Morgunblaðið - 20.10.1992, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
38
BÍLALEIGA
Úrval 4x4 fólksbfla og statlon bfla.
Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bflar
með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og
12 sæta Van bilar. Farsimar, kerrur f.
búslóðir og farangur og hestakerrur.
Reykjavík 686915
interRent
Europcar
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Fáðu gott tilboð!
Isboltar >
Festingamelstarar®
Ef þú kaupir
HITACHI SLÍPIROKK
frá okkur færð þú
5 stk. SLÍPISKÍFUR og
10 stk. SKURÐARSKÍFUR
með.
ÞÚ SPARAR ALLT AÐ
3.500 KR.
8 mismunandi tegundir til á lager
frá 115 - 230 mm skífustærð.
TILBOÐIÐ GILDIR TIL 31.10.92
Isboltaiyg
STRANDGATA 75 fAB^íTTÍ
HAFNARFJÖRÐUR mm¥***
91-652965
ábyrgð fyrir gaaöum
Ný gerð bamabílstóla
* Fyrlr böm frá fæðingu
til 5 ára aldurs.
* Þægilegar 5 punkta fest-
ingar með axlapúðum.
* Stillanlegur.
* Stólnum má snúa með
bakið fram (->9kg.) eða
aftur (9-18kg.).
* Má hafa frístandandi.
* Vasi á hlið, fyrir leikföng
eða annað.
* Auðvelt að taka áklæðið
af og þvo það.
* Vlðurkenndur.
* Verðkr. 10.998,-
Borgartúnl 26
Síml: (91) 62 22 62
Mynds.:(91) 62 22 03
Tryggvi Emils-
son níræður
Tryggvi Emilsson verkamaður er
níræður í dag. Hann á að baki harða
lífsbaráttu og viðburðaríka ævi og
kórónaði hana með því að verða
hálfáttræður einn af ástsælustu rit-
höfundum þjóðar sinnar. „Höfundur-
inn er í eðli sínu skáld, hugsar, finn-
ur til, skynjar og talar sem slíkur.
Og hann er ríkur af orðum og hug-
tökum, hefur vaid á máli, kann stíl,“
skrifaði Kristján frá Djúpalæk í rit-
dómi 1976. Sama ár var Tryggvi
ásamt Thor Vilhjálmssyni tilnefndur
til bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs og árið eftir hlaut hann
sérstaka heiðursviðurkenningu
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar
fyrir ritstörf sín. Frumsamdar bækur
Tryggva eru nú orðnar tíu talsins
og í tilefni dagsins mun vera von á
einni bók, úrvali af ljóðum hans.
Tryggvi Emilsson er sprottinn upp
á íslenskum miðöldum eins og glöggt
sést af lestri æviminninga hans.
Hann fæðist inn í þjóðfélag sem er
enn ósnortið í innviðum sínum af
tæknibyltingunni, að öðru leyti en
því að uppflosnað fólk og jarðnæðis-
laust er farið að leita sér atvinnu
við sjávarsíðuna. Hann kynnist af
biturri raun hlutskipti sveitarómag-
ans, elst upp í hugmyndaheimi hins
gamla bændaþjóðfélags, sér sem
bam Þorgeirsbola fyrir gestakomu,
dreymir fyrir daglátum og á ungl-
ingsárunum bjargar undurfögur
huldukona honum úr lífsháska.
Stálpaður flyst hann með föður sín-
um inn á heiðar og heyr þar sitt
stríð við óblíð náttúruöfl. Tryggvi
lifði síðan þá gerbyltingu þjóðfélags-
ins sem í hönd fór, fólksflutninga
snauðs bænda- og vinnufólks í þétt-
býlið, sem myndaði þar nýja öreiga-
stétt. og fyrstu átök nýmyndaðra
verkalýðsfélaga til að reyna að
tryggja þessu réttlausu fólki mann-
sæmandi kjör. Öll þessi þjóðarsaga
er fólgin í þeirri lífssögu hans sjálfs
sem grípur lesandann svo sterkum
tökum. Og eins og þetta væri ekki
nóg veraldarsaga í lífi eins manns
tekur hann sig upp í stríðslok og
flyst til Reykjavíkur, nemur þár land
og byggir sér hús með eigin höndum
í þriðja og fjórða sinn. Þar er hann
orðinn hluti af nýjum þjóðflutning-
um, þeim þúsundum sem flykktust
til höfuðborgarinnar í uppgripum
stríðsins í von um betra lífsviður-
væri og hreiðruðu um sig í kjöllur-
um, kofum og bröggum eða byggðu
sér hús í óleyfi í útjaðri bæjarins,
eða borgarinnar eins og farið var
að nefna hana. Allan þennan tíma
vann Tryggvi hörðum höndum. Hús-
in yfir fjölskyldu sína reisti hann í
hjáverkum, og það sama er að segja
um öll þau ólaunuðu trúnaðarstörf
sem á hann hlóðust í verkalýðshreyf-
ingunni.
Það var mikið lán fyrir íslenskar
bókmenntir þegar Tryggvi neyddist
til þess fyrir 20 árum að hætta erfið-
isvinnu vegna heilsubrests. Heldur
en að sitja auðum höndum fór hann
að færa í letur æviminningar sínar
sem komu út í þremur bindum, Fá-
tækt fólk 1976, Baráttan um brauð-
ið 1977 og Fyrir sunnan 1979. Síðan
hefur komið út hver bókin á fætur
annarri, skáldsögur og smásögur,
barnasögur. Og löng ættartölubók,
Sjómenn og sauðabændur þar sem
þeir sem hafa lítinn áhuga á ætt-
fræði geta hlaupið yfir ættartölurnar
og lesið í staðinn söguþætti þar sem
Tryggvi setur sig í spor forfeðra
sinna á fyrri öldum og lýsir lífsbar-
áttu þeirra af engu minni list en
sinni eigin.
í Fátæku fólki kemur Tryggvi
fram sem fullmótaður rithöfundur,
rétt eins og hann hafi ekki fengist
við annað allt sitt líf. Miðað við lífs-
aðstæður hans er þetta ævintýri lík-
ast. En þó að vinnustundir hans
myrkranna á milli hafi verið upp-
teknar af öðru hefur hann alla ævi
verið haldinn óslökkvandi fróðleiks-
þorsta og skriftaástríðu sem hann
reyndi að svala eftir því sem fátæk-
leg föng gáfust til. Skrifaði dagbæk-
ur og fróðleiksþætti í stopulum frí-
stundum, drakk í sig allar bækur
sem hann komst í tæri við, lærði
kynstur af vísum og ljóðum sem
hann heyrði, og orti sjálfur um allt
sem fyrir hann bar og í hugann kom.
Sá atburður sem er sárastur og
gengur eins og rauður þráður gegn-
um æviminningar Tryggva er móð-
urmissirinn, og þegar frá honum er
sagt í Fátæku fólki er hann settur
í beint samband við þjóðfélagslegt
misrétti og harðýðgi gagnvart þeim
sem fátækir eru og minna mega sín:
„Sporin hennar til prestsins, sem hún
bar oftraust til, og síðan til fátækra-
fulltrúans haustið 1906 voru henni
þung spor, hún beið þeirra aldrei
bætur, erfiðleikarnir það haust og
þann vetur drógu hana til dauða,
samhjálpin og réttlætið komu aldrei
ofanfrá.“ Baráttunni gegn þessu
misrétti átti Tryggvi síðan eftir að
helga öll sín manndómsár. En þess-
ari bitru lífsreynslu slær ekki inn.
Tryggvi ber ekki kala til nokkurs
manns. Við þeirri óskiljanlegu hörku
og grimmd sem hann er beittur sem
barn bregst þessi efnishyggjumaður
með sáttfýsi og mildum mannskiln-
ingi, eiginleikum sem hinir trúuðu
Stríð og söngur
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Fyrir strákana („For the Bo-
ys“). Sýnd í Sagabíói. Leik-
stjóri: Mark Rydell. Aðalhlut-
verk: Bette Midler, James Caan,
George Segal, Patrick O’Neal,
Christopher Rydell, Arye Gross,
Bud Yorkin.
í seinni heimstyijöldinni komu
mörg bandarísk frægðarmenni
hingað til íslands og héldu her-
mannaskemmtanir og flugu svo
áfram til Evrópu og víðar að
skemmta nærri vígstöðvunum. í
myndinni Fyrir strákana eftir Mark
Rydell leika Bette Midler og James
Caan ágætlega tvo skemmtikrafta
sem ferðast um í seinni heimstyrj-
öldinni og létta hermönnunum lífið
og halda þvf áfram í Kóreustríðinu
og loks Víetnamstríðinu. Þetta er
gamaldags klútamynd þar sem
stundum er smurt jafnþykkt á til-
finningasemina og farðanum á
andlit aðalleikarana, sem eldast um
rúma hálfa öld í myndinni, en hún
er ekki án sinna góðu stunda og
það er erfin að streitast á móti
aðdráttara' • nnar nema fyrir
kaldhæðnus'■> áhorfendur.
Myndin er sögð í endurliti
(,,flash-back“) þar sem Midler,
komin á níræðisaldur með hjálp
afar mikils andlitsfarða, rekur sögu
sína í skemmtibransanum og sam-
skipti sín við félaga sinn, Caan.
Um leið og hún segir sögu
skemmtikraftanna segir hún stríðs-
sögu Bandaríkjanna á seinni hluta
aldarinnar eins og hún birtist í
þremur ólíkum styijöldum. í byijun
er Midler, lítt þekkt söngkona í
New York uppúr 1940, kölluð til
London að skemmta hermönnum
með stórstjörnunni James Caan,
sjálfselskum, metnaðarfullum og
ekki síður kynþokkafullum
skemmtikrafti. Midler er gjörólík
honum, heiðarleg fyrir það fyrsta,
og saman slá þau í gegn svo um
munar og við fáum að skynja allan
tímann að þau eru með frægustu
og vinsælustu skemmtikröftum
samtímans. Þau halda svo til Kóreu
að skemmta þar hermönnunum og
loks til Víetnam þar sem leiðir
þeirra skilja.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó og Bíóhöllin:
Lygakvendið - „HouseSitter“
Leikstjóri Frank Oz. Aðalleik-
endur Steve Martin, Goldie
Hawn, Dana Delaney, Julie
Harris, Donald Moffat, Peter
McNichol, Richard B. Shull,
Laurel Cronin. Bandarísk. Uni-
versal 1992.
Þeir bregðast ekki frekar en
fyrri daginn gamanleikararnir
góðu, Steve Martin og Goldie
Hawn þó oftast hafí þau haft úr
betri texta að moða. Martin leikur
rólyndan arkitekt sem sængar
eina nótt með gengilbeinunni
Stríð og söngur hafa löngum
þótt gott yrkisefni kvikmynda þar
sem stutt er á milli harmsins og
gleðinnar og Mark Rydell („The
Rose“, „On Golden Pond“) þræðir
ágætlega þar á milli með persónu-
legri sögu þeirra Bette og Caans
og skemmtunum þeirra og loks
stríðsátökunum. Hann leggur
mikla áherslu á þjóðerniskennd en
um leið er myndin hans gagnrýnin
á styijaldastefnuna vestra og sýnir
í og með þróun bandarísks þjóðfé-
lags í gegnum síðustu áratugi. Hún
tekur m.a. á kommúnistaveiðum
sjötta áratugarins og fyrstu dögum
sjónvarpsins og hún lýsir því hvern-
ig stríðin breytast úr samheldninni
í seinni heimstyijöldinni þar sem
Hawn og "afleiðingarnar eru
óvæntar. Stúlkan er ekki öll þar
sem hún er séð heldur óforbetran-
legur lygalaupur sem með svikum,
prettum og skröksögum kemur
sér fyrir í nýja húsinu hans Mart-
ins. Það stendur í friðsælu sveita-
þorpi rétt utan borgarmarkanna
og hefur staðið autt síðan æsku-
ástin hryggbraut hann.
Ef efnisþráðurinn er tekinn í
nærskoðun leynir það sér ekki
eitt augnablik að hann hangir á
bláþræði og sveiflast að auki á
milli farsa og drama. Farsadeildin
er í fínu standi. Þau Hawn og
Martin eru bæði úrvalsgamanleik-
arar sem halda vel á gruggugum
hlutverkunum. Og handritshöf-
undarnir sýna talsvert skopskyn
óvinurinn var þekktur og hataður
til öllu óskýrari lína í Kóreu og
loks fáránleika Víetnamstríðsins
þar sem dúndrandi fjör gömlu
stríðsáranna er orðið að táknræn-
um söng um frið.
Fyrir strákana er kannski full
klökk á stundum en það er stór-
myndarbragur yfír henni og Rydell
býr oft til góða stemmningu á her-
mannaskemmtununum og nær að
skapa rómantískan minningartón
sem virkar vel. Midler er í essinu
sínu sem söngkonan og Caan líka
en aukaleikarar eins og George
Segal fylla upp í söguna. Þetta er
mynd sem höfðar frekar til eldri
áhorfendanna og þeir ættu að gefa
henni gaum.
því bestu hlutar myndarinnar eru
tvímælalaust stórlygar aðalper-
sónanna er þau reyna að koma
sem verstum höggum hvort á
annað - undir beltisstað. Þá eru
aukaleikararnir áberandi vel vald-
ir og standa sig vel í stykkinu.
Einkum Moffat og Harris, þessir
kunnu sviðsleikarar þétta mynd-
ina í hlutverkum foreldra Martins.
Richard B. Shull, sá fáséði, ágæti
skapgerðarleikari kemst vel frá
rónanum sínum líkt og McNichol
frá enn einu píslarhlutverkinu.
Þörfín fyrir að taka sig alvar-
lega er nokkuð áberandi í banda-
rískum gamanmyndum. Oftar en
ekki fær grínið ekki að ráða ferð-
inni heldur er reynt að betrum-
bæta myndimar með oftast aló-
þörfum og óviðeigandi jákvæðum
boðskap og siðferðisprédikunum
sem svo sannarlega skemma
meira fyrir en hitt. Þetta er ljóður
á Lygakvendinu sem á þó sína
góðu spretti og dýrðlega leikara
sem gera það að verkum að mynd-
in skilur við mann í góðu skapi.
Og er þá ekki tilgangnum náð?
Fjandinn log’-
inn ráðalaus
Permanent-tilboö
Vikuna 19.-23. október
bjóðum við
20% afslátt
af permanenti.
HÁRGREIÐSLUSTOFA,
ÁRMÚLA 17A - Sl'MI 32790
820 FERMETRAR
Til sölu er nýtt, vandað iðnaðarhúsnæði.
Húsnæðið er nú tilbúið til afhendingar.
Áhvílandi eru hagstæð langtímalán til
15 ára, afborgunarlaus í 2 ár.
Söluverð 26,9 millj. Útborgun 4,9 millj.
Nánari upplýsingar í síma 812300.