Morgunblaðið - 28.08.1992, Síða 40
&J*
J5>
^ LETTOL r
\\--------(s
Gæfon fylgi þér
í umferðinni
SlOVABlgRLMENNAR
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Kringlan
Skoðana-
könnun
'um sunnu-
dagsopnun
Á FUNDI sem rekstraraðilar í
Kringlunni héldu í gærdag var
rætt um að hafa verslunarmið-
stöðina opna á sunnudögum.
Ákveðið var að fram færi skoð-
anakönnun meðal þessara aðUa
um hvort þeir vildu sunnudags-
opnun eða ekki og eiga niðurstöð-
ur hennar að liggja fyrir í næsta
mánuði. Fyrir fundinn var fram-
kvæmdastjóra Kringlunnar af-
hentur undirskriftalisti með nöfn-
* ^in um 300 starfsmanna Kringl-
unnar þar sem fyrirhugaðri
sunnudagsopnun var mótmælt.
Einar Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Kringlunnar, segir að ekkert
verði gert í þessu máli fyrr en vilji
rekstraraðila liggi fyrir. Á fundinum
var ákveðið að frestur til að skila inn
áliti um sunnudagsopnun yrði fram
að 3. september nk.
Verslunarmannafélag Reykjavík-
ur stóð að undirskriftunum til að
mótmæla sunnudagsopnun. Meiri-
-hluti starfsfólks, eða 300 af 500,
skrifaði nafn sitt á þennan lista.
----------» ♦ ♦----
Ólafsvík
Tveir tekn-
ir með ólög-
leg laxanet
LÖGREGLAN í Ólafsvík
handtók í gærkvöldi tvo menn
sem staðnir voru að verki við
að leggja ólöglegt laxveiðinet
í svokallaðari Krossavík.
Ólöglegar netalagnir hafa af
og til fundist á þessum stað í sum-
ar en þetta er í fyrsta sinn sem
menn eru staðnir að verki.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni var netið strengt á
milli varnargarðs og gamallar
hafnar i víkinni. Lögreglunni hafði
borist ábending um að mennirnir
yrðu á þessum slóðum um kvöld-
ið. Fylgdist hún með þeim og
handtók síðan og færði til yfir-
heyrslu. Síðar um kvöldið var aft-
ur búið að leggja net á þessum
slóðum.
Mikið hefur verið um að lax
gangi um víkina í sumar en í
grenndinni eru tvær laxeldisstöðv-
ar.
Afstöðu til beiðni um gjaldþrotaúrskurð Hagvirkis hf. frestað til 7. sept.
Norðanátt og kuldatíð
Veðurútlitið fyrir helgina er ekki bjart því Veðurstof-
an spáir áframhaldandi norðanátt um allt land fram
á sunnudag, vindhraða um 6 stig og úrkomu fyrir
norðan. Vegna þessa er búist við hálku á heiðarveg-
um og snjókomu á fjöllum nyrðra eins og má sjá á
myndinni hér frá Akureyri. Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofunni er hér um dæmigert norðanáhlaup
að ræða með kulda um allt land en búist er við að
úrkoman haldi sig við Norðurland og að þar snjói
í fjöll. Norðanáttin á að ganga niður síðdegis á
sunnudag eða á mánudag.
Kjalarnes
Bifreið fauk
út af veginum
HJÓN voru flutt á slysadeild eftir
að bifreið þeirra fauk út af þjóð-
veginum við sandgryfjuna á Kjal-
arnesi um kl. 21.50 í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá
slysadeild Borgarspítala eru hjónin
ekki lífshættulega slösuð en meiðsl
þeirra voru þó ekki fullrannsökuð.
■^Hjónin voru á leið til Reykjavíkur
þegar atburðurinn átti sér stað.
Heildarskuldir nema um
1.450 milljónum króna
BEIÐNI um gjaldþrotaskipti
Fórnarlambsins hf., áður Hag-
virkis hf., verður tekin fyrir i
héraðsdómi Reykjaness 7. sept-
ember næstkomandi. Að sögn
Andra Ámasonar lögmanns
Blikks og stáls, sem lagði fram
gjaldþrotabeiðnina, fór Hagvirki
fram á frestun úrskurðarins, sem
áður hafði verið munnlegt sam-
Aðalfundur Stéttarsambands bænda
Harðar ásakanir á stj ór n
sambandsins í umræðum
HARÐAR ásakanir á hendur stjórn Stéttarsambands bænda um
slælega frammistöðu í samningum við ríkið um búvörufram-
Jeiðsluna komu fram í máli allmargra fulltrúa á aðalfundi Stétt-
arsambandsins í umræðum á fundinum í gærkvöldi. Töldu menn
verulega skorta á að forysta Stéttarsambandsins rækti hlutverk
sitt sem stjórn hagsmunasamtaka og hún hefði gefið alltof mik-
ið eftir í samningum.
Það voru ummæli Hauks Hall-
dórssonar formanns Stéttarsam-
bandsins á fundinum sem vöktu
þessi viðbrögð fulltrúanna. Hann
sagði m.a. að forystumenn bænda
hefðu á sínum tíma gengið lengra
en skynsamlegt var í að gera kröf-
ur á ríkið án þess að gera jafn-
^iramt kröfur til sín sjálfra. Og að
of lengi hafi verið tregðast við að
viðurkenna að aðstæður í landbún-
aði hefðu breyst.
Haukur sagði jafnframt að eng-
inn vafí væri á því að það hefði
valdið málsstað landbúnaðarins
tjóni og skaðað ímynd hans að
farið var á ystu nöf með útflutning
•búvara eftir að markaðsforsendur
voru brostnar og að því hafí verið
ýtt til hliðar of lengi að taka tillit
til landnýtingar- og gróðurvemd-
arsjónarmiða. Það væru m.a. eftir-
stöðvar þessarar stefnu sem við
væri að etja í dag en allan síðasta
áratug hefðu bændur sópað vand-
anum undir teppið í stað þess að
viðurkenna hann og taka á honum.
Vegna þessa væri sú aðlögun sem
bændur gengju í gegnum nú mun
sársaukafyllri en ella hefði orðið.
Haukur sagði að framleiðsla á
því kindakjöti sem nú væri mark-
aður fyrir væri ekki til skiptana
fyrir jafn marga bændur og nú
væru handhafar greiðslumarks.
Ef ekki yrði hér breyting á blasti
við sú hætta að hluti þeirra sem
nú stunda sauðfjárrækt sem aðal-
atvinnu yrði gjaldþrota og sauð-
fjárræktin yrði í mun meira mæli
en áður stunduð sem hliðarstarf
með annarri vinnu. Haukur sagði
að horfur væru á að sala kinda-
kjöts dragist saman um allt að 500
tonn á verðlagsárinu sem nú er
að ljúka.
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra sagði í ræðu á aðalfundi
Stéttarsambandsins í gær, að
óhjákvæmilegt væri að gera þá
kröfu að sláturkostnaður lækki
verulega. Sá tími væri liðinn að
afurðarstöðvar landbúnaðarins
væru látnar standa undir öðrum
rekstri sömu fyrirtækjasam-
steypu. Halldór sagði einnig at-
hyglisverða þá hugmynd að bænd-
ur komi upp búvörumarkaði fyrir
framleiðslu sína í Reykjavík og
e.t.v. víðar á landinu, sem verði
leiðandi um verð og gefi vísbend-
ingar um hreyfingar í neysluvenj-
um.
Sjá nánar á miðopnu.
komulag um að yrði kveðinn upp
1. september. Heildarskuldir
Fórnarlambsins hf. nema um
1.450 milfjónum króna, að sögn
Jóhanns Bergþórssonar, stjórn-
arformanns fyrirtækisins.
Stærstu kröfuhafar eru ríkis-
sjóður með yfir 300 milljónir
kr., Hagvirki-Klettur hf., Blikk
og stál, Islandsbanki og Iðnlána-
sjóður en kröfur tveggja síðast-
nefndu eru tryggðar með veði í
fasteigum og vélum.
Að sögn Gunnars Aðalsteinsson-
ar héraðsdómara verður beiðni um
gjaldþrotaskipti Hagvirkis tekin
fýrir 7. september og ef ekki koma
fram mótmæli verður hún tekin
fyrir til úrskurðar sama dag. Ef
héraðsdómur verður við beiðninni
verður að svo búnu skipaður skipta-
stjóri. Gjaldþrotaskiptin verða í
hans höndum eftir það og mun
hann lýsa eftir kröfum í búið.
Gunnar sagði að ef skuldari Iegði
fram tryggingu eða benti á eignir
fyrir skuld sinni félli gjaldþrota-
beiðnin sjálfkrafa niður.
Andri Árnason, lögmaður Blikks
og stáls, kvaðst hafa fallist á að
beiðnin yrði tekin fyrir 1. septem-
ber þar sem það þyrfti að boða
gerðarþolann til að mæta og það
tæki alltaf 2-3 daga. „Við viljum
helst ekki veita neina fresti en ef
dómarinn ákveður þennan fyrir-
tökudag get ég litlu um það breytt,"
sagði Andri.
Andri lagði fram beiðni um gjald-
þrotaskipti Hagvirkis um hádegis-
bilið á miðvikudag. Hagvirki hf.
breytti nafni sínu í Fórnarlambið
hf. eftir að gjaldþrotabeiðnin kom
fram, að sögn Andra, en hann sagði
að nafnbreytingin skipti engu máli
þar sem kennitala fyrirtækjanna
væri hin sama. I gær sendi hann
áréttingu til héraðsdóms Reykja-
ness þar sem óskaði eftir því að við
meðferð beiðninnar yrði tekið tillit
til nafnbreytingarinnar.
Eignir Fómarlambsins eru bók-
færðar á um 1 milljarð. Er þar fyrst
og fremst um að ræða húseignir
og lóðir. Fyrirtækið á m.a. hús-
næðið í Skútuhrauni 2 sem hýst
hefur skrifstofuhúsnæði Hagvirkis
og tengdra fyrirtækja og lóðir í
Smárahvammi og á Valhúsahæð.
Sjá ennfremur fréttir á bls.
17 og 21.
------»--»■♦
Reykhólar
Líklegt að
engin ber
þroskist
Midhúsum.
MIKLAR líkur eru á því að berja-
spretta bregðist hér fyrir vestan
en við Breiðafjörðinn eru mjög
góð og fjölbreytt berjalönd.
Sumarið hefur verið kalt og því
hafa ber ekki náð að þroskast. Nú
í þessu norðanáhlaupi sem verið
hefur eru fjalltoppar hvítir og á
láglendi fer hitinn niður í tvö til
þrjú stig um nætur.
Kartöfluuppskera verður langt
undir meðallagi vegna kuldans og
kartöflugrös eru fallin þar sem
ræktað er á bersvæði. Á þessu
svæði er kartöflurækt þó afar lítil
svo að fjárhagstjón verður ekki telj-
andi. - Sveinn