Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 26

Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 26
.26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 Frumvarp um lagabreytingar vegna EES á sviði samgöngumála Heimildarákvæði um reglu- gerðir vel skilgreind og skýr - segir samgönguráðherra HALLDÓR Blöndal saragöngnráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lagaákvæðum er varða samgöngumál, vegua aðild- ar að Evrópska efnahagssvæðinu. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu óhóflegt reglugerðarvald ráðherra. En samgönguráðherra telur margt í EB/EES-gerðum tæpast eiga heima í íslenskum lagatexta. Fari betur á því að birta slíkt í reglugerðum. Með EES-samningnum samþykkja EFTA-ríkin ýmsar mikilvægar reglur EB á sviði flutningamála sem reglur EES. EFTA-ríkin samþykkja þar með að aðlaga hluta löggjafar sinnar hinni sameiginlegu flutningastefnu EB. En ákvæði samningsins þar að lútandi gilda þó fyrst og fremst um alþjóðlega flutningastarfsemi en ekki um innanlandsflutninga. Fijálsar ferðir í upphafi framsöguræðu sinnar minnti Halldór Blöndal áheyrendur á að aukið frjálsræði í viðskiptum yrði að haldast í hendur við aukið frelsi í samgöngumálum. Hafta- og vemdarstefna á samgöngumarkaðn- um ynni gegn fijálsri verslun. Ráð- herra gerði nokkuð ítarlega grein fyrir þróun og skipan samgöngu og flutningamála á vettvangi Evrópu- bandalagsins, t.a.m. reglugerðum EB um beitingu samkeppnisreglna gagnvart flugfélögum, samræmingu og öryggi, neytendavemd og fleira. Umskráning skipa Samgönguráðherra benti á að reglugerð um umskráningu skipa frá einni skipaskrá til annarrar innan EB gæti haft verulega þýðingu hér á landi. Samkvæmt henni væri aðild- arríki óheimilt að neita að skrá skip á tæknilegum forsendum þegar skip hefði gilt skírteini og fullnægði kröf- um fyrra heimalands. Þar með væri numin á brott heimild einstakra að- ildarríkja til að setja sérreglur um tækni og öryggisbúnað. Halldór Blöndal samgönguráð- herra sagði að það framvarp sem hann mælti fyrir mætti skipta í tvo efnisþætti. Annars vegar lagabreyt- ingar sem væru nauðsynlegar vegna meginreglu EES-samningsins um jafnræði ríkisborgara aðildarríkja, ennfremur væri lagt til að lögfest yrði heimild til að setja reglur á sviði samgöngu- og ferðamála, sem kveðið væri á um í VII. og XIII. viðauka EES-samningsins. Samgönguráðherra minnti á að Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins Oeðlilegt að kynna ráðstaf- anir fyrst utan þingsalarins RÍKISSTJÓRNIN kynnti í fyrradag á blaðamannafundi ráðstafanir til að efla atvinnustarfsemi í landinu, m.a. um auknar opinberar fram- kvæmdir fyrir tvo milljarða króna á næsta ári. Óháð efnisatriðum þessara ráðstafanna þykir stjórnarandstöðunni að ríkisstjórnin hefði átt að gera Alþingi fyrst grein fyrir þessum fyrirætlunum. Þar sé fjár- veitingavaldið. í upphafí þingfundar í gær kvaddi Kristín Ástgeirsdóttir (SK-Rv), formaður þingflokks Samtaka um kvennalista, sér hljóðs um gæslu þingskapa. Glögglega kom fram í ræðu Kristínar að henni þótti fram- kvæmdavaldið forðum hafa seilst langt inn á svið löggjafarvaldsins. En nú þótti henni hafa keyrt um þverbak. Ríkisstjórnin hefði kynnt tillögur sínar kvöldið áður um að- gerðir til að efla atvinnulífið. Ríkis- stjórnin hefði lýst því yfir að á næsta ári yrði 2.000 milljónum króna varið til vegagerðar. „Það vill nú svo til að Alþingi fer með fjárveitingavald- ið,“ sagði Kristín. Það hefði verið nær að ríkisstjóm beindi tilmælum til Aþingis um að staðið yrði að vega- framkvæmdum með tilteknum hætti. Kristín minnti á að lög kvæðu á fram- kvæmdir samkvæmt vegaáætlun. Alveg óháð efnisinnihaldi tillagna ríkisstjórnarinnar, hlyti þingflokkur Samtaka um kvennalista að vera mjög ósáttur með viðhorf ríkisstjóm- arinnar gagnvart Alþingi sem kæmi fram í þessari málsmeðferð ríkis- stjómarinnar. Það væri Alþingis að skipta vegafé. Olafur Ragnar Grímsson (Ab- Rn), formaður Alþýðubandalagsins, sagði það venju að fjárlög íslenska ríkisins væru birt í sérstöku þing- skjali; fjárlagaframvarpinu. Nú hefði það í fyrsta sinn gerst að ríkisstjórn hefði kynnt meginatriði fjárlaga- frumvarpsins á blaðamannafundi. Þingið væri þó starfandi. Það væri fullkomlega óeðlilegt að forsætiráð- herra og fjármálaráðherra væra að flytja þjóðinni skýrslu um væntanlegt fjárlagafrumvarp utan við þingsal- inn. EES-samningurinn krefðist þess af aðildarríkjum að þau aðlöguðu lög- gjöf sína að þeim réttarreglum sem samningsaðilar hefðu komið sér sam- an um að ættu að gilda á svæðinu. Gerðimar á sviði samgöngumála væra sumar þess eðlis að nauðsyn- legt væri að breyta efnisatriðum ís- lenskra laga. En það gilti þó ekki um fjölmargar gerðir, reglugerðir og tilskipanir. Við aðlögun íslenskrar löggjafar hefðu tvær leiðir komið til greina, annars vegar að setja þær orðrétt eða meginefni þeirra í íslensk lög, hins vegar að setja heimildará- kvæði í lög, en birta síðan gerðirnar sem reglugerðir. í því framvarpi sem hann mælti fyrir hefði síðari leiðin verið valin. Engar j árnbrautir í lagatexta Samgönguráðherra benti á að flestar reglurnar á þessu sviði væru þess eðlis að þeim væri betur skipað í reglugerðum en lögum. Margar gerðir EB ættu tæpast erindi í ís- lenskan lagatexta. Hann nefndi t.a.m. tilskipun um bókhaldsyfirlit yfir útgjöld vegna samgöngumann- virkja til flutninga á jámbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum. En Halldór Blöndal taldi sér þó skylt að taka skýrt fram að margar gerðir EES á sviði samgöngumála muni hafa mikil áhrif hér á landi, en einnig þeim væri betur skipað í reglugerð en með beinum laga- ákvæðum. Það mælti og með setn- ingu heimildarákvæða að það væri nákvæmlega vitað hvaða reglur ráð- herra væri heimilað að setja á grund- velli viðkomandi heimildarákvæðis. Ráðherra hefði lítið svigrúm sam- kvæmt heimildarákvæðinu til að setja aðrar reglur en kvæði á um í viðauka samningsins. Ekki væri því hægt að tala um að þessari reglu- gerðarleið fylgdi réttaróvissa eða framsal valds til ráðherra. Hver hefur valdið? Kristinn H. Gunnarsson (Ab-Vf) sagði nú vera að koma fram hveijir teldu sig lögum ráða. „Er Alþingi þræll ríkisstjórnar?" Kristinn gagn- rýndi það sem hann taldi óhóflegt vald ráðherra til að setja reglugerð- ir. Fjöldi greina í frumvarpinu hæf- ust á orðunum: „Samgönguráðherra er heimilt að setja reglugerðir á sviði ..." o.s.frv. Halldór Blöndal sam- gönguráðherra vísaði þessu á bug; það væri vel skilgreint um hvað væri heimilt að setja reglugerðir. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (SK-Vf) tók undir gagnrýni Kristins. Ræðumaður spurði hver ætti að fylgjast með því að reglugerðir ráð- herra stæðust gagnvart EES-samn- ingnum. Jóna Valgerður vildi láta athuga þann möguleika að þingnefnd færi yfir þessar reglugerðir. Jóhann Ársælsson (Ab-Vl) vildi spyija þess, að ef ráðherra teldi sig hafa svo lítið vald til að setja reglugerðir, hver hefði þá valdið? Jóhanni óaði við þeirri framtíðarsýn sem hann taldi þetta frumvarp vitna um. EB ætti eftir að breyta reglugerðum og þá þyrfti ísland að breyta reglugerðum. Myndu breytingar á reglum eiga að renna hljóðalaust „eftir flæðilínu í samgönguráðuneytinu". Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf) sagði þetta sérstætt framvarp því enginn vissi um hvað það væri, því efnisat- riði væru engin í því. Ólafur taldi að mörgum yrði villugjarnt á laganna vegum þegar ekki sæi til fótanna fyrir illgresi reglugerða. Alþingi væri óheimilt að afsala sér löggjafarvald- inu. í ræðu sinni vitnaði Ólafur Þ. Þórðarsson til stjómarskrár og ýmissa lögskýringarrita, s.s. Stjórn- skipunar Islands eftir Ólaf Jóhannes- son. Kristinn H. Gunnarsson (Ab-Vf) þakkaði fyrra ræðumanni athyglis- verða ræðu um hlutverk og skyldur Alþingis. Þetta makalausa frumvarp kallaði vissulega á að menn veltu slíkum málum fyrir sér. Um kl. hálf fjögur var umræðu lokið. En Jóhann Ársælsson harmaði að ráðherra hefði ekki svarað nokkr- um mikilvægum og viðamiklum spurningurti. Halldór Blöndal sam- gönguráðherra upplýsti að hann hefði orðið „höndum seinni" að biðja um orðið áður en fundarstjóri, Pálmi Jónsson, 6. varaforseti, hefði tilkynnt um Iok umræðunnar. Guðrún Helgadóttir (A-Rv) fór þess á leit með tilvísan til þess að fundarstjóri hefði ekki sagt orðin „ekki eru fleiri á mælendaskrá" að aftur yrði tekið til við þessa umræðu. Fundarstjóri, Pálmi Jónsson, hafnaði því að opna mælendaskrá og stóð við sinn úr- skurð um að umræðu væri lokið. Kuldar og þurrkar draga úr aflabrögðum NÚ ER laxveiðiánum lokað hverri af annarri og víða þykir mönnum miður að september skyldi ekki hafa boðið upp á vætuna og breyttu bættu skilyrðin sem menn töldu þurfa til að veiðinni lyki betur en raun hefur orðið á. Víða er mikill lax, en kuldar og þurrkar í septem- ber hafa dregið úr aflabrögðum. Laxá bætir sig ... Laxá í Aðaldal gaf rétt um 2.300 laxa þetta sumarið, bráðabirgðatala var 2.286, en Orri Vigfússon for- maður Laxárfélagsins taldi ekki öll kurl komin til grafar og eitthvert lítilræði myndi bætast við. Tölumar sem Orri hafði haldbærar vora 1.654 laxar af svæðum Laxár- félagsins, 312 af Nesveiðunum, 117 af Núpasvæðinu, 60 af Staðartorfu, 48 laxar áf Hrauni, 44 laxar úr Presthvammi, 33 laxar úr Múla- torfu og 18 laxar af Syðra Fjalli. „Það veiddust alls um 170 merktir laxar, en vorið 1991 var 301000 gönguseiðum sleppt og þriðjungur þeirra merktur. Því virðast hafa veiðst um 500 laxar úr slepping- unni og ef við veiðum einn af hveij- um þremur sem ganga í Laxá, sem hefur verið talin mjög trúleg ágisk- un, er um að ræða að 1.500 laxar hafi gengið, eða um 5 prósent af sleppingunni," sagði Orri. Tvær laxlitlar Laxár... Laxá í Leirársveit gaf aðeins 650 laxa, sem er afar slakt. Þurrviðra- samt sumar hefur spilað inn í, en þá sjaldan að rignt hefur og menn hafa sett sig í stellingar og búið sig til að moka upp nýrannum lax- inum, hefur hann ekki látið sjá sig. Lítið vatn og lítið af laxi. Lítil sem engin veiði hefur verið í „Stubbun- um“, Selósi og Þverá í Svínadal, sprænunum sem renná á milli vatn- anna fyrir ofan Laxá. Þær gefa oft á annað hundrað laxa, en í sumar hafa vaðstígvél dugað til að ösla „dýpstu" hyljina. Önnur Laxá sem hefur valdið vonbrigðum í sumar er Laxá í Kjós, sem má muna sinn fífil fegri. Þar hefur veiðin farið stigminnkandi eftir hið ótrúlega metár 1988 er 3.850 laxar veiddust. Vart verður veiðin slakari en í sumar, rétt um 1.300 laxar veiddust. Ýmsar ár ... Endanleg lokatala úr Norðurá var 1.964 laxar, nú era öll gögn komin á borðið. Mikil aukning á þeim bæ. Gljúfurá, hliðará Norðurár og kvísl úr Langá, hefur einnig tekið vel við sér. Þar hafa veiðst um 280 laxar og er áin jafnt og þétt að ná fyrri styrk, en á áttunda áratugnum gaf þessi á þetta 300 til 500 laxa á sumri. Svo var hún ónýt í mörg ár, en er nú á uppleið á ný. Vatnsá ofan Mýrdals hafði gefið 140 laxa og á annað hundrað sjó- birtinga um miðja vikuna. Meiri lax er í ánni en í annan tíma, en ánni helst illa á sjóbirtingnum, sem vill helst geisast hvíldarlítið inn í Heið- arvatn. Þó fá menn góð skot á milli. Lokatölur úr Flekkudalsá era 264 laxar og er það meira en helm- ingi meiri veiði en í fyrrasumar. Lokatölur úr Víðidalsá urðu 1.300 laxar sem er hörkugóð út- koma. Mögru árin vora orðin þijú talsins, en nú hefur vöm verið snú- ið í sókn. Veiðimenn sem voru á Vatna- mótum Geirlandsár og Skaftár í lok sfðustu viku fengu 40 nýranna sjó- birtinga á tveimur dögum. Sáu mik- ið af fiski, meira að segja nokkra laxa sem létu sér nægja að elta agnið. Mest var um 3 til 5 punda fisk, en þetta var fyrsta alvöru skot- ið í Vatnamótunum. Heyrst hefur að mjög dræm veiði hafi verið í Geirlandsá og menn hafi talist sig góða að særa upp fisk og fisk. Álftá á Mýram hefur gefið á fjórða hundrað laxa sem er feikna- góð útkoma miðað við viðvarandi vatnsleysi á vertíðinni. Mikið af sjó- birtingi hefur einnig veiðst, á annað hundrað fiskar og er margt af hon- um góður fiskur. Þar er veitt til 20. september. Flatey á Skjálfanda Messa í fullsetiimi kirkju Húsavfk. AÐ TILHLUTAN Gísla Jónatanssonar fór Kirkjukór Fáskrúðsfjarðar ásamt sóknarpresti sínum, séra Þorleifi Kristmundssyni, Kolfreyjustað, organista, Máté Péter og meðhjálpara, Sigrúnu Guðlaugsdóttur, í langa reisu um verslunarmannahelgina, eða til Flateyjar á Skjálfanda og flutti þar messu fyrir fullsetinni kirkju. Kirkjan var í Flatey að fomu eða síðan á söguöld. Þangað kom Guð- mundur góði og vígði vatnsbólk og hefur síðan aldrei vatn þrotið, svo sem oft vill verða í eyjum. Kirkjunni var lengst af þjónað frá Þönglabakka en síðan 1897 var hún flutt úr eynni að Brettingsstöðum á Flateyjardal og sóknin lögð undir Hálsprestakall 1907 og síðar undir Húsavíkur- prestakall. Þegar byggð lagðist niður í dalnum flutti fólk kirkjuna með sér og endurreisti hana í FÍatey á árun- um 1955 til 1959. Föst búseta í Flatey lagðist af 1968 en nokkram húsum í eyjunni hafa eigendur og ættingjar haldið vel við og dvalið þar um lengri eða skemmri tíma ár hvert. í tilefni mes- sunnar flutti Hríseyjarfeijan Sævar fólk frá Húsavík til eyjarinnar og veittu heimamenn gestum góðan beina en alls voru þar um helgina um 150 manns. Á undanförnum áram hefur oft verið messað í Flatey- jarkirkju um þessa helgi þó ekki sé það alveg fastur siður og ættsterkir Flateyingar hafa látið ferma böm sín í Flateyjarkirkju. - Fréttaritari Frá messu í Flateyjarkirkju. Morgunblaðið/Silli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.