Morgunblaðið - 20.10.1992, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.10.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLABJJ) ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1092 Morgunblaðiö/Árni Sæberg Axel Kvaran lögreglumaður við framleiðslutæki bruggarans í Norðurmýri. Bruggari staðinn að verki LOGREGLUMENN gerðu húsleit í húsi í Norðurmýri skömmu fyrir miðnætti á föstudagskvöld handt- óku þar mann á fertugsaldri og lögðu hald á tunnu fulla af gambra og um 10 lítra af eimuðum landa, auk framleiðslutækja. Maður þessi hefur þrívegis áður verið handtekinn fyrir bruggstarf- semi. Hann gisti fangageymslur lög- reglunnar um nóttina en var færður til yfirheyrslu á laugardagsmorgun og játaði þá að hafa undanfarna daga selt um 30 lítra af framleiðslu sinni. Lögreglumenn sögðu að fram- leiðslutæki manns þessa væru frem- ur frumstæð og ekki líkt því eins fullkomin og hjá ýmsum öðrum sem undanfarið hafa verið staðnir að þessari iðju. ♦ ♦ ♦ Rannsóknir á Mývatni Engar niður- stöður komnar RANNSÓKN er miðar að því að svara þeirri spurningu hvort námuvinnsla í Mývatni hafi áhrif á lífríki vatnsins hefur ekki skilað niðurstöðum enn sem komið er. Rannsókninni var hleypt af stokk- unum af umhverfis- og iðnaðar- ráðuneytinu síðastliðið vor. Páll Jensson, prófessor í rekstarverk- fræði og formaður verkefnis- stjórnar, segir að verið sé að vinna að reiknilíkani og ef til vill komi einhverjar niðurstöður úr því fram í áfangaskýrslu um næstu áramót. Páll sagði að 3 ár væru ætluð til verkefnisins. Hafist var handa í apríl í vor og í maí hófust mælingar. Útfrá þeim hefur í haust verið unnið að svokölluðu reiknilíkani. „Við von- umst til að með reiknilíkaninu verði hægt að líkja eftir því hvernig vindar koma af stað straumum og setflutn- ingum og þar með hvort námagryfja hefur áhrif á setflutninga ,“ sagði Páll. Hann sagði að ef mælingamar sýndu að gryfjumar í vatninu hefðu engin áhrif á setflutningana yrði að hugsa dæmið upp á nýtt. „En ef nið- urstaðan verður sú að þær hafi veru- leg áhrif þá verður reynt að halda áfram og skoða hvernig þessi áhrif koma inn í lífríkið með flutningi næringarefna," sagði Páll. Ætlunin er að taka mið af rann- sóknunum við ákvörðun um tak- mörkun á vinnsluleyfi Kísiliðjunnar í mars á næsta ári. í því sambandi sagði Páll að á þessu stigi væri ein- faldlega ekki hægt að svara því hvort niðurstöðurnar gæfu tilefni til að rýmka takmarkanirnar eða halda óbreyttu ástandi. Þriggja manna verkefnistjórn, skipuð þeim Árna Snorrasyni, vatna- fræðingur, og Sigurði Snorrasyni, líffræðingi, auk Páls, stýrir rann- sókninni en verktakar taka að sér einstök verkefni. Meðal verktaka eru Hafrannsóknastofnun sem séð hefur um straummælingar og Veðurstofan sem séð hefur um vindmælingar o.fl. J H ws Jötunn hefur nú um nokkurt skeiö boöiö völdum hópi viöskiptavina bíla til reynsluaksturs í tólf klukkustundir samfleytt. Þessi nýjung hefur mœlst mjög vel fyrir, enda vitum viö af áralangri reynsiu, aö stuttur reynsluakstur á fáeinum mínútum nœgir ekki öllum þegar um kaup á nýjum bíl er aö rœöa. Óskir þú eftir aö komast í hóp þeirra sem Jötunn býöur 12 tíma reynsluakstur, biöjum viö þig aö fylla út svarseðilinn hér aö neöan og senda okkur, eöa hringja. M lés 0fý HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 6340S0 / 634000. II Nafn Heimilisfang Vlnnusími Heimasími Daasetning Við hríngjum íþig við fyrsta tœkifasrí. tii þess að ákveða nánar tíma áreynsiuakstrinum. VINSAMLEGAST MERKTU VIÐ ÞANN LIÐ SEM ÞU KYST HELST Ég óska eftir að eiga kost á 12 tíma reynsluakstri á nýjum bíium hjá Jötni. Ég hef sérstakan áhuga á I I Chevrolet Corsica Q Isuzu Trooper □ Opel Astra Q Vinsamlegast sendið mér nánari □ Opel Vectra upplýsingar. Q: Isuzu Crew Cab

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.