Morgunblaðið - 17.09.1992, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.09.1992, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTBMBER 1992 Sjálfsbjörg um bæklunaraðgerðir Biðlistarnir lengist ekki FRAMKVÆMDASTJÓRN Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, hefur samþykkt ályktun þar sem skorað er á heilbrigðisráðherra og ríkis- stjórnina að tryggja að biðlistar eftir bæklunaraðgerðum lengist ekki. í ályktuninni segir: „Sjálfsbjörg lýsir áhyggjum sínum vegna fyrir- hugaðs samdráttar í starfsemi bækl- unardeildar Landspítalans og bendir *á að bið eftir bæklunaraðgerðum er yfirleitt mjög kvalafull auk þess sem viðkomandi einstaklingur er oftast óstarfhæfur á meðan. Samdráttur á þessu sviði kemur því niður á þjóðfé- laginu öllu. Sjálfsbjörg treystir því að heil- brigðisráðherra finni leið til að koma í veg fyrir samdrátt á þessu sviði.“ xviuigunuiituiu/j\riu oaiutíig Hörður Áskelsson ávarpar sóknarnefnd kirkjunnar, orgelnefnd, fulltrúa fjölmiðla og nokkra sérstaka velunnarara orgelsmíðinnar sem voru viðstaddir þegar lofti var hleypt á pípur orgelsins í Hallgríms- kirkju í fyrsta sinn. í baksýn sést glitta í stærstu orgelpípurnar á bak við vinnupallana sem enn hylja orgelið að miklum hluta. En á innfelldu myndinni sést Hörður Áskelsson, organisti í Ilallgrímskirkju, leika fyrstu tónana á orgel Hallgrimskirkju. Hallgrímskirkja DANFOSS , VEIT HVAD ÞU VILT! Mikil útbreiösla DANFOSS ofnhitastilla á (slandi sýnir að þeir eru í senn nákvæmir og öruggir. Æ fleiri gera nú sömu kröfur til baðblöndun- artækja og velja hitastilltan búnað frá DANFOSS. Með DANFOSS næst kjörhiti á heimilinu Þú stillir á þægilegasta hitann í hverju her- bergi og DANFOSS varðveitir hann nákvæm- lega. Og í baðinu ertu alltaf öruggur með rétta hitann á rennandi vatni, ekki sist fyrir litla fólkið þitt. Aukin vellíðan, lœgri orkukos/naður. im = HEÐINN = SELJAVEGI 2, SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER Nýja orgelið vígt í desember Stefnt að sölu allra orgelpípna í sérstöku söfnunarátaki FYRSTU tónar orgelsins í Hallgrímskirkju hljómuðu sl. föstudag og var um leið stigið fyrsta skrefið af þremur í fullnaðarfrágangi orgels- ins. Á næstunni verður lokið við að ganga frá orgelhúsinu að utan, og verður að því loknu hægt að taka niður vinnupalla sem nú hylja orgelið að miklu leyti. Orgelið verður afhjúpað í október. Þá er eftir að stilla hljóðfærið en því verður ekki lokið fyrr en skömmu fyrir vígslúna þann 13. desember. Stefnt verður að því að þá hafi allar pípur orgelsins selst. Orgelið, sem er í tumrými yfir inngöngudyrum Hallgrímskirkju, er stærsta og voldugasta hljóðfæri landsins. I því eru 5.275 pípur, allt frá örlitlum upp í 10 metra háar, smíðaðar ýmist úr tini, tinblöndu, rauðviði eða öðrurrí eðalviði. Orgel- húsið, sem smíðað er úr gegnheilli eik, er um það bil 17 metra hátt og samtals vegur orgelið með burðar- virkjum um 25 tonn. Orgelið er hannað í samvinnu við Hörð Áskelsson, organista Hall- grímskirkju, og smíðað hjá Klais Orgel í Þýskalandi. Frá því í byijun júní hafa fjórir orgelsmiðir frá Klais Orgel unnið nær sleitulaust við sam- setningu orgelsins. Til að Hallgríms- kirkja verði sem best búin undir tón- listarflutning með þessu mikla hljóð- færi hefur verið ráðist í umtalsverðar framkvæmdir í kirkjunni sjálfri. Ver- ið er að smíða nýja kirkjubekki, sem verða komnir upp fyrir vígslu orgels- ins í desember og munu þeir hafa mikil áhrif á hljómburð kirkjunnar. Einnig er verið að setja sérstaka fleka í loft hliðarganga kirkjuskipsins og hafa þeir verið sérstaklega hann- aðir til að bæta hljómburð kirkjunn- ar. Sérstöku söfnunarátaki hefur ver- ið hleypt af stað til að hægt verði að vígja orgelið á tilsettum tíma, þann 13. desember. Aflað hefur ver- ið fjár með því að gefa fólki kost á að kaupa einstakar orgelpípur og verða nöfn gefenda og þeirra sem gjafírnar eru tileinkaðar skráð og varðveitt svo lengi sem pípur orgels- ins hljóma. Með þessum hætti hafa selst um 1.500 pípur, þannig að enn eru eftir um 3.700 óseldar. Pípurnar eru flokkaðar eftir stærð og tónhæð og kosta ódýrustu pípurnar 2.000 krónur en þær dýrustu 25.000 krón- ur. Markmið söfnunarátaksins er að selja allar pípur orgelsins fyrir vígsl- unar 13. desember. Vegna gífurlegrar aðsóknar verður KÆRAJELENA eftir Ljudmilu Razumovskaju ÞJÓDLEjKHÚSID flutt á StÓra sviðið ÞJÓDLElkHÚSIÐ im Sýningar á Stóra sviði laugardag 3. október kl. 20 00 uppselt föstudag 9. október kl. 20 00 sunnudag 11. október kl. 20 00 140. sýning Þýðing: Inglibjörg Haraldsdóttir. Lýsing: Asinandar Karlsson Leikmynd og báningar: Messíana Tómasdóttir Leikstjóri: Þórhallar Sigurðsson Síðustu sýningar á Litla sviði = Fimmtudag 17. september kl. 20 30 uppselt Föstudag 18. september kl. 20 30 uppselt Laugardag 19. september kl. 20-30 uppselt Sunnudag 20. september kl. 20 30 uppselt Föstudag 25. september kl. 20 30 uppselt Laugardag 26. september kl. 20 30 uppselt Sunnudag 27. september kl.-20:30 uppselt LEIKEXDl’R: Anna Kristín Arngrínisdóttir.; Baltasar Konnákur, Halldóra Björnsdóttir, Hilinar Jónsson oglngvar E. Sigurðsson. Armstrong KERFIS-LOFT Yíii 250 gerðir aí loítaplötum. CMC - upphengikeríi og lím. LeitiQ tilboða EINKAUMBOÐ TEPPABUÐIN BYGGINGAVORUR SUÐURLANDSBRAUT 26. SÍMI 91-681950 ★ GBC-Skírteini/barmmerki fyrir: félagasamtök, ráðstefnur, starfsmenn fyrirtækja, o.m.fl. Efni og tæki fyrirliggjandl. OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33-105 Reykjavík Símar 624631 I 624699

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.