Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Félagsmálaráðherra á aðalfundi SSS
Aðstoð sveitarfé-
laga við fyrirtæki
3,8 millj. á 5 árum
Grindavík.
FIMMTÁNDI aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum hófst
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í gærdag. Aðalmál fundarins verða at-
vinnumál og hvemig er hægt að bregðast við vaxandi atvinnuleysi á
svæðinu. Jóhann Sigurðardóttir félgsmálaráðherra ávarpaði fundinn
og ræddi m.a. um þá sérstöku erfiðleika í atvinnumálum sem við er
að glíma á Suðurnesjum og skilning stjómvalda og vilja til að veita
aðstoð í þeim málum.
Hún fjallaði m.a. um fjármál og
sameiningu sveitarfélaga og at-
vinnu- og efnahagsmál. Þar kom
fram að fjárhagsaðstoð sveitarfé-
laga við atvinnufyrirtæki nemur
tæpum 3,8 milljörðum króna á und-
anfömum fimm árum og var aðstoð-
in mest á Norðurlandi eystra, Vest-
urlandi og Vestfjörðum en hlutfalls-
lega minnst á Reykjavíkursvæðinu.
Hún sagðist sjá tvennar blikur í lofti
í fjármálum sveitarfélaga. í fyrsta
lagi þungar fjárhagsbyrðar vegna
atvinnumála og í öðru lagi tekju-
stofnamál.
I skýrslu stjómar sem Borgar
Jónsson, formaður SSS, flutti kom
fram að atvinnumál vom fyrirferðar-
mest í starfí stjómarinnar og sagði
Borgar að oft hefði verið talað fyrir
daufum eynim til stjómvalda um
atvinnumál á Suðumesjum. „Ef
þessir atburðir síðustu daga verða
ekki til þess að opna augu ráða-
manna þjóðarinnar og koma í gang
einhverjum aðgerðum til bjargar, þá
emm við Suðurnesjamenn í miklum
vanda,“ sagði Borgar. FÓ
Tæplega 3.000 tonn af
Baske, sænskt leiguskip Eimskipafélagsins, var í
gær í Sundahöfn þar sem verið var að ljúka útskip-
un á miklu magni af brotajámi. Starfsmenn Hrin-
grásar hafa að undanfömu safnað brotajámi saman
Morgunblaðið/Rax
brotajárni flutt úr landi
á Akureyri og í Reykjavík til útflutnings með skip-
inu. Baske hélt síðan úr höfn í gærkvöldi með tæp-
lega 3.000 tonn til Hollands, þar sem brotajámið
verður brætt.
Atvinnuleysistryggingasjóður
Bændur greiða iðgjald
en eiga ekki rétt á bótum
STÉTTARSAMBAND bænda hefur beðið landbúnaðarráðherra að
beita sér fyrir því að réttur bænda til atvinnuleysisbóta verði skil-
greindur. Bændur greiða iðgjald af launum sinum í Atvinnuleysistrygg-
ingasjóð en atvinnulausir bændur eiga ekki rétt á bótum úr sjóðnum.
Aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra segir að réttindi og skyldur
verði að fara saman og annað hvort verði að afnema greiðsluskyldu
Friðrik og
Helgi tefla
til úrslita
FRIÐRIK Ólafsson og Helgi
Ólafsson tefla til úrslita á At-
skákmóti Búnaðarbankans í dag.
Helgi vann Jóhann Hjartarson
IV2—V2 í gærkvöldi og Friðrik vann
Margeir Pétursson 2‘h — l'h. Á
morgun, sunnudag, teflir atskák-
meistari Reykjavíkur gegn Hollend-
ingnum Jan Timman.
Bílakaupalánin
Hæsta lántöku-
gjald hjá trygg-
ingafélagi -
ekki eignaleigu-
fyrirtækjum
í fyrirsögn við frétt Morgunblaðs-
ins í gær um lántökukostnað af bíla-
lánum var gefið til kynna að dæmi
væm um allt að 13% lántökukostnað-
hjá eignaleigufyrirtækjum vegna
bílakaupa. Þetta dæmi í fréttinni
átti ekki við um þau tvö eignaleigu-
fyrirtæki sem þar vom nefnd, Glitni
og Féfang. Auk eignaleigufyrirtækj-
anna veita Sjóvá-Almennar bílalán
og raunar á fyrmefnt dæmi við um
a.m.k. eitt slíkt lán frá því í vor,
skv. upplýsingum sem Morgunblaðið
hefur undir höndum. Þetta leiðréttist
hér með.
bænda eða veita þeim rétt tíl bota.
Bændur eins og aðrir sjálfstætt
starfandi atvinnurekendur hafa
greitt iðgjald af launum sínum í
Atvinnuleysistryggingasjóð frá því
tryggingagjald var tekið upp í árs-
byrjun 1991. Hákon Sigurgrímsson
framkvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í umræðum um fmmvarpið
um tryggingagjald á Alþingi haft
komið fram sá skilningur í máli þing-
manna úr öllum flokkum að eftir
setningu laganna yrði að skilgreina
rétt þeirra sem með lögunum eru
skyldaðir til greiðslu í sjóðinn. í
mars skipaði Guðmundur Bjamason
þáverandi tryggingaráðherra, en at-
vinnuleysisbætumar heyra undir það
ráðuneyti, nefnd til að endurskoða
lög um atvinnuleysistryggingar. í
nefndinni var fulltrúi bænda en
nefndin var lögð niður af núverandi
heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
Hákon bendir á að við gerð núgild-
andi búvömsamnings um mjólk-
urframleiðslu hafi fjármálaráðherra
og landbúnaðarráðherra undirritað
bókun þar sem fram kemur að þeir
em sammála um að skilgreina beri
rétt bænda til atvinnuleysisbóta og
launatryggingar vegna gjaldþrota í
samræmi við álagt tryggingagjald.
Hákon sagði að nú hefði Sighvatur
Björgvinsson heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra skipað nýja nefnd til
að fara yfír þessi mál án þess að
Stéttarsambandinu hefði gefíst kost-
ur á" að skipa fultrúa. Þvi hafí Stétt-
arsambandið snúið sér til landbún-
aðarráðherra og beðið hann að beita
sér fyrir lausn á málinu.
Hákon sagði að töluvert væri um
atvinnuleysi hjá bændafólki. Það
sæist meðal annars á því hvað mik-
ið af slíku fólki hringdi til Stéttar-
sambandsins að leita ráða. Hins veg-
ar er fólkið hvergi skráð atvinnu-
laust vegna þess að réttur þess til
atvinnuleysisbóta hefur ekki verið
skilgreindur og ekki til upplýsingar
um hvað marga einstaklinga er að
ræða.
Stéttarsambandið hefur lagt fram
ákveðnar hugmyndir um skilgrein-
ingu á rétti bænda tii atvinnuleysis-
bóta. Lagt er til að rétt á bótum
eigi þeir sem hætt hafa búrekstri
eða orðið að draga verulega saman
starfsemi sína vegna óviðráðanlegra
utanaðkomandi orsaka sem kippt
hafa gmndvellinum undan rekstrin-
um og hefur á einhveiju tilteknu
tímabili ekki tekist að ráða sig í
aðra vinnu. Sama gildi um þá sem
selt hafa allt greiðslumark sitt en
ekki fengið aðra vinnu og einnig þá
sem selt hafa hluta fullvirðisréttar
síns og/eða orðið fyrir tiltekinni nið-
urfærslu fullvirðisréttar sem setur
þá niður fyrir ákveðna lágmarks
bústærð.
Sigurgeir Þorgeirsson aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið að þessi
mál heyrðu undir heilbrigðis- og
tiyggingaráðherra en Halldór Blön-
dal landbúnaðarráðherra hafí þó
verið að athuga þau vegna óska frá
bændum. „Ég tel að réttindi og
skyldur hljóti að verða að fylgjast
að og annað hvort verði að veita
bændum rétt til atvinnuleysisbóta
eða afnema skyldu þeirra til að
greiða iðgjöldin," sagði Sigurgeir.
Landsfundur Kvennalistans
EES-umræða að hluta
fyrir luktum dyrum
Laugarvatni.
AÐ loknum framsöguerindum Kristínar Ástgeirsdóttur og Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur á landsfundi Kvennalistans á Laugarvatni
í gærkvöldi tóku fimm fulltrúar til máls um málið. Þegar mælenda-
skrá var tæmd var fundinum lokað tímabundið fyrir fréttamönnum
til þess að fá fram meiri og óþvingaðri tjáningu fulltrúa um málið
eins og það var orðað af fundarsljóra.
Stjórnmálamenn ráða ekki
markaðsvöxtum_______________
Róttækar aðgerðir í sænskum
efnahagsmálum 20
Vitinn gerður úr listaverki
Vinna við Hörgareyrargarð í Vest-
mannaeyjum á lokastigi 23
. GEQNUM
LJOSIÐ
íslendingar i ham_____________
Sigruðu í 5 af 8 greinum í alþjóð-
legu skeiðmeistaramóti íAusturríki
36
Leiðari_______________________
Skuldir við hættumörk 28
Lesbók
► íslenzki dansflokkurinn á
forsíðu - Konur innan við
búðarborðið - Hvað kom fyrir
millikynslóðina í skáldsagna-
gerð - Á slóðum hnúfubaksins.
iKntig
Menning/Listir
► Gegnum ljósið - Ég mála
landslag - Ómur af æðri mynd
- Skosk listahátíð - Menn-
ing/Listir í næstu viku
Meginmál landsfundarins er að
ræða áður yfirlýsta stefnu Kvenna-
listans um EES eins og Jóna Val-
gerður Kristjánsdóttir komst að
orði í umræðunni. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir upplýsti á fundinum að
hún og fleiri hefðu reynt að fá því
framgengt fyrir síðustu kosningar
að stefna listans gagnvart EES
yrði opnari en reyndin hefði verið.
Hún sagði að henni og fleiri konum
væri of þröngur stakkur skorinn í
yfírlýsingum Kvennalistans. „Það
eru margir gallar á samningnum,
en þeir vega ekki eins þungt og
að standa utan við samrunaþróun-
ina í Evrópu,“ sagði hún meðal
annars. Hún lagði áherslu á að
meðan EB lifði hefði það mikil
áhrif á íslandi og ef það dæi hefði
það áhrif líka. Hún sagði kvenna-
listakonur vera í alvarlegum málum
ef þær litu á bandalög eins og EB
og EES sömu augum og hernaðar-
bandalög. Hún sagði samninginn
hvorki færa íslendingum gull og
græna skóga, né að hér færi allt
á versta veg ef hann yrði ekki sam-
þykktur.
Kristín Ástgeirsdóttir sagði
samninginn um EES vera andstæð-
an hugmyndafræði Kvennalistans
um sjálfbæra þróun, sem þyrfti að
eiga sér stað í hinum vestræna
heimi. Hún sagði gallana á samn-
ingnum það mikla að ekki væri
unnt að samykkja hann. Hún var-
aði við reglugerðarvaldinu og mið-
stýringunni, sem væri andstæð allri
lýðræðisþróun. Kristín sagði meðal
annars að fijáls viðskipti eins og
stefnt væri að með GATT-samn-
ingnum væru æskilegri en EES-
samningurinn. Hún sagði rök sín
gegn EES vega svo þungt að
kvennalistakonur sem vildu vera
afl til að breyta í átt til jafnaðar
gætu ekki samþykkt að ganga inn
í svo miðstýrt og karlríkt samfélag.
-Sig.Jóns.