Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992
43
Rallý cross
Hörkukeppni um
meistaratitlana
ÞAÐ VAR mikið barist í lokamót-
inu á rallý cross-brautinni við
Krýsuvíkurveg', þar sem lokabar-
áttan um Islandsmeistaratitla í
þremur greinum fór fram. Keppt
var í flokki rallý cross-bíla,
krónubíla og amerískra bíla til
meistara og til bikarmeistara í
opnum flokki. Með sigri í rallý
cross-flokknum tryggði Kristín
Birna Garðarsdóttir sér fyrst
kvenna meistaratitil í aksturs-
íþróttum hérlendis, en hún ók
Porsche. Einar Gíslason varð
meistari í ameríska flokknum og
Guðni Guðnason í opnum flokki.
I gærkvöldi átti enn eftir að
skera úr um sigurvegara í krónu-
flokki þar sem Sigmundur
Guðnason og Sigurður Sigurðs-
son voru manna líklegastir til að
hljóta titilinn.
„Þetta var sætur sigur og það var
ljúft að leggja alla karlana að velli
í iokaslagnum. Það var kominn tími
til að fá- kvenmannsnafn á einhvern
titlanna, sem keppt er um í aksturs-
íþróttum,“ sagði meistarinn nýi, hin
þrítuga Kristín Birna Garðarsdóttir,
sem vann þtjú mót af fjórum á árinu
í sínum flokki. Hún lét það ekki aftra
sér frá þátttöku að hún eignaðist son
í vor. „Það voru sumir hræddir um
að það gæti haft einhver eftirköst
ef ég keppti nýbúinn að eiga en svo
varð ekki. Litli guttinn, sem heitir
Viktor Guðbergsson, svaf meira að
segja í íjölskyldubílnum á meðan
einni keppni stóð ásamt mágkonu
sir.ni, en ég varð þó að gefa honum
í eitt skipti milli riðla,“ sagði Kristín.
Faðir guttans var líka skammt und-
an, því keppnisstjóri mótanna, Guð-
bergur Guðbergsson, var ætíð til
reiðu og skipulagði mótið um helgina
ásamt félögum í Bifreiðaíþróttá-
klúbbi Reykjavíkur, en hann er sjálf-
ur þekktur keppnismaður úr rall-
akstri og torfæru. „Það hefur ekkert
háð Begga þó hann hafi ekki keppt
í ár, frekar en mér þegar hann hefur
keppt,“ sagði Kristín. „Við lifum
okkur inn í þátttöku hvors annars..
Mig dreymir stundum um að keppa
í raliakstri og aftur í torfæru, en
framtíðin verður að leiða alla slíka
spádóma í ljós.“
„Ég fann mig vel á Porsche-bíln-
um sem þó er erfiður í akstri og
beitti nítró-innspýtingu nokkrum
sinnum, sem gaf aukið afl. Ég háði
harða keppni við þá Pál Halldórsson,
Ármann Guðlaugsson og Elías Pét-
ursson, sem hafa litið á mig sem
jafningja eins og aðrir karlkyns öku-
menn, þó ég sé af gagnstæðu kyni,
enda er ekkert sem segir að kven-
menn séu lakari ökumenn. Ég vona
að mitt fordæmi auki áhuga kvenna
á akstursíþróttum," sagði Kristín..
í flokki ameriskra bíla varð Einar
Gíslason fyrstur og tryggði sér meist-
aratitilinn, þó hann þyrfti að aka
flesta hringina með sprungið að aft-
an, en bróðir hans, Halldór, náði
öðru sæti. í opnum flokki vann Guðni
Guðnason á Buggy, varð á undan
þeim Jóni Þ. Traustasyni á Mazda
og Darra Þorsteinssyni á Mazda. í
krónuflokknum vann Sigmundur
Guðnason á Toyota, Halldór Bárðar-
son á Capri varð annar og Högni
Gunnarsson á Toyota þriðji.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Kristín Birna á leið til sigurs og meistaratitils í rallý cross, fyrst
íslenskra kvenna.
Skrifslofutækni
• INNRITUN HAFIN •
Við leggjum áherslu á vandað nám sem sniðið er að
kröfum vinnumarkaðarins og nýtist þér í atvinnuleit.
Kenndar eru eftirtaldar námsgreinar:
§ Bókfærsla
§ Ritvinnsla
§ Verslunarreikningur
§ Tölvubókhald
§ Töflureiknir
§ Tollskýrslugerð
§ Gagnagrunnur
§ Windows og stýrikerfi
Athugið okkar hagstæðu greiðslukjör, kr.,5000 á
mánuði til tveggja ára eða 15% staðgreiðsluafsláttur.
Tölvuskóli íslands
sími 67 14 66 • opið til kl. 22
Kennsla hefst
19. sept.
byrjendur og tram-
tiald írá 4ra ára.
&
Jk Ballettskóli JL. ^
Eddu "
Scheving
Skúlatúnl 4
Meðlimur í Félagi íslenskra listdansara.
Innritun
í síma 38360 frá
kl. 15-19.
Afh. skírteina
17. og 18. sept.
frakl. 17-19.
ORDABÆKURNAR
Eitsk
íslensk
orðabók
fngtish-ltclandic
Didionnry
Dönsk
íslensk
íslensk
dönsk
orðabék
Gf|ci
0rd°b6k
utcnsk
rronsK
íslensk
íslensk
frönsk j
orðobók
•slensk
islensk
ítölsk
orðnbók
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann,
ó skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN