Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
53
„Atvik“ í lífi kvenna?
Otrúlegur fréttatilbúningur!
Enn og aftur
Hinnl4. október sl. birtist undarleg
frétt sem reyndist við nánari athug-
un vera fréttatilbúningur. Frétt-
askrípið var um þá hræðilegu árás
sem átti sér stað í gamla kirkjugarð-
inum við Suðurgötu 10. október sl.
Allur málatilbúnaður í þessari
„frétt“ er skólabókardæmi um alla
þá pytti sem fjölmiðlafólk hlýtur að
þurfa að læra að detta ekki í.
í máli blaðamanns Morgunblaðs-
ins, sem nýtur nafnleyndar blaðsins,
kemur hvergi fram að glæpur sá sem
framinn var er mjög alvarlegur
glæpur. Fyrir það fyrsta leyfir hann
; sér að kalla árásina „atvik" í fyrir-
I sögn sinni. Við spyijum: Myndi fyrr-
nefndur blaðamaður Morgunblaðs-
ins kalla það „atvik“ í lífi sínu, ef á
hann væri ráðist og fötin rifin utan
af honum og það þar að auki gert
í þeim tilgangi að nauðga honum?
I öðru lagi er efni greinarinnar
ekki tengt fyrirsögninni: „Atvikið í
gamla kirkjugarðinum. Kærði
gæsluvarðhaldsúrskurðinn“. Efni
„fréttarinnar“ er að mestu um að-
draganda ársárinnar sem kemur
henni ekki við og er, að sögn RLR,
ekki upplýsingar frá þeim komnar.
Lýsingin hlýtur því að vera hreinn
og klár uppspuni.
I þriðja lagi fellur hann í þá
heimskulegu gryfju, að halda að
nauðgun og öðru kynferðislegu of-
beldi fylgi alltaf einhver aðdragandi!
I fjórða lagi er undarlegt hvemig
' lögreglan á vettvangi er sögð „grípa
inn í málið“. Rétt eins og ársásin
er „atvik" í „fréttinni“, þá „grípur"
• lögreglan inn í málið eins og um lít-
ilsháttar ósamkomulag hafi verið að
ræða, en ekki neyðarástand, sem
áheyrnarvitni lét ekki kjurt liggja.
I fimmta og síðasta lagi fellur
blaðamaður í þann fúla pytt að tí-
unda ölvun sem er dónaskapur við
fórnarlambið, sýnir vanþekkingu á
eðli nauðgunar og vanskilning á lfð-
an kvenna, sem orðið hafa fyrir
kynferðislegu ofbeldi af hálfu þess-
ara glæpamanna. Það er aldrei rétt
að beita annað fólk ofbeldi, ekki
heldur þótt það sé ölvað. Jón sem
fer á krá lítur ekki á sig sem sjálf-
sagt fórnarlamb ofbeldis þótt hann
fái sér bjór. Jón kærir mann sem
I ræðst á hann vegna þess eins að
hann gaf sig á tal við hann og þyk-
lr sjálfsagt mál. Eru nauðgunarmál
I ekki litin jöfnum augum? Hvað um
þá staðreynd, sem margoft hefur
| komið fram í fjölmiðlum, að konur
sem verða fyrir ofbeldi kæra síður
' hafi þær fengið sér bjór. Hvað um
Þá almennt vituðu staðreynd að
g'æpamaður, sem nauðgar, nauðgar
yfirleitt oftar en einu sinni en er
sjaldnast kærður af þessum sökum.
Og það sem einnig hindrar framgang
réttvísinnar í nauðgunarmálum er
sú niðurlæging, sem konur þurfa að
þola í lýsingum fréttamanna á at-
ferli þeirra fyrir glæpinn sem fram-
inn er á þeim, rétt eins og þær geti
sjálfum sér um kennt. Og eins og
fyrirsögn þessarar „fréttar" ber með
sér (endurtekin aðalfyrirsögn: Kærði
gæsluvarðhaldsúrskurðinn) er ekki
laust við að örli á samúð með glæpa-
manninum, sem er forkastanlegt!
Kvenfjandsamleg viðhorf sem þessi
í siðmenntuðu (?) þjóðfélagi ættu
fyrir löngu að vera útdauð ogtröllum
gefin. Nauðgun er nauðgun sama
hvemig hana ber að og hvert sem
samband nauðgara og fómarlambs
er.
Mikilvægi fjölmiðla í málum sem
þessum er að skýra satt og rétt frá
og gæta fyllsta hlutleysis og kalla
hlutina réttum nöfnum. Glæpur kall-
ast ekki atvik og aidur og fyrri störf
skipta ekki máli sé á mann ráðist.
Annað er dónaskapur og lítilsvirð-
ing.
Við megum ekki gleypa ómeltar
allar þær fréttir sem að okkur er
rétt og misvel tilreiddar. Ekki síst í
þeim málum þar sem við vitum að
fordómar eru ávallt á næsta leiti og
þarf að uppræta. Hvernig villt þú
sem hugsanlegt fórnarlamb ofbeldis
birtast í blöðum?
Margrét Ögn Rafnsdóttir,
Gígja Svavarsdóttir.
Bréf til
blaðsins
Morgunblaðið hvetur les-
endur til að skrifa bréf til
blaðsins um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til. Meðal
efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og skoðanaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa að vera vélrituð, og nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng að
fyigja.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina því til lesenda blaðs-
ins utan höfuðborgarsvæðis-
ins, að þeir láti sinn hlut ekki
eftir liggja hér í dálkunum.
Velvakandi
Velvakandi svarar eftir sem
áður í síma frá mánudegi til
föstudags.
Pennavinir
Átján ára þýsk stúlka með áhuga
á íþróttum og tónlist:
Ilona Semeniuk,
Radolfzellerstrasse 46,
W-8000 Mtinchen 60,
Germany.
LEIÐRÉTTINGAR
Rangt nafn í
minningargrein
f minningargreinum um Eyjólf
Jónsson misritaðist á tveimur stöð-
um nafn móður hans. í grein Mar-
grétar var hún nefnd Kristín og í
grein frá starfsfólki Trygginga-
stofnunar ríkisins Ingibjörg. Hið
rétta er að hún hét Katrín Eyjólfs-
dóttir. Er beðist velvirðingar á mis-
tökunum.
Röng tala
í frétt um könnun á viðhorfum
íslendinga til Evrópska efnahags-
svæðisins á laugardag var missagt
að 83,4% karla hefðu kynnt sér EES
frekar illa, mjög illa og ekkert.
Rétt tala er 75,9%.
Nafn féll niður
í umsögn um Söngvaspé í
Glæsibæ í blaðinu s.l. laugardag
féll niður nafn blaðamannsins sem
skrifaði umsögnina. Nafn hans er
Anna G. Ólafsdóttir.
Umtegundir: Dísarrunnur, (lilac).
Maíklukka, (muguct).
•J; Rós, (rose). Jámurt. (verbena).
\ Goðalilja, (hyazinth).
Freysiilja, (freesia).
Laugavegi M Simi 62 64 80
\/// 7jóttu
r y/NÁLÆGÐAR
pRi y MEISTARANNA
^ A HOLTINU
SÝNISHORN AF MATSEÐLI
FORHÉTTIR
Graflax með hunangs-sitinepssósu 876,-
Tindaskata með plómum í sítrónusósu Ristaður smokkfiskur í engifer 830>- f
með rauðaldinmauki og vermút 795,- *
p-í Humarsúpa AÐALRÉTTIR 695,- |
l Gufusoðinn búri með rauðlauk i
L og rósmarínsósu 1595,- |
l Steikt rauðsprettuflök með
sveppum og hvítu smjöri 1395,-
L Grísamedalíur með chili-sósu
| íl og rauðlauk í vínediki 1759,- j
Gljáð önd í engifer og rauðvíni Nautalund með furusveppum 2775,- ■
og kartöfluköku Julienne 2386,-
■ Villigæsabringur með púrtvínssósu EFTIRRÉTTIR 2775,-
i Eldsteiktar pönnukökur með
ferskum ávöxtum og rjómaís 745,-
Kökuvagn 495,- |
■ Ath.: Hérfyrir ofan eru aðeins sýnishom af glæsilegum
matseðli okkar. Verið ævinlega velkomin.
Glæsileg þríréttuð máltíð
frá 2250 kr. tii 2950 kr
TI37 SIMI: 91-
uotjœs ouCuOiS