Morgunblaðið - 28.08.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992
25
Dýralæknafélag Islands
Fjallað um matarsýk-
ingar í alifuglakjöti
Dýralæknafélag íslands gekkst fyrir ráðstefnu um varnir gegn
matarsýkingum af völdum salmonella og camphylobacter sýkla í
alifuglaafurðum á Húsavík nýlega. Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru
sérfræðingar frá Bretlandi, Frakklandi og Hollandi auk íslensks
sérfræðings um sjúkdóma í alifugla.
Erlendu gestimir eru allir með-
limir sérstakrar nefndar á vegum
Evrópubandalagsins sem fjallar um
matarsýkingar tengdar alifuglaaf-
urðum, en þeirri nefnd er einnig
ætlað að koma á framfæri upplýs-
ingum til þeirra dýralækna er vinna
að þessum málum innan bandalags-
ins og samhæfa störf þeirra.
Dýralæknafélag íslands hefur að
undanförnu unnið markvisst að því
að efla samstarf við þær stofnanir
EB er fara með málefni er heyra
undir dýralækna og leitast við að
kynna þær fýrir sínum félagsmönn-
um.
Á aðalfundi félagsins er haldinn
var í tengslum við ráðstefnuna
baðst dr. Ólafur Oddgeirsson undan
endurkjöri sem formaður félagsins,
en hann er nú á haustdögum á leið
til Brussel til að taka við starfi eftir-
litsdýralæknis hjá sameiginlegri
nefnd EFTA og EB. í hans stað
var kosinn Rögnvaldur Ingólfsson
héraðsdýralæknir í Búðardal. Aðrir
í stjórn félagsins eru Ólafur Jónsson
ritari, Sigurborg Daðadóttir, gjald-
keri, bæði á Akureyri, og Sigurður
Örn Hansson, Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Rúnar Þór.
Æft fyrir rallið
Keppt verður í kassabílarallíi á afmælisdegi Akureyrar á laugardag og þessa dagana má víða um bæinn
sjá unga ökumenn reynsluaka keppnisbifreiðum sínum og þeir láta smá vætu ekki á sig fá.
Efnaverksmiðjan Sjöfn
Sótthreinsiefni í mat-
vælaiðnaði á markað
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vegaskilti hindrar útsýni
Þetta vegaskilti hefur verið sett upp við veginn niður að Árskógssandi,
en eins og sjá má á myndinni hindrar það nokkuð útsýni ökumanna sem
koma akandi upp veginn. Fjölmargir ferðamenn leggja leið sína út í Hrís-
ey og koma þar af leiðandi upp veginn á leiðinni til baka.
EFNAVERKSMIÐJAN Sjöfn hf.
hefur sett á markað nýtt sótt-
hreinsiefni til notkunar í mat-
vælaiðnaði, en það var þróað í
samráð við Útgerðarfélag
Akureyringa og Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins. Efnið
Grímsey
Hreppstjórinn stund-
ar skógrækt af kappi
BJARNI Magnússon hrepp-
stjóri í Grímsey hefur á síð-
ustu árum plantað á sjötta
hundrað plötnum í hvammi í
brekkunum skammt ofan
byggðarinnar. Þar hefur hann
einnig útbúið litla Ijörn og
hefur þannig útbúið afar fal-
legan reit, sem gengur undir
nafninu Bjarnalundur manna
á meðal.
Framtak Bjarna hreppstjóra til
gróðurverndarmála er lofsvert, en
hér langt norður í hafi hefur geng-
ið illa að halda lífi í tijáplöntum.
Skógrækt hreppstjóra gengur þó
framar öllum vonum, enda hefur
hann sinnt þessu starfi af miklum
fítonskrafti síðastliðin sumur.
Það er einkum grávíðir og loð-
víðir sem Bjarni hefur gróðursett
í reitinn, en einnig nokkuð af
gulvíði. Hefur hann reist skjól-
vegg á svæðinu og einnig hefur
hann útbúið litla og snotra tjörn
þar, þannig að reiturinn er orðinn
hinn huggulegasti. Á dögunum
var j hann svo að reisa girðingu
umhverfis svæðið.
Uppúr miðjum júní í sumar
gerði mikið vestanrok sem hafði
í för með sér miklar skemmdir á
gróðri í eynni, stór sá á öllum
Morgunblaðið/Hólmfríður
Bjarni Magnússon hreppstjóri naut aðstoðar dóttursonar síns,
Vilbergs Inga Héðinssonar, við að girða „Bjarnalundinn“ svokall-
aða.
gróðri við heimili, blöð gulnuðu tréin virðast þó hafa lifað þessar
og drápust. í kjölfarið fylgdi kuld- hremmingar af.
akast sem ekki bætti úr skák, en - HSH
hefur hlotið nafnið Barri og er
því teflt gegn þekktum örveir-
um eins og salmonellu, listeríu,
stafýlókokkum og kólígerlum,
sem sérstaklega ber að varast
við vinnslu matvæla.
Aðalsteinn Jónsson forstjóri
Sjafnar sagði að fýrirtækið hefði
viljað gera átak í þessum málum
í tilefni af 60 ára afmæli verk-
smiðjunnar á þessu ári og væri
fyrirtækið nú að kynna ný sótt-
hreinsiefni sem ætluð væru til
notkunar í matvælaiðnaði. Efnið
er lyktarlaust og mun visthæfara
en til að mynda klór sem mikið
hefur verið notaður í þessum iðn-
aði.
Sótthreinsiefnið er mjög þægi-
legt í notkun og eiturvirkni og
mengunarhætta er í lágmarki, en
því er úðað yfir þá hreingerðu fleti
sem á að sótthreinsa og látið liggja
yfír nótt eða meðan vinnsla liggur
niðri og virkar efnið allan tímann.
Ekki er nauðsynlegt að skola það
af og er ekki hætta á tæringu á
tækjabúnaði.
Unnt er að nota sótthreinsiefnið
þar sem matvæli eru höfð um
hönd, sérstaklega er það hentugt
í fískvinnsluhúsum, frystitogur-
um, sláturhúsum og kjötvinnslu-
stöðvum og ennfremur í verslun-
um þar sem ferk matvæli eru
meðhöndluð. Þá kemur til greina
að nota sótthreinsiefnið í mjólk-
urbúum, brauðgerðum, gos- og
ölgerðum og sælgætisverksmiðj-
um. Þá kom fram á fundi þar sem
efnið var kynnt að góður árangur
hefði náðst við notkun þess við
sótthreinsun búningsklefa og
hreinlætisaðstöðu í íþróttahúsum
og sundlaugum.
Tilraunir voru gerðar á nokk-
urra vikna tímabili hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa með efnið og
niðurstaða þeirra var sú að góður
árangur náðist. Veruleg fækkun
gerla átti sér stað eftir úðun sótt-
hreinsiefnisins á tækjum og vélum,
gólfum og veggjum.
„Allt er fertug-
um fært“ í 1929
„ALLT er fertugum fært,“ er
yfirskrift dagskrár sem haldin
verður i skemmtistaðnum 1929
á morgun, laugardag og hefst
hún kl. 14.
Það er skáldið Jóhann Árelíuz
sem efnir til skemmtanahaldsins
í samvinnu við Akureyrarbæ, en
sem kunnugt er á bærinn 130 ára
afmæli á morgun, en Jóhann Árel-
íuz er 90 árum yngri, fagnar fer-
tugsafmæli sínu á sama tíma.
Á dagskránni verður upplestur,
tónlist og söngur, m.a. verður
frumfluttir kaflar úr skáldverki
sem Jóhann Árelíuz hefur nú í
smíðum, „Svíþjóðarbókinni" svo-
kölluðu. Þá les skáldið ljóð úr verð-
launabók sinni, Tehús ágústmán-
ans. Auk Árelíuzar koma fram
Þráinn Karlsson, Þórey Aðal-
steinsdóttir og Kerstín Venables.
Jasskombó Jóns „bassa“ Rafns-
sonar leikur nokkur lög, en auk
Jón eru innanborðs þeir Árni Ket-
ill og Gunnar Gunnarsson.
Atriði verða stutt og laggóð og
þess vænst að sem flestir sjái sér
fært að fylgjast með dagskránni.
Allir ættu síðan að komast á völl-
inn þar sem KA tekur á móti
Breiðabliki kl. 15, én þá er ráð-
gert að dagskránni verði lokið.
(Fréttatilkynning)