Morgunblaðið - 28.08.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.08.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992 13 Námsmenn og lið- veisla bankanna eftir Óskar Garðarsson Eftir að Lánasjóður íslenskra námsmanna (LIN) breytti úthlutun- arreglum sínum námsmönnum í óhag hafa bankamir keppst um að bjóða fjársveltum námsmönnum „vildar- kjör“ í formi yfirdráttarheimilda, námsmönnum að „kostnaðarlausu". Vextir eru auglýstir 13-14,5%. Yfir- dráttarlán eru það lánafyrirkomulag sem hentar bönkunum sjálfum best. Þannig að þegar auglýst er „enginn annar kostnaður" er það einfaldlega vegna þess að umgetinn kostnaður er nánast enginn. Ber því að forðast þann misskilning að hér sé um góð- vild bankanna að ræða. Enda bjóða þeir námsmönnum ekki þriggja mán- aða víxla að „kostnaðarlausu“. Ekki aðeins vegna þess að kostnaður við útgáfu víxla er töluvert hærri en veiting yfírdráttarheimilda, einnig vegna þess að forvextir víxla eru „aðeins" 11,5-12,5%. Námsmenn sem nú eru á leið til náms erlendis ættu að hugsa sig um tvisvar áður en þeir ganga að tilboð- um íslensku bankanna. I fýrsta lagi er vert að benda á að ef námsmaður þarf að greiða skóla- eða innritunar- gjöld við upphaf náms eru oft góðir möguleikar á að semja við viðkom- andi skólastofnun um annaðhvort frestun á slíkum greiðslum, t.d. fram að áramótum, eða að námsmaður greiði fyrir eina önn í einu. Til eru dæmi um hvort tveggja. Enda er það réttindamál að námsmenn þurfi ekki að greiða þjónustugjöld fýrirfram. Ef hvorugt er gerlegt er jafnvel þess virði að fresta greiðslum á skóla- gjöldum þrátt fyrir allt, því að þeir dráttarvextir sem féllu á yrðu aldrei hærri en 13-14%. í öðru lagi er nokkuð víst að við- skiptabankar í viðkomandi landi bjóði upp á yfirdráttarþjónustu á töluvert lægri vöxtum en eru í boði hérlend- is. Enda er margsannað að munur inn- og útlánsvaxta er meiri hér á landi en í flestum vestrænum lönd- um. Námsmenn á leið utan ættu því að hafa samband við helstu við- skiptabanka í viðkomandi landi og afla sér upplýsinga um þá þjónustu sem er í boði. Það er í sjálfu sér ekki nema eðli- legt að fulltrúar námsmanna hafi farið þess á leit við bankana að þeir kæmu til móts við fjármagnsþarfir námsmanna. Bankamir lifa jú á því að leigja út peninga. En þeir eru ekki þeir einu sem eru aflögufærir. Bankamir eru að sumu leyti aðeins milliliður þeirra sem eiga fjármagn og þeirra sem vantar fjármagn. Þeir leigja íjármagn af einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum (t.d. verkalýðsfélögum og lífeyris- sjóðum) á 1-8% (af leigðu fjár- magni) og leigja það síðan út á 11-15%. I flestum tilfellum er slíkur milliliður nauðsynlegur, því hann ein- faldar allt fjármagnsstreymi í land- inu; tengir saman framboð og eftir- spurn. Það er hins vegar ekki sjálf- gefið að slíkur milliliður sé eitthvað náttúrulögmál. Ef mögulegt er að tengja saman framboð og eftirspurn á hagstæðari máta, ættu slíkar leiðir að vera famar. Hér mætti til dæmis nefna verkalýðsfélög og lífeyrissjóði annars vegar og námsmannahreyf- inguna hins vegar. Óskar Garðarsson „Ef engar breytingar verða á íslenskum fjár- magnsmarkaði neyt- endum í hag aukast aðeins líkurnar á að erlendar fjármálastofn- anir fari að bjóða ís- lendingum þjónustu sína í ríkum mæli.“ Mörg verkalýðsfélög og lífeyris- sjóðir leigja töluvert af fjármagni til bankanna á 6-8% vöxtum og í viss- um skilningi mætti segja sem svo að bankamir séu að bjóðast til að leigja námsmönnum þetta sama fjár- magn á 13-14,5%. Það er því rök- rétt að álykta sem svo að það væri hagkvæmara fyrir báða aðila, verka- lýðsfélög annars vegar og námsmenn hins vegar, að semja beint sín á milli. Félagasamtökin myndu leigja námsmannahreyfingunni ákveðið fjármagn á ca 8-10% vöxtum. Líklegt er að bankamir hafni slíkri röksemdafærslu og telji hana óraun- verulega og í framhaldi af því bendi á þá þjónustu sem þeir veita. Sú þjón- usta er jú mikilsverð, en staðreyndin er sú að oft er pottur brotinn í verð- lagningu á slíkri þjónustu og ótækt til frambúðar að þeir sem hafa brýna þörf fyrir „ódýrt“ fjármagn þurfi í raun að niðurgreiða þjónustu ann- arra, í formi hárra vaxta og verðbóta. Ef sú samkeppni sem nú er á ís- lenska fjármálamarkaðnum veitir ekki það nauðsynlega aðhald sem þarf til að tryggja réttmæta þjón- ustu, þá er þess óskandi að áður- nefndir aðilar taki upp milliliðalaus fjármagnsviðskipti, til að veita slíkt aðhald. Ef engar breytingar verða á ís- lenskum fjármagnsmarkaði neytend- um í hag aukast aðeins líkumar á að erlendar fjármálastofnanir fari að bjóða íslendingum þjónustu sína í ríkum mæli. Höfundur er með BS-gráðu í markaðsfræðum frá Lancaster University í Englandi. N/S: Guðlaugur Sveinsson-Lárus Hermannsson 527 Þrösturlngimarsson-ÓmarJónsson 493 Runólfur Jónsson—Steinberg Ríkharðsson 487 ÓmarOlgeirsson-AgnarKristmsson 485 Dröfn Guðmundsd.-ÁsgeirP. Ásbjömsson 480 ísak Öm Sigurðsson-Sveinn R. Eiríksson 474 A/V: ErlendurJónsson—JensJensson 507 Sigurður Ívarsson-Jón Steinar Ingólfsson 503 Jón Stefánsson-Sveinn Sigurgeirsson 496 Bjöm Theodórsson-Gísli Hafliðason 490 Erla Siguijónsd.—Kristjana Steingrímsd. 477 Gunnl. Kristjánss-HróðmarSigurbjömss. 473 ÓAPir HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 HARÐVIOARVAL Leikhúsveisla fyrlrbigf allanvetur í Borgarleikhúsinu Sala adgangskorta hefst þriðjudaginn 1. september. í áskríft SEX leiksýningar á aðeins kr. 7.400,- Frumsýningar kr. 12.500,- Elli- og örorkulífeyrisþegar kr. 6.600,- Verkefni: Á slóra sviði: Dunganon nýtt íslenskt verk eftir Björn Th. Björnsson Heima hjá ömmu óvenjulegt verk eftir Neil Simon Blóðbræður söngleikur eftir Willy Russell Tartuffe gamanleikur eftir Moliére Ronja ræningjadóttir fjölskylduleikrit eftir Astrid Lindgren Á lilla sviði: Sögur úr sveitinni; Platonof og Vanja frændi, sígild meistaraverk eftir Anton Tsjékov. Dauðinn og stúlkan áhrifamikið og spennandi verk eftir Ariel Dorfman Miðasalan er opín alla daga frá kl. 14-20 meðan kortasalan stendur yfir, auk pess er tekið á móti miðapöntunum í sima 680 680 frá kl. 10-12 alla virka daga. flth. Greiðslukortapjónusta! LEIKHÚSLÍNAN Oplðhús verður sunnudaginn 30. ágúst kl. 14-18. Kynnt verður verkefnaskrá vetrarins og boðið upp á skoðunarferðir, söng o.fl. Gosan hf. býður upp á Pepsi, Síld & fiskur býður upp á grillaðar pylsur, krakkarnir lita í Ronju-horninu með Crayola-litum frá Pennanum og drekka Garp frá Mjólkursamsölunni, kaffiveitingar. Verið velkomin í Borgarleikhúsið! OjO LEIKFELAG REYKJAVÍKUR BORGARLEIKHUSINU SÍMI680 680 M 9208F

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.