Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 35
seer whótho .re hudaqsaduaj œuajsmudhom
MGRGUNBLAÐIÐ tAUGARÐAGUR Slr OKTÓBER1992
35-
Evrópska vinnuverndarárið
Er hollt að vinna?
Um vandamál á vinnustað og úrlausnir á þeim
eftir Guðnýju
Krisijánsdóttur
Nýlega var í sænskum sjón-
varpsþætti fjallað um tvö fyrir-
tæki, sem þóttu merkileg að því
leyti, að þau blómstruðu í krepp-
unni. Við nánari athugun kom í
ljós að rekstur þeirra einkenndu
fímm atriði:
— Starfsmönnum leyfðist að taka
eigið frumkvæði.
— Þeim mætti hæfíleg ögrun í
starfí.
— Starfsmenn fundu að vinna
þeirra skipti máli, vinnan og
verkefnin höfðu eitthvert inn-
tak.
— Möguleiki gafst á að þróa
hæfni sína og hæfíleika.
— Upplýsingastreymi og sam-
skipti innan fyrirtækisins voru
mjög opin.
Eins og sjá má beinast öll atrið-
in að manneskjulegum þáttum.
Tækniframfarir síðustu ára á
flestum sviðum atvinnulífsins hafa
leitt til að mörg fyrirtæki standa
höllum fæti í markaðssamkeppn-
inni.
Augu atvinnu- og iðnrekenda
eru í æ ríkari mæli að opnast fyr-
ir áherslubreytingu sem er að
verða hvað þetta varðar. Sam-
keppnin felst í góðri þjónustu
veittri af starfsmönnum, sem líður
vel í vinnunni.
Stjómendur fyrirtækja bæði hér
og erlendis beina sjónum sínum
að þeirri staðreynd að tímabundin
eða langvarandi fjarvera frá vinnu
vegna veikinda kostar ríkið, trygg-
ingakerfið, þjóðfélagið og þar með
okkur öll stórar ijárhæðir á ári
hveiju. Þessi kostnaður veldur því
að rannsóknir ríkisstofnana og
atvinnurekenda beinast nú að ijar-
vistum starfsmanna og orsökum
þeirra. Ennfremur á hvem hátt
fjarvistir starfsmanna tengjast líð-
an þeirra á vinnustað.
Vinnustaður þinn er eins
friskiu* og starfsfólkið - eða
eins sjúkur
Helstu einkenni og aðvömnar-
merki um byijandi heilsubrest í
vinnuhópi em:
— Starfsmenn, einn eða fleiri,
kvarta undan því að þeir valdi
ekki starfí sínu á sama hátt og
áður.
— Mikil fjarvera vegna veikinda.
— Óstundvísi.
— Samvinnuerfíðleikar og tog-
streita
— „Kaupstaðarlykt“ af starfs-
mönnum.
— Kvartanir til stjómenda.
— Kvartanir til verkalýðsfélags.
— Klíkumyndanir.
— Einelti.
— Skortur á áhuga og innlifun í
starfíð, uppgjöf.
— Starfsmaður einangrar sig.
— Léleg vinnuafköst.
— Hæfír starfsmenn leita frá
fyrirtækinu, stofnuninni.
Því fleiri sem aðvömnarmerkin
em, þeim mun brýnna er fyrir
yfírmenn að huga að heilsufari
vinnuhópsins og fyrirtækisins.
Þetta má rannsaka með aðferðum
ijarvemgreiningar þar sem ástæð-
ur Qarvem koma fram. Önnur
aðferð felst í samtölum við starfs-
menn sem oft og tíðum em fjarver-
andi, eða jafnvel heila vinnuhópa
þar sem fjarveran er meiri en eðli-
legt getur talist.
Stórar stofnanir og fyrirtæki í
Svíþjóð, þar sem undirrituð er
kunnug, hafa alltaf við hlið starfs-
mannastjóra sérstakan starfs-
mannafulltrúa, sem ber ábyrgð á
að tekið sé á vandamálum sem
upp kunna að koma hjá starfs:
mönnum eða í starfshópum. í
mörgum tilfellum þykir einnig
vænlegt að fá hlutlausan utanað-
komandi aðila í málið.
Togstreita og spenna myndast
þegar væntingar og þarfír em
ekki í jafnvægi. Á svipaðan hátt
má segja að nauðsynlegt sé að
kröfur umhverfisins og hæfíleikar
einstaklingsins séu í jafnvægi.
Hugtakið togstreita vekur oft nei-
kvæðar kenndir, en ekki má
LÍFSSTAÐA
•aldur
• hjúskaparstaða
•böm
• fötlun
VINNUAÐSTÆÐUR
• streita
• slæm samskiptí
• fagieg vankunnátta
• úthlutun verkefna
SKAPGERÐARVANDI
• skortur á sjálfstrausti
• ofmat á sjálfum sér
• yfirdrottnun
VANDAMÁL UTAN VINNU
• skilnaöur
• þunglyndi
• dauösfall
• sjúkdómur
Atriði sem geta haft áhrif á líðan starfsmanns
Guðný Kristjánsdóttir
gleyma að togstreita sem vel er
unnið úr, leysir úr læðingi orku í
vinnuhópi og eykur álagsþol.
Kerfí, hvort sem um er að ræða
einstakling, fjölskyldu, vinnuhóp
eða stofnun, sem innan síns
ramma þolir og getur unnið úr
togstreitu, hlýtur að vera lífvæn-
legra en það kerfí sem bregst við
á fmmstæðan hátt. Sem dæmi um
framstæð vinnubrögð í vinnuhópi
má nefna að starfsmaður er um-
sviflaust rekinn vegna þess að
hann/hún er ekki sammála yfír-
manni um hvemig ákveðið verk-
efni skuli unnið.
Vandamál á vinnustað em mis-
flókin eins og hver annar mannlífs-
vandi. Lykilpersónur í þessu sam-
bandi era yfirmenn og stjómend-
ur. Afgerandi er fyrir vellíðan
vinnuhópsins að þessir aðilar hafí
þor til að sjá vandamálin og kjark
til að taka á þeim. Svo getur farið
með togstreitu eins og aðrar bólg-
ur, að ígerð hlaupi í hana. Þá get-
ur þurft utanaðkomandi hjálp. Svo
virðist sem lítil hefð sé komin hér
á landi fyrir þessum möguleika,
nema í formi námskeiðshalds fyrir
starfshópa.
Aðferðin sem hér er átt við felst
í að hlutlaus aðili, oft skipulags-
og vinnusálfræðilega menntaður
ráðgjafí, er fenginn til að greina
vandann, koma með tillögur til
úrlausnar og fylgja þeim eftir.
Aðferðimar em mismunandi og
fara eftir eðli vandans. Við grein-
PERLUFESTI
— Senecio rowleyanus
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 254.
Við, sem að þessum pistlum
stöndum, höfum komið okkur
saman um að sagt verði frá
„pottaplöntum" í þeim þáttum
sem birtir verða á þessu ári.
Þeir ættu að geta orðið 5 eða
6 talsins og við viljum með
þessu móti verða við óskum
allmargra lesenda. En lesendur
góðir! Fyrir alla muni látið
okkur vita hvort þið hafíð
áhuga fyrir skrifum um ein-
hveijar sérstakar plöntur, sem
þið e.t.v. hafíð dálæti á, og við
munum gera hvað við getum
til þess að afla upplýsinga um
þær. Það er ósköp auðvelt að
nota hvort heldur er pennann
eða símann: Pósthólf G.í. 1461
12 Reykjavík, sími skrifstofu
G.í. er 27721, mánudaga og
fimmtudaga kl. 2-6, sími um-
sjónarmanns þáttanna er
40862. En víkjum þá að efni
þáttarins:
Perlufesti —
Senecio rowleyanus
í eyðimörkum Suðvestur-
Afríku er ærið harðbýlt öllum
lífveram, ekki síst grænum
gróðri jarðar. Þar þrífast þó
nokkrar jurtir sem aðlagast
hafa þeim óblíðu aðstæðum og
grimmdarkjöram sem þar
bjóðast. Ein af þeim er Períu-
festi (Senecio rowleyanus) sem
víða um heim er ræktuð sem
stofublóm. Hún er ræktuð sem
hengijurt og stönglamir, sem
vel geta orðið allt að einn
metri á lengd, em alsettir nær
hnöttóttum blöðum og hanga
niður frá pottinum eins og
grænar perlufestar. Á kúlu-
laga blöðunum er gagnsæ rák,
sem hleypir ljósi inn í blöðin,
en þar fara fram efnaskipti
plöntunnar. Eins og nærri má
geta gerir þessi jurt ekki mikl-
ar kröfur til lífsins, að því er
varðar „mat og drykk“. Gott
afrennsli í pottinum, vel sand-
blendna mold, litla sem enga
áburðargjöf og vökvun má
gjaman gleymast öðra hveiju.
En góða birtu vill hún gjaman
hafa allt árið um kring.
Blómin, sem em hvít og
myndast í blaðöxlunum, era
ekkert aðalatriði á jurtinni og
sumum finnst þau aðeins
óprýða hana, en þau koma
helst á vetuma, þó eitt og eitt
geti skotið upp kollinum á
hvaða tíma árs sem vera skal.
Þessi jurt, sem er með allra
sérkennilegustu stofublómum
(allir kunningjar vilja endilega
fá afleggjara), er eins og áður
var sagt afar auðræktuð og
ekki er síður auðvelt að fjölga
henni, því allir angar sem af
henni era slitnir era næstum
hlægilega fljótir að skjóta rót-
um. Gott fyrir kunningjana.
Það skrýtnasta er þó að þessi
undarlega jurt er náskyld
tveim öðram þekktum stofu-
blómum, þó lítið sé ættarmót-
ið, nefnilega síneraríu og hrað-
lestinni sem báðar era af
Senecio-ættkvíslinni og auk
þess sumarblóminu silfur-
kambi og illgresinu okkar
fræga krossfíflinum.
Perlufesti.
inguna er venjulega stuðst við
sálfræðilegar prófanir og viðtöl,
bæði við einstaklinga og starfs-
hópinn í heild. Rannsókn á verk-
efnaskiptingu, samskiptum og
valdskiptingu getur einnig verið
nauðsynleg.
Lengi hefur það verið trú okkar^
að vinna sé okkur öllum til góðs,
stuðli að heilbrigði og vellíðan.
Þessa goðsögn er nauðsynlegt að
rannsaka betur. Það er ekki alltaf
hollt að vinna. Sumir veikjast í
vinnunni og jafnvel deyja!
Nú er yfírmenn og stjórnendur
sjá ávinning þess að taka á vanda-
málum á vinnustað, getum við öll
vonast til að næsta átak okkar
íslendinga felist í að skapa viðun-
andi starfsumhverfí þar sem
starfsmönnum er búinn mann-
sæmandi aðbúnaður jafnt andlega?"*
sem líkamlega.
Ósk
Ég vildi óska þess
aðégværi
vél
þaðyrðiannastummig
og nostrað við mig
fengi hjálp
erískraðihiðminnsta
stolt
sæi ég
omhyggju þeirra
fyrir vinnustað mínum
hvemigþærmældu
steyptu undirstöður
ogbrytuheilann
athuguðu titring
og loftræstingu
saumuðu rykvamir
smyrðu og
fægðumig
forstjóramir
kæmutilaðdástaðmér
ogsegðu
„Við munum
Iáta okkur
anntumþig."
(Óþekktur hðf.)
Höfundur er sálfræðingur, hefur
10 ára starfsreynslu sem
vinnusálfræðingur hjá sænsku
Vinnumarkaðsstjóminni (AMS).
Hefur sænska löggildingu til að
stunda viðtalsmeðferð
(psykoterapi) og starfar á
dagdeild Geðdeildar
Borgarspítalans.
-----»♦-♦----- Pc
Fræðslumorgnar
í Hallgrímskirkju
Trúarbrögð
mannkyns
FYRSTA áfanga fræðslu-
morgna í Hallgrímskirkju á
þessu hausti lauk sl. sunnudag
með lokaerindi um Þjóðkirkj-
una og trúflokkana. Voru þess-
ir fyrirlestrar prýðilega sóttir. *
Næstkomandi sunnudag, hinn
1. nóvember kl.10, hefst nýr
áfangi sem nefnist Trúarbrögð
mannkyns. Það er Gunnar J.
Gunnarsson cand.theol., kennari
við Kennaraháskóla íslands sem
mun annast þessan þátt næstu
fjóra sunnudaga. Þessa morgna
mun Gunnar leitast við að gefa
innsýn í helstu trúarbrögð mann-
kyns, grandvallarkenningar, trú-
ariðkun, samfélagsáhrif og út-
breiðslu og jafnframt skýra mun
á þeim og kristinni trú. Jafnframt
mun hann svara fyrirspumum frá
áheyrendum. Hægt verður á fá
barnagæslu meðan á fræðslunni
stendur. Heitt verður á könnunni
eftir fræðslustundina áður en
gengið verður til fjölskylduguðs-
þjónustu sem hefst kl. 11. S;
(Úr fréttatilkyimingu)