Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 27

Morgunblaðið - 17.09.1992, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 27 Morgunblaðið/Rúnar Þór Fiskimenn framtíðarinnar? Þeir gera út við togarabryggjuna, félagarnir Leó Magnússon, Amar Þorsteinsson og Baldur Jóns- son, og voru bara ánægðir með afla gærdagsins. Drógu hvem golþorskinn á fætur öðram upp á bryggjuna og báru sig fagmannlega að er að því kom að gera að aflanum. „Við seljum þetta, það er maður sem kaupir fískinn af okkur,“ sögðu þeir roggnir. En á meðan þeir drógu þorska við bryggjuna voru tveir guttar, Helgi og Fannar, að kanna lífríki Pollsins, en ekki fylgir sögunni hver niðurstaða þeirrar könnunar var. Talsvert af gasoliu rann í höfmna NOKKURT magn af gasolíu fór í sjóinn er verið var að fylla eitt skipa Utgerðarfélags Akur- eyringa í gær. Olíuflekkur var meðfram fjörunni frá togara- bryggju og inn að Drottningar- braut. Guðmundur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri á Akureyri, sagði að atvik sem þetta henti alltof oft og í flestum tilvikum væri trassaskap og kæraleysi um að kenna. „Menn virðast ekki vera nægilega vakandi við þetta og því miður er gerast atvik sem þetta of oft,“ sagði Guð- mundur. Starfsmenn hafnarinnar notuðu dreifiefni til að dreifa olíunni og sökkva henni, en flekkurinn barst fyrir straumi allt inn að Drottning- arbraut. Guðmundur sagði ekki vit- að nákvæmlega hversu mikið magn af olíunni fór í sjóinn. Þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar Skuldir bæjarsjóðs lækki um 100 millj. Skatttekjur aukast um 13 milljónir ár- lega næstu þijú ár UM 32 milljónum króna verður árlega á næstu þremur árum var- ið til að greiða niður skuldir bæj- arsjóðs, en eitt af markmiðum þriggja ára áætlunar um rekstur, fjármál og framkvæmdir bæjarins er að greiða niður almenn lang- tímalán bæjarsjóðs um 5% á ári. í áætluninni er gert ráð fyrir að skatttekjur bæjarins aukist 13 miiyónir króna á ári að raungildi. Helstu markmið áætlunarinnar eru m.a. að nýta skattstofna bæjar- sjóðs með sambærilegum hætti og verið hefur á síðustu árum og þá er gert ráð fyrir að hlutfall rekstrar- gjalda af skatttekjum fari ekki yfir 71%, en við það er miðað í áætlun- inni að álögur sem settar voru á sveitarfélög í upphafi þessa árs verði ekki framlengdar frá og með næstu áramótum. Breytingar á rekstri sem leiða af sér aukin rekstrargjöld koma því aðeins til framkvæmda að tekjur aukist eða náð verði spamaði í núver- andi rekstri. í forsendum áætlunarinnar er gert ráð fyrir að íbúum á Akureyri fíölgi um 1,5% á tímabilinu og þar af leið- andi auknum skatttekjum. Þannig er gert ráð fyrir að útsvarstekjur aukist um 1% á ári, aðstöðugjöld um 0,75% og tekjur af fasteignagjöldum um 1% á ári. „í reynd erum við að tala um að skatttekjumar aukist um 13 millj- ónir á ári að raungildi. Þetta jafngild- ir hins vegar því að skatttekjur á hvem íbúa bæjarins lækka um 1,5 þúsund á þessu tímabili," sagði Hall- dór Jónsson bæjarstjóri í ræðu sinni við fyrri umræðu um áætlunina á fundi bæjarstjómar á þriðjudag. Gert er ráð fyrir í áætluninni að verja um helmingi af áætlaðri tekju- aukningu til aukinna rekstrarút- gjalda og til að mæta aukinni þörf fýrir nýja eða breytta starfsemi. ------»■■♦■■■♦-- Skautafélagið * Ovíst hvort svellið opn- ar í vetur SKAUTAFÉLAG Akureyrar skuldar rúmlega einnar milljón króna rafmagnsreikning og hefiu' rafmagn verið tekið af svæðinu. Af þeim sökum liggja allar fram- g kvæmdir niðri, en áætlað hafði verið að ljúka byggingu búnings- aðstöðu nú á haustdögum. Mikil óvissa ríkir um rekstur félagsins af þessum sökum og finnist ekki lausn á fjárhagsvanda þess getur svo farið að ekki verði unnt að opna skautasvellið á næstunni. Jón Hjaltason, formaður Skautar- félags Akureyrar, sagði að skuld fé- lagsins við Rafveitu Akureyrar væri að mestu leyti frá síðasta vetri og væri nú leitað leiða innan bæjarfé- lagsins til lausnar á þessum vanda. Ef ekki fyndist viðunandi lausn væri ljóst að ekki tækist að opna svellið. Síðastliðið vor var hafist handa um að reisa 70 fermetra búningsað- stöðu við skautasvæðið. Samkvæmt samningi greiðir Akureyrarbær 75% af kostnaði, eða um 3,1 milljón króna. „Við höfum velt fyrir okkur hvort ekki væri réttast að bærinn tæki við þessum rekstri, það er alveg ljóst að við óbreyttar aðstæður er rekstur af þessu tagi ofviða félag- inu,“ sagði Jón. Morgunblaðið/Kristjana R. Ágústsdóttir Biskup íslands í Hjarðarholtskirkju. Frá vinstri eru sr. Jens A. Nielsen sóknarprestur í Búðardal og kona hans, Þóra Ingigerð- ur Siguijónsdóttir, biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason og kona hans, Ebba Sigurðardóttir, Helga Steinarsdóttir, eiginkona sr. Ingibergs Hannessonar prófasts, sem er lengst til hægri. Biskup vísiterar Hjarðarholtssókn Búðardal. HÁTÍÐARBLÆR var yfir Dalasýslu dagana sem biskup íslands, hr. Olafur Skúlason, vísiteraði í sýslunni. Guðsþjónustur voru í öllum kirkjum prófastsdæmisins sem eru níu að tölu og var mjög fjöl- mennt við þær allar, enda ekki á hveijum degi sem Dalamenn fá biskup í heimsókn. Það var fyrir 16 árum síðast, en þá kom hingað hr. Sigurbjörn Einarsson, þáverandi biskup yfir íslandi. í fylgd með biskupi voru kona hans, frú Ebba Sigurðardóttir, sr. Ingiberg Hannesson prófastur og sr. Jens H. Nielsen sóknar- prestur. Biskupinn heimsótti bömin í grunnskólanum, eldri borgarana í Silfurtúni og sat svo kaffiboð með kirkjugestum eftir messur. Biskupshjónin era aðlaðandi og elskuleg og leið íbúum Dala- sýslu sérstaklega vel með þeim og eiga þeir góðar endurminning- Félagsmiðstöð í Seljahverfi ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð opnar nýja félagsmiðstöð, Hólmasel, við Hólmasel 4-6, 20. september. Félagsmiðstöðin er um 550 fm að grunnfleti og skiptist húsnæðið í samkomusal, veitingasal, eldhús, setustofu, billjardkrók, hjólaverkstæði og skrifstofur. í húsnæðinu verður ennfremur starfrækt bama- og unglingabókasafn á vegum Borgarbókasafns Reykjavíkur og Tónskóla Eddu Borg. Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar verður sniðin fyrir alla aldurshópa. Tvö kvöld í viku verður opið hús fyrir 8.-10. bekk og munu ungl- ingamir sjálfír hafa mótandi áhrif á dagskrána að sögn forstöðu- mannsins, Ragnheiðar Ámadótt- ur. Eitt kvöld í viku er ætlað ald- urshópnum 16-18 ára. Á fímmtudagskvöldum verða svokölluð fjölskyldukvöld þar sem foreldrum og börnum þeirra verð- ur boðið upp á stutt tómstundan- ámskeið. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða fjölskyldunni upp á sameiginlega tómstunda- iðju. Ölduselsskóli mun í samvinnu við Hólmasel starfrækja svokallað- an heilsdagsskóla. Hér er um til- raunaverkefni að ræða þar sem foreldram barna á aldrinum 6-9 ára gefst kostur á samfelldri þjón- ustu tengdri hverfísskólanum. Lögð verður áhersla á hreyfileiki, útivist, aðstoð við heimanám, Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ragnheiður Árnadóttir, forstöðumaður Hólmasels, fyrir utan félags- miðstöðina. margs konar skapandi viðfangs- efni og tómstundatilboð. Hús- næðið mun ennfremur þjóna ýms- um félögum og samtökum innan Seljahverfís. Opnunarhátíð Hólm- asels verður 20. september frá 15.00 til 18.00. Gefst þá hverf- isbúum kostur á að líta við, skoða húsnæðið, taka þátt í skemmtidag- skrá og þiggja veitingar. Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! (§#° Hótel \=%Harpa Nýr gistivalkostur áAkureyri Auk hagstæðs gistiverðs, njóta .. gestir okkar afsláttar á veitingahús- unum Bautanum og Smiðjunni. Fastagestum, fyrirtækjum og hóp- um er veittur sérafsláttur. Hótel Harpa Góð gisting á hóflegu veröi í hjarta bæjarins. Sími 96-11400 Ath. að Hótel Harpa er ekki i símaskránni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.