Morgunblaðið - 20.10.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
19
myndir hans bera sterkan svip af
bókmenntum, þær eru yfirleitt
þrungnar frásögnum og jafnvel ein-
föld andlitsmynd kemur hugarflug-
inu á hreyfingu. A stundum kveður
svo rammt að þessu að sumar þær
myndir, sem ekki fela í sér neinar
beinar efnislegar opinberanir né
athafnir á kynórasviðinu, virka ást-
þrungnari og höfða meira til skoð-
andans. í öllu falli eru þær óræðari
um leið og eitthvað í þeim ýtir við
lífrænum kenndum manns. •
Ég held að Flóki hafi um sumt
dregið sig inn í skel sína síðustu
árin sem hann lifði og einhvem
veginn gustaði ekki eins af honum
og áður. Þannig kom þetta mér
fyrir sjónir en getur þó verið rangt,
því svo kunnugur lífi hans var ég
ekki, að ég geti fullyrt neitt hér
uin. Leiðir okkar Flóka lágu saman
í Kaupmannahöfn vorið 1984 og
hitti ég hann nokkrum sinnum.
Hann var þá að vinna að ákveðnu
verkefni og vildi gjarnan að ég liti
á teikningarnar. Varð að samkomu-
lagi að ég heimsækti hann í íbúð
sem hann leigði af vini okkar Sig-
urði Oddgeirssyni, er þá bjó í Kulu-
suk.
Við lágum svo yfir þessum teikn-
ingum allt kvöldið jafnframt því
sem við dreyptum á hvítvíni.
Eitthvað var gestgjafinn ekki
ekki fullkomlega ánægður, þótt ég
léti góð orð falla um ýmislegt í
teikningunum og talaði þá eins og
fagmaður við fagmann.
Sjálfur var hann auðsjáanlega
ekki meira sáttur en svo við árang-
urinn, að er líða tók á kvöldið fór
hann að gráta og byrgði höfuðið í
höndum sér og var óhuggandi.
Ég sá þann kost vænstan að
halda á braut, en bar mun meiri
virðingu fyrir Flóka alla tíð eftir
það. Hugsaði margt í strætisvagn-
inum á leiðinni heim og minntist
m.a. þess sem sellósnillingurinn
Pablo Casals hafði að orðtæki: „Þeir
sem geta ekki grátið, geta ekki
heldur skapað mikla list.“
Hugur mannsins, sem fæðir af
sér andríki og skapandi kenndir er
skilja eftir sig líf og gróandi, telst
ekki í þéttu formi sem stál og stein-
steypa, ei heldur harka og óbil-
girni, frekarólgandi kvika — tilfinn-
ingahiti og hamslaus ást til þess
sem lifir og hrærist.
Tuttugii
ára afmæli
Háskóla-
kórsins
Á þessu hausti eru liðin 20 ár
frá stofnun Háskólakórsins.
Hinn 24. október verður haldið
upp á þessi tímamót með því að
gamlir og nýir kórfélagar
syngja saman við útskrift kandí-
data í Háskólabíói. Þá munu all-
ir stjórnendur kórsins frá upp-
hafi stjórna einu lagi.
Frá stofnun kórsins hafa verið
sex stjórnendur: Rut Magnússon
1972-80; Hjálmar H. Ragnarsson
1980-83; Árni Harðarson 1983-89;
Guðmundur Óli Gunnarsson
1989-90; Ferenc Utassy 1990-92.
I haust tók svo nýr stjórnandi
við, Gyða Halldórsdóttir. Að kvöldi
24. október verður afmælishóf í
Ártúni sem hefst með borðhaldi
og skemmtiatriðum kl. 20.00. Á
eftir verður stiginn dans fram eft-
ir nóttu. Enn er möguleiki að fá
miða á afmælisfagnaðinn. Upplýs-
ingar gefa Þóroddur í síma 42068,
Kristjana í síma 27225 og Bára í
síma 624194.
V^terkurog
kJr hagkvæmur
auglýsingamiðill!
píi»ti0iiniMahib
Nýtt kvikmyndafélag
Hreyfimyndafélagið er nýr kvikmyndaklúbbur sem stúdentar við
Háskóla íslands hafa haft forgöngu um að stofna í samvinnu við
Háskólabíó. Markmið klúbbsins er að standa fyrir reglulegum
sýningum á gömlum meistaraverkum kvikmyndasögunnar og nýrri
kvikmyndum sem vakið hafa athygli á kvikmyndahátíðum erlendis.
Auk háskólanema standa að
klúbbnum framhalds- og sérskóla-
nemar svo og kvikmyndagerðar-
menn. í stjóm klúbbsins sitja
Bjarni Ármannsson, Einar Logi
Vignisson, Guðbrandur Örn Arar-
son, Friðbert Pálsson, Friðrik Þór
Friðriksson og Skúli Helgason.
Fyrsta myndin sem Hreyfi-
myndafélagið sýndi var kínverska
myndin Ju Dou eftir leikstjórann
Zhang Yimou sem var tilnefnd til
Óskarsverðlauna í fyrra. Rauði
lampinn eftir Yimou var tilnefnd
til Óskarsins í ár og þreytti kappi
við Börn náttúrunnar. Nýjasta
mynd Zhang Yimou fékk gullverð-
laun á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum fyrir nokkrum vikum.
Önnur mynd Hreyfímyndafé-
lagsins verður THE WALL, tón-
listarmynd Pink Floyd. Hún verður
sýnd 21. október kl. 21.00 og 26.
október kl. 17.00.
Um næstu mánaðarmót stendur
til að halda kvikmyndahátíð þar
sem megináhersla verður lögð á
óháða ameríska kvikmyndagerð
og gerð ódýrra mynda af sambæri-
legri stærðargráðu og íslenskar
kvikmyndir. Friðrik Þór Friðriks-
son og Jim Stark hafa haft veg
og vanda af skipulagningu hátíð-
arinnar. Von er á fjölda góðra
gesta. Má þar nefna kvikmynda-
leikstjórana Gregg Araki og Claire
Denis auk Jim Stark. Einnig er
von á að Jim Jarmusch og Aki
Kaurismaki láti sjá sig.
Hvítlaukur
Áhrifaríkur og heilsubætandi
gæðahvítlaukur.
Lyktar, og
bragðlaus.
Frysti
þurrkaður.
Allicin auðugur.
Með
germaníum.
Fólk kaupir
llja Rogoff
aftur og aftur vegna gæðanna.
BÍÚ-SELEN UMB.SÍMI 76610
ÖBYGGI ■ GOTT VERÐ
REKS TRARÖRYGGI
Sá sveigjanlegasti, Laserjet IIID. Prentar báðum megin á blöðin.
Tveir bakkargefa kost á mismunancli pappír og möguleiki er á sér
umslagamatara. (8 blaðsíður á mínútu, 300 punkta upplausn,
upplausnaraukning, tveir bakkar, tengjanlegur við net,
möguleikar á PostScript) Kr. 275.338,-
Sá nettasti, Laserjet IIIP. Tilvalinn á skrifborðið. Hentar vel þar
sem gerðar eru kröfur um hámarksgæði við útprentun. Möguleiki
er á tveimur bökkum. (4 blaðsíður á mínútu, 300 punkta upplausn,
bakki, tengjanlegur við net og möguleiki
upplausnaraukning, einn
á PostScript) Kr. 121.064.
Sá afkastamesti, Laserjet IIISi. Vandaður, öflugur og hraðvirkur
prentarí með ótrúlega stækkunarmöguleika. Tilvalinn til
tengingar á netkerfum. (16 blaðsíður á mínútu, 300 punkta
upplausn, upplausnaraukning, tveir bakkar, tengjanlegur
við net og möguleiki á PostScrípt, minni stækkanlegt upp í 17 Mb)
Kr. 417.424,-
Sá hagkvæmasti, Deskjet 500. Bleksprautuprentarí sem fer nú
sigurför um hciminn. Tæknin sem notuð ergefur upplausn á við
vönduðustu geislaprentara. (240 stafir á sekúndu, 300 punkta
upplausn, HP PCL3 samhæfður) Kr. 44.450.-
Sá litríkasti, Deskjet 500C. Bleksprautuprentarí með mikil gæði
í litaprentun. Ómissandi fyrír þá sem prenta á glærur. (240 stafir
á sekúndu, 3 mínútur blaðsíðan í litaham, 300 punkta upplausn,
HP PCL3 samhæfður) Kr. 82.786,-
Sá stærsti í lit, Paintjet 300XL. A3 bleksprautuprentari með
hámarksgæði í útprentun hvort sem er í lit eða svart/hvítu.
Prentarínn er mjög stækkanlegur og tilvalinn til tengingar á netkerfi.
(1,5 mínútur blaðsíðan ílit, 300 punkta upplausn, möguleiki
á netkortum, minni stækkanlegt upp 118 Mb, 4 blekhylki með
frumlitunum, HP PCL5 samhæfður) Kr. 266.984,-
HP Scanjet IIp myndlesari. Gráskala myndlesari með 256 skugga
afbrigðum, allt að 1200 punkta upplausn, 10 sekúndur að lesa
A4 blaðsíðu. Kr. 99.083.-
HP Scanjet IIc myndlesari. Litamyndlesari með 16,7 milljón
litaafbrígðum, allt að 800 punkta upplausn, 15 sekúndur að lesa
A4 blaðsíðu. Kr. 169.915,-
ÖRTÖLVUTÆKNI
ilTæknival
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 69 16 15 ■ KRINGLUNNI SÍMI 69 15 20
Skeifunni 17 • Sími: 68 72 20 • Fax: 68 72 60
SKEIFAN 17- T? (91) 681665, FAX: (91) 680664
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
PRENTARAR FRA HEWLETT-PACKARD
■ GOTT VERD ■ TÆKNINÝJUNGAR ■ REKSTRARÖRYGGI ■ GOTT VERD ■ TÆKNINÝJUNGAR ■ REKSTRARÖRYGGI ■ GOTT VERÐ'