Morgunblaðið - 01.09.1992, Side 15

Morgunblaðið - 01.09.1992, Side 15
-'MORÖUNBÍÍÁÍÐIB. ÞMEXIDDAGUR Í/ÖUPÍÖMÖÉJRi'1^92 Li5 SUS fagn- ar samningí um EES SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna ítrekar ánægju sína með að samningar hafa tekist um Evrópskt efnahagssvæði og heitir á Alþingi að samþykkja frumvarp um lögleiðingu samn- ingsins, segir í ályktun SUS, sem blaðinu hefur borist. Þar segir ennfremur: „Samningurmn felur í sér mörg tækifæri fyrir Islendinga, sem við getum nýtt okkur til að rjúfa stöðnun og samdrátt undanfarinna ára og sækja fram. Þar munar mest um stóraukið tollfrelsi sjáv- arafurða á mikilvægasta útflutn- ingsmarkaði okkar, en skilyrði margra annarra greina munu einnig batna. íslendingar hafa ekki þurft að fóma yfirráðum yfir náttúruauð- lindum sínum til að ná þessum samningi og mundu þurfa að laga sínar reglur á viðskiptasviði að evrópskum reglum, burtséð frá EES. Atvinnuvegir okkar munu aldrei þrífast við skilyrði sem eru gerólík þeim sem samkeppnisaðil- um þeirra eru búin í öðrum lönd- um. Þá mun íslensk stjórnsýsla hafa gott af auknum kröfum um hvemig staðið er að ákvörðunum og um virðingu fyrir jafnræðis- reglu við afgreiðslu mála. Það er athyglisvert að ýmsir andstæðingar EES-samningsins hafa nú látið af málefnalegri and- stöðu og leggja höfuðáherslu á málsmeðferð. Rökstuddar ábend- ingar um stjórnarskrárbundnar takmarkanir ber þó alltaf að taka alvarlega. Það hafa stjórnvöld gert og sérfræðingar þeirra látið í Ijós það álit að samningurinn bijóti ekki í bága við stjómarskrá og að þjóðréttarlegar skuldbindingar vegna hans séu sambærilegar ýmsum öðmm skuldbindingum sem íslendingar hafa tekið á sig í alþjóðlegu samstarfi. Þótt ekki séu allir sáttir við þessa niðurstöðu verður að telja að hún sé fullnægj- andi athugun málsins fyrirfram og veiti þá fótfestu að rétt sé að málið gangi fram. Nú er því kominn tími til að alþingismenn komi þessu mikla framfaramáli í höfn.“ GfflAFllSARÁGÓÐl'VESSI u rír^llt Aéíí’ Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 Gódandagirm! Vegna mikillar sölu á nýjum bílum A NOTUÐUM BILUM Nokkur verð dæmi Suzuki Swift sedan árg. 1990 MMC Pajero Turbó Dísil árg í 988, Verð í 200 þús. stqr. sævarh6fpa 2 674848 i húsi Ingvars Helgasonar Mazda 323 1600 GLX árg. 1990. Verð 770 þús stgr. Daihatsu Charade cs árg. 1988 Verð 330 þús. stgr. Toyota Corolfa Touring 4x4 árg. 1990. Verð 970 þús. stgr. BILAS Seat Ibiza sendibíll árg. 1990. Verð 370 þús stgr. m/vsk. vOM SEM LAGAR SIG AÐ MARGSKONAR ÞÖRFVÍ^ l\\ lO/MlAM Skrifstofubúnaður SÍOUMULA 14 • SÍMI (91) 813022 ...OG LÆKKAR REKSTRARKOSTNAÐINN Minolta er fjölhæft lið Ijósrifunarvéla með hreint ótrúlega breidd. Einhver þeirra hlýlur að henta þínum þbrfum. Þú getur valið um stærö, eiginleika eða afkastagetu en verið alltaf jafn viss um gæðin. Veldu þá tegund sem er hagkvæmasti kosturinn fyrir þig - veldu þína Minolta. MINOLTA IA:lOíJO:lOA:l il<) • -i" CASSCTTí MANUM, • *o?ar A3*A4 B4«A4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.