Morgunblaðið - 28.08.1992, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 28.08.1992, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992 34 16 500 SPECTr coRDlNG ALRt \m □[ DuLBYSTEREO í A og B sal * * * * * SPENNA HRAÐI HROLLUR SPENNA HRAÐI HROLLUR SPENNA HRAÐI HROLLUR FYRST VAR ÞAÐ TORTIMANDINN, NU ER ÞAÐ OFURSVEITIN ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ JEAN-CLAUDE VAN DAMME DOLPH LUNDGREN ÞEIR VORU NÆSTUM ÞVÍ MANNLEGIR NÆSTUM ÞVÍ FULLKOMNIR NÆSTUM ÞVI VIÐRÁÐANLEGIR STÓRKOSTLEG SPENNUMYND, ÓTRÚLEGAR BRELLUR FRÁBÆR ÁHÆTTUATRIÐI. Leikstjóri: Roland Emmerich. Framleiðandi: Mario Kassar (Rambo, Total Recall, Terminator 2, Basic Instinct). Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. MIÐNÆTURSÝNING í B-SALKL. 12. NATTURUNNAR Sýnd kl. 51 B-sal. ENGLISH SUBTITLE. Miðaverð kr. 500. ÓÐURTIL HAFSINS Sýnd kl. 7. Bönnuði. 14ára. NATTFARAR Synd kl. 9.15. Bönnuö i. 16 ára. Nan Hoover sýnir í Nýlistasafninu NAN Hoover heldur yfirlitssýningu á myndbandaverkum sínum í Nýlistasafninu laugardaginn 29. og sunnudagimi 30. ágúst. Verk Nan Hoover hafa verið unnin í margvís- leg form, s.s. gjörninga, innstillingar, teikningar og graf- ík en aðallega kvikmyndir og myndbönd. Nan Hoover hefur nýlega tekið við stöðu prófessors í myndbandalist í Listaaka- demíunni í Dusseldorf eftir áralangan feril í Hollandi sem listamaður og kennari. Nan Hoover er alþjóðlegur lista- maður á sviði gjörninga og myndbandalistar. Hún hefur haldið sýningar í Evrópú, Japan, Ástralíu og Bandaríkj- unum. Þetta er í annað skipti sem hún heimsækir Island, í fyrra skiptið sýndi hún gjörn- ing í Nýlistasafninu í bytjun síðasta áratugar. Laugardag og sunnudag kl. 14 til 18 er stöðug mynd- bandasýning á stórum skermi og á sunnudag kl. 19 til 22 heldur Nan Hoover fyrirlestur um verk sín og sýnir mynd- bandaverk. Menningarstofnun Banda- ríkjanna, Nýlistasafnið, Myndlista- og handíðaskóli íslands og Saga Film styðja sýninguna. (Úr fréttatilkynningu) Glæpaklíkur í grjótinu Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Ameríkaninn („Americ- an Me“). Sýnd í Lauga- rásbíói. Leikstjóri: Edw- ard James Olmos. Hand- rit: Floyd Mutrux og Desmond Nakano. Aðal- hlutverk: Edward James Olmos, William Forsyth, Pepe Serna, Evelina Fernandes. Flest morð sem framin eru í Bandaríkjunum eru framin af glæpaklíkum eða gengjum. Ameríkan- inn, í leikstjórn Edward James Olmos, sem einnig fer með aðalhlutverkið, er enn ein myndin að vestan sem reynir að takast á við og kryfja menningu glæpagengjanna í fá- tæktrahverfunum, í þetta sinn hverfum mexíkan- skra innflytjenda í Los Angeles. Hún er gengja- mynd byggð að einhverju leyti á staðreyndum að því er fram kemur í upphafi og spannar 30 ár í lífi mexíkanskrar fjölskyldu í Los Angeles og sérstak- lega elsta sonarins, sem Olmos leikur, en hann verður höfuð stærstu fangaklíkunnar í Folsom- fangelsinu þar sem mestur partur myndarinnar ger- ist. Olmos, sem er sjálfur af s-amerísku bergi brot- inn, ætlar myndinni flarska stórt markmið með því að setja uppgang gengiamenmngannnar í sögulegt samhengi. Hann reynir að lýsa sögulegum og félagslegum undanfara ástandsins í dag í gegnum æfi Santosar, sem ungur lendir í fangelsi og stofnar glæpagengi í kringum sig. Myndin byrjar í seinna stríði þegar urðu frægir götubardagar á milli s- amerískra innflytjenda og bandarískra sjóliða en eftir það tekur við sagan um Santos, sem Olmos leikur, og sagt er frá því hvemig hann fer ungur maður í betrunarvist sem gerir úr honum glæpamann og við tekur 18 ára fangavist. Eftir þennan tiltölulega langa kynningarkafla á persónum og aðstæðum, myndin er rúmir tveir tímar og það sýnir sig stundum, er komið að að- alefninu, lífinu í fangels- inu, fangagengjunum, lög- um og reglum gengjanna, glæpaverkum innan múranna, smyglleiðum dópsins, hefndarskyldur og þetta að láta aldrei sjá á sér veikleikamerki; í því felst m.a. að drepa meðlim í sínu eigin gengi hiksti hann á einhverju verkefn- inu. Olmos og handritshöf- undarnir Floyd Mutrux og Desmond Nakano hafa gert úr efninu ansi áhrifa- mikla og grimmilega raunsæa mynd, miskunn- arlausa og hrottafengna enda vita þeir að efnið, glæpagengi í fangelsi, bíð- ur ekki uppá nein vettlin- gatök. Hópnauðganir, morð, meiðingar og dóp- sala er partur af fangalíf- inu. Kynþáttahatur og kynþáttaóeirðir blossa. Það sem skiptir máli er að sýna styrk annars máttu búast við að vera drepinn og annar tekur við. Sýnirðu minnsta veik- leikamerki ertu búinn að vera og þegar Santos tek- ur að sjá hvernig gengja- menningin og glæpaum- hverfið er farið að eitra út frá sér eftir að hann er látinn laus úr fangelsi og hann fær bakþanka, er honum bráð hætta búin. Helsta veikleikamerki myndarinnar er að hún er fulllöng, kynningarkaflinn í byijun hefur svosem ekki miklu hlutverki að gegna og kannski má segja að fullþykkt sé smurt á dram- að og boðskapinn undir lokin. En myndin er frísk- lega tekin, Olmos passar yfirleitt uppá að halda manni við efnið og þetta er mynd með hlutverk. Hún sýnir eitrunina að baki glæpasamfélagsins, mannfyrirlitninguna og hreinan sadisma. Hún hef- ur boðskap að flytja sem virðist sannarlega eiga er- indi vestra. Sjálfur er Olmos góður í hlutverki Santosar, sem þekkir ekki annað en fang- elsislífið, hægur vel og yfirvegaður og lág- stemmdur og þrúgaður af efasemdum undir lokin. Aðrir leikarar falla vel inní hlutverkin. ■ HLJÓMSVEITIN Gal- íleó leikur á Gauk á Stöng í kvöld, föstudagskvöld, og í Ýdölum í Aðaldal á morgun laugardagskvöld. Galíleó skipa Sævar Sverrisson, sem syngur, Rafn Jónsson, sem leikur á trommur, Einar Bragi, sem leikur á saxófón og flautu, Birgir Bragason, sem leikur á bassa, Jósep Sigurðsson, sem leikur á hljómborð, og Örn Hall- grímsson, sem leikur á gít- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.