Morgunblaðið - 01.09.1992, Síða 51

Morgunblaðið - 01.09.1992, Síða 51
seer Haaivirmae ,t HUOAQumiHd aiaA>ui/:UOHOM _________________________________________öti MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTÉMBER 1992 51 Utibíó við Brúartorg Starfsstúlkur Shell-stöðvarinnar þutum um á hjólaskautum til að afgreiða fólkið á útibíóinu. Borgarnesi. Um 600 manns sóttu útibíó við Shell-stöðina í Borgarnesi nýverið. Þetta er svo vitað sé í fyrsta skipti sem slíkt er reynt hér- lendis. Það myndaðist strax góð stemmning á Shell-stöðvarplaninu ÖNDUN Roseanne lét laga á sér nefið Athugulir hafa tekið eftir því að grínkvendið bandaríska Rose- anne hefur látið „laga“ á sér nefið. Upp til skamms tíma var nefið í stíl við afganginn af leikkonunni, „stórt og mikið“, en er nú nett og huggulegt. Ekki þykja slíkar lýta- læknisaðgerðir tíðindum sæta í kvikmyndaheinminum, þær eru al- vanalegar og alkunna er að sumar stjörnurnar hafa tekið stökkbreyt- ingum í gegn um árin og eru nán- ast óþekkjanlegar ef skoðaðar eru nokkurra ara gamlar myndir af goðunum. Það kom nokkuð á óvart að Rose- anne skyldi standa í slíku, því hún hefur ekki til þessa gert út á fegurð- ina, þvert á móti er sjónvarpsfígúr- an sem hún hefur gert svo fræga, nafna hennar Roseanne, feit og mikil. Enda kom fljótt á daginn, að Roseanne þurfti að laga nef sitt vegna þess að allt frá barnæsku hefur hún átt örðugt um andar- drátt um aðra nösina og af þeim sökum hefur hún meðal annars hrotið mikið í svefni. Var aðgerðin á nefinu gerð til að lagfæra öndun- arveginn. við Brúartorg enda mjög gott veð- ur. Sýnd var dans- og söngvamynd- in Grease og fólkið klappaði og söng með vinsælustu lögunum. Af- greiðslustúlkur Shell-stöðvarinnar runnu á milli bílanna á hjólaskaut- um með veitingar handa bílabíó- gestunum og ekki var annað að sjá en svona uppákomur ættu vel við mannskapinn. Að sögn forsvars- manna Shell-stöðvarinnar í Borgar- nesi þótti þessi tilraun takast vel í alla staði. TKÞ. ✓ Traktorstengdar þvingunarhrærivélar. ✓ Mötun auðveld með traktor. Mikil afköst. ✓ Tvær stærðir: 2ja og 3ja poka. n ÞQRf ÁRMÚLA 11 - BÍMI B81BOO 0ANSSKOII Kennslustaðir: Reykjavík: Brautarholt 4, Drafnarfell 4, Ársel og Fjörgyn. ASTVAIDSSON AR Hafnarfjörður: Góðtemplarahúsið. Mosfellsbær: Hlégarður. Innritun í símum 20345 og 74444 kl. 13-19 daglega. Suðurnes: Keflavík, Grindavík, Sandgerði og Garður. Innritun í sfma 67680 kl. 20-22 daglega. Hveragerði, Selfoss. Innritun í síma 91-74444 kl. 13-19 daglega. Kennum alla dansa: Samkræmisdansay gömlu dansana, Rockyn Roll, tjútt og nýjustu yyFreestyleu dansana eins og t.d. SAFARI Aukatímar fyrir þá, sem vilja taka þátt í íslandsmeistarakeppnum. Einkatímar. Sértímar fyrir „prívat“hópa. Fyrir börn 3ja-4ra ára. Léttar hreyfingar og leikir sem örva hreyfiþroska. Barnahópar - unglingar - fullorðnir - hjón (pör). Þrautþjálfaðir kennarar með mikla reynslu og þekkingu á dansi. Roseanne eftir nefaðgerðina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.