Morgunblaðið - 28.08.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992
5
Ávöxtun viðskiptavíxla á ársgrundvelli
L
60 daga víxlar
25,45
24,64 24,48 24,32
90 daga víxlar
100 þúsund króna viðskiptavíxill
Vextir eru á bilinu
21,41%—34,85%
LÁNSKJÖR á 100 þúsund króna
viðskiptavíxli eru á bilinu
21,41%-34,85%, allt eftir því til
hversu langs tíma og hvar víxill-
inn er tekinn. Á meðfylgjandi
töflu má sjá samanburð á milli
bankastofnana á 60 og 90 daga
viðskiptavíxlum af þessari upp-
hæð.
Upplýsingarnar eru fengnar hjá
Verslunarráði íslands, og er miðað
við að víxlunum sé velt í heilt ár.
Kostnaður af viðskiptavíxlunum er
tekinn með í reikninginn. Séu þessi
kjör borin saman við aðra lánsfjár-
möguleika kemur í ljós, að vart er
um dýrari fjármögnunarleið að
velja.
Kostnaður viðskiptamanna ís-
landsbanka af viðskiptavíxlum er
hæstur, eða 22,46%-34,85%. Bestu
kjör á þessum víxlum bjóðast hjá
Búnaðarbanka, 21,41%-33,48%, og
Sparisjóðum, 21,66%-33,33%.
Hvalfjarðargöng
Innheímtu virðisauka-
skatts verði frestað
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur lagt það til í ríkissljórninni að heimil-
aðar verði breytingar á samningi ríkisvaldsins við Spöl hf. um gerð
jarðganga undir Hvalfjörð. Leggur hann til að innheimtu virðisauka-
skatts af umferðargjaldinu verði frestað í 12-14 ár, á meðan lán
vegna framkvæmdanna verði greidd, en eftir þann tíma rynni allt
umferðargjaldið í ríkissjóð sem virðisaukaskattur á meðan verið
væri að greiða virðisaukaskattsskuldina með vöxtum en áætlað er
að það taki um tvö ár.
Gylfi Þórðarson, formaður stjórn-
ar Spalar hf., sagði að við undirbún-
ing að fjármögnun Hvalfjarðar-
ganga hefði komið í ljós að erfitt
væri að fá lán til nema tíu ára. Það
skapaði erfiðleika í greiðsluflæði
framan af. Hann sagði að japanski
bankinn sem tekið hefði saman
skýrslu um málið hefði komist að
þeirri niðurstöðu að fjármögnun
gæti með góðu móti gengið ef
mögulegt yrði að fresta greiðslu
virðisaukaskatts af umferðargjöld-
unum.
Þórhallur Jósepsson, aðstoðar-
maður samgönguráðherra, sagði að
Halldór Blöndal samgönguráðherra
hefði lagt til við ríkisstjórnina að
þessi leið yrði farin. Það skapaði
möguleika á að búið yrði að greiða
kostnað við framkvæmdirnar upp á
skemmri tíma en áætlað hafði verið
og að ríkið eignaðist mannvirkið
eftir um það bil 14 ár í stað 20-25
ára samkvæmt núgildandi samningi
aðila. Þórhallur sagði að tillaga ráð-
herra væri til athugunar í fjármála-
ráðuneytinu og vonast væri eftir
niðurstöðu fljótlega.
Stefnt hefur verið að því að vinna
við gerð Hvalfjarðarganga hefjist á
næsta ári og ljúki 1996.
Fyrstu sex mánuðir ársins
Vöruskiptajöfnuður hag-
stæður um 1,3 milljarða
FYRSTU sex mánuði þessa árs
var vöruskiptajöfnuður við út-
lönd hagstæður um 1,3 milljarða
Borg í Miklaholtshreppi
Þreytandi
heyskapartíð
Borg. __
ALLVHÖSS norðanátt hefur ver-
ið hér undanfarna daga en lítil
úrkoma. Bændur hafa því lítið
getað sinnt heyskap.
Háaspretta er í lakara lagi þótt
borið hafi verið á á milli slátta.
Víðast hvar er heyskap að ljúka.
Heldur er nú kuldalegt að líta til
fjalla þar sem tindar eru gráir af
snjó. . páll
króna, en var í jafnvægi á sama
tíma í fyrra. Vöruskipti voru
óhagstæð um 200 miHjónir í júní.
Raunverðmæti útflutnings á
þessum tíma var 7% minna en á
sama tíma í fyrra, en verðmæti
innflutnings minnkaði um 10% á
móti.
Verðmæti útfluttra sjávarafurða
var 8% minni fyrri hluta þessa árs
en þess síðasta, en útflutt kísiljárn
jók verðmæti sitt um 39% miðað
við fast gengi. Álútflutningur stóð
hins vegar nokkurn veginn í stað
hvað verðmæti varðar.
Það var helst minni innflutningur
til stóriðju, sem og á skipum og
flugvélum og til Landsvirkjunar
sem leiddi til hagstæðs vöruskipta-
jöfnuðar. Annar innflutningur, sem
var 81% af heildarinnflutningi
fyrstu sex mánuðina, reyndist hins
vegar hafa minnkað um 7%.
W
1 n nnl W fato lií>
J Metsölublað á hverjum degi!