Morgunblaðið - 28.08.1992, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992
Náttúrulækningafélag Islands
*
Arni Gunnarsson
framkvæmdastjóri
Heilsustofnunar
STJÓRN Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags íslands í Hvera-
gerði hefur ráðið Árna Gunnarsson sem framkvæmdastjóra. Alls
sóttu 23 um stöðuna en stofnunin mun reka heilsuhælið í Hveragerði.
Skóflustunga tekin
að nýju heimili fjöl-
fatlaðra ungmenna
Morgunblaðið/Júlíus
Knútur Bruun við málverk Gunnlaugs Schevings A sjó, en það
málaði Gunnlaugur árið 1945.
Listmunahúsið:
Sýningu á sjávarlífs-
myndum Gunnlaugs
Schevings að ljúka
AÐSÓKN að sýningu Listmunahússins við Tryggvagötu á átta
stórum málverkum eftir Gunnlaug Scheving hefur verið góð.
Nær tvö þúsund manns hafa séð sýninguna sem lýkur á sunnu-
dag. Myndirnar málaði Gunnlaugur á árunum 1945 til 1970 og
myndefni þeirra allra tengist sjó og sjósókn. Málverkin átta eru
í eigu ýmissa opinberra stofnana og hafa að sögn Knúts Bruun
sem rekur Listmunahúsið aldrei verið sýnd saman áður.
„Sumir halda því fram að þessi
málverk séu meðal þess besta sem
gert hefur verið í íslenskri mynd-
list á þessari öld,“ segir Knútur
Bruun. Hann kveðst hafa sett
Listmunahúsið á stofn með það í
huga fyrst og fremst að sýna þar
íslenska samtímalist, en jafnframt
hafi hann hug á því að sýna þar
einu sinni á ári verk eldri meist-
ara í íslenskri myndlist og tengja
þær sýningar hveiju sinni
ákveðnu þema í list málaranna.
„Slíkar sýningar byggjast á því
að eigendur myndanna, hvort sem
það eru einstaklingar eða opinber-
ar stofnanir, séu jafnfúsir til sam-
starfs og raunin var á með þessa
sýningu," segir Knútur.
Röð sýninga á verkum íslenskra
nútímalistamanna tekur við af
Scheving-sýningunni í Listmuna-
húsinu.
Dagskrá og sýning um
Ibsen í Norræna húsinu
Árni Gunnarsson
er nú stjórnarfor-
maður ríkisspítal-
anna. Morgun-
blaðið spurði Ólaf
B. Thors, stjóm-
arformann Heilsu-
stofnunarinnar,
hvort það sam-
ræmdist að
stjórnarformaður
ríkisspítalanna
væri ráðinn í þessa framkvæmda-
stjórastöðu. Ólafur sagði að þetta
sé spurning sem stjórn Heilsu-
stofnunar hafi ekki tekið afstöðu
til ennþá. „En ef þetta tvennt er
ekki talið samræmast reikna ég
með að Ámi láti af starfi sínu sem
FYRSTA skóflustungan var tekin
nýverið að nýju heimili landssam-
takanna Þroskahjálpar fyrir fjöl-
fötluð ungmenni í Steinahlíð 1 í
Hafnarfirði. Það var Guðmundur
Árni Stefánsson bæjarstjóri sem
það gerði. Fyrirhuguð bygging
hússins markar að mati landssam-
takanna tímamót í sögu þeirra.
Nú sé húsnæði fatlaðra í æ ríkari
mæli fjármagnað í félagslega hús-
næðiskerfinu.
Samtökin leggja áherslu á að ekki
sé verið að byggja stofnun heldur
heimili þeirra ungmenna sem þar
eiga að búa. í húsinu, sem er 345
fermetrar að flatarmáli, eru tvær
einstaklingsíbúðir og þqu íbúðarher-
bergi. Hús og lóð eru sérstaklega
hönnuð ti! að mæta sérþörfum fatl-
aðra en þess jafnframt gætt að hús-
ið falli inn í heildarskipulag hverfís-
ins.
Húsbyggingin er nær öll fjár-
mögnuð með láni úr byggingarsjóði
verkamanna en tíu prósent fjár-
mögnunarinnar voru fengin úr hús-
byggingarsjóði landssamtakanna.
Mikil og góð samvinna tókst einnig
að mati samtakanna við hlutaðeig-
andi sveitarfélag, Hafnarfjörð. Bæj-
arstjórnin útvegaði samtökunum lóð
en ráð hafði verið gert fyrir henni í
skipulagsuppdrætti svæðisins frá
upphafi. Loks eru samtökin þakklát
fyrir allan annan stuðning bæjar-
stjórnarinnar og má geta þess að hún
samþykkti nýlega að veita samtök-
unum beinan fjárstuðning, eina millj-
ón króna, til byggingarframkvæmd-
anna.
stjómarformaður ríkisspítalanna,
enda er það aðeins aukastarf en
framkvæmdastjórastaðan er heils-
dagsstarf," segir Ólafur.
Aðspurður vildi Ólafur ekki gefa
upp hveijir hinir umsækjendurnir
um framkvæmdastjórastöðuna
hefðu verið. „Hér er um einkastofn-
un að ræða og við höfum tekið þá
afstöðu að gefa ekki upp nöfn
umsækjenda," segir hann.
Heilsustofnun mun reka heilsu-
hælið í Hveragerði. Þar verður um
að ræða 100 rúma endurhæfingar-
deild sem rekin er samkvæmt sam-
komulagi við heilbrigðisráðuneytið
og 60 rúma heilsuhælisdeild þar
sem sjúklingar taka þátt í kostnaði
við reksturinn.
Guðmundur Árni Stefánsson sést
hér reiðubúinn til að taka fyrstu
skóflustungu að heimilinu.
SÝNING á grafíkverkum eftir
norska listmálarann Ludvig
Eikaas verður opnuð í anddyri
Norræna hússins á morgun,
laugardag, kl. 16. Myndefnið
er Henrik Ibsen og persónur
hans, en í september í fyrra
kom út heildarútgáfa á verkum
Henriks Ibsens hjá Den norske
Bokklubben
Ludvig Eikaas var fenginn til
að myndskreyta verkið. í fréttatil-
kynningu segir að á sýningunni
megi sjá hvemig hann túlki marg-
ar af persónum þeim sem Henrik
Ibsen skóp í leikritum sínum.
Einnig verður sýning á heildarút-
gáfunni, en hún er í tveimur bind-
um, alls um 1.000 blaðsíður. Den
norske Bokklubben var stofnaður
1961 og hélt upp á 30 ára af-
Mynd af Henrik Ibsen eftir Lud-
vig Eikaas.
mæli sitt á sl. ári með þessari
útgáfu.
I tengslum við opnunina verður
Stéttarfélög á
Suöurnesjum
Mótmæli
gegnaukinni
vinnu Banda-
ríkjamanna
STÉTTARFÉLÖG á Suðurnesj-
um funduðu með sljórn Starfs-
mannafélags varnarliðsins á
þriðjudag. Fundurinn fordæmdi
þá þróun að Bandaríkjamenn
ganga nú í auknum mæli í störf
sem íslendingar hafa gegnt.
Jafnframt samþykkti fundurinn
að beita fullri hörku til að hamla
gegn því að áfram sé gengið á rétt
íslensks starfsfólks. Stjórnir félag-
anna munu á næstunni ljalla nánar
um þessa þróun og auka þrýsting
á íslensk stjómvöld að standa betur
vörð um hagsmuni starfsfólksins.
----* * *---
Kjarvalsstaðir
Margar nýj-
ar sýningar
OPNAÐAR verða nýjar sýningar
í öllum sölum Kjarvalsstaða á
morgun, laugardag.
í Austursal verður sett upp sýn-
ing á verkum Alfreðs Flóka. I Mið-
sal verða sýndar abstrakthögg-
myndir Ásmundar Sveinssonar. í
Vesturforsal verða til sýnis gler-
listaverk eftir Færeyinginn Þránd
Patursson. Loks verður í Vestursal
opnuð samsýning írisar Friðriks-
dóttur, Kristjáns Steingrímssonar,
Ólafs Gíslasonar og Ragnars Stef-
ánssonar.
dagskrá í fundarsal Norræna
hússins. Þar talar Kristinn Einars-
son, framkvæmdastjóri Den
norske Bokklubben, og segir frá
útgáfunni og kynnir verkið. Jahn
Otto Johansen ritstjóri kynnir
Ludvig Eikaas og listamaðurinn
tekur einnig til máls og segir sitt
lítið af sjálfum sér.
„Ludvig Eikaas er fæddur
1920. Hann er meðal fremstu
núlifandi listamanna Noregs.
Eikaas er fjölhæfur í listsköpun
sinni; málar, vinnur með grafík
og gerir höggmyndir. Hann hefur
verið prófessor við norska listahá-
skólann frá 1970. Ludvig Eikaas
þykir litríkur persónuleiki sem
tekur skelegga afstöðu í umræðu
um hin ólíkustu efni og þess gæt-
ir einnig í myndum hans, en þar
birtist sköpunargáfa hans í ríkum
mæli. Um þessar myndir hans í
heildarútgáfunni segir Jahn Otto
Johansen að Eikaas geri meira
en að myndskreyta verkið, hann
dragi fram og endurskapi þá
stemmningu og hughrif sem ríkir
í leikritum Ibsens, og fær lesand-
ann til að velta vöngum að lestri
loknum, en það er einmitt í anda
skáldjöfursins," segir í fréttatil-
kynningu.
Jahn Otto Johansen hefur lengi
starfað við fjölmiðla, bæði hjá
norska sjónvarpinu og hjá dag-
blöðum. Hann var lengi aðalrit-
stjóri hjá Dagbladet í Ósló en
starfar nú sem lausamaður í
blaðamennsku og tekur að sér rit-
stjórn. Jahn Otto Johansen hefur
sent frá sér nokkrar bækur og rit
um utanríkismál og fjallaði þá
einkum um Austur-Evrópu.
Tónleikar í Gardabæ
TÓNLISTARSKÓLI Garðabæjar gengst
fyrir tónleikum í Kirkjuhvoli laugardag-
inn 29. ágúst kl. 17. Helga Björg Ágústs-
dóttir og Steinun Birna Ragnarsdóttir
leika saman á selló og píanó. Þessir tón-
leikar eru jafnframt burtfararpróf Helgu
Bjargar frá skólanum.
Helga Björg hóf nám í sellóleik ung að
árum og var nemandi Péturs heitins Þor-
valdssonar við Nýja tónlistarskólann í
Reykjavík allt til ársins 1989. Veturinn eft-
ir stundaði hún nám hjá Malgorzata Kizi-
emska-Slavek en síðastliðin tvö ár hefur
Helga Björg verið nemandi Bryndísar Höllu
Gylfadóttur við Tónlistarskólann í Garðabæ.
í haust mun Helga Björg hefja framhalds-
nám við Sweelicnk Conservatorium í Amst-
erdam þar sem kennari hennar verður Dmitri
Ferschtman.
Á efnisskrá tónleikanna eru eftirtalin
verk: Sónata í g-moll op. 5 nr. 2 eftir Beet-
hoven, einleikssvíta nr. 2 eftir J.S. Bach,
Habanera eftir Maurice Ravel og sellókon-
sert í d-moll eftir Eduardo Lalo.
Garðbæingar eru sérstaklega boðnir vel-
komnir á þessa fyrstu tónleika Tónlistarskól-
ans á þessum vetri. Aðgangur er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Helga Björg Ágústsdóttir