Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
7
Kjaramálaályktun bandalagsráðstefnu BSRB
Allra leiða verði leitað
til að halda uppi atvinnu
Bandalagsráðstefna Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hvetur
stjórnvöld til að leita allra leiða til að halda uppi fullri atvinnu i kjara-
málaályktun, en bandalagsráðstefnur eru haldnar að minnsta kosti
einu sinni á ári þau ár sem bandalagsþing eru ekki. Atvinnuleysi hér
á landi fari hraðvaxandi og sjaldan eða aldrei hafi það verið jafnmik-
ið frá stríðslokum og nú, segir einnig í ályktuninni.
Ennfremur segir m.a.: BSRB lítur ríkisstjórnarinnar er innflutt og á
svo á að það sé sameiginlegt verk-
efni þjóðarinnar allrar að sporna
gegn atvinnuleysi. Ef atvinnuleysi
verður hér viðvarandi þurfa samtök
launafólks fyrir sitt leyti að stuðla
að því að vinna verði skipulögð á
hveijum vinnustað með það að mark-
miði að sem flestir haldi vinnu, jafn-
vel að dregið verði úr eftirvinnu ef
það gæti orðið til að fleiri héldu vinn-
unni.
Ein undirrót atvinnuleysis er vax-
andi misskipting í þjóðfélaginu og
verður atvinnuleysi ekki bægt frá
nema á henni verið tekið. BSRB
hvetur ríkisstjórnina til beita sér fyr-
ir vaxtalækkun, setja á hátekjuskatt,
skattleggja fjármagnstekjur og að
stórherða skattaeftirlit með það fyrir
augum að afla tekna til kjarajöfnun-
ar. Það er í þessa átt sem ber að
breikka skattstofninn en ekki með
auknum álögum á almennt launafólk.
Bandalagsráðstefna BSRB hvetur
landsmenn til að kaupa íslenska vöru
og stuðla þannig að því að atvinnu
verði haldið hér uppi.
Bandalagsráðstefna BSRB hvetur
stjórnvöld til að standa vörð um ís-
lenska menningu og falla frá áform-
um um aukna skattlagningu á ís-
lenskar bækur. Mikilvægt er að
bókaútgáfa og útgáfustarfsemi dafni
í landinu.
Á verkefnalista ríkisstjórnarinnar
ber hæst baráttuna við dýrt og þung-
bært velferðarkerfi. Þetta vandamál
ekki stoð í íslenskum veruleika. Það
er ekkert annað en blekkingarstarf-
semi að halda því fram að við höldum
uppi álíka dýru velferðarkerfi og
t.a.m. Svíar og búum við viðlíka
skattheimtu og kaupmátt. Banda-
lagsráðstefna BSRB hvetur stjóm-
völd til að láta af baráttunni við vind-
myllur en snúa sér þess í stað að
því að efla velferðarkerfið.
Full atvinna verður því aðeins
tryggð að hér takist að örva atvinnu-
líf og gera það skilvirkara. Forsenda
Frá Bandalagsráðstefnu BSRB í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
fyrir skilvirku þjóðfélagi er öflugt
velferðarkerfi sem gerir fólki kleift
að stunda sína vinnu heilt og óskipt
og veitir atvinnulífinu þá þjónustu
sem það þarf á að halda.
Bandalagsráðstefna BSRB áréttar
þá kröfu samtakanna að hér fari
fram þjóðaratkvæðagreiðsla um að-
ild íslands að EES.
Ögmundur Jónasson formaður BSRB í framsögu um efnahagsmál
Fj ár magnskostnaður einn alvar-
legasti orsakavaldur misréttis
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, sagði á bandalagsráðstefnu í gær í framsögu um efnahagsmál
að það færi ekki á milli mála að íslendingar ættu við erfiðleika að
elja sem þjóð, sem meðal annars lýsti sér í vaxandi skuldasöfnun,
aflasamdrætti og vaxandi atvinnuleysi. Þessi vandi sem valdi vaxandi
ójafnvægi og misskiptingu verði hins vegar ekki leystur nema með
því að breyta innra samhengi í samfélaginu.
Hann sagði að það yrði gert með
því að efla velferðarkerfið í stað
þess að veikja það og að kaupmáttur
lágs kauptaxta verði aukinn en ekki
skertur hvort sem væri með kaup-
lækkun eða skattahækkun. Það
verði gert með því að ná inn í sam-
neysluna fjármunum sem nú sé skot-
ið undan og það verði gert með því
að skattleggja þá sem séu aflögu-
færir, hvort sem það séu hátekju-
menn eða fjármagnseigendur og
þeir fjármunir notaðir til kjarajöfn-
unar og atvinnusköpunar. Þá verði
það gert með því að færa niður fjár-
magnskostnað sem sé sennilega einn
alvarlegasti orsakavaldur þess mis-
réttis sem nú sé í landinu.
Þá kemur fram í máli Ögmundar
að skattalækkanir séu engin lausn
til frambúðar fyrir atvinnulífið nema
hægt sé að ná jafnframt fram sparn-
aði. Á undanfömum misserum hafi
stjórnmálamenn verið með ótrúlegar
blekkingar varðandi niðurskurð. Þeir
hafi sagst vera að spara þegar þeir
hafi í raun verið að færa til útgjöld,
frá samneyslunni og yfir á einstakl-
ingana. Skattalækkanir á fyrirtæki
muni að öllum líkindum einnig leiða
af sér tilfærslu á kostnaði yfir á
heimilin sem kalli á nauðsyn á hærri
á launum sem muni koma niður á
atvinnurekstrinum. Það megi ekki
rugla saman spamaði og tilfærslu á
útgjöldum.
I lokin sagði Ögmundur: „Stað-
reyndin er sú að ef við ætlum að
vinna okkur út úr vandanum þurfum
við að komast út úr niðurskurðarfar-
inu. Við þurfum að draga úr tekju-
skiptingunni og bæta kaupmátt hins
almenna launataxta. Við þurfum að
gera samfélagið skilvirkara með því
að stórefla velferðarkerfið og samfé-
lagsþjónustuna. Við þurfum að kom-
ast upp úr hjólfömm stöðnunar og
það gemm við með því að stuðla að
jöfnuði í landinu."
Síðan segir að ef svo fari að sam-
dráttur verði viðvarandi þá sé ekki
um annað að ræða en þjóðin dragi
úr neyslu og rýri lífskjörin, en for-
senda fyrir því sé að menn búi við
svipuð skilyrði. Allar þær lausnir
sem ekki séu til jöfnunar séu því
engar lausnir. „Atvinnuleysi kemur
allri þjóðinni við. Atvinnuleysi er á
ábyrgð okkar allra. En það er líka
á ábyrgð samtaka launafólks að
ekki verði búnar til lausnir á forsend-
um þeirra sem eru ofan á í atvinnu-
lífi og þjóðfélaginu öllu. Slíkar lausn-
ir getum við ekki samþykkt. Við
getum ekki samþykkt lausnir sem
fela í sér ívilnanir fyrir hina burðugu
en íþyngja þeim sem síst skyldi."
IMOPDMEIMDE IMORDMEIMDE IMOPDMEIMDE IMORDMEIMDE IMORDMEIMDE
THOMSON TECHNOLOCY THOMSON TECHNOLOCY THOMSON TECHNOLOCY THOMSON TECHNOLOCY THOMSON TECHNOLOCY
i fcií 'íliiíiíii
Spectra CV 72 NICAM
er 29" siónvarpstæki mebcjlampalausum Black Super Planar-
mynalampa, abgerbastyrinqum á skjá, 40 stöbva minni,
Super VHS-möguleika, 2 x 20 W magnara, Wide Base-hljómi,
NICAM Stereo Spatial-hlióöi, sjálfvirkum tímarofa,
barnalæsingu, Scart-tengi, S-VHS-innstunqu, tengi fyrir tvo
aukahátalara, textavarpi og mörgu fleira á áoeins J2éÍ900j- kr.
Tilbobsverb aoeins 114.210,- kr. e&a
109.900, - stgr.
Spectra SL 63 BT NICAIVI
er 25’ sjónvarpstæki með glampalausum Black Super Planar-
mynalampa, abgerbastyringum á skjá, 40 stöðva minni,
Super VHS-myndgæðum, 2 x 40 W magnara, 5 hátölurum,
Extra Bass System-hljómi, Surround- umhverfishljómkerfi,
NICAM Stereo Spatial-hljóði, sjálfvirkum tímarofa,
barnalæsingu, tveimur Scart-tengjum, S-VHS-
innstungu, textavarpi og mörgu fleira á aðeinsJU2200j- kr.
Tilboðsverð aðeins 118.980,- kr. eða
1 rl .800,-stgr
Futura 72 BSP NICAM
er 29" sjónvarpstæki með glampalausum Black Super Planar-
myndlampa, aðgerðastyringum á skjá, 40 stöðva minni,
Super VHS-myndgæðum, 2 x 40 W magnara, 4 hátölurum,
NICAM Stereo -hljomgæðum, Surround-umhverfishljómkerfi,
sjálfvirkum tímarofa, barnalæsingu, tveimur Scart-tengjum
textavarpi og mörgu fleira a aðeins448Æ0ó,- kr.
Tifboðsverð aðeins 133.920,- kr. eða
"1 25.800,- stgr.
Futura
er 25" siói
NICAIVI
uper’
Surround-umhverfishljómkerfi, sjálfvirkum Omárofa,
bamalæsingu, tveimur Scart-tengjum textavarpi
og mörgu fleira á aðeins4-3W0öj- kr.
nlboðsverð a&eins 121.860,- kr. eða
"1 t — stgr.
Prestige 72 AT NICAIVI
er 29' sjónvarpstæki með glampalausum Black Super Planar-
ndlampa, a&gerðastyringum á skjá, 40 stöðva minni,
mynd _ | |
Super VHS-myndqæðum’, 2 x'40 W m’agnara, 5 hátölurum,
fimm banda tónjarnara, Extra Bass System-hljómi, Surround-
umhverfishljómkerfi, NICAM Stereo Spatial-hljóði, sjálfvirkum
tímarofa, barnalæsingu, tveimur Scart-tengjurr^ S-VHS-
innstungu og mörgu fleira á a&eins 24&40O,- kr.
Tilboðsverð aðeins 216.360,- kr. eða
199.900, tg
Vestur-þýsk hágæbavara í áratugi !
Frálwr greRwtukför vtb allra hrefi
SKIPHOLT119
SÍMI29800