Morgunblaðið - 28.08.1992, Blaðsíða 35
Úr Viðey.
AMERÍKANINN
Sontana stofnar glæpagengi í L.A., en er að meatu inn-
an fangelsiamúranna og atýrir þaðan genginu og endar
í dópi, atórglæpum og dauða.
Aðalleikarar: Edward J. Olmoa (aem leikstýrir Xíka),
William Eorsyth og Pepe Serna.
Stórblöð eins og L.A. Times, N.Y. Times og US
Today lofa þessa mynd í hástert. ★ ★ ★ ★
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9 og 11.10. - Bönnuð innan 16 ára.
In pnson
theyarethelaw.
On the streets
they are the power
ÍIM
j /v s j»i /í /i /> « y /i 7 /í u /; .s /■ o n v
Gönguferð og staðarskoð
un og messa í Viðey
GÖNGUFERÐ verður um
Vestureyna í Viðey á laug-
ardag, á sunnudag verður
messa og eftir hana stað-
arskoðun.
Gönguferð um Vestureyna
hefst á laugardag kl. 14.15.
Gengið verður eftir nýja
gangstígnum, þar sem m.a.
má sjá steina með áletrunum
frá fyrri hluta 19. aldar og
lundaveiðistaði, þar sem
menn stóðu og háfuðu lunda
áður fyrr. Lundinn hvarf úr
eynni er minkurinn kom þar
og hefur ekki komið aftur,
þótt minknum hafi verið út-
rýmt. Þá eru þar einnig rúst-
ir fjárhúsa, sem trúlega hafa
verið þarna frá því snemma
á öldum, en þau eru sýnd á
elsta korti af Reykjavíkur-
svæðinu frá 1715. Göngu-
ferðin tekur um einn og hálf-
an tíma.
Messað verður í Viðeyjar-
kirkju á sunnudag kl. 14.
Prestur verður sr. Hjalti
Guðmundsson. Dómkórinn
syngur, organleikari Mar-
teinn H. Friðriksson.
Staðarskoðun verður svo
eftir messu kl. 15.15. Hún
hefst í kirkjunni, þar sem
saga Viðeyjar verður rakin í
stórum dráttum og kirkjunni
lýst. Úti verður horft til ör-
nefna í túninu, fornleifa-
gröfturinn skoðaður og út-
sýnið af Heljarkinn. Loks
verður Viðeyjarstofa sýnd að
hluta. Staðarskoðunin er lítt
háð veðri og flestum auðveld.
Hún tekur um þtjá stundar-
fjórðunga.
Kaffisala er báða dagana
í Viðeyjarstofu kl. 14-16.30
og þar er einnig opið fyrir
kvöldverðargesti.
Bátsferðir eru úr Sunda-
höfn á heila tímanum frá kl.
13.00.
(Fréttatilkynning)
<*i<»
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta
hefst þrtðjudagmn
1. september
Kortin gilda á sex leiksýningar,
verð kr. 7.400,-
Á frumsýningar, verð kr. 12.500,-
Elli- og örorkulífeyrisþegar, verð kr. 6.600,-
Miðasalan er opin daglega kl. 14-20 á meðan kortasalan
fer fram, einnig er tekið á móti pöntunum í síma 680680
alla virka daga kl. 10-12. Greiðslukortaþjónusta.
MÖRCiUNBLADID FÍÍSTÚDAGÚR 28. ÁGÚST 1992
3Ö
Á STÓRU TJALDI í
□CJI dolbystereo] Pn
Mylidin sem
tekur alla með trompi.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
HRINGFERÐ TIL
PALMSPRINGS
Tveir vinir stela Rolls
Royce og f ara í stelpuleit.
Sýnd kl. 9 og 11.
Bönnuð i. 12 ára.
STOPPEÐAMAMMA
HLEYPIRAF
Grinari með
Silvester Stallone.
Sýnd kl. 5 og 7.
Miðaverð kr. 300.
Sýnir á Sel-
tjarnarnesi
GUNNHILDUR Ólafsdóttir
opnar sýningu á verkstæði
sínu að Lambastaðabraut 1
á Seltjarnarnesi laugardag-
inn 29. ágúst.
Gunnhildur útskrifaðist úr
Grafíkdeild Myndlista- og
handíðaskóla Islands árið
1989 og hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Messótinta, æting og stein-
þrykk og eru þær aðferðir sem
hún hefur fengist með við í
myndum sínum.
Þetta er fyrsta einkasýning
Gunnhildar og lýkur henni 6.
september. Sýningin er opin
alla daga frá kl. 15 til 21.
(Fréttatilkynning)
Gunnhildur Ólafsdóttir í
vinnustofu sinni.
Skátadagur í
Árbæjarsafni
SKÁTADAGUR verður í
Árbæjarsafni sunnudaginn
30. ágúst í samstarfi við
samband Reykjavíkur.
Dagskráin hefst klukkan
13 með fánahyllingu við Vær-
ingjaskálann. Kl. 13.30 hefst
dagskrá tengd tjalbúðastörf-
um. Gestum er boðin leiðsögn
við ýmis verk. Kl. 17 verður
varðeldur fyrir skáta og gesti
og kl. 17.50 verður dreginn
niður og dagskrá lýkur.
Að venju verður ýmis önnur
starfsemi á safnsvæðinu. Kl.
14 verður messa í kirkju
safnsins. Prestur er séra Þór
Hauksson. Þá verður kram-
búðin opin og Karl Jónatans-
son þenur nikkuna fyrir utan
Dillonshús.
Nú í sumar hafa eldri borg-
arar gengið til liðs við starfs-
fólk Árbæjarsafns og sýna
handverk fyrri tíma.
(Úr fréttatilkynningu)
VARNARLAUS
flj
OGNAREÐLI
/3r,
★ ★ ★ Vt BtÖL.
★ ★★★GÍSLI E. DV
Sýnd kl. 5, 9og 11.15.
Bönnuði. 16ára.
LOSTÆTI
I lli' lllll' lllllli! HHin* nIiiii Ivllli! lll.lll llli' kllllll'J Hilv llll’ lllllllll'.
DEFEIEIÆSS
Hörkuspennandi þriller með f rábærum leikurum. Alli
héldu að Steven væri virtur viðskiptajöfur en þegar
hann er myrtur kemur ýmislegt í 1 jos.
í raun höfðu allir ástæðu til að myrða hann, kona hans
og jafnvel dóttir.
Aðalhlutverk: Sam Shepard (Homo Faber, The Right
Stuff), Barbara Hershey (Shy People, A World Apart, The
Last Temptation of Christ) og Mary Beth Hurt (The
World According to GARP, D.A.R.T.L.)
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
★ ★ ★ ★ sv MBL.
★ *★ BÍÓLÍNAN
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuði. 14.
HOMOFABER
Sýnd kl. 5,7,9,11.
KOLSTAKKUR
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
REGNBOGINN SIMI: 19000
Furðuverur í
furðuveröld
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Batman snýr aftur —
„Batman Returns“ Leik-
stjóri Tim Burton. Aðal-
leikendur Michael Kea-
ton, Danny DeVito,
Michelle Pfeiffer, Chri-
stopher Walken, Michael
Murphy, Pat Hingle,
Michael Gough. Banda-
rísk. Warner Bros. 1992.
Fyrir þremur árum var
frumsýnd talsvert eft-
irtektarverð og minnis-
stæð mynd fyrir margra
hluta sakir. Þetta var Bat-
man, dökk og drungaleg í
listrænum teiknimyndastíl
þar sem búningar og
leiktjöld voru í stjörnuhlut-
verkinu. Að undanteknum
Jack Nicholson sem stal
senunni í yfirgengilegum
ofleik í aukahlutverki
„Spaugarans". Og Bat-
man sló eftirminnilega í
gegn, enda vel framreidd,
markaðssett með bram-
bolti og látum og teikni-
myndasagan sem myndin
er byggð á vinsæl með
afbrigðum. Hollywood-
framleiðendur láta ekki
slíkt happ úr hendi sleppa
og hér er komið framhald-
ið sem var einn af sumars-
mellum kvikmyndahúsa
vestan hafs í ár.
Líkt og forverinn er
Batman snýr aftur afar
persónuleg mynd, ýkt og
léttrugluð með afkáraleg-
um persónum, myrk og
drungaleg, krydduð kald-
hæðni og talsverðu of-
beldi, en allt virðast þetta
vera vörumerki leikstjór-
ans Burtons. Nú er Spaug-
arinn úr myndinni en í
hans stað kominn „Mör-
gæsin“ (DeVito), önnur
kunn persóna úr teikni-
myndabálknum. Gengur
myndin útá baráttu þessa
undirheimahöfðingja við
að ná kosningu sem borg-
arstjóri í Gotham með að-
stoð iðnjöfurins Walkens,
óþokka hins mesta. Sitj-
andi borgarstjóri (Murp-
hy) fær hinsvegar til liðs
við sig hinn réttsýna og
drenglundaða Leðurblöku-
mann og Kattarkonan
vonda (Pfeiffer) kemur
talsvert við sögu.
Það gekk ekki átaka-
laust að koma nýja sögu-
þræðinum saman og
margir kallaðir til verks-
ins. Slík vandamál lofa
aldrei góðu og handritið
er höfuðverkur ásjálegrar
myndar í flesta staði. Hér
eru komnar fjórar aðalper-
sónur til sögunnar, kynn-
ingin á þeim öllum er fyrir-
ferðarmikill og þegar at-
burðarásin tengir þær
saman gengur það stirð-
lega. Að auki virka þær
fráhrindandi allar svo
myndin er íjarri manni á
tjaldinu. Kattarkona
Pfeiffers er litrík og svæs-
in en bakgrunnurinn tóm-
legur. Walken er skemmti-
lega viðsjárverður óþokki
en DeVito er þó magnað-
astur í hlutverki Mörgæs-
arinnar enda er langmest
í það lagt og DeVito til-
þrifamestur leikaranna í
hópnum. Engu að síður
verður persónan afskap-
lega fráhrindandi og ljót í
meðförum hans, mér ligg-
ur við að segja hin ókræsi-
legasta er hún slafrar í sig
fiskmeti eða læsir brennd-
um skögultönnum um nef-
ið á næsta manni. Útlitið
er þó innrætinu verra og
er þetta furðuverk allt-
saman lítið fyrir yngstu
börnin á heimilinu. Keaton
stendur sig sómasamlega
sem Leðurblökumaðurinn
sjálfur, fær þó frekar lítið
pláss og hetjuímyndin er
ekki háreist orðin í gálga-
húmorsmeðhöndlun Burt-
ons og félaga.
Sem fyrr eru það tjöldin
og búningarnir sem yfir-
gnæfa annað. Þó mörgum
þyki sjálfsagt nóg um
drungann eru þau listilega
vel gerð og áhrifarík. Þá
úir allt og grúir af hvers-
konar kynjaverum, sirkus-
trúðum, fjölleikahúsfólki,
mótorhjólagengjum og
leikstjóm Burtons er hug-
myndarík þó svo að heild-
aráhrifin séu óveruleg.
Batman snýr aftur minnir
talsvert á Addams fjöl-
skylduna og aðrar þær
myndir þar sem nostrað er
við hlutina af smekkvísi,
hvergi til sparað á nokkum
hátt en innihaldið verður
umbúðunum rýrara.