Morgunblaðið - 17.09.1992, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992
HRAÐLESTUR - NÁMSTÆKNI
Ef þú vilt margfalda lestrarhraðann til að njóta þess að lesa
meira af góðum bókum eða til að taka næstu próf með glæsi-
brag, ættir þú að skrá þig á hraðlestrarnámskeið.
Lestrarhraði nemenda meira en þrefaldast að jafnaði, hvort
heldur er í erfiðu eða léttu lesefni.
Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 24. september nk.
Skráning í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
” 1978-1992 l~El
Snyrtisérfrœðingur kynnirDior haustlitina
ídagkl. 13-17.
Qfjjfjíari,
Hamraborg 14a, Kópavogi.
F örðunarnámskeið
Nú heQast að nýju hin geysivinsælu
förðunamámskeið Kristínar Stefánsdóttur.
- Eitt kvöld
- Dag- og kvöldförðun
- Persónuleg ráðgjöf
- Aðeins 8 í hóp
NÝJUNG
Erla Magnúsdóttir hjá Hári og förðun mun koma
og veita hverri og einni persónulega ráðgjöf um
eigið hár og hárgreiðslu.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 26525
milli kl. 10 og 17 alla virka daga.
NO NAME
.—— COSMETICS ..
„ Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Áð í Hvanngili á Rangárvallaafrétti við kertaljós og kaffisopa. Fjallkóngarnir Ingvar Magnússon frá
Minna-Hofi t.h. og Ingimar ísleifsson, Sólvöllum, ásamt matráðskonunni Grétu Þorsteinsdóttur frá
Geldingalæk.
RANGARVALLAAFRETTUR
Fjallkóngar æja í Hvanngili
Gangnamenn á Rangárvallaaf-
rétti sem hófu leitir sl. sunnu-
dag hafa fengið blíðskaparveður
það sem af er og að sögn íjallkóngs-
ins Ingimars ísleifssonar er féð vel
á sig komið og fallegt eftir sumarið.
Alls voru um 1.300 fullorðnar
ær reknar á fjall að þessu sinni eða
um 3.000 fjár frá átta bæjum á
Rangárvöllum. Ellefu manns taka
þátt í leitunum, en fara þarf í tvenn-
ar eftirleitir síðar í haust. Réttað er
í Reyðarvatnsréttum nk. laugdag
eftir sex daga leitir, en gangnamenn
gista m.a. í Hvanngili og á Fitjum.
Að sögn leitarmanna hefur fé
farið fækkandi á undanfömum
árum eins og annars staðar á land-
inu en þeir telja ástand afréttarins
mjög gott og gróðurfar hafa farið
batnandi í seinni tíð. - A.H.
Frá útgáfuteitinu.
ÚTGÁFA
Veg-gfóð-
ur á plasti
Mikið hefur verið látið með ís-
lensku myndi Veggfóður,
sem gengið hefur fyrir fullu húdi
í nopkkurn tíma. Tónlist úr mynd-
inni, sem kom út fyrir nokkru,
hefur ekki síður vakið athygli og
seldist snemma upp. Fyrir stuttu
kom annað upplag í verslanir, og
á meðfylgjandi myndum má sjá
hvar aðstandendur myndarinnar
og tónlistarinnar fagna útgáfu
plötunnar.
Morgunblaðiö/Ámi Sæberg
Veggfóðursliðsmenn. Frá vinstri Steinn Ármann Magnússon, Ingi-
björg Stefánsdóttir og Baltasar Kormákur. Steinn Armann leikur
annað helsta karlhlutverk myndarinnar, Ingibjörg helsta kvenhlut-
verk og er að auki söngkona hljómsveitarinar Pís of keik, sem á
flest lög Veggfóðursplötunnar, og Baltasar leikur hitt helsta karlhlut-
verk myndarinnar.