Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 27
MOHGUNBf ABID 1 AUOÁRf)ÁGttft 1 'OklNÓÉbÍR lðfe
m
Kynhverfir styðja Clinton
en byssumenn óttast hann
George Bush forseta hefur
gjörsamlega mistekist að fá
samtök kynhverfra á sitt band
en í síðustu kosningum naut
hann mikils stuðnings þeirra.
Samtök þeirra segjast nú binda
vonir sínar við, að Clinton bæti
stöðu þeirra í samfélaginu.
35% homma o g lesbía studdu Bush 1988, nú
hafa þessir kjósendur snúið við honum baki
Washington, frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunbladsins.
FRAMBJÓÐENDUR í kosningum í Bandaríkjunum leggja ávallt
mikla áherslu á að tryggja sér stuðning hinna ýmsu þrýstihópa
og hagsmunasamtaka sem starfrækt eru hér vestra. Þetta á ekki
síst við um forsetakosningar þar sem sérlega mikilvægt er að
frambjóðendur höfði til sem flestra þjóðfélagshópa. Varaforseta-
efni frambjóðendanna þriggja í forsetakosningunum nú eru prýði-
legt dæmi um þetta. A1 Gore varaforsetaefni Demókrataflokks-
ins, höfðar mjög til þeirra sem telja að umhverfismál eigi að setja
á oddinn í Bandaríkjum framtíðarinnar, Dan Quayle, núverandi
varaforseti, sækir fylgi sitt til réttnefndra íhaldsmanna sem hafa
áhyggjur af hnignandi siðferði og hag fjölskyldunnar og James
Bond Stockdale varaforsetaefni Ross Perots, höfðar til eldri og
ráðsettari Bandaríkjamanna enda er hann stríðshetja gömul,
heimspekingur og fjölskyldumaður mikill. Einn er sá hópur hér
í Bandaríkjunum sem George Bush forseta hefur gjörsamlega
mistekist að fá á sitt band en það eru samtök kynhverfra. Að
auki treysta samtök, sem beijast fyrir því að hvergi verði hnikað
við því ákvæði stjórnarskrárinnar er heimOar byssueign (Nation-
al Rifle Association), sér ekki lengur til að lýsa yfír stuðningi
við forsetann.
„Kynhverfir telja þetta mikil-
vægustu kosningar í sögu Banda-
ríkjanna," sagði Gregory King,
talsmaður Human Rights Campa-
ign Fund, stærstu stjómmálasam-
taka homma og lesbía í Bandaríkj-
unum, í samtali við Morgunblaðið.
Hann kvað samtökin hafa lýst
yfir stuðningi við Bill Clinton ríkis-
stjóra enda hefði hann sagt að
hann vildi tryggja að kynhverfir
hefðu sama rétt og aðrir Banda-
ríkjamenn á öllum sviðum þjóðlífs-
ins. Gregory King nefndi að brotið
væri gegn réttindum kynhverfra á
vettvangi húsnæðis- sem atvinnu-
mála. „Einna mikilvægast teljum
við þó að réttindi okkar verði
tryggð innan herafla Bandaríkj-
anna. Nú eyða stjórnvöld milljón-
um Bandaríkjadala á ári hveiju til
að hafa upp á þeim sem örvkynja
eru innan heraflans. Þeir hinir
sömu eru síðan leystir undan her-
þjónustu.“
að um einn milljarð dala væri að
ræða. „Við berum ekkert traust
til forsetans," sagði Gregory King.
Aðspurður sagði King að níu til
tíu milljónir kynhverfra kjósenda
myndu greiða atkvæði í kosn-
ingunum á þriðjudag. Árið 1988
hefðu kannanir leitt í ljós að 35%
kynhverfra kjósenda hefðu greitt
George Bush atkvæði sitt en nú
gæti forsetinn einungis vænst þess
að fimm prósent þess hóps myndu
styðja hann.
„Bill Clinton hefur sagt að hann
geymi í huga sér framtíðarmynd
af Bandaríkjunum og að við séum
hluti hennar. Ástandið minnir um
margt á það sem ríkti árið 1968
er blökkumenn snerust til fylgis
við demókrata. Þetta er öldungis
einstakt í sögu hreyfingar okkar
og þvi teljum við kosningarnar þær
mikilvægustu í nútímasögu
Bandaríkjanna. Við treystum á að
Bill Clinton geti breytt ástandi
þjóðmála og við vitum að banda-
ríska þjóðin hefur fengið sig
fullsadda af misrétti og öfgum,“
sagði Gregory King. Hann kvað
60.000 Bandaríkjamenn vera fé-
laga í Human Rights Campaign
Fund-samtökunum og nú væru tíu
þúsund þeirra í sjálfboðaliðavinnu
til að tryggja sigur Clintons ríkis-
stjóra.
Clinton yrði martröð
Önnur samtök sem oft hafa lát-
ið til sín taka í kosningum hér
vestra eru National Rifle Assoc-
iation, sem beijast fyrir því að
áfram verði tryggður sá stjómar-
skrárbundni réttur Bandaríkja-
manna að eiga skotvopn. Samtök
þessi lýstu yfir stuðningi við Ge-
orge Bush í kosningunum 1988
er hann bar sigurorð af Michael
Dukakis, frambjóðanda Demó-
krataflokksins. Talsmaður sam-
takanna, sem krafðist nafnleynd-
ar, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að stjóm NRA hefði ákveðið
að styðja engan frambjóðanda að
þessu sinni. Ekki fór þó á milli
mála að þar á bæ hafa menn af
því verulegar áhyggjur að Bill
Clinton sigri í kosningunum. „Bill
Clinton hefur margoft lýst því yfir
að hann vilji takmarka byssueign
og setja nýjar og strangari reglur
á því sviði. Hann sagði hins vegar
líka um daginn á fundi með bænd-
um í Ohio að hann væri hlynntur
öðrum og hófsamari tillögum sem
fram hafa komið. Getur þú sagt
mér hver afstaða hans er í þessu
máli? Ekki veit ég það. Eitt er þó
ljóst, Bush forseti hefur vissulega
gert mistök á þessu sviði en það
yrði algjört svartnætti og martröð
ef Bill Clinton settist að í Hvíta
húsinu," sagði þessi viðmælandi
Morgunblaðsins.
Lygar og vonbrigði
King sagði að George Bush for-
seti hefði valdið samtökum kyn-
hverfra í Bandaríkjunum miklum
vonbrigðum. Hann styddi menn
sem opinberlega hefðu fordæmt
kynhverfa og hann hefði einnig
sagt ósatt um upphæðir þær sem
alríkisstjórnin verði til alnæmis-
rannsókna. Forsetinn fullyrti að
fjórum milljörðum dala hefði verið
varið í þessu skyni en rétt væri
DYRIN I HALMsw
’G/
Leikendur:
Sigurður Sigurjónsson
örn Árnason
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Herdís Þorvaldsdóttir
Guðrún Þ. Stephensen
Erlingur Gíslason
Flosi Ólafsson
Hjálmar Hjálmarsson
og fleiri
Frumsýning 8. nóvember kl. 14:00
Þýðing texta: Hulda Valtýsdóttir.
Þýðing Ijóða: Kristján frá Djúpalæk.
Lýsing: Ásmundur Karlsson.
Dansar og hreyfíngar: Sylvia von Kospoth
911
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Hljómsveitarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson.
Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir
Leikstjórn: Sigrun Valbergsdóttir
Bill Clinton