Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSiaPn/fllVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992 Verdbréf Samnorrænn verðbréfa- markaður á næsta ári Stefnt er að því að koma á sam- eiginlegnm verðbréfamarkaði á Norðurlöndum á næsta ári, sem myndi þá starfa samhliða mörk- uðunum í hveiju landi. Var þetta samþykkt á fundi yfirmanna kauphallarmarkaðanna norrænu fyrir skömmu en Danir segjast ákveðnir í að gangast sjálfir fyr- ir stofnun samnorræns verð- bréfamarkaðar verði ekki af þessari fyrirætlan. Nefnd, sem vinnur að því að skipuleggja starfsemi markaðarins, á að skila af sér í janúar en Danir leggja áherslu á, að markaðsstofn- unin dragist ekki úr hömlu og segja, að verði ekki brugðist við hart muni einkafyrirtækin taka frum- kvæðið í sínar hendur. Þess vegna ætlar kauphöllin í Kaupmannahöfn að hrinda áætluninni í framkvæmd upp á eigin spýtur fari samstarfið út um þúfur. Danir standa vel að vígi með COSI-kerfið, upplýsingakerfi, sem gerir verðbréfasölum kleift að bjóða í eða kaupa bréf, hvort sem er á norræna eða alþjóðlega markaðin- um. Eins og nú háttar eru tiltölu- lega lítil verðbréfaviðskipti milli Norðurlandanna en það á breytast með sameiginlega markaðinum. Ef allt gengur eftir á samnorræni verð- bréfamarkaðurinn að taka til starfa seint á næsta ári. Gengi Búast við 5-10% gengis- fellingu krónunnnar Í fréttabréfi breska ráðgjafar- fyrirtækisins Corportate Treas- ury Consultants segir að ís- Morgunblaðið/Ámi Helgason FERJA — BreiðaQarðarfeijan Baldur fór 420 ferðir á sl. ári. Sam- tals voru fluttir um 7.300 bílar og um 25 þúsund farþegar. Ferjurekstur Tap á rekstri Baldurs hf. Stykkishólmi. AÐALFUNDUR feijunnar Baldurs hf. var haldinn í sl. mánuði í Stykkishólmi. Var þetta aðalfundur ársins 1991 sem er fyrsta heila árið eftir að feijan hóf siglingar um Breiðafjörð. Mættir voru hluthaf- ar fyrirtækisins og af hálfu ríkisins Ólafur Steinar Valdemarsson, ráðuneytissljóri í samgönguráðuneytinu. Lagðir voru fram reikningar yfir rekstur ársins sem sýndu yfir 8 milljóna króna halla í rekstrinum. Ferðir voru um 420 yfír árið. Sam- tals voru fluttir um 7.300 bílar og um 25 þúsund farþegar. Var talsvert rætt um rekstur fé- ÖRYGGIS OG GÆSLUKERFI FRÁ ELBEX lagsins og einkum um hvemig hægt væri að gera hann ódýrari án þess að minnka þjónustuna en reksturinn er sífellt í endurskoðun, segir fram- kvæmdastjóri. Stjóm félagsins skipa Bjami Hákonarson, Haga, Bæring Guð- myndsson, Stykkishólmi, og Stefán Skarphéðinsson, Patreksfirði. Full- trúar ríkisins vom tilnefndir Haf- steinn Guðmundsson og Ingvi Har- aldsson. Endurskoðendur em Vig- fús Gunnarsson löggiltur end- urskoðandi og Davíð Sveinsson. Framkvæmdastjóri er Guðmundur Lámsson. - Ámi LOFTVERKFÆRI SPARIÐ TÍMA FÉ OG FYRIRHÖFN og skapið öruggari vinnu og rekstur með ELBEX sjónvarpskerfi. Svart hvítt eða í lit, úti og inni kerfi. Engin lausn er of flókin fyrir ELBEX. Kynnið ykkur möguleikana. Einar Farestveit & co hf. Borgartúni 28, sfmi 91-622900 ARVfK ARMÚtl < - REYKJAVlK - SlMI SS7222 -TELEFAX U729S lenska ríkisstjórnin vilji halda í stöðugleika krónunnar og lága verðbólgu á næstu 6 mánuðum. Hins vegar sé hagkerfið veik- burða og kvótaniðurskurður og minnkandi samkeppnishæfi á vissum mörkuðum muni hafa áhrif á útflutninginn. I tímarit- inu er talið að þessir þættir muni vera líklegir til að leiða 5-10% gengisfellingar snemma árs 1993. Fréttabréfið, Currency and Int- erest Rate Outlook, kemur út á nokkurra vikna fresti og farið er yfir þróun og spár um helstu gjalmiðla heims. í sérstökum kafla um íslensku krónuna segir að vextir ættu að lækka eitthvað frekar á næstu mánuðum en eftir það sé líklegt að þeir haldist stöð- ugir eða hækki eitthvað aðeins. Gert er ráð fyrir að verðbólgan verði áfram lág, væntanlega á bil- inu 2-3% á næstu 6 mánuðum. Verðbólgan gæti jafnvel lækkað eitthvað á næstunni, jafnvel í 2,5% áður en hún hækkar aftur. TOLVUBOKAKLUBBUR —Fyrsta bók mánaðarins er Word tölvunám, sem kemur út á morgun föstudag. Á myndinni eru aðstandendur tölvuklúbbsins, Matthías Magnússon og Sigurbjörg Ár- sælsdóttir. Tölvur Bókaútgáfan Aldamót stofnar tölvubókaklúbb Bókaútgáfan Aldamót hefur stofnað bókaklúbb, sem mun bera heitið Tölvubókaklúbbur- inn. Meðlimur klúbbsins munu fá tölvubækur bókaútgáfunnar á sérstöku verði, sem mun vera u.þ.b. 20% lægra en í verslunum að sögn Matthíasar Magnússon- ar hjá Aldamótum. Að sögn Matthíasar er ein af ástæðunum fýrir stofnun klúbbs- ins sú að töluvert hefur verið um að fólk sem einu sinni hefur keypt tölvubók frá útgáfunni kaupi seinna fleiri. „Auk þessa hefur grundvöllur fyrir klúbbi skapast með sívaxandi fjölda tölvubóka frá útgáfunni. Meðlimir klúbbsins geta valið úr 8 tölvubókum áður Greiðslumiðlun Kreditkort umboðsaðili Europay International í byijun september sameinuðust fyrirtækin Eurocard Internat- ional S.A. og Eurocheqe Inter- national S.C. í nýju fyrirtæki, Europay International S.A. Kreditkort hf. er umboðsaðili nýja fyrirtækisins hér á landi. í frétt frá Kreditkortum kemur fram að Europay International mun veita evrópskum bönkum al- hliða greiðslumiðlun frá einum stað til annars t.d. varðandi tékka- ábyrgð, hraðbanka, debetkort og rafræn greiðslukerfi auk kredit- kortaþjónustu. Stefnt er að því að auðvelda alþjóðlega greiðslumiðl- un með notkun viðurkenndra staðla og vinnubragða og korthöf- um verður boðinn aðgangur að stærsta hraðbankaneti Evrópu og fjölda viðtökustaða. Þá mun fyrir- tækið veita bönkum og viðskipta- vinum þeirra fjölþætta tækniþjón- ustu og tryggja með því öryggi og trúnað varðandi einstakar greiðslufærslur. ★ Pitney Bowes Frímerkjavelar og stlmpllvélar Vélar til póstpökkunar o. fl. OTTO B. ARNAR HF. Skipholli 33 • 105 Reykjavík Simar 624631 / 624699 Tölvubúnaður EJS í sam- vinnu við CAD-kerfið EJS og fyrirtækið CAD- kerfið hafa tekið upp sam- starf um kynningu og kennslu á tölvubúnaði fyrir arkitekta, byggingarverk- fræðinga og rafmagnsverk- fræðinga. í fréttatilkynningu segir að CAD-kerfið hafi söluumboð fyrir SPIRIT sem sé mest selda arkitektakerfi í Þýska- landi og hönnunarkerfið ELCAD sem sé sérstaklega ætlað fyrir hönnun á sviði raf- magns- og stýritækni. Olafur Mýrdal hjá CAD kerfinu mun standa fyrir kynningum og námskeiðum á báðum þessum kerfum í húsa- kynnum EJS. en þetta ár er liðið og þar af 6 um forrit í Windows búningi.“ Tölvubókaklúbburinn mun vera starfræktur þannig að í boði verð- ur bók mánaðarins en hún verður aðeins send til þeirra sem panta. Til þess að ganga í klúbbinn þarf viðkomandi að kaupa eina bók og tryggir það honum aðild í eitt ár. Hver greidd pöntum framlengir aðildina um ár í viðbót. Bílar Nýstárleg nmrkaðssctn- ing Volvo VOLVO 850 var kynntur í fyrsta skipti á _ íslandi fyrr í þessum mánuði. í frétt frá Brimborg seg- ir að við hönnun og þróun á Volvo 850 hafi Volvo samsteypan gífurlega lagt mikið undir og verkefni sé stærsta iðnþróunar- verkefni frá upphafi í Svíþjóð. Til þess hafi verið varið 170 millj- örðum króna. Við kynningu á Volvo 850 GLE var tekin upp sú ákvörðun að nýta aðferðir beinnar markaðsfærslu í meira mæli en áður. Brimborg lagði t.d. mikla vinnu í að kanna ná- kvæmlega stærð væntanlegs mark- hóps og hann flokkaður upp eftir þvi hversu erfitt var talið að ná til- hvers hóps fyrir sig. Síðan var og verður kynningarefni dreift á hvern hóp fyrir sig og áhersla lögð á að aðlaga það hveijum hóp eftir sér- kennum hans. I fréttinni segir jafnframt að ár- angurinn hafí ekki látið á sér standa og rúmlega 20 bílar hafi verið seld- IJ.JIII.l.l Upplýsingar um lífeyris- sjóði úr Vís- bendingu Á forsíðu viðskiptablaðsins í sl. viku voru upplýsingar um rekstur lífeyr- issjóða árið 1991. Þess var ekki getið að upplýsingarnar voru fengn- ar úr Vísbendingu, vikuriti um við- skipti og efnahagsmál, sem Kaup- þing gefur út. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.