Morgunblaðið - 17.09.1992, Side 39

Morgunblaðið - 17.09.1992, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1992 39 Þyrlukaupum má ekki fresta frekar Frá Jakobi Ólafssyni: Nú þegar heyrst hefur að ríkis- stjórn Islands hyggist hætta við eða fresta kaupum á björgunarþyrlu fyrir þjóðina vil ég ákaila ráðherra núverandi ríkisstjórnar til að endur- skoða hug sinn og hætta við slík áform. Það yrði þeim til mikillar vansæmdar ef þeir ætla að vera ómerkir orða sinna og gerða. Al- þingi íslendinga samþykkti sam- hjóða, núverandi ráðherrar þar á meðal sem þingmenn og ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar, þingsálýkt- unartillögu um að keypt skyldi björgunarþyrla og úthlutaði 100 milljónum í lánsfjárlögum til að ganga frá samningum um kaup á þyrlunni. Kölluð var til hver nefnd- in á fætur annarri til að velja þá þyrlutegund sem best hentaði, og með þeirri dagskipun að vinna hratt og vel því málið væri brýnt. En hvað gerist þegar allar nefndirnar hafa lokið störfum og niðurstöðurn- ar liggja fyrir. Hvar eru efndirnar? Hvar eru 100 milljónirnar? Ekki er verið að tala um að greiða þurfi þyrluna á einu ári eða einum fjárlögum. Nei, heldur 10-15 árum, miðað við lengri afborgunartímann þá er verið að tala um rúmlega 40 milljónir á ári. Með útreikningum væri hægt að sýna fram á að björg- unarþyrlan gæti fyllilega staðið undir sér á afborgunartímanum þjóðhagslega. Líkt og flugfélög sem reikna sér tekjur af 'seldum sætum í flugi, má með sama hætti reikna þyrlunni sem tekjur þegar hægt er að bjarga manni frá dauða. Sá hinn sami er þar með orðin áskrifandi að sínu sæti með greiðslum og sköttum og skyldum til þjóðfélágs- ins það sem hann á eftir lifað. Á sama hátt þegar hægt er að bjarga manni frá því að hljóta örkuml með fljótari flutningsmöguleikum spar- ast kostnaður við langa sjúkrahús- legu og kostnað við endurhæfingu slíks sjúklings. Þetta ásamt ýmsu öðru mætti færa þyrlunni til tekna. Björgunar- og sjúkraútköll eru nú vel á annað hundrað á ári. Nú þegar kreppir að í ríkisfjár- málum ættu menn að raða útgjalda- málum í rétta forgangsröð. Dóms- hús er keypt og innréttað, lista- skóli er keyptur og þarfnast innrétt- inga, Þjóðminjasafn þarf hús og innréttingar. Vissulega er þröngt um þessar stofnanir en það er líka þröngt um slasað og limlest fólk um borð í þyrlu Landhelgisgæsl- unnar TF-SIF. Þyrlulæknar kvarta oft yfir því að geta ekki sinnt sjúkl- ingum eihs vel og þeir vildu geta vegna þrengsla um borð í vélinni. Áhafnir þyrlunnar hafa með mik- illi þjálfun og aukinni reynslu fyrir löngu farið fram úr getumörkum núverandi þyrlu og þurfa æ oftar að vinna með vélina á hámarksaf- köstum og leifir þá engu ef óvænt atvik koma upp á. Oft á hveijum vetri þurfa áhafnirnar að kljást við ísingarskilyrði sem hæglega gætu reynst þessari vél ofviða og hlýtur það því að vera augljós nauðsyn að fá þyrlu sem getur flogið við slík skilyrði. Flugfélögin í landinu hættu fyrir hátt í tuttugu árum að nota flugvélar sem ekki eru búnar afísingarbúnaði, sem dæmi. Ennfremur hljóta menn að sjá að fylgja þarf þeirri þróun sem felst í sívaxandi fleiri frystitogurum við landið. Áhafnarmeðlimum fjölgar frá 10-15 upp í 20-25 og skipin sækja enn lengra á haf út. Þessi skip líkt og „Titanic“ geta sokkið. Eins ber að huga að sívaxandi straumi ferðalanga um hálendi landsins að vetri til. Þörfin á þjónustu björgunar- þyrlna er sívaxandi hér á landi, og það sama á sér stað í flestum öðrum löndum. Við höfum notið góðrar aðstoðar þyrludeildar hersins á Keflavíkur- flugvelli en athuga ber að sú deild er hér fýrst og síðast til að þjóna löndum sínum við störf hér á landi og hafa þeir því allan forgang að þeirri þjónustu. íslensk stjórnvöld ættu að varast að falla í þá freistni að ætlast til að önnur þjóð sjái um björgunar- og sjúkraflug hér á landi. Ef menn líta til Bandaríkjanna og kanna hvernig að þessu málum er staðið, þá gætu menn haldið að herinn sæi um allt björgunar- og sjúkraflug þar í landi, þar sem bandaríski her- inn hefur í dag á að skipa stærsta þyrluflota í heimi. En því er ekki til að dreifa. Bandaríska landhelgis- gæslan ásamt sívaxandi fjölda þyrlna sem reknar eru af sjúkrahús- um og líknarstofunum sjá um þessa þjónustu þar í landi. Aðeins við náttúruhamfarir og stórslys er varalið hersins kallað til. Bandarísk stjórnvöld vita að með litlum fýrirvara geta þeir þurft að kalla til hervélarnar vegna hernað- arátaka víða um heim. Nei, íslensk stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í því að byggja upp öfluga íslenska björgunarþjónstu með ekki minni reisn eða hlutfallstölum af fjárlög- um og aðrar þjóðir og jafnvel að viðbættu því hlutfalli sem aðrar þjóðir eyða til hermála. Nú þegar ráðherrar hafa tafíð kaup á nýrri og öflugri björgunar- þyrlu sem nemur smíðatíma slíkrar vélar frá verksmiðju vil ég skora á fólk og samtök hagsmunaaðila í sjávarútvegi, björgunarsveita, sjúkra- og lögreglumanna, sveitar- félaga og ferðamála að láta frá sér heyra og mótmæla kaupum á þess- um fyrirætlunum að hætta við eða fresta enn frekar kaupum á nýrri og öflugri björgunarþyrlu. Enn- fremur skora ég á þingmenn Al- þingis íslendinga að þeir sjái til þess að kaupum þessum verði þegar í stað skilað í örugga höfn eins og þessi þyrla mun skila sínum skjól- stæðingum í örugga höfn. JAKOB ÓLAFSSON Kársnesbraut 89, Kópavogi. Pennavinir Átján ára tékknesk stúlka með áhuga á tungumálum, tónlist, kvik- mynrlum og íþróttum: Michaela Kytkova, Navratilova 1544, 274 01 Slany, Czechoslovakia. Franskur 22 ára karlmaður með áhuga á ferðalögum, sögu, íslenskri náttúru o.fl.: Christophe Gauge, 2 rue de la Gendarmerie, 06200 Niee, France. Fjórtán ára japönsk stúlka með áhuga á matargerð, tónlist og íþróttum: Rie Kawakami, 650-17 Matsudani Akasaki- cho, Touhaku-gun, Totsutori-ken, 689-25 Japan. VELVAKANDI TÝND KISA Kisan mín er búin að vera týnd í einn og hálfan mánuð. Þegar hún hvarf frá Hjallaseli í Breið- holti var hún trúlega kettlinga- full og gæti verið búin að eiga kettlinga núna. Hún er hvít á bringu með svarta, gula og brúna flekki á baki og höfði. Hún var ómerkt. Hún er sérstak- lega ljúf og mannelsk, Þeir sem gætu gefið upplýs- ingar um hana eru vinsamlega beðnir að hafa samband í síma 74476 eða 78948 því hennar er sárt saknað. ÚR Úr fannst á golfvellinum í Garðabæ í sumar. Upplýsingar í síma 657373 eftir kl. 17. RÉTTLEYSI HEIMAVINN- ANDIKVENNA Helga Jónsdóttir: Mig langar til að vekja athygli á því réttleysi sem heimavinn- andi konur þurfa að búa við. Þær fá ekki einu sinni lágmarks- atvinnuleysisbætur ef þær kom- ast ekki út á vinnumarkaðinn. Það er mjög erfitt fyrir konur að komast út á vinnumarkað eftir að hafa verið heimavinn- andi í langan tíma. Kvennalist- inn hefur algerlega hunsað þennan stóra hóp kvenna og fyrst og fremst sinnt réttinda- baráttu yngri kvenna. Á þessum málum verður að taka sem fyrst því þetta er óþolandi óréttlæti. ÚLPA í sumar týndist úlpa áf 12 ára gömlum dreng. Hún gæti hafa týnst í Þrastarskógi í nágrenni Þrastarlundar eða einhvers stað- ar í Seljahverfinu í Breiðholti. Úlpan er fjólublá að lit með hettu sem á er loðkantur. Fóðr- ið er mynstrað. Þetta er ný flík og hennar er sárt saknað. Hún er merkt með nafni og símanúm- eri. Finnandi vinsamlega hringi í síma 73959 og er fundarlaun- um heitið. JAKKI Dökkblár gallajakki, fóðraður, tapaðist á Coka Cola rokktón- leikunum á laugardag. Finnandi vinsamlegast hringi í Sigríði í síma 678230 eða 654047 eftir kl. 17. GLERAUGU Brúnleit gleraugu fundust við gamla Kennaraskólann. Upplýs- ingar í síma 14669. KETTLINGUR Óskað er eftir fresskettlingi. Vinsamlegast hringið í síma 42384. GLERAUGU Gleraugu í svörtu hulstri töpuð- ust á fimmtudag annaðhvort í Grýtubakka eða Blönduhlíð. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 18665. Hugheilar þakkir sendi ég frœndfólki, vinum og öllum þeim, er á einn eða annan hátt gerðu mér 90 ára afmœlið ógleymanlegt. Guð blessi ykkur. Ingigerður Jóhannsdóttir. Nú qpu að hefjast námskeið þar sem foreldrum gefst kostur á að kynnast og tileinka sér ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum foreldra og bama. Þar verður m.a. fjallað um hvað foreldrar geta gert til að: • Aðstoða börn sín við þeirra vandamál. • Leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi. • Byggja uppjákvæð samskipti innan fjölskyldunnar. Upplýsingar og skráning í síma 621132 og 626632 Hugo Þórisson sálfrœðingur Wilhelm Norðfjörð sálfrœðingur saMskipti KÍOLFOT u n d i r 3 0* Nýkomin vönduð kjólföt á mjög hagstæðu verði ’ Létt oggott efni ’ Vandaðurfrágangur • Gott úrval afstœrðum og millistœrðum ’ Verð, með svörtu vesti, 29.500.-kr. * < HERR4ML4VKSUJN LAUGAVEGI 61 - 63 - SlMI 14519

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.