Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 19

Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992. 19 Verðkönnun í níu evrópskum borgum Af 35 vörum eru 16 dýrastar í Reykjavík Astæðan m.a. ófullnægjandi samkeppni að mati Verðlagsstofnunar VERÐLAG í Reykjavík er til muna hærra en í stórborgum í öðrum löndum Vestur-Evrópu. Samkvæmt verðkönnun, sem gerð var í níu evrópskum borg- um i byrjun aprílmánaðar síðast- liðins og náði til 35 tegunda vöru og þjónustu, eru 16 vörur dýrast- ar í Reykjavík. Fimm vörur eru næstdýrastar, en aðeins tvær ódýrastar í Reykjavík. I tilkynn- ingu frá Verðlagsstofnun segir að orsakanna fyrir háu verðlagi hér sé meðal annars að leita í ófullnægjandi samkeppni. Verðkönnunin var gerð að frum- kvæði verðlags- og samkeppnisyf- irvalda í Stokkhólmi, sem völdu vörurnar og þjónustuna sem könn- unin náði til. Alls staðar voru könn- uð nákvæmlega sömu vörumerkin. Kannað var verð í Reykjavík, Kaup- mannahöfn, Helsinki, Stokkhólmi, Osló, Hamborg, Lundúnum, París og Vín. Reykjavík er dýrasta borg- in af þessum níu en Hamborg sú ódýrasta, þegar á heildina er litið. í Hamborg voru 16 vörutegundir ódýrastar og níu tegundir næst- ódýrastar. Lundúnir og París komu næstar Hamborg með hagstætt verðlag. Norrænu borgirnar, með Reykjavík í fararbroddi, voru oftast með hærra verð en borgirnar á meginlandinu. Sem dæmi um verðmun má nefna að verð á Legókubbum er hæst í Reykjavík og Stokkhólmi, eða 60-70% hærra en í Lundúnum. „Lítil verðdreifing er hér á landi og hátt verð skýrist vart af öðru en lítilli samkeppni,“ segir Verð- lagsstofnun. Levi’s gallabuxur voru dýrastar í Reykjavík, um 60% dýr- ari en í Helsinki, þar sem þær voru ódýrastar. Philips AVM 911-ör- bylgjuofn var 78% dýrari í Reykja- vík en í Hamborg. Verðlagsstofnun segir að hér á landi séu margar tegundir örbylgjuofna og mætti því ætla að verðsamkeppni væri mikil. „Ef svo er þá er verðið hér á landi á Philips-ofnum í samanburði við verðið erlendis óútskýranlegt,“ seg- ir stofnunin. Kannað var verð á vinsælum erlendum geisladiski. Verðið reynd- ist hæst á íslandi, 58% hærra en í Hamborg. „í Reykjavík er lítil sem engin verðsamkeppni á milli selj- enda geisladiska," segir Verðlags- stofnun. Hljómsnælda með vinsælli tónlist var langdýrust í Reykjavík, 92% dýrari en í Hamborg. „Það gildir það sama um hljómsnældur og geisladiska að lítil sem engin verðsamkeppni er á milli seljenda,“ segir í athugasemdum Verðlags- stofnunar með könnuninni. Er verð á erlendum vasabrotsbókum var athugað, reyndist það langhæst á íslandi. „Sé tekið tillit til þess að virðisaukaskattur er enginn á bók- um í Noregi og aðeins 5,5% í Frakk- landi var verðið í Reykjavík 70—80% hærra en þar sem það var lægst. Má að miklu leyti kenna skorti á samkeppni um hið háa verð í Reykjavík," segir Verðlags- stofnun. Eina varan eða þjónustan, sem var ódýrust í Reykjavík, var fjöl- földun á bíllykli, einslípuðum eða tvíslípuðum. Verðlagsstofnun segir að hið háa verð í Reykjavík sé aðeins að hluta til hægt að skýra með flutnings- kostnaði og opinberum gjöldum. „Launakostnaður hér á landi er hins vegar lægri en í löndunum sem hér er gerður samanburður við. Það verður því að leita meginskýring- anna í markaðsaðstæðum hér á landi, þ. á m. ófullnægjandi sam- keppni," segir í tilkynningu stofn- unarinnar. Olympus AF-super myndavél I Hamborq Lewis gallabuxur 10.000 kr. 7.242 kr. 38% verðmunur 6.890 kr. I Helsinki Braun Silk-épil rakvél 14.327 kr. 59% I París Sony Walkman WM-FX10 vasadiskó 3.900 kr. 61% 4.990 kr. London Nintendó tölvuleikur I Hamborg Lego-kubbar | London I 3.164 kr. 58% | 3.705 kr. (Super Mario Bros 2) ] 3.601 kr. 3% 13.513 kr. 6.280 kr. m Reykjavík I I Lægsta verð í samanburðar- borg 2.109 kr. 62% 11.392 kr. Hljómsnælda l 1726 kr. 92% Hamborg ■11-169 kr. Pampers bleiur | 1726 kr. 61% París 1.090 kr. Hraðframköllun □ 587kr. 86% London f«ir HH 854 kr. Vasabrotsbók □438 kr. 95% París . o Verð- o samanburður í 9 borgum Hamborg ódýrust, Reylqavík dýrust Lægsta Næst lægsta Hæsta Næst hæsta verð verð verð verð teg. teg. teg. teg. Hamborg 16 9 1 0 London 8 10 0 0 París 6 7 0 4 Vín 0 4 4 1 Kaupmannahöfn 1 2 1 6 Stokkhólmur 1 5 3 5 Ósló 1 2 4 7 Helsinki 2 1 9 9 Reykjavík 2 2 16 5 i/erðmunur milli aðildarlanda að löndin ganga til nánara E EFTA og Evrópubandalagsins kemur í ljós í könnuninni og er verðið yfirleitt hærra í EFTA-ríkj- unum þótt litlu muni á Vínarborg og Kaupmannahöfn. „í tengslum við birtingu þessarar könnunar í Svíþjóð kom fram að gert sé ráð fyrir að verðlag í Svíþjóð og Finn- landi muni lækka um 10-30% eftir samstarfs, fyrst og fremst vegna aukinnar samkeppni frá fyrirtækj- um í Evrópubandalaginu. Má vænta þess að samkeppni aukist einnig hér á landi í náinni framtíð ef ísland tengist nánar hinu evr- ópska efnahagssamstarfi," segir Verðlagsstofnun. Skrifstofutsekni • INNRITUN HAFIN • Við leggjum áherslu á vandað nám sem sniðið er að kröfum vinnumarkaðarins og nýtist þér í atvinnuleit. Kenndar eru eftirtaldar námsgreinar: § Bókfærsla § Ritvinnsla § Verslunarreikningur § Tölvubókhald § Töflureiknir § Tollskýrslugerð § Gagnagrunnur § Windows og stýrikerfi Athugið okkar hagstæðu greiðslukjör, kr. 5000 á mánuði til tveggja ára eða 15% staðgreiðsluafsláttur. Tölvuskóli íslands sími 67 14 66 • opið til kl. 22 peanner ^iasafio,2L PELSÍNUSAFIO 3SAMAN VICTORIA rv - 2 SAMAN HOLLENSKAR pbrur axtablanda piskibolllr '/•> dós HLBOÐ YIKIJNNAR HAGKAUP - attt í einni ferö

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.