Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992 25 „Það hafa engar ákvarðanir ver- ið teknar um að gera fyrirtækið upp og engin umræða í þá veru hefur farið fram í okkar hóp,“ sagði Einar Jónatansson for- stjóri Einars Guðfinnssonar. sínum tíma að verða við þessari beiðni fyrirtækisins um lánveitingu. En hvað varðar hinar 50 milljónirn- ar, þá settum við fyrirtækinu ákveð- in skilyrði sem við töldum æskilegt að væru uppfyllt, áður en lánið yrði veitt. Einhverra hluta vegna hefur það ekki gengið nægilega hratt fyr- ir sig, svo sú lánveiting hefur enn ekki átt sér stað.“ Ólafur segir að miðað við stöðu fyrirtækisins í fyrra, þá hljóti það , eins og önnur fyrirtæki sem orðið hafa fyrir aflaskerðingu, hafa mátt þola minnkandi tekjur og hafi þar af leiðandi minni getu til þess að standa við þær skuldbindinjgar sem það hafi tekist á hendur. „Eg tel að vandi fyrirtækja í sjávarútvegi nú verði ekki leystur nema með sameig- inlegu átaki ríkisvaldsins, sveitarfé- laganna og lánadrottna. Aðeins þannig verður því forðað, ef til alvar- legra tíðinda dregur, að skaðinn verði stórkostlegur,“ segir Ólafur. Ólafur segir að í viðræðum hans við forsvarsmenn Einars Guðfinns- sonar hafi það komið skýrt fram að þeir viidu meta hag byggðarlagsins ofar eigin hag. „Það þykir mér vænt um að skuli vera ríkjandi sjónarmið hjá þeim og ég trúi ekki öðru, en þó að fyrirtækið eigi nú í miklum erfíðleikum, að þetta sjónarmið verði ríkjandi í þessari baráttu þeirra við að halda lífi næstu vikurnar," segir Ólafur. Ólafur segir að nú sé það spurn- ingin hvað ríkisvaldið geri. Hvað geri Atvinnutryggingarsjóður, sem á um 370 milljóna króna kröfu á fyrirtækið. Hvað geri aðalviðskipta- banki fyrirtækisins, Landsbankinn. J „Ríkisvaldið getur að sjálfsögðu far- ið yfir í skuldbreytingu vegna opin- berra gjalda. Það hefur verið gert áður. Sveitarfélagið hlýtur að skoða það mjög alvarlega, með hvaða hætti það á að koma inn í þessa erfið- leika, til þess að tryggja hér áfram- haldandi búsetu og atvinnu. En ég veit ekki hver staðan er nákvæmlega hjá fyrirtækinu og hef ekki séð bráðabirgðauppgjör fyrstu sex mán- blóma, þá er vandséð hvað getur orðið til bjargar nú — því miður.“ Hávarður segir að ófrelsið við veiðarnar séu að hans mati stór hluti þess að nú er svona illa kom- ið. „Þetta er harðduglegt fólk og hefði lag á að bjarga sér, ef eitt- hvað væri frjálst. Þú sérð það bara með þessa litlu krókaleyfís- báta hérna, sem eru um 40 tals- ins. Þeir eru það eina sem má heita að séu fijálsir, en nú á það, samkvæmt lögunum að falla niður eftir næsta sumar. Maður trúir því varla að það verði gert, því þá er allþ frelsi horfið úr greininni." „Það eru voðalega margir á móti þessu kvótakerfi hér fyrir veistan og finnst það bijálað og vitíaust. Annars held ég að þeir sem eiga kvótann, myndu ekki vilja breyta kerfinu núna, hvorki hér fyrir vestan, né annars staðar. aða þessa árs. Ég hef þó nýlega óskað eftir því við formann stjórnar fyrirtækisins, Einar Benediktsson, að fá upplýsingar um stöðuna. Mað- ur getur auðvitað sagt sér það sjálf- ur, að miðað við það ástand sem ríkt hefur að undanförnu, minnkandi afla og aflabrest á stundum, að fjár- streymi til fyrirtækisins hefur verið minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá má ekki gleyma því að verðfall á dollar hefur haft áhrif á tekju- myndun fyrirtækisins. Það eru ýms- ir þættir sem gera það að verkum, að þeim markmiðum sem menn settu sér hefur ekki verið náð,“ sagði Ólaf- ur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bol- ungarvík. Ég spurði Einar Jónatansson hvað honum þætti um þær úrlausnir sem nú væru ræddar í Byggðastofnun,. að greiða fyrirtækjum ákveðnar fjár- hæðir, að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum, í stað þess að deila út Ha- græðingarsjóðskvótanum til þeirra sem verst færu út úr skerðingunni. „Við sögðum strax og ljóst var að skerðingin yrði jafnmikil í þess- ari tegund og við byggjum svona mikið á, þorsknum, að það væri rétt- lætismál að dregið væri úr áhrifum hennar með ákveðnum aðgerðum. Ein hugmyndin var sú að nota til þess Hagræðingarsjóðinn án þess að greiðsla kæmi fyrir. Það var það sem menn sáu í hendi sér að gæti verið tiltölulega einföld aðgerð. Ef niðurstaðan af þessum hugmyndum í Byggðasjóði, verður hin sama, þá skiptir það í sjálfu sér ekki öllu máli, hvaða leið verður valin. Hins vegar finnst mér að það sé of mikið fjallað um þetta mál á þann hátt að verið sé að styrkja fyrirtækin. Menn gleyma því að með ákvörðun um sölu á veiðiheimildum Hagræðingar- sjóð var tekin ákvörðun um nýja skattheimtu á sjávarútveginn, sem hafði aldrei verið áður. Nú er þetta lagt upp þannig að þessi nýi skatt- ur, sé ölmusa til sjávarútvegsfyrir- tækjanna." - Þú og svo margir innan grein- arinnar nefna þetta skattheimtu, aðrir tala um að þetta sé þjónustu- gjald, sem greinin eigi að greiða fyrir veitta þjónustu Hafrannsókn- arstofnunar, ekki satt? „Ég er samþykkur þeirri grund- vallarreglu að það eigi að beita þjón- ustugjöldum gagnvart þeim sem njóta þjónustunnar, en þessi grein hefur búið við það í áratugi að hér hefur verið haldið uppi velferðarríki og miklum lífsgæðum á kostnað út- flutningsatvinnuveganna, með því að skrá gengið jafnan vitlaust. Ut- flutningsatvinnuvegirnir hafa þann- ig safnað skuldum, jafnvel í góðæri. Það er í rauninni miklu stærra mál að allt sé gert, til þess að rekstrar- umhverfið sé í lagi. Aðeins þannig getur sjávarútvegurinn borgað þjón- ustugjöld sem þessi,“ sagði Éinar Jónatansson. Það verður fróðlegt að fylgjast með baráttu fyrirtækisins næstu vik- urnar og því hvort forsvarsmönnum þeirra tekst að koma rekstrinum í viðunandi horf. Því miður virðist þó fátt benda til þess að svo fari. Raun- ar telja ákveðnir viðmælendur mínir að slæmra tíðinda sé að vænta frá Bolungarvík innan skamms. Ég og aðrir gamalreyndir sjómenn hérna, höfum verið að segja að það sé andskoti hart, út frá rétt- lætissjónarmiðum, að hafa verið til sjós í yfir 50 ár og þurfa svo eftir að ég kem í land að byija á því að kaupa mér krókaleyfi, ef mig langar til þess að fara fram í Djúpið og draga mér nokkra fiska. Þetta þarf ég að gera, en er sjálfur búinn í lífsstarfinu að byggja upp kvóta fyrir aðra, iyrir nokkur hundruð milljónir króna. Það er nú ekki inikið réttlæti í þessu gagnvart sjómönnum, eða hvað sýnist þér? Eftir ævistarfíð kemur maður í land og hefur eng- an rétt nokkurs staðar — það er það sem manni svíður," segir Há- varður Olgeirsson að lokum. Texti og mynd Agnes Bragadóttir BALLETT Kennsla hefst mánudaginn 14. september Byrjenda- og framhalds- flokkar frá 4 ára aldri Afhending skírteina fer fram í skólanum laugardaginn 12. september kl 14.00 - 16.00 BALLETTSKÓLI Guðbjargar Björgvins, Iþróttahúsinu, Seltjarnarnesi. Ath: Kennsla fyrir eldri nemendur, byrjendur og lengra komna Innritun og allar upplýsingar í síma 620091 kl. 10.00-15.00 daglega Félag ísl. listdansara. Viltu auka þekkingu þína? Öldungadeild Verzlunarskóla íslands býður hagnýtt nám í fjölmörgum greinum, fyrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri. Innritun á haustönn fer fram dagana 27. - 31. ágúst og 1. - 2. sept. kl. 8.00-18.00. í boði verða eftirfarandi námsgreinar: Bókfærsla Saga Danska Stjórnun Efha- og eðlisfræði Stærðfiræði Enska T ölvubókhald Farscðlaútgáfa Tölvufræði Ferðaþjónusta Tölvunotkun Franska Utanríkisviðskipti íslenska Vélritun Mannfræði Verslunarréttur Reksturshagfræði Þýska Ritvinnsla Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safha saman og láta mynda eftirtalin prófstig: • Próf af bókhaldsbraut • Próf af ferðamáiabraut • Próf af skrifstofubraut • Verslunarpróf • Stúdentspróf Umsóknareyðublöð, námslýsingar og allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS I it®rgpnttl í»l %b Metsölublað á hverjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.