Morgunblaðið - 20.10.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992 47
FORSETAFRAMBOÐ
Bill Clinton í
stjörnufans
Vinsældir bandaríska forseta-
frambjóðandans Bills Clint-
ons virðast fara sífellt vaxandi.
Nýlega voru hann og kona hans
heiðursgestir á góðgerðarsam-
komu sem um 1.200 manns sóttu.
Gestirnir voru ekki af verri endan-
um, komu kunnuglega fyrir sjónir
enda voru þar á meðal margar af
eftirsóttustu stjörnunum í kvik-
myndaborginni Hollywood.
Samkvæmið var óvenjuvel sótt
og virtist stjörnunum mikið í mun
að spjalla við manninn sem marg-
ir telja að verði næsti forseti
Bandaríkjanna. Og Clinton var
ekki síður hrifinn, lýsti því yfir að
í veislunni hefði verið saman kom-
ið hæfileikaríkt og skapandi fólk
sem léti sig málefni lands og þjóð-
ar einhveiju varðar.
Demókratar hafa löngum átt
öfluga stuðningsmenn meðal leik-
ara og má þar nefna Warren Be
atty og Barbra Streisand. Af öðr
Um þeim sem komu og lýstu stuðn
ingi við Clinton voru Chevy Chase,
Rosanne og Tom Arnold, Candice
Bergen, Dustin Hoffmann,
Whoppi Goldberg, Tammy Wy-
nette, Shirley MacLaine og Goldie
Hawn.
Það var Clinton sérstök ánægja
að heilsa upp á Candice Bergen,
en repúblikaninn Dan Quayle,
varaforseti, réðst fyrr á árinu
harkalega að sjónvarpsþáttum
sem hún leikur í, Murphy Brown.
Spaugarinn
Chevy
Chase sagði
nokkur vel
valin orð við
forseta-
frambjóð-
andann.
Clinton með nokkrum kunnug-
legum stuðningsmönnum sínum.
F.v.: Rhea Perlman úr Staupa-
steini, eiginmaður hennar,
Danny DeVito, Annette Bening,
Jack Nicholson, Bill Clinton,
Warren Beatty, Michelle Pfeiffer
og David Geffen, tónlistaijöfur.
SPARIÐ - SETJIÐ SAMAN SJÁLF
B
jöminn býður upp á gott og
Qölbreytt úrval efniviðar til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápum.
Fagmenn okkar smða efnið
eftir þínum þörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálf(ur) og sparar þannig
peninga.
Komdu með þína hugmynd til
okkar - fagmenn aðstoða þig
við að útfæra hana.
c
BJORNINN
BORGARTÚNI28 S. 6215 66
ófoftafíÁá&S’
REN&MILD
Fljótandi sápa
MJÚK SEM KREM
FYRIR ÞURRA HÚÐ
Ren & mild
er umhverfisvæn,
unnin úr náttúmlegum jurtaolíum, sem mýkja húðina
og viðhlada réttu rakastigi hennar (pH-gildi 7).
Ren & mild
reynist allri tjölskyldunni vel sem
freyðandi baðsápa eða hreinleg handsápa
sem stendur stöðug við vaskinn.
FÆST í ÖLLUM BETRI BÚÐUM
rnnsom sæhetvöi
sam creme
Karl K. Karlsson hf. - Sími: 62 32 32