Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 23

Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 23
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Aðgerðir í atvinnumálum Ríkisstjómin hefur tilkynnt um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi næstu þrjú árin. Ákvörðunin er tekin í tengslum við fjárlagagerðina fyrir næsta ár og byggir að hluta á tillögu- gerð í atvinnumálanefnd aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjóm- arinnar, fyrst og fremst atriðum, sem samkomulag virðist vera um í nefndinni sem er enn að störf- um, en formlegra tillagna hennar er að vænta á næstunni. Samkvæmt ákvörðun ríkis- stjómarinnar verður tveimur milljörðum króna varið á næsta ári til viðbótarframkvæmda í vegagerð, einum milljarði 1994 og hálfum milljarði 1995, alls 3.5 milljörðum króna. Tekjuskattur félaga verður lækkaður úr 45% í 33%, 240 milljónum króna verð- ur varið á næsta ári til sérstakra rannsókna- og þróunarverkefna og 100 milljónum til sérstaks markaðsátaks á EES-markaði í samvinnu við atvinnulífíð og fyr- irtæki til að nýta sóknarfæri, sem EES-samningurinn býður upp á. Þá verður varið 100 milljónum króna til viðhalds opinberra bygginga, m.a. Þjóðminjasafns, og 100 milljónum til fyrstu fram- kvæmda við nýtt hús Hæstarétt- ar. Einhugur virðist um það í þjóðfélaginu, að vegafram- kvæmdir séu með því arðbær- asta, sem hægt sé að verja pen- ingum skattgreiðenda til, enda byggir ríkisstjómin ákvörðun sína á því, svo og að vegafram- kvæmdir séu einn mikilvægasti þáttur skynsamlegrar byggða- stefnu. Viðbótarframkvæmdirn- ar nú eiga að miða að aukinni flutningsgetu vega, stækkun at- vinnu- og markaðssvæða og auð- velda stækkun sveitarfélaga. Stefnt er að því að hefja þessar framkvæmdir sem fyrst á næsta ári í ljósi atvinnuástandsins. Rík- isstjómin telur, að þessar að- gerðir muni skapa 400-500 heils- ársstörf, en í raun þýðir það að mun fleiri fái vinnu við þessi verkefni í skemmri tíma vegna eðlis þeirra. Ráðherrar hafa ekki fengizt til að taka af skarið með hvaða hætti þessar framkvæmdir verða fjármagnaðar að öðru leyti en því, að það verði gert með lánsfé innanlands eða utan. Út frá því má þó ganga sem vísu, að erlend- ar lántökur verði auknar. Ríkis- stjómin virðist sammála um, að versnandi atvinnuhorfur réttlæti það, að nokkur áhætta verði tek- in til að auka atvinnu og glæða hagvöxt. Það er kunnara en frá þurfí að segja, að þjóðarbúið er mjög skuldsett erlendis og því verður að fara með ítmstu gát að bæta við erlendum lánum. Miklar lántökur ríkissjóðs inn- anlands, m.a. vegna hallarekst- ursins, svo og lántökur stofnana ríkisins, fyrirtækja þess og sveit- arfélaganna hafa þrengt mjög að möguleikum atvinnuveganna og einstaklinga til að afla láns- fjár. Efnahagssamdrátturinn veldur því að vísu, að lánsfjáreft- irspurn fyrirtækjanna verður í lágmarki, en aftur á móti er lík- legt að nokkuð dragi úr spamaði fólks vegna minnkandi tekna heimilanna. Auknar lántökur hins opinbera við þessar aðstæð- ur á innlendum lánamarkaði hljóta því að auka þrýstinginn á vaxtahækkanir eins og alltaf gerist þegar eftirspumin er meiri en framboðið. íslenzkt atvinnulíf þarf einmitt nú á því að halda að vextir lækki til að hleypa lífi í nýsköpun og nýframkvæmdir og bæta samkeppnisstöðuna út á við. Vaxtalækkun á því að vera þungamiðjan í efnahagsstefnu ríkisstjómarinnar. Það er sá hvati, sem atvinnufyrirtækin þurfa á að halda og auka mun atvinnu í landinu. Ljóst er, að lækkun á tekju- skatti fyrirtækja úr 45% í 33% er mikilsvert skref til að lækka kostnað þeirra og hefur svipuð áhrif og vaxtalækkun. Með þess- ari ákvörðun verður tekjuskattur fyrirtækja á sömu nótum og ger- ist í nágrannalöndunum og jafn- ar því samkeppnisstöðu þeirra við aðildina að EvVópsku efna- hagssvæði. Þetta er því tímabær ráðstöfun og í rökréttu framhaldi af því, að síðasta ríkis'stjórn lækkaði tekjuskatt fyrirtækja úr 50% í 45%. Þess ber þó að geta, að fjárhagslegur ávinningur iyr- irtækjanna er ekki eins mikill og hægt er að álíta vegna prósentu- lækkunarinnar, því á móti kemur takmörkun á ýmsum frádráttar- liðum til tekjuskatts og er áætl- aður hagur þeirra af breyting- unni aðeins um 300 milljónir króna. Fyrstu viðbrögð verkalýðsfor- ingja við aðgerðum ríkisstjómar- innar í atvinnumálum em já- kvæð, þótt sumir að minnsta kosti telji of skammt gengið. í tengslum við endumýjun þjóðar- sáttar á vinnumarkaði sl. vor var gengið út frá því, að ríkisstjómin gripi til aðgerða gegn vaxandi atvinnuleysi. Eftir niðurskurð á þorskafla á nýbyijuðu kvótaári em slíkar aðgerðir nauðsynlegri en fyrr. í Ijósi þessa verður að skoða ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar. En jafnframt ber að hafa í huga, að þessar aðgerðir em aðeins takmarkaður þáttur í ráð- stöfunum, sem nauðsynlegt er að gera til þess að efla atvinnulíf- ið. Eftir stendur að taka mikil- vægar ákvarðanir varðandi sjávarútveginn. Krislján Guðlaugsson blaðamaður slasaðist á ferð um Króatíu Liggur nú á sjúkra- húsi í Dubrovnik KRISTJÁN Guðlaugsson blaðamaður liggur nú á sjúkrahúsi í Dubrovnik í Króatíu þar sem hann slasaðist á mánudagskvöld er hann féll niður um op á dimmum gangi hótelbyggingar í borginni og niður á steinsteypt gólf. Hann brotnaði á báðum fótum og brák- aðist á hrygg. Kristján, sem hafði lokið ferð um Króatíu með hópi á vegum norska Rauða krossins, hugðist fara einn síns liðs yfir landamærin til Bosníu og borgarinnar Sarajevo og skrifa um ástand- ið þar í blað sitt Rogaland Avisen í Stavanger í Noregi. Þegar slysið varð var hann á leið til að fá áritun á vegabréf sitt um fararleyfi til Bosníu á herbergi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna á þriðju hæð í hóteli í Dubrovnik. „Ég gekk í niðamyrkri á hótelgang- inum fram af brún þar sem átti að vera handrið og féll niður um þrjár hæðir og lenti á steinsteyptu gólfi. Báðir ökklar brotnuðu og ég brákaðist á hrygg,“ sagði Kristján þegar Morgunblaðið náði stopulu símasambandi við hann í gær. Hann sagði að hrikalegt væri um að litast í borginni og neyðarástand ríkti á sjúkrahúsinu og hótanir um að árásir yrðu hafnar að nýju vofðu yfír. Stöðugt væri komið á sjúkra- húsið með sært fólk, en barist hef- ur verið í um 15 km fjarlægð frá borginni. Einnig væri komið með flóttafólk frá Bosníu, sem oft væri illa leikið eftir pyntingar og meið- ingar. Kristján sagði að þótt fullkomið neyðarástand ríkti á sjúkrahúsinu og slasað fólk lægi þar í hveiju skoti væri aðhlynningin góð. Hins vegar kvaðst Kristján hálfpartinn skammast sín fyrir að eyða tíma hjúkrunarfólks og þiggja af tak- mörkuðum lyfjabirgðum sjúkra- hússins. Kristján sagði að sér væru gefn- ar góðar vonir með að hann mundi ná sér að fullu eftir slysið. Um eða eftir helgina verður hann sóttur á vegum tryggingafélags síns og fluttur á sjúkrahús í Noregi. Rafmagnsleysið í Reykjavík Miklar umferðartaf- ir og einn árekstur MIKLAR umferðartafir urðu í Reykjavík er rafmagnið fór af í hádeginu í gær en aðeins eitt óhapp. Við rafmagnsleysið urðu umferðarljós óvirk og því urðu tafir á umferð við þau. Óhappið sem rekja má beint til rafmagns- leysisins varð á mótum Hring- brautar og Hofsvallagötu en þar skullu tveir bílar saman í hörðum árekstri. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni var áreksturinn á Hring- braut svo harður að annar bíllinn valt á hliðina. Ekki urðu slys á fólki. Rafmagnslaust var frá skömmu eftir klukkan 12 til klukkan 12.38. Á þessum tíma dreifði umferðarlög- reglan liði sínu á helstu gatnamót borgarinnar til að stjóma þar um- ferðinni. Komst umferðin ekki í samt lag fyrr en um kl. 13 er búið var að gangsetja öll umferðarljós á ný- Morgunblaðið/Kristinn Kristín Jóhannesdóttir kvikmyndaleikstjóri og Jacques Mer, sendiherra Frakklands á íslandi, leggja blómsveig á minnisvarða um dr. Charcot, en í gær, 16. september, voru liðin 56 ár frá því að skip hans, Pourquoi-pas?, fórst við Mýrar. Nafn Charcots tengist sam- starfi Islands og Frakklands Minningarathöfn um áhöfn Pourquoi-pas? á dánardægri Charcots „ÞAÐ ER ætíð eftirsjá að mikilmennum en það er ósk mín að sorgin vegna dauða Charcots megi breytast í vitnisburð um lífið,“ sagði Kristin Jóhannesdóttir kvikmyndaleikstjóri en í gær var hald- in minningarathöfn um Dr. Jean Babtiste Charcot og áhöfn vísinda- skipsins Pourqoui-pas? sem fórst við Mýrar fyrir réttum 56 árum. Athöfnin var haldin við minnisvarða um Charcot, sem stendur við Jarðfræðihús Háskóla íslands. Nýjasta kvikmynd Kristínar, Svo á jörðu sem á himni, fjallar um strand skipsins og atburði tengda því. Minningarathöfnin hófst á því að Jacques Mer, sendiherra Frakk- lands á íslandi, bauð viðstadda vel- komna og rakti atburði hinn 16. september 1936 er vísindaskipið Pourquoi-pas? og öll áhöfn þess fórst, utan einn maður. „Sagt er að oft gleymi almenningur sögu sinni og það á vissulega við um Frakka. En ekki á íslandi, hér þekkja allir sögu Pourquoi-pas?,“ sagði sendiherrann. Þakkaði hann Kristínu Jóhannesdóttur gerð myndarinnar Svo á jörðu sem á himni, sem hann sagði gera vináttu landanna tveggja, Frakklands og íslands, enn nánari. Hún.væri mikil- væg skref í samvinnu þjóðanna, ekki síst á sviði vísinda og menning- ar. Væri það vel við hæfi þar sem Charcot, leiðangursstjóri Pourquoi- pas?, hafi verið maður samskipta. Kristín Jóhannesdóttir, leikstjóri myndarinnar, rifjaði því næst upp atburðina haustið 1936 og sagði að þó að 16. september væri sorgar- dagur væri það ósk sín að sorgin mætti breytast í vitnisburð um lífíð. Sagði Kristín að við gerð myndar sinnar hafi erfiðasta verkefni sitt verið að velja dr. Charcot ímynd; að gefa rödd hans, hreyfíngum og augum líf. „Ég hef reynt að vera minningu hans trú og við sem að myndinni stóðum unnum hana af fullri virðingu og einlægni." Minnt- ist Kristín orða Meulenbergs bisk- ups í Landakotskirkju, þar sem minningarathöfn um áhöfnina fór fram, en hann sagði að ekki mætti syrgja Charcot, hann hefði dáið hetjudauða, verið elskaður, virtur og dáður. Kristín sagði það gleðiefni að nafn Charcots, þessa aldavinar ís- lensku þjóðarinnar, tengdist mynd- inni, sem væri fyrsta samstarfs- verkefni íslendinga og Frakka. Minntist Kristín þess að Charcot hefði haft mikið dálæti á Shake- speare og síðustu nóttina hafi hann lesið úr síðasta verki Shakespeares, Ofviðrinu. Las Kristín stuttan kafla úr verkinu. Athöfninni lauk með því að Kristín og Jacques Mer lögðu blómsveig við minnisvarða Charc- ots. „Ætlunin er ekki að vekja Charc- ot upp frá dauðum, heldur bera vitn- isburð um líf hans,“ sagði Kristín Jóhannsdóttir að lokinni athöfn. „Er ég vann að myndinni um strand Pourqoui-pas? festi minningin um Charcot rætur í sál minni. Mér fínnst hann vera náinn vinur minn og það mun hann alltaf vera.“ Kaiser Aluminium Corp. hefur sýnt áhuga á byggingu álvers á Islandi Er næst stærsti seljandi eigin súráJsframleiðslu á heimsmarkaði Fyrirtækið hefur áður sýnt áhuga á íslandi og að ganga inn I samstarf Atlantal-fyrirtækjanna BANDARISKA álfyrirtækið Kaiser Aluminium Corporation sem sýnt hefur áhuga á að reisa 200-240 þúsund tonna álverksmiðju á íslandi er eitt helsta álfyrirtæki heims og spannar starfssvið þess allt frá námu- vinnslu báxíts til framleiðslu sem unnin er úr áli. Eigendur fyrirtækisins hafa áður sýnt áhuga á starfsemi á íslandi ög átt í viðræðum við full- trúa Markaðsskrifstofu Landsvirkjunar og iðnaðarráðuneytisins, sam- kvæmt upplýsingum Garðars Ingvarssonar, forsljóra Markaðsskrifstof- unnar. Meðal annars hafði fyrirtækið áhuga á að ganga inn í samstarf álfyrirtælganna sem mynduðu Atlantsálhópinn áður en AJumax varð fyr- ir valinu og er líklegasta skýringin á að þátttöku Kaiser Aluminium var hafnað sögð vera sú, að það notar ólíka og eldri tækni í álbræðslu en fyrirtækin sem mynda Atlantal-hópinn en þau nota svokallaða Pechiney- tækni, sem er frönsk og talin fullkomnasta tækni framleiðslubúnaðar í áliðnaðinum í dag. Davíð Oddsson forsætisráðherra átti óformlegan fund með John M. Seidl, stjómarformanni og forstjóra Kaiser Aluminium, í London í síðustu viku. Þar lýsti Seidl áhuga á viðræðum við íslensk stjómvöld um hugsanlega byggingu álvers á íslandi en það ráð- gerir að leita samstarfs við fleiri álfyr- irtæki um eignaraðild að nýju álveri sem það áformar að reisa. Davíð sagði í samtali við Morgun- blaðið að forstjórinn hefði lagt sig mikið fram um að sannfæra sig um að þeir hygðust af mikilli alvöru reisa nýtt álver, þótt ljóst væri að Kaiser væri ekki eingöngu að leita hófanna hér á landi. Sagði Davíð að íslensk stjómvöld tækju þessa ósk um að heíja viðræður um byggingu álvers mjög alvarlega. „Þetta er kostur sem við viljum skoða mjög vel en gæta þess þó jafnframt að spilla ekki fyrir öðr- um viðræðum _sem við emm í,“ sagði Davíð. Ákveðið hefur verið að taka upp viðræður við Kaiser Aluminium og em fulltrúar frá fyrirtækinu væntanlegir til lands- ins í fyrri hluta október í kynn- isferð og til könnunarviðræðna við iðnaðarráðherra og forráðamenn Landsvirkjunar. Davíð sagði að fyrirhugaðar viðræður væm alveg ótengdar samningunum við Atlan- tal-fyrirtækin um byggingu álvers á Keilisnesi. En Davíð sagði að þott samnmgar lægju fyrir við Atlan- tal-fyrirtækin væri ákvörðun um að hefja framkvæmdir á Keilisnesi í sam- ræmi við þá samninga ekki í augsýn svo vitað væri. Aðildarfyrirtækjum Atlantal-hóps- ins hefur verið greint frá þeirri ákvörðun að hafnar verði könnunar- viðræður við Kaiser Aluminium. Þá mun iðnaðarráðherra eiga fund með forstjóra Alumax í næstu viku þar sem honum verður kynnt þessi ákvörðun íslenskra stjómvalda. Davíð sagði að forráðamenn Kaiser legðu mjög líkt mat á framtíð álverðs á heimsmarkaði og forstjórar Atlan- tal-fyrirtækjanna. Hins vegar væri aðstaða og hagsmunir Kaiser aðrir þar sem álver þess væru orðin gömul og fyrirsjáanlegt að þau stæðu halloka í samkeppninni á álmarkaðnum. Að sögn Davíðs er ljóst að forráðamenn Kaiser telja sig þurfa að byggja nýjar verksmiðjur sem henta starfseminni betur. Stærð o g stofnkostnaður svipaður og álvers I Keilisnesi Talið er að þrátt fyrir að Kaiser noti eigin tækni við súrálsbræðsluna, sem er eldri en tíðkast í nýrri álbræðsl- um og að stofnkostnaður og rekstrar-1 kostnaður slíkra verksmiðja sé annar er talið að heildarkostnaður af bygg- ingu álvers af þeirri stærð sem Kaiser fyrirhugar að reisa verði mjög svipað- ur áætluðum kostnaði við byggingu álvers Atlantal-fyrirtækjanna á Keilis- nesi, samkvæmt upplýsingum Garðars Ingvarssonar. Arsframleiðsla fyrir- hugaðs álvers á Keilisnesi er 200 þús- und tonn og stofnkostnaður í kringum 50 milljarðar króna. Aðaleigandi Kaiser er MAXXAM Inc. sem á 87,3% hlutafjár. Eignar- aðild að hinum 12,7% er dreifð en Kaiser er skráð í kauphöllinni í New York. Fyrirtækið var að fullu í eigu MAXXAM Inc. frá árinu 1988-1991 þegar hlutafé þess var aukið og boðið út á almennum markaði. Auk þess að vera aðaleigandi Kaiser á MAXX- AM timburfyrirtæki og er umsvifam- ikið í fasteignaviðskiptum og þróun og uppbyggingu nýrra svæða. Aðal- skrifstofur Kaiser Aluminium eru í Houston í Texas. Erfiðleikar vegna orkuskorts Kaiser Aluminium á hlut í tveimur báxít-námufyrirtækjum á Jamaica, það rekur súrálsverksmiðju í Louis- iana, á 65% í súrálsverksmiðju á Jama- ica og 28% í stærstu súrálsverksmiðju í heimi í Queensland í í Ástralíu. Á árinu 1991 framleiddi Kaiser 2.794.500 tonn af súráli og seldi um 70% framleiðslunnar til annarra. Er Kaiser næst stærsti seljandi eigin súr- álsframleiðslu á heimsmarkaði. Fyrirtækið á í fjórum álbræðslum og eru tvær þeirra í Washington-fylki í Bandaríkjunum og eru þær báðar að fullu í eigu Kaiser. Önnur með 200 þúsund tonna framleiðslugetu en hin 73 þúsund tonna framleiðslugetu. Báðar þessar verksmiðjur munu vera komnar talsvert til ára sinna. Einnig er ríkjandi orkuskortur á svæðinu þannig að talið er fyrirsjáanlegt að fyrirtækið vilji leita að nýrri staðsetn- ingu fyrir starfsemi álbræðslna. Þá á Kaiser 90% hlut í 200 þúsund tonna álveri í Ghana. Sú verksmiðja lenti í miklum erfiðleikum fyrir fáein- um árum þegar þurrkar urðu þess valdandi að Volta raforkuverið þurfti að skammta verksmiðjunni raforku og lá um tíma við að þyrfti að loka verksmiðjunni. Loks á Kaiser 49% eignarhlut í Anglescy álverinu í Wales á Bretlands- eyjum, en framleiðslugeta þess er 120 þúsund tonn. Sú verksmiðja kaupir raforkuna frá kjarnorkuveri og er tal- ið tvísýnt um þá starfsemi innan næstu tíu ára. Kaiser Aluminium framleiddi alls um 500 þúsund tonn af hrááli á síð- asta ári og seldi um það bil 68% fram- leiðslunnar til þriðja aðila, en afgang- urinn fór til frekari fullvinnslu í fram- leiðslueiningum fyrirtækisins. Alls starfrækir fyrirtækið verk- smiðjur og framleiðslueiningar á 26 stöðum í tíu fylkjum Bandaríkjanna og fimm erlendum ríkjum. Starfsmenn Kaiser og hlutdeildarfyrirtækja þess eru rúmlega tíu þúsund talsins. Blendin viðbrögð aðila vinnumarkaðar við ráðstöfunum ríkisstjómar Með þessum aðgerðum er ekki tekið á vanda fiskvinnslustöðvanna — segja formaður Samtaka fiskvinnslustöðva og forseti ASÍ FORSVARSMENN atvinnurekenda og launþega fagna ákvörðunum ríkisstjórnarinnar um aukningu framkvæmda til þess að efla atvinnu- starfsemi. Þeir, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, telja þó ekki nóg að gert. Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslu- stöðva segir að ekki sé tekið á vanda fiskvinnslunnar og undir það tekur Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambandsins. Ásmundur og Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdasljóri Vinnuveitendasam- bandsins gagnrýna að afstöðugjald skuli ekki vera afnumið um leið og tekjuskattur fyrirtækja er lækkaður. Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fískvinnslustöðva segir að með ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar til þess að efla atvinnustarfsemi sé ekki tekið á vanda fiskvinnslunnar. Hann segist sammála Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra um að sá vandi sé svo stór að hann gefi tilefni til að ræða hann sérstak- lega. „Á fundi fulltrúa útgerðar og fískvinnslu með forsætisráðherra fyrir þremur vikum var ákveðið að halda fljótlega fund með sömu aðil- um og þá kæmu til aðrir ráðherr- ar,“ sagði Arnar í samtali við Morg- unblaðið. „Á þeim fundi sem vænt- anlegur er er ætlunin að fara yfir stöðu mála og taka fyrir bæði útlit og afkomu í útgerð og fiskvinnslu, og ég á von á því að fljótlega í fram- haldi af þessu verði sest niður. Það gera sér allir grein fyrir því að vandi sjávarútvegsins um þessar mundir er mjög mikill.“ Arnar sagði að hvað Iækkun tekjuskattsins varðaði hefði sjávar- útvegurinn ekki verið með þá af- komu á undanförnum árum að menn hefðu verið að greiða mikinn tekjuskatt, og því miður væri ekki útlit fyrir að það reyndi mikið á það. „Aftur á móti teljum við að þetta sé jákvæð þróun, en ég lít einnig á þetta sem ákveðið sam- ræmingaratriði miðað við það sem er að gerast í Evrópu og á væntan- legu Evrópsku efnahagssvæði,“ sagði Arnar. „Þetta er jákvætt en vegur ekkert í okkar afkomu um þessar mundir. Menn eru með mik- ið af uppsöfnuðu tapi í þessari grein og ég hef ekki heyrt að tekjuskatt- ur væri vandamál. Ef svo væri þá værum við í betri málurn," sagði Arnar. Gæti skapað 500 ársverk í verktakastarfsemi „Það er enginn vafi á því að þetta er spor í rétta átt og þó ekki sé það ýkja stórt þá er þetta til þess að smyija efnahagshjólið," sagði Pálmi Kristinsson fram- kvæmdastjóri Verktakasambands Islands. „Mér sýnist að þessar við- bótarframkvæmdir gætu leitt til þess að 300-400 ársverk skapist i verktakaiðnaði á næsta ári og 100-200 til viðbótar í tengdum greinum, þannig að áætla má að þegar þessar framkvæmdir verða á fullu næsta sumar þá vinni kannski um 500 manns við þær beint hjá verktökum." Pálmi sagði að í tillögum Verk- takasambandsins, sem lagðar hefðu verið fram í byijun mánaðarins, hefði verið lagt til að framkvæmdir ríkisins á næsta ári yrðu auknar um 3 milljarða. Nettóaukning yrði um 2 milljarðar eins og gert væri ráð fyrir í ákvörðun ríkisstjórnar- innar, og þriðja milljarðinum yrði reynt að ná fram með tilfærslum á fjárfestingum ríkisins, en það sem að því sneri væri ekki með í ákvörð- un stjórnarinnar. „Síðan er það sem snýr að sveitarfélögunum og þá einkum að borgarstjórn Reykjavík- ur, en við lögðum til við borgar- stjórn að farið yrði í viðbótarfram- kvæmdir í borginni á næsta ári upp á 1,5 milljarða. Ég tel reyndar öll rök hníga að því að slíkt verði gert, síst minni heldur en það sem snýr að ríkinu, því að atvinnuástandið og horfurnar á höfuðborgarsvæðinu eru hvað verstar," sagði Pálmi. Hann sagði að sér sýndist að ákvörðun ríkisstjómqrinnar skipti sköpum fyrir mörg jarðvinnufyrir- tæki og starfsmenn þeirra, sem hefðu fengið uppsagnarbréf eða átt von á slíku. „Nú er brýnt að koma þessum framkvæmdum út sem allra fyrst, en mikið af þessum verkefnum er hægt að vinna yfir veturinn með þeim tækjum sem nú eru til. Vænt- anlega er eitthvað af þessum fram- kvæmdum jafnvel tilbúið í útboð með litlum fyrirvara, þannig að mjög brýnt er að útboð á einhveij- um hluta þeirra fari fram fyrir ára- mót þó framkvæmdir hefjist ekki fyrr en á næsta ári,“ sagði Pálmi Kristinsson. Lækkun tekjuskatts hefur táknræna þýðingu Þórarinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands íslands segir að vinnuveit- endur muni Ieggja áherslu á að þau viðbótarverkefni við vegalagningu og opinberar byggingar, sem ríkis- stjórnin hefur ákveðið, fari hið fyrsta í útboð, þannig að fyrirtæki geti hafið undirbúning. Einnig verði lögð áhersla á að þeir fjármunir sem veija eigi í þessu skyni renni til þess að auka framkvæmdir á veg- um einkaaðila en ekki opinberra aðila. „Við höfum horft á það að umsvif Vegagerðar ríkisins við framkvæmdir hafa ekki dregist saman með sambærilegum hætti og samsvarandi aðkeypt starf- semi,“ sagði Þórarinn. „Þetta er í sjálfu sér góðra gjalda vert hjá rík- isstjórninni en það kemur þó nokk- uð á óvart að þessi þáttur um ákveðnar vegaframkvæmdir skuli fæðast á undan fjárlagafrumvarp- inu. Þannig er nokkuð erfítt að skoða ákveðnar yegaframkvæmdir þegar ekki liggur fyrir hvernig verður með vegaframkvæmdir að öðru leyti.“ Þórarinn sagði vinnuveitendur fagna sérstaklega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka tekju- skatta fyrirtækja til samræmis við það sem gerðist meðal annarra þjóða. „Það mun að vísu ekki létta rekstur fyrirtækja á næsta ári, þar sem mjög fá fyrirtæki munu hafa hagnað af sinni starfsemi og borga þar af léiðandi tekjuskatt. En þetta hefur hins vegar táknræna þýðingu bæði inn og út á við. Nú getum við sýnt erlendum fjárfestum fram á að þetta sé alvöru land með alvöru skattkerfi, sem sé fyllilega sam- bærilegt við það sem þeim stendur til boða annarstaðar í Evrópu. Það heyrir því væntanlega sögunni til að fjármálaráðherrar setjist niður og semji sérstök skattalög fyrir ein- stök fyrirtæki sem hingað koma,“ sagði Þórarinn. Hann sagði vinnuveitendur hins vegar sakna þess að ekki komi fram í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar áform um að afnema aðstöðugjald- ið sem valdi því að íslensk vara og þjónusta sé að meðaltali um 2% hærri í verði en hún þyrfti að vera. „VSÍ lítur svo á að það væri mikil- virkasta framlagið til atvinnuupp- byggingar að fella þessa skatt- heimtu niður og koma henni fyrir með öðrum hætti,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson. Meira þarf að koma til Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands segist fagna þeirri afstöðu sem komi fram í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að leggja tvo milljarða króna til ýmissa framkvæmda. Hann segir að með þessu sé ríkisstjórnin að viðurkenna vandann og stíga skref í þá átt að taka á honum, en meira þurfí að koma til og ríkisstjórnin verði að búa sig undir að meira reyni á hana í því efni. Ásmundur Stefánsson sagði við Morgunblaðið, að sér þætti nokkuð sérkennilegt að ríkisstjórnin skuli skyndilega skella fram afmörkuð- um tillögum um aðgerðir til að efla atvinnulíf þegar fyrir hefði legið að atvinnumálanefndin, sem í eiga sæti fulltrúar ríkisstjórnar, aðilar vinnumarkaðar og sveitarstjórna, myndi í þessari viku koma fram með tillögur um þau atriði sem til- lögur ríkisstjórnarinnar fyölluðu um. „Sumir myndu ætla að það væri gert til að draga úr líkum á að nefndin komi fram með tillögur um eitthvað annað og rneira," sagði Ásmundur. Hann sagði, að segja mætti að það sem kæmi fram í yfírlýsingu ríkisstjórnarinnar væri sótt í smiðju atvinnumálanefndarinnar, ef frá væri talið það sem kemur fram um tekjuskatt fyrirtækja. „Og í skatta- málum hefði ég talið brýnna verk- efni að taka á aðstöðugjaldi en tekjuskatti því aðstöðugjaldið kem- ur einkum illa við lítil fyrirtæki á landsbyggðinni, sem verða að sækja sér aðföng gegnum milliliði sem aðstöðugjald fellur á og verða síðan sjálf að greiða aðstöðugjald. Það vantar einnig mikið í þetta útspil nefndarinnar. Þarna er ekk- ert um hvernig taka eigi á þeim vanda sem niðurskurður aflakvóta hefur leitt yfír ýmsa staði. Þarna er ekkert um það hvernig halda eigi vinnslunni í landi, svo ekki sé talað um að auka hana. Það er ekkert um það hvaða ráðstafana verði gripið til svo halda megi skipa- viðgerðum í landinu. Það er ekkert um ráðstafanir til að nýta þá orku sem hefur verið beisluð en rennur ónýtt til sjávar, nema þá ef taka ætti hugmyndir um hugsanlegt ál- ver sem nú hafa komið fram. Framkvæmdirnar sem ríkis- stjórnin talar um eru auðvitað mik- ilvægur þáttur og við hljótum auð- vitaða að fagna þeim umskiptum í afstöðu ríkisstjórnarinnar að hún sé tilbúin að fara fram með aðgerð- ir af því tagi. Það er hins vegar jafn ljóst að þessar aðgerðir eru ekki nægilegar til að forða okkur frá fyrirsjáanlegu atvinnuleysi. Ég held þess vegna að þótt þarna hafi komið áfangi verði ríkisstjómin að búa sig undir það að gera meira í þessu máli ef einhveijar sættir eijga að vera í samfélaginu," sagði As-. mundur Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.