Morgunblaðið - 28.08.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992
19
PLO
Israelska til-
lagan „lítt
áhugaverð“
Túnisborg. Reuter.
YASSER Abed Rabbo, félagi í
framkvæmdastjórn Frelsissam-
taka Palestinumanna (PLO), sagði
í gær að tiliaga sljómar Yitzhaks
Rabins, forsætisráðherra Israels,
um sjálfstjórn Palestínumanna á
hernumdu svæðunum væri lítt
áhugaverð og að viðræðurnar í
Washington um frið í Miðaustur-
löndum væru nú í sjálfheldu.
„Það er ekki einu sinni eitt ein-
asta atriði í tillögunni sem verðskuld-
ar athygli Palestínumanna," sagði
Abed Rabbo. „Viðræðurnar eru í
sjálfheldu og ef ísraelar halda áfram
á sömu braut er ljóst að þeir vilja
ekki að árangur náist í viðræðunum,
að minnsta kosti ekki fyrir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum.“
ísraelsstjórn hefur lagt til að Pa-
lestínumenn kjósi „framkvæmdaráð"
sem fari með stjórn eigin mála Pal-
estínumanna á fimmtán afmörkuðum
sviðum. Palestínumenn vilja hins
vegar fá löggjafarvald og segja að í
tillögunni sé í reynd aðeins gert ráð
fyrir auknum völdum Palestínu-
manna í sveitarstjórnamálum.
---------* * *----
Misháar
tryggingar
Jakarta. Reuter.
LÍF hvers þjóðarleiðtoga sem sæk-
ir fund Hreyfingar óháðra ríkja í
Jakarta í Indónesíu, en þeir eru
106 talsins, fyrstu vikuna í septem-
ber hefur verið tryggt fyrir sem
nemur 7,4 mil(jónum ÍSK.
Fyrir sömu upphæð fást líftrygg-
ingar tíu blaðamanna eða tveggja
utanríkisráðherra. Opinber frétta-
stofa í Jakarta hafði eftir sölumanni
indónesísks einkafyrirtækis að allir
þátttakendur væru tryggðir hjá því.
Ofurtölva til að bæta
langtímaveðurspána
Lundúnum. The Daily Telegraph.
VEÐURFRÆÐINGAR, sem eru orðnir langþreyttir á háðsglósum
um að veðurspár þeirra standist ekki, hafa blásið til nýrrar sókn-
ar - með öflugustu tölvu sem notuð hefur verið utan leynilegra
land varnastofnana.
Tölvan verður prófuð í Evr-
ópsku veðurspármiðstöðinni í Re-
ading í Englandi. Hún er banda-
rísk, heitir Cray Y-MP C90, getur
framkvæmt 10.000 milljónir út-
reikninga á sekúndu og minni
hennar er svo stórt að hún gæti
geymt fimm hundruð eintök af
öllum verkum Shakespeares. Þeg-
ar hún er í fullri notkun gefur hún
frá sér jafn mikinn hita og 2.000
manns og því þarf sérstakan kæli-
búnað til að koma í veg fyrir að
hún hitni ekki um of.
Veðurfræðingunum í Reading
veitir ekki af þessari öflugu tölvu
því verkefnið sem þeir hafa tekið
sér fyrir hendur er vægast sagt
erfítt: Þeir ætla að sjá allri Evrópu
fyrir veðurspám allt að tveimur
vikum fram í tímann, auk mats á
því hversu áreiðanlegar spárnar
eru.
Veðurspármiðstöðin var stofnuð
á áttunda áratugnum og henni er
ætlað að sjá evrópskum veðurstof-
um fyrir veðurspám fyrir allt að
tíu næstu daga. Þótt þessar spár
séu stundum aðhlátursefni almenn-
ings geta veðurfræðingamir oft
gefíð út gagnlegar spár viku eða
svo fram í tímann. Tim Palmer,
yfírmaður rannsóknadeildar mið-
stöðvarinnar, segir að helsta
vandamálið hafí alltaf verið að
greina góðu spámar frá þeim
gagnslausu. „Það er mjög erfítt að
dæma um það, engar einfaldar
þumalputtareglur em til,“ sagði
hann. „Nákvæm staða hæðar getur
til að mynda verið mjög mikilvæg."
Bandaríski vísindamaðurinn
Edward Lorenz komst að því á
sjöunda áratugnum að nákvæmar
langtímaspár væm óhugsandi því
jafnvel smávillur, til að mynda um
vindhraða, hlæðu upp á sig með
tímanum þannig að nákvæmnin
fyki út í veður og vind. Lorenz
kallaði fyrirbærið „fíðrildisáhrif-
in“, því fíðrildi í Kansas gæti -
að minnsta kosti fræðilega - vald-
ið fellibyl í Hong Kong.
Talið er að aldrei verði hægt
að vinna fullnaðarsigur á „fiðrild-
isáhrifunum", en þeirra gætir
stundum lítið og þá geta veður-
fræðingamir spáð fram í tímann
með meiri nákvæmni. Þetta er ein-
mitt það sem veðurfræðingarnir í
Reading vilja gera. Cray-ofurt-
ölvan gerir þeim kleift að meta
hversu áreiðanlegar spárnar era.
Veðurfræðingarnir nota forrit
með líkani af Iofthjúpi jarðar.
Upplýsingar um hita, vindhraða
og fleira eru síðan settar í tölv-
una, sem vinnur úr þeim í um það
bil tvær klukkustundir og býr til
spá fyrir allt að tíu næstu daga.
Til þess þarf tölvan að framkvæma
20 billjónir (milljón milljónir) út-
reikninga. Síðan verður einfaldara
líkan notað til að endurvinna alla
spána um 30 sinnum, með smá-
vægilegum breytingum á upplýs-
ingunum í hvert skipti. Með því
að sjá hvaða áhrif breytingarnar
hafa á aðalspána vonast veður-
fræðingamir til að geta metið
hversu mikil „fiðrildisáhrifín" em
tiltekinn dag. Miðstöðin sendir síð-
an spárnar ásamt mati á áreiðan-
leika þeirra til veðurstofanna, sem
ákveða hvort þær noti þær í eigin
veðurspár.
Barist gegn íslenskum byl. Verða veðurfræðingar hæfari til að
vara okkur við?
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kópavogi, sími
671800
Honda Civic CRX '88, svartur, 5 g.( ek.
72 þ., sóllúga o.fl. Fallegur bfll. V. 840
þús. stgr.
Plymouth Laser RS Twin Cam 16v '90,
grásans, 5 g., ek. 32 þ. mílur, rafm. í öllu
o.ffl. Glæsilegur bfll. V. 1490 þús. stgr.,
sk. á ód.
Nissan Primera SLX 2000 '91, 5 dyra,
beinsk., ek. 19 þ., rafm. í rúöum o.fl. Gott
eintak. V. 1270 þús. stgr., sk. á ód.
Toyota Corolla XL ’92, 5 dyra, blásans,
5 g., ek. 11 þ., vökvast., central o.fl. Sem
nýr. V. 920 þús. stgr.
Lada Safír ’91, sem nýr, ek. 13 þ. V. 290
þús. stgr.
MMC Colt EXE '91, rauður, 5 g., ek. 20
þ., saml. stuðarar o.fl. V. 850 þús., sk. á
ód.
MMC Lancer GLXi Hlaðbakur 4x4 '91,
ek. 27 þ. V. 1080 þús. stgr.
Renault Clio RT '91, 5 dyra, 5 g., ek. 6
þ., rafm. í öllu o.fl. V. 790 þús. stgr.
Fiat X1/9 Bertone Spider '80, rauður, 5
g., ek. 55 þ. km. Óvenju gott eintak. Skoð-
aður ’93. V. tilboð sk. á ód.
Buick Electra LTD '83, blár m/vinyltopp,
sjálfsk., 8 cyl. (350), ný uppt. vél, rafm. í
öllu. V. 690 þús. stgr., sk. á ód.
Toyota Landcruiser '86, bensín, rauður,
5 g., ek. 88 þ., 33" dekk, álfelgur o.fl.
Fallegur jeppi. V. 1080 þús. stgr., sk. á ód.
Honda Civic Shuttle 4x4 '88, hvitur, 5
g., ek. 74 þ. Toppeintak. V. 780 þús. stgr.
Honda Prelude EX '87, hvítur, sjálfsk.,
ek. 68 þ., sóllúga, rafm. í öllu. Fallegur
bfll. V. 890 þús. sk. á ód.
Vantar á skrá og á staðinn árg. ’90-'92
ÁLDÁ
dagak
20^50^
21. - 28. ÁGÚST
«o«UR
•staðgreitt
WkM.