Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
21)1'
Meira af sparnaði
sjúkrahúsanna
eftir Guðlaugu
Björnsdóttur, Hrönn
Ottósdóttur og
Kristján Sigurðsson
Undanfamar vikur hefur hver
greinin á fætur annarri birst í Morg-
unblaðinu þar sem fjallað er um 450
m.kr. spamað í rekstri Borgarspítal-
ans á fyrstu átta mánuðum ársins.
Þar hefur komið fram að spamaður-
inn er fyrst og fremst rakinn til þess
að fyrr á árinu tók Borgarspítalinn
yfir bráðavaktir Landakotsspítala
gegn 200 m.kr. fjárveitingu. Kostn-
aðurinn við að veita þessa sömu þjón-
ustu áfram á Landakoti var áætlaður
530 m.kr. á ári sem augljóslega er
of hátt mat. Svo dæmi sé tekið má
reka öldrunarlækningadeildir Land-
spítalans í Hátúni í tvö og hálft ár
fýrir 530 m.kr. eða framkvæma 640
hjartaaðgerðir.
Umræðan um flutning bráðavakta
frá Landakoti stóð sem hæst í byijun
ársins. Þá skiptust bráðavaktir þann-
ig:
Fjöldi bráðadaga/-vakta
Landspítali 139
Landakotsspítali 86
Borgarspítali 139
Samtals 365
Að meðaltali innritast 45 sjúkling-
ar á hveija bráðavakt. Um það bil
helmingur þeirra er lagður inn á
sjúkrahúsið en hinir eru sendir heim
samdægurs eftir viðeigandi meðferð.
Þegar fiutningur á bráðavöktum
stóð fyrir dyrum gerði starfsfólk Rík-
isspítala áætlun um hvað það kost-
aði Landspítalann að taka yfir þessar
86 vaktir. Niðurstaðan varð sú að
vaktakostnaður myndi í öllum tilfell-
um hækka um 67 m.kr. en legukostn-
aður í hæsta lagi um 200 m.kr. á
ári og eru þá bráðavaktir fyrir böm
meðtaldar.
Gera verður skýran greinarmun á
því hvort bráðasjúklingar em hrein
viðbót við starfsemi sjúkrahússins
eða ekki. Sjúkrahúsið tekur við
ákveðnum fjölda sjúklinga af biðlista
á hveiju ári. Ef sjúklingar af biðlista
þurfa að víkja fyrir bráðasjúklingum
reiknast enginn viðbótarlegukostn-
aður. Ef hins vegar þessir bráðasjúkl-
ingar em hrein viðbót við sjúklinga-
íjölda sjúkrahússins verður að reikna
legukostnað að fullu. Af ofangreindu
má ljóst vera að kostnaður við þess-
ar 86 bráðavaktir getur verið á bilinu
67 til 267 m.kr. eftir því við hvað
er miðað í útreikningnum.
í Morgunblaðinu sl. föstudag kom
fram í grein Árna Sigfússonar, for-
manns stjómar sjúkrastofnana
Reykjavíkur, að áætlaður kostnaður
Borgarspítalans við að taka yfir
bráðavaktir Landakots væri um 230
m.kr. Borgarspítalinn fékk hins veg-
ar 200 m.kr. til að sinna þessari þjón-
ustu. Sýni útreikningar þegar árið
er liðið að Borgarspítalanum hafi
tekist að sinna þessari þjónustu fýrir
200 m.kr. hefur hann sannanlega
sparað 30 m.kr. Það er því með öllu
óraunhæft að Borgarspítalinn geti í
spamaðarútreikningum sínum miðað
við þessa 530 m.kr. áætlun. Komi
það í ljós, sem enn er ósannað, að
þessar vaktir hafi verið dýrari á
Landakoti en á Borgarspítala verður
að telja þann spamað sem myndast
við flutninginn heilbrigðisráðherra til
tekna.
I fyrrnefndri grein býður formaður
stjómar sjúkrastofnana Reykjavíkur
fram aðstoð sína við hagræðingar-
verkefni sem hann telur vera fram-
undan á Ríkisspítölum. Við undirrit-
uð teljum okkur lítið geta af honum
lært ef hann ætlar að halda áfram
að byggja útreikninga sína á hag-
fræði bílstjórans sem ók yfir á rauðu
ljósi og taldi sér til tekna 7.000 krón-
ur því lögreglan náði ekki til hans.
Höfundar eru viðskiptafræðingar
á Rikisspítölum.
Konur og EES
eftir Valgerði
Bjarnadóttur
Útúrsnúningar andstæðinga
samningsins um Evrópskt efnahags-
svæði gefa almenningi rangar hug-
myndir um afleiðingar hans. Eitt
dæmi um þetta er sú fullyrðing að
fyrirtækjaskattur muni lækka vegna
samningsins. í kjölfarið muni sam-
eiginlegir sjóðir minnka og velferð-
arkerfið dragast saman. Konur hafa
sérstaklega áhyggjur af þessu því
enn er það svo að hlutir eins og bar-
nagæsla og samfelldur skóladagur
eru taldir koma konum meira við en
körlum. Samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið fjallar hins vegar
ekkert um skattlagningu fyrirtækja
né aðra skattlagningu á íslandi.
Framvegis sem hingað til verða allar
ákvarðanir í þeim efnum á hendi
Alþingis.
Einnig er fullyrt að EES sé ekki
gott fyrir konur, af því að konur eru
í láglaunastörfum og þeim mun ekki
ijölga til jafns við störf sem krefjast
sérfræðiþekkingar. Konur í láglauna-
störfum og EES eru ails óskyld
mál. Ójöfn staða kvenna og karla á
sér allt aðrar rætur og kemur EES
ekkert við.
Atvinnulíf er undirstaðan
Öflugt atvinnulíf er undirstaða
atvinnu, lífskjara og velferðarkerf-
isins á íslandi. Kostnaður við velferð-
arkerfið er greiddur úr sameiginleg-
um sjóðum þjóðarinnar, sjóðum sem
fólk og fyrirtæki greiða til með skött-
um sínum. Ef atvinnulífíð er ekki
öflugt missir fólk vinnuna. Lífskjörin
versna og velferðarkerfið hrynur
vegna þess að enginn greiðir til þess.
Islensk fyrirtæki eru í samkeppni
við erlend fyrirtæki. Flugleiðir keppa
við SAS um farþega milli annarra
Norðurlanda og Islands. Sápugerðin
Valgerður Bjarnadóttir
„Konur í láglaunastörf-
um og EES eru alls
óskyld mál. Ójöfn staða
kvenna og karla á sér
allt aðrar rætur og
kemur EES ekkert við.“
Frigg keppir við Dixan og Lakkns-
gerðin við Bassets um lakkrísfíkla
þjóðarinnar.
Ef skattar á íslensku fyrirtækin
eru hætti en gerist hjá keppinautum
þeirra þá er samkeppnisstaða þeirra
verri sem því nemur. Ef skattur á
íslensku fyrirtækin eru á hinn bóginn
lægri en hjá keppinautunum er hún
betri sem því nemur. Það er því eðli-
legasti hlutur í heimi að fyrirtæki
krefjist, lægri skatta. Vel má
rökstyðja að lægri skattar fyrirtækja
leiði til aukinnar velferðar, bæði fyr-
ir konur og karla.
Höfundur er viðskiptafræðingur
og starfar i Briissel.
N O K I A M I C H E L I N
155 R 13 3.798,- 155 R 13 5.286,-
175/70 R 13 ' 4.374,- 175/70R13 6.612,-
175/65 R 14 4.680,- 175/65R 14 7.349,-
185/70R 14 4.980,- 185/70R 14 7.813,-
185/65R15 5.760,- 185/65R 15 8.021,-
* Skv. upplýsingum frá Dekkjahúsinu.
Vcrð miðasl við ónegld dekk en þau eru neglanlcg.
BRIIWB0RG
FAXAIiNi 8 • SÍMI91 - 68 58 70
Nokia dekkin eru framleidd í Finnlandi þar sem veturinn er
jafnvel harðari en á Islandi. Þar hafa þau reynst frábærlega
og verið þekkt fyrir einstakt veggrip í snjó og hálku.
Gerið verðsamanburð
INIOKIA
FRAMLEIDD í FINNLANDI
Frábært vetrarmynstur.
Gerið verð- og gæðasamanburð.