, þau eru þegar í hærri
kantinum," segir Magnús.
Gengi dollarans hefur lækkað
mjög hratt að undanfömu eða úr
tæplega 60 krónum í vor niður í 53
krónur nú. Magnús segir að sem
stendur séu teikn á lofti um að doll-
arinn sé að rétta úr kútnum aftur.
„Það verður að hafa í huga að við
eram í samkeppni við aðra matvöra
eins og kjöt og kjúklinga auk sjávar-
afurða frá framleiðendum í Banda-
Rannsókn kókaínmálsins flutt frá fíkniefnalögreglu til RLR
Ekki gagnrýni á störf
fíkniefnalögreglunnar
- segir Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari
HALLVARÐUR Einvarðsson ríkissaksókn-
ari hefur ákveðið að Rannsóknarlögregla
ríkisins, en ekki fíkniefnadeild lögreglunnar
í Reykjavík, skuli annast rannsókn kókaín-
málsins svokallaða, en áður hafði RLR verið
falið að rannsaka þann þátt málsins sem
laut að ofsaakstri hins grunaða höfuðpaurs
málsins og árekstri milli flóttabíls hans og
lögreglubils og árás mannsins á lögreglu-
menn sem handtóku hann. Rannsóknargögn
málsins voru afhent RLR í gær. Þeirra á
meðal eru, samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, játningar meints höfuðpaurs um
að hann hafi flutt efnið inn til landsins og
hafi ætlað sér að se\ja það. Ríkissaksóknari
sagði í samtali við Morgunblaðið að ákvörð-
un hans bæri ekki vitni um gagnrýni á störf
fíkniefnalögreglunnar eða stjórnenda henn-
ar og ákvarðanir þeirra í málinu.
„í þessu máli beinist rannsókn að ætluðum
brotum á almennri hegningarlöggjöf, sem er
að meginstofni til viðfangsefni Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, sem og sérrefsilöggjöf, þar á
meðal ávana- og fíkniefnalöggöf. Tilteknum
þáttum málsins hafði áður verið vísað til RLR.
Ég hef hallast að því að eðlilegt og heppilegt
væri að rannsókn þessa máls væri hjá einni
stofnun og rannsóknarforræði á einni hendi,
enda þótt ég leggi áherslu á nauðsynlega sam-
vinnu milli lögregluembættanna," sagði Hall-
varður.
Böðvar Bragason lögreglustjóri sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann hefði ekki gert
ágreining við ríkissaksóknara um fyrrgreinda
ákvörðun hans enda væri óumdeilt að ríksisak-
sóknari hefði til þess heimildir. „Hann hefur
þessar heimildir og notar þær samkvæmt því
sem hann telur réttast hveiju sinni,“ sagði Böð-
var Bragason og kvaðst ekki líta á ákvörðun
saksóknara sem gagnrýni á störf embættis síns
á meðferð málsins. Böðvar kvaðst telja að sínir
menn hefðu unnið vel að málinu og notkun tál-
beitu til að upplýsa það hefði verið eðlileg og
innan marka laga. Hann kvaðst geta tekið und-
ir raddir um að reglur um beitingu óhefðbund-
inna rannsóknaraðferða, eins og notkun tál-
beitu, væra óljósar og taldi unnt að bæta úr
því með því að ríkissaksóknari gæfí út reglur
þar um, eða lögreglan setti sér innanhússregl-
ur. Hins vegar væri lagasetning ónauðsynleg í
þeim efnum.
í samtali við Böðvar kom fram að fíkniefna-
lögreglan hefði í fáeinum málum greitt upp-
ljóstrarum fyrir upplýsingar um mál.
Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari sagði
aðspurður um hvort ekki hefði verið eðlilegra
að fela fíkniefnalögreglunni að rannsaka málið
allt, ef rannsókn þess þyrfti að vera á einni
hendi, þar sem hún hefði fyrir haft með höndum
viðameiri hluta þess: „Nei, lögum samkvæmt
fellur rannsókn alvarlegra hegningarlagabrota
á aðalstarfssvæði RLR almennt undir RLR, að
vísu með vissum undantekningum. Þegar rann-
sóknir mála tengjast með ýmsum hætti er lög-
skylt að rannsaka þetta allt á sama tíma. Ef
til þess kemur að málið fari fyrir dóm verður
það væntanlega rekið sem eitt mál og því tel
ég eðlilegt að þetta sé á sömu hendi."
Ríkissaksóknari neitaði því að verið væri að
útiloka fíkniefnadeild lögreglunnar frá meðferð
málsins vegna þeirra aðferða sem beitt hefði
verið við að egna gildru fyrir hinn meinta höf-
uðpaur. Aðspurður um afstöðu sína til beitingu
tálbeitu sagði ríkissaksóknari að á síðari stigum
málsins kæmi það í heild til ákvörðunar ákæra-
valds og einnig til kasta dómstóla ef skilyrði
verða til þess. „Þá fyrst verður efni til að taka
afstöðu til þess sem fram hefur komið í mál-
inu,“ sagði ríkissaksóknari. Hann ítrekaði að
ákvörðun hans um að flytja forræði rannsóknar-
innar fæli ekki í sér neitt mat á starfsemi fíkni-
efnalögreglunnar, sem starfað hefði af dugnaði
og eljusemi að rannsókn fíkniefnamála almennt.
Olympíumótið í brids
• •
Oruggnr
signr á
Pakistan
ísiendingar unnu Pakistani
20-10 í 15. umferð Ólympíumóts-
ins í brids í gærkvöldi og stöðvuðu
þar með sigurgöngu Pakistana
sem höfðu unnið fimm síðustu
leiki sína. ísland er í 3. sæti í sín-
um riðli en mikil barátta er fyrir-
sjáanleg um úrslitasætin fjögur í
riðlinum.
íslendingar unnu Þjóðveija, 18-12,
í 13. umferð, en Þjóðveijar tefldu
fram sama liði og vann heimsmeist-
aramót fyrir tveimur árum. í 14.
umferð tapaði íslenska liðið naum-
lega fyrir Samveldismönnum, 14-16.
Eftir 15 umferðirera Hollendingar
efstir í B-riðli með 289 stig. Banda-
ríkjamenn era í öðra sæti með 280
stig, ísland í 3. sæti með 274,5 stig
og næstir koma Frakkar með 268
stig, Svíar með 266 stig, Norðmenn
með 265 stig, Tyrkir með 263 stig
og Pakistanir með 260 stig. í A-
riðli era Danir, Egyptar, ísraelsmenn
og Hong Kongbúar í fjórum efstu
sætunum.
Dagurinn í dag verður strangur
hjá íslendingum en þeir spila þá við
Bandaríkin, Argentínu og Svíþjóð.
-♦ ♦ ♦■
ríkjunum eða Kanada," segir Magn-
ús. „Af þessum sökum getum við
ekki bragðist við hinu lága gengi
með því að hækka verðin. Þau era
þegar í hærri kantinum."
Magnús segir að eftir skort á
þorski og ýsu seinnipart ársins 1990
og fyrripart 1991 sem leiddi til mik-
illa verðhækkana hafi dregið úr sölu
á þorski og ýsu. Síðan hefur salan
haldist nokkuð óbreytt og er birgða-
staðan á flökunum eðlileg miðað við
þá sölu.
SVR - AV
Tæplega
3.000 græn
kort seld
TÆPLEGA 3.000 græn kort, sem
gilda á öllum leiðum Strætisvagna
Reykjavíkur og Almenningsvagna
bs., hafa verið seld síðan sala
þeirra hófst 15. ágúst sfðastliðinn.
Kortin eru seld á sérstökú kynn-
ingarverði á 2.000 krónur hvert
kort fram til 15. september en
eftir þann tíma kosta þau 2.900
krónur.
„Viðtökumar hafa verið nokkuð
góðar og við teljum þetta afar góðan
kost, þar sem kortin gilda um allt
höfuðborgarsvæðið," sagði Hörður
Gíslason, skrifstofustjóri Strætis-
vagna Reykjavíkur. „Tvennt ber þó
að hafa í huga og annað er að enn
er ágústmánuður en reynsla okkar
er sú að í september þegar skólamir
hefjast eykst sala á miðum. Svo hef-
ur það áhrif að fólk birgði sig upp
af gömlu miðunum."
♦ ♦ ♦
Eimskip
Minni skip í í
siglingar til
Bandaríkjanna
EIMSKIP mun á næstunni taka
leiguskip það er sinnt hefur sigl-
ingum til Bandaríkjanna af þeirri
Ieið, og mun minna skip sem er á
stærð við Selfoss koma í þess stað.
Auk leiguskipsins hefur Skóga-
foss verið í Bandaríkjasiglingum,,
og verður svo áfram.
Fyrr í vikunni kom fram í fréttum
að Eimskipafélagið hygðist bregðast
við breyttum markaðsaðstæðum í,
þessum flutningum með minnkun á
framboði. Hörður Sigurgestsson, for-
stjóri Eimskips, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta þýddi ekki
að ferðum yrði fækkað. „Við hyggj-
umst halda óbreyttri áætlun í þessum
siglingum," sagði Hörður. „Hins veg-
ar munum við minnka framboð okk-
ar á plássi með þessum hætti, og
þar með ná fram hagræðingu í flutn-
ingunum.“- - -<--------