Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.09.1992, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992 49 Kveðjuorð Björn Einarsson Heimferð. Góðu orlofi meðal vina og kunningja erlendis að ljúka. Velktu Morgunblaði er flett í flug- vélinni með eftirvæntingu og líka nokkrum kvíða. Á miðjum aldri þekkjum við marga sem eru kallað- ir til annarra heima eða verða fyrir áföllum sem þykja fréttnæm. Þennan sumardag er verið að bera til moldar Björn bónda á Bessastöðum. Vinir og samferða- menn tjá hug sinn á síðum blaðs- ins. Nístandi spurning fer um hug- ann. Var svona örstutt til leiðar- loka? Áður en lagt var upp í fríið feng- ust fréttir sem vöktu vonir um nokkurn bata. Á viku skipuðust veður í lofti og stríðið tapaðist. Það er höggvið stórt skarð í hóp fjölskyldu og vina og í húnvetnska bændastétt. Björn var mikill á velli og eflaust þéttur í lund þegar þess þurfti með. Hann gaf meira en hann tók í hverjum þeim flokki sem hann fyllti, flutti bjartsýni og trú, sannfærði aðra um þeirra eigin getu og hæfni. Fyrir honum voru hugtökin „ekki hægt“ eða „ófært“ aðeins áskorun til nýrra dáða. „Eg er atvinnusjúklingur," sagði hann við mig í símtali á liðnum vordögum. Það var brynjan, bar- áttuandinn, jafn ótrauður að beijast við illvígan sjúkdóm sem bilaða vél eða gjaldþrota rekstur. Haustið 1982 gerðist Björn bjargvættur vélasamstæðu sem Heimsfóður hf. á og rekur til að köggla þurrhey. Alla tíð hefur þurft mikla þrautseigju og þrek til að fá þar öll hjól til að snúast. Hvort tveggja hefur Björn lagt fram í áratug. Á Bessastöðum var þessi vél nefnd „kærastan" hans Björns, enda að vonum, því nann fylgdist með vélarhljóðinu um allt Húna- þing, líkt og Heimdallur forðum sem heyrði grös gróa og ull vaxa á sauð- um. Hljóðnaði vélarymurinn kom hann óðar og ræsti vélar á ný, en oft urðu dagarnir langir og næturn- ar stuttar til að það tækist. Nú er þróttmikil rödd hans hljóðnuð og tilvera hans minning, en hvatningarorðin og brýningarnar til nýrra verka enduróma í hugan- um. Fjölskyldunni á Bessastöðum votta ég dýpstu samúð. Blessuð veri minning um góðan dreng. Jóhannes Torfason. Anna Bjöms- dóttir - Kveðja Fædd 15. desember 1914 Dáin 25. ágúst 1992 Ó, hve dauðastundin virðist vera látlaus, þessi stund sem við hin höfum beyg af. Hún er hvíld fyrir þreyttan líkama og vonandi gleði fyrir fallega sál sem hverfur á vit ástvina og nálgast dýrð ljóssins. Dóttir mín og nafna Önnu er lán- söm að hafa fæðst inn í líf hennar og þeirra hjóna. Þær eru ótaldar ánægjustundirnar sem þau hafa átt saman og kærleikurinn var gagn- kvæmur og sannur. Ég veit að Anna er þeirri ungu konu fyrir- mynd. Minningin er falleg og sökn- uðurinn er mikill eftir elskulegri ömmu. Ég hef verið áhorfandi, fylgst með úr fjarlægð. Ég sé fyrir mér augu Önnu heitinnar sem hreint geisluðu af gleði. Ég mun ætíð muna hana og þakka. Kærleikurinn er allt sem er. Guð varðveiti elsku Önnu frá ei- lífð til eilífðar. Inga Ólöf. Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð fallegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar í síma 2 23 22 FLUGLEIÐIR HÍTEL LOFTLEIDIR t Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUTTORMUR GUÐNASON, Njálsgötu 82, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 2. september kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð. Emilía Sigurðardóttir, Brynja Guttormsdóttir, Rúnar Hauksson, Björt Rúnarsdóttir. > t Útför móður .okkar, tengdamóður, ömmu og systur, ÖNNU GUÐBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR, Þorfinnsgötu 2, hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu Björn Baldursson, Guðný Jónsdóttir, Kolbeinn Baldursson, Gyða V. Kristinsdóttir, Baldur Baldursson, Bragi S. Baldursson, Málfriður Ásgeirsdóttir, Björn Björnsson, Svanhildur Björnsdóttir og barnabörn. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR, Kirkjulundi 6, Garðabæ, verður jarðsungin frá Garðakirkju í dag, þriöjudaginn 1. septem- ber, kl. 15.00. • Sigurbjörn Kárason, Valur Sigurbjörnsson, Þór Sigurbjörnsson, Þurfður Björnsdóttir, Sigriður Hanna Sigurbjörnsdóttir, Ottó Schopka, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HERSVEINN ÞORSTEINSSON, skósmíðameistari, til heimilis á Dalbraut 27, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 3. september kl. 15.00. Þeir sem vilja minnast hins látna láti vinsamlegast líknarstörf og kristniboð njóta þess. Helgi Hersveinsson, Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Sigursteinn H. Hersveinsson, Ingibjörg Kolbeinsdóttir, Þórir S. Hersveinsson, Guðbjörg Ármannsdóttir, Hanna R. Hersveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR frá Einarsnesi, til heimilis að Silungakvfsl 6, Reykjavik, andaðist föstudaginn 28. ágúst sl. Sigríður Guðmundsdóttir, Þórarinn Sigþórsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Guðmundur Sigþórsson, Herborg Árnadóttir, Helga Sigþórsdóttir, Þórður S. Gunnarsson, Jóhanna Sigþórsdóttir, Hjalti Jón Sveinsson, Óðinn Sigþórsson, Björg Jónsdóttir, Þór Sigþórsson, Guðný Þorgeirsdóttir, Sigríður Sigþórsdóttir, Hallmar Sigurðsson, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma. BJÖRG JÓNSDÓTTIR, Hjallavegi 50, áður Laugarnestanga 65, lést í Landspítalanum 29. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda. Hjördfs Hvanndal, Jón Ström, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Axel Ström, Anna M. Stefánsdóttir, Þórey Ström, Guðmundur Sæmundsson, Gunnar Ström, Kolbrún Jónsdóttir, Jóhanna Ström, Páll Björnsson, Arnþór Ström, María Magnúsdóttir, Ómar Ström, Ingunn Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ELÍASAR HELGASONAR netagerðarmeistara, Miðvangi 98, Hafnarfirði. Erla Bessadóttir, Sigurrós Elíasdóttir, Helgi Elíasson, Bessi Halldór Þorsteinsson, Agnes Jóhannsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför SIGURLAUGAR JAKOBSDÓTTUR, húsfreyju, Hraunsholti, Garðabæ. Valdimar Pétursson, Jakob Valdimarsson, Ástráður Valdimarsson, Margrét Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu vegna fráfalls VALDIMARS TÓMASSONAR, Kríuhólum 2, Reykjavík, sem lést í Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, 15. ágúst. Sérstakar þakkir færum við vistmönnum og starfsfólki í Hraunbúð- um og læknum og hjúkrunarfólki á sjúkrahúsi Vestamannaeyja. fyrir hönd barna okkar tengdabarna barnabarna og annarra að- standenda. Eva Andersen. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURÐAR MAGNÚSSONAR skipstjóra, Norðurvör 1, Grindavik. Guð þlessi ykkur öll. Þórlaug Ólafsdóttir, Ólafur Ragnar Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður Sveinbjörnsson, Guðjón Sigurðsson, Guðrún Einarsdóttir, Sóley Þórlaug Sigurðardóttir, Þorgeir Reynisson, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Magnús Högnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför PETRÍNU FRIÐRIKKU ÁSGEIRSDÓTTUR, Hlíf, ísafirði, fyrrum húsmóðurfrá Efrihúsum, Önundarfirði. Ásgerður Guðbjartsdóttir, Sigríður Guðbjartsdóttir, María Guðbjartsdóttir, Helga Guðbjartsdóttir, Sesselja Guðbjartsdóttir, Laufey Guðbjartsdóttir, Guðjón Guðbjartsson, Elisabet Guöbjartsdóttir, Konráð Guðbjartsson, Þorsteinn Guðbjartsson, Árni Guðbjartsson, Einar Guðbjartsson, Grétar Sívertsen, Hjörtur Jónsson, Hreinn Ófeigsson, Eggert Jónsson, Fanney Jónasdóttir, Sigurður Þorláksson, Elínnóra Guðmundsdóttir, Sóley Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.