Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992 52 Hann er mjög' upptekinn. Þú hefðir átt að panta tíma. Ast er... ... að vera ekki í sambandi með hálfum huga. TM Reg. U.S Pat Ott. — all rights reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate HOGNI HREKKVISI // ÞÚ H£FUR gertgóð icaup/ " BRÉF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Sögnr af Seltjaraarnesi Frá Ólafi Halldórssyni: „Seltjarnarnesið er lítið og lágt“ og fer víst enn lækkandi eins og meðal annars sést af örlögum Sel- tjamarinnar. Þó er á nesinu hæð nokkur, svonefnd Valhúsahæð, þekktur sögustaður og ágætt úti- vistarsvæði. Ágætt útivistarsvæði, sagði ég. Svo minnti mig að væri, en þegar leið mín lá yfir hæðina fyrir nokkrum dögum brá mér held- ur í brún. Ekki er nóg með að kreppi mjög að hæðinni sökum byggingargleði Seltiminga heldur er einfaldlega búið að jarðsetja hana. Efst á hæðinni trónir nú fót- boltavöllur sem tekur sig úr líkt og risastórt leiði sem hann líka er! Skyldi bæjarstjórnin vita af þessu? Við skulum bara rétt vona að þeir sem jarðsettu Valhúsahæðina svo kyrfilega hafí fengið fornleifafræð- ing eða einhvern annan sérfræðing til að kortleggja eða teikna ná- kvæmlega upp svæðið, t.d. steina- raðir og önnur hugsanleg stein- lagnamynstur sem endanlega eru horfin undir leiðið (boltavöllinn). Já, svona geta forlagagyðjurnar spunnið jafnvel saklausum smá- hæðum undarleg örlög. „Á Val- húsahæðinni er verið að krossfesta mann,“ kvað Steinn Steinarr á sín- um tíma. Og nú er búið, ef svo má segja, að krossfesta Valhúsa- hæðina. Ekki svo að skilja a ég sé í hópi þeirra umhverfissinna sem engu vilja breyta og halda að hægt sé að stöðva rás tímans; ijúka í mótmælaaðgerðir út af steinkumb- alda sem byggður er ofan í Reykja- víkurtjörn eða lagningu rafmagns- lína og nefna slíkar framkvæmdir umhverfísspjöll og sjónmengun! Slík viðkvæmni passar varla öðrum en prinsessunni á bauninni auk þess sem flestir vita að umhverfi okkar er líkt og annað á hverfanda hveli; háð sífelldum og óhjákvæmi- legum breytingum. Til dæmis hefur Seltjarnarnesið verið að sökkva í sæ síðustu árþúsund og er 1-1,5 metrum lægra nú en það var á landnámsöld. Einnig er undarlegt til þess að hugsa, þegar við göngum eftir Lækjargötu í Reykjavík eða ökum upp eftir Miklubrautinni að fyrir um tug árþúsunda var þar sjávarbotn, gamla fjöruborðið má enn sjá í Oskuhlíðinni (óskandi að framkvæmdaglaðir menn eyðileggi ekki að óþörfu það sem eftir er af þessu merkilega fjörubroti!) og fornar skeldýraleifar í Fossvogi. En nóg um það. Höldum áfram með göngutúrinn. Eftir að hafa staðið yfir moldum Valhúsahæðarinnar sálugu ákvað ég að skreppa út í Gróttu til að jafna mig eftir áfallið út af láti þessa gamla vinar. Gróttan er eins og flestir vita alfriðað svæði og bílaumferð er bönnuð þar með öllu, en viti menn: sem ég gekk út eiðið óku fjallabílar og önnur stórflykki út í Gróttuna og var engu líkara en heil vélaherdeild væri að gera innrás í þetta litla og huggulega friðland. „Þetta hlýtur að vera einn af þessum dögum sem nú eru í tísku,“ hugsaði ég með mér. Já, því ekki það! Förum-í-bílferð-með- aldraða-dagur eða förum-í-bílferð- með-lamaða-dagur er síst verri hugmynd en reykjum-ekki-dagur eða allir-út-að-ganga-dagur. Ég gekk í áttina að bílunum sem nú hafði verið lagt við skúrinn fyrir ofan ijöruna en sá hvorki eiginlega gamlingja né lamað fólk. Þess í stað hitti ég fyrir reffílega karla, að eigin sögn meðlimir í Rótarí- klúbb Seltjarnarness sem gera sér dagamun einu sinni á ári með því að hittast til hádegisverðar útí í Gróttu. Töldu þeir „vélaherdeild- ina“ nauðsynlega til að flytja mat- vælin út í Gróttu. Auk þess mátti á þeim skilja að þeim væri þetta ekki of gott þar eð þeir hefðu ára- tugum saman tekið þátt i hreinsun og viðhaldi ýmiskonar á staðnum. Ég varð auðvitað ægilega reiður og lenti í orðasennu við þessa ágætu menn enda ekki búinn að jafna mig eftir gönguferðina yfir Valhúsahæðina sálugu. Ég þykist þó sjá núna, eftir að hafa lagt mig stundarkorn og hugleitt málavöxtu í ró og næði, að þeir rótarímenn hafi nokkuð til síns máls (að því undanskildu að ég efast um að þurft hafi sex stórfarartæki til að flytja hádegisverðinn á staðinn). Tvennt vil ég þó benda þeim á í fyllstu vinsemd: Sem eins konar verndurum eða umsjónarmenn Gróttu ber þeim að sýna gott for- dæmi, og almennir borgarar sem sjá svona bílaflota úti í Gróttu kynntu að ætla að bílaumferð væri öllum frjáls og óhindruð. Til þess að koma í veg fyrir að Pétur, Páll og Jón Jónsson misskilji hluti með þessum hætti og með herfilegum afleiðingum fyrir Gróttu og lífríki hennar mæli ég hér með því að rótarífélagar Seltjarnarness, um- sjónarmaður Gróttu og aðrir sem eiga þarft erindi á staðinn í vélkn- únum farartækjum (hugsanlega einu sinni á ári til að gera sér daga- mun) auðkenni farskjótana með tilteknu, áberandi merki. Með kærri kveðju til rótarímanna á Seltjarnarnesi og Seltirninga al- mennt sem þrátt fyrir allt byggja einhvem fegursta stað Stór- Reykj avíkursvæðisins! ÓLAFUR HALLDÓRSSON, Drápuhlíð 15, Reykjavík. Víkveqi skrifar að getur hljómað hjákátlega, þegar fólk kemur í útvarp og fer með orðatiltæki, sem það greini- lega skilur ekki. Þannig var það föstudaginn 23. október, að í þjóð- arsál á Rás tvö hringdi kona, sem var afskaplega mikið í nöp við að íslendingar samþykktu EES-samn- inginn og hafði hún mörg orð um utanríkisráðherrann og taldi hann ekki hafa staðið sig sem skyldi. Síðan fór konan að tala um sjálfa sig og sagði: „Ég er nú kona, sem borið hefur kápuna á báðum öxlum allt mitt líf.“ Eftir þessa yfirlýsingu um að konan hefði allt sitt líf verið svo tækifærissinnuð, var sjálfsagt ekkert að marka, sem hún áður sagði. Hún hafði sem sagt leikið tveimur skjöldum allt sitt líf. Hitt er svo annað mál, að líklegast hefði viðmælandi konunnar í þjóðarsál- inni átt að leiðrétta hana og sýna henni fram á merkingu orðatiltæk- isins. Þá hefði þátturinn orðið til einhvers fróðleiks fyrir hlustendur. Greinilegt var af samhenginu að konan ætlaði að segja að hún hefði unnið hörðum höndum allt sitt líf. En það er líka dálítið annað. XXX Kunningi Víkveija lenti í því fyrir nokkru að ekið var aftan á bíl hans og varð bíllinn fyrir veru- legum skemmdum. Þar sem hann var í rétti og átti enga sök á skemmdunum sjálfur taldi hann augljóst að hann fengi bílinn umyrðalaust viðgerðan og bíla- leigubíl að auki þá daga sem hann væri bíllaus, en hann þarf að hafa bíl undir höndum atvinnu sinnar vegna. Kunninginn fór því til trygginga- félagsins, sem átti að greiða tjónið, en þá kom í ljós að þar sem vara- hlutir voru ekki til á landinu í bíl- inn og panta þurfti þá erlendis frá, neitaði tryggingafélagið honum um bílaleigubíl fyrr en varahlutirnir væru komnir til landsins. Sjónar- mið tryggingafélagsins var að það bætti bílinn en gæti ekki borið ábyrgð á að varahlutir væru ekki til. Þegar Jón Jónsson tryggir bíl sinn í ábyrgðartryggingu ökutækja er hann að fría sjálfan sig því að þurfa að bera það tjón sem hann kann óvart að valda í umferðinni. í þessu tilfelli verður kunninginn fyrir tilfinnanlegu tjóni en þá setur tryggingafélagið sig allt í einu á háan hest og segist ekki geta borið ábyrgð á því að bifreiðaumboð standi sig ekki í að eiga varahluta- birgðir. I þessu tilfelli „gleymir" tryggingafélagið gjörsamlega til- gangi sínum, þ.e. að bæta bótaþeg- um það tjón sem það hefur tekið að sér að greiða. Það á ekki að koma bíleiganda við í þessu tilfelli hvort þriðji aðili eigi varahlutinn eða ekki. Verði tryggingafélagið hins vegar fyrir tjóni af þessum völdum gæti það hugsanlega átt endurkröfurétt á bifreiðaumboðið. xxx Bréf það sem birtist hér á síðum Morgunblaðsins frá Georgíu- manninum Grigol Matsjavariani hefur vakið mikla athygli. Víkveiji hefur um ævina heyrt af mörgu slíku fólki út um allan heim sem er „ofstækislega ástfangið í ísa- foldu". Nú síðast heyrði hann af fimmtán ára gamalli rússneskri stúlku sem lærði fomíslensku af sjálfsdáðum og fór að þýða íslensk- ar bókmenntir yfir á móðurmál sitt. Móðir hennar hafði af henni áhyggjur og hafði samband við prófessor í norrænum fræðum. Sá gat róað móðurina og sagt henni að stúlkan væri svo sannarlega óvenjulegum hæfileikum gædd. Sú spurning vaknar hvort ekki væri rétt fyrir okkur íslendinga að reyna með einhveijum hætti að tækta tengslin við þessa vini okkar sem víða leynast. Það færi vel á því að ein stofnun eins og menntamála- ráðuneytið eða Háskólinn útbyggi skrá yfir þetta fólk með hjálp al- mennings, héldi sambandi við það og skipulegði þing íslandsvina svo sem eins og annað hvert ár. < < < ( i í í ( í í i i i ( i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.