Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992 15 Hvar standa íslensk- ir lögreglumenn? eftir Ragnheiði Davíðsdóttur Að undanförnu hafa öryggismál lögreglumanna verið í brennidepli. í kjölfar hörmulegs slyss þar sem ungur lögreglumaður, eiginmaður og faðir tveggja barna, slasaðist lífshættulega við skyldustörf sín hafa vaknað ýmsar áleitnar spurn- ingar um starfsvettvang, launakjör og öryggismál lögreglumanna. En þrátt fyrir að þetta tiltekna mál, þar sem fíkniefni komu við sögu, hafí fengið eins mikla umfjöllun og raun ber vitni er tilfellið í sjálfu sér engin undantekning í starfí ís- lenskra lögreglumanna. Hver ein- asti starfsdagur lögreglumanna fel- ur í sér óvissu um hvað vaktin kunni að bera í skauti sér. Um það vitna fréttir af afbrotum, slysum og ann- arri óáran í samfélaginu. Bakhliðin í tímaritinu Mannlífí birtist fyrir skömmu grein þar sem fjallað er á opinskáan hátt um þá mannlegu harmleiki sem íslenskir lögreglu- menn þurfa oft og tíðum að standa frammi fyrir og takast á við í starfí sínu. Greinin, sem byggð er á raun- verulegum frásögnum ónafn- greindra lögreglumanna, gefur raungóða lýsingu á erfíðu hlut- skipti lögreglumannsins. Sú mynd sem þar er dregin upp er sú hlið löggæslunnar sem aldrei er fjallað um opinberlega. Þar er meðal ann- ars fjallað um þá sýn sem birtist lögreglumanninum þegar hann kemur að sundurtættum manneskj- um eftir slysfarir eða sjálfsvíg. Þar er fjallað um viðbrögð aðstandenda þegar þeir verða að horfa upp á ástvini sína við slíkar aðstæður. Þar er fjallað um tilfelli þar sem lög- reglumenn verða að hætta lífí sínu í þágu borgarans; þegar þeir standa frammi fýrir byssukjöftum og nál- um eiturlyfjasjúklinga. Þar er fjall- að um börn sem líða andlegar og líkamlegar þjáningar vegna van- rækslu foreldra og svo mætti lengi telja. Strángar kröfur í ljósi þeirra staðreynda, sem hér hafa verið raktar og hefur þó að- eins lítið eitt verið nefnt, er ljóst að miklar kröfur eru gerðar til þess fólks sem valið er til löggæslu- starfa. Umsækjendur um lögreglu- starf verða ða vera reiðubúnir til þess að takast á við erfíð og krefj- andi verkefni sem oftar en ekki reyna á bæði líkamlegt og andlegt þrek þeirra. Viðkvæmar sálir ættu því að forðast löggæslustörf. Á hverjum degi verða lögreglumenn vitni að skelfilegustu hliðum mann- lífsins; hliðum sem fæstir sjá nema í hryllingskvikmyndum. Á einni helgarvakt getur ungur fjölskyldu- faðir eða móðir upplifað meiri hryll- ing í formi mannlegra harmleikja en meðalmaður á langri ævi. Það er því vissulega ábyrgðarhluti að takast á við starf lögreglumannsins sem að sjálfsögðu er af holdi og blóði rétt eins og allir aðrir. Fæstir gera sér grein fyrir því andlega álagi sem löggæslufólk vinnur und- ir. Það þekkja makar og börn lög- reglumanna sem lifa í stöðugum ótta um afdrif ástvina sinna. Þau fara ekki varhluta af þeirri hættu sem starfið felur í sér. Mikil ásókn er í löggæslustörf hér á landi en árlega sækir fjöldi valinkunnra manna og kvenna um starf í lögreglunni. Af því leiðir að stjórnendur löggæslumála geta val- ið hæfasta fólkið úr hópi umsækj- enda. Og víst eru kröfumar strang- ar. Samkvæmt reglugerð um lög- reglumenn verða umsækjendur að uppfylla líkamlegar og andlegar kröfur, vera valinkunnir og vandað- ir með hreint mannorð og fjárhags- lega sjálfstæðir. Þeir verða einnig að uppfylla kröfur um lágmarks- menntun, sem í reynd er stúdents- próf eða sambærileg menntun. Hin- ir útvöldu verða síðan að standast próf í Lögregluskóla ríkisins áður en þeir teljast fullgildir lögreglu- menn. Til marks um þær kröfur sem gerðar eru skal tekið fram að kom- ið hefur fyrir að menn eru látnir víkja úr starfí standi þeir ekki und- ir þeim væntingum sem til þeirra em gerðar. Launamál Nú skyldi margur ætla að í ljósi þessara krafna séu lögreglumenn vel launaðir. Því miður fer því fjarri. Byijunarlaun lögreglumanns eru nú um 55 þúsund krónur á mán- uði. Ofan á þau laun bætist síðan aukavinna sem reyndar er takmörk- uð við 62 aukavinnustundir á mán- uði og vaktaálag hjá þeim sem vinna á vöktum. Lögreglumaður, sem á að baki 16 ára starfsaldur hefur um 75 þúsund krónur á mán- uði. Ef sá hinn sami fyllir auka- vinnukvótann sinn og fær auk þess greitt vaktaálag eru útborguð laun hans liðlega 100 þúsund krónur á mánuði! Það segir sig því sjálft að lögreglumenn eru sannarlega ekki meðal hátekjufólks. Það skal tekið fram að til þess að ná þessum laun- um sér viðkomandi lögreglumaður fjölskyldu sína ekki oft auk þess sem hann vinnur að stórum hluta að nóttu til og um helgar þegar flestar fjölskyldur njóta samvista. Öryggismál Að undanförnu hefur hvert tilfell- ið rekið annað sem sannar svo ekki Sighvatur Björgvinsson segir að þvottahúsið sé liður í starfsemi rík- isspítalanna og að eignir þess séu metnar á 250-370 milljónir króna. Hagnaður af starfsemi þess árið 1990 nam um 111 milljónum króna. „Þarna er til staðar talsvert af ónýttri afkastagetu sem ætla má að hægt sé að nýta við það að þvotta- húsið breytist í hlutafélag," segir Sighvatur. „Það hefur þótt erfið staða áður að þvottahús í eigu ríkis- spítalanna væri að keppa á almenn- um markaði en húsið hefur séð um verður um villst að starf lögreglu- mannsins er bæði krefjandi og hættulegt. Ofbeldi og harðneskja færist í vöxt í þjóðfélaginu auk þess sem notkun fíkniefna fer vax- andi. Afleiðingar aukinnar fíkni- efnaneyslu birtast okkur í vægðar- lausu ofbeldi og auknum afbrotum. Slík þróun hlýtur að kalla á aukið öryggi lögreglumönnum til handa. Sem kunnugt er hafa íslenskir lög- reglumenn ekki enn séð ástæðu til þess að bera vopn eins og þekkist erlendis en bera einungis trékylfu sem þeir beita aðeins í nauðvörn og dugar skammt á stundum. Sú spurning hefur því vaknað í kjölfar síðustu atburða hvort sá tími sé runninn upp að íslenskir lögreglu- menn neyðist til þess að vígbúast til þess að mæta breyttum aðstæð- um. Flestir þeirra eru þó þeirrar skoðunar að slíkt sé varla tímabært og sú skoðun helgast e.t.v. af því að þeir vilja ekki trúa því að vopna sé þörf. Þá hefur sú skoðun einnig heyrst meðal lögregumanna að vopnavæðing þeirra geti kallað á harðari viðbrögð afbrotamanna. En þó enn sé ekki tímabært fyrir lög- reglumenn að bera skotvopn er þó ljóst að ýmis annar búnaður getur tryggt þeim aukið öryggi í starfi. Það sem menn hafa helst nefnt í því sambandi eru handhæg, skot- held vesti, til þess að veijast hnífs- stungum og skotum og gasúðabrús- ar sem hægt væri að nota ti þess að afvopna menn. Slíkur búnaður ætti ekki að kosta mikla fjármuni og myndu án efa auka öryggi lög- reglumanna til muna. Þá hefur oft verið bent á að fólks- Ragnheiður Davíðsdóttir „Nú er svo komið að almennur ótti og van- máttarkennd hefur gripið um sig meðal ís- lenskra lögreglu- manna. I lögreglunni er mikil samkennd — enda hafa allir lög- reglumenn sömu hags- muna að gæta.“ bílar þeir, sem lögreglumönnum er gert að vinna á, séu ekki nægilega styrkir til löggæslustárfa og er skemmst að minnast hins hörmu- lega slyss í sumar þar sem ungur lögreglumaður slasaðist í lögreglu- bíl sem varð alelda á svipstundu. Kunnugir segja að þeir fólksbílar sem íslenskir lögreglumenn vinna á séu sömu tegundar og seldir séu til almennings sem heimilisbílar. Til samanburðar má geta þess að víðast hvar erlendis eru lögreglubíl- ar styrktir sérstaklega til þess að tryggja öryggi farþega ef eitthvað útaf ber. Benda má á að lögreglubíl- um er daglega ekið á forgangs- hraða í umferðinni og má því nærri geta hveijar afleiðingarnar geta orðið ef árekstur verður. Það er því ekki aðeins æskilegt heldur beinlín- is lífsnauðsynlegt að lögreglumenn fái til afnota sérhönnuð ökutæki til löggæslustarfa. Áðgerða er þörf Nú er svo komið að almennur ótti og vanmáttarkennd hefur grip- ið um sig meðal íslenskra lögreglu- manna. I lögreglunni er mikil sam- kennd — enda hafa allir lögreglu- menn sömu hagsmuna að gæta. Að undanförnu hefur hvert atvikið rekið annað þar sem lögreglumenn hafa mátt horfa upp á félaga sína slasast eða verða fyrir öðrum skakkaföllum í starfi. Allir hugsa þeir það sama: Hvenær kemur að mér? En þrátt fyrir allt er efst í huga þeirra að standa sig í starfí og sinna því hlutverki sem þeir eru ráðnir til; að gæta laga og réttar ot vemda borgarann fyrir afbrotum af ýmsu tagi. Því miður verður þó að viðurkenna að því hlutverki er lögreglumönnum varla gert kleift að sinna svo vel sé miðað við núver- andi aðstæður. Það ríkir því óvissa og ótti meðal lögreglumanna þar sem allt of lengi hefur verið gengið á langlundargeð þeirra hvað launa- og öryggismál varðar. Ef lögreglu- menn í landinu eiga að geta staðið undir þeim kröfum og væntingum sem til þeirra eru gerðar verða yfír- völd löggæslumála að koma til móts við réttmætar kröfur þeirra um aðbúnað, öryggi og launakjör. Oft hefur verið nauðsyn en nú er rík þörf. Um það vitna háværar raddir þeirra sem eiga mestra hags- muna að gæta; almennings í land- inu. Höfundur er háskólanemi og starfaði um árabil í lögreglunni í Reykjavik. I Þvottahúsi ríkisspítalanna breytt í hlutafélag Selja á hlutabréf fyr- ir 60 milljónir króna SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur kynnt í ríkis- stjórn frumvarp til laga um að breyta þvottahúsi ríkisspítalanna í hlutafélag. Fjárlög gera ráð fyrir að ríkisspítalarnir afli sér 60 millj- ón króna sértekna á næsta ári með sölu á hlutabréfum í þessu hluta- félagi. Þessi upphæð, 60 milljónir króna, samsvarar tæplega 25% af eignum þvottahússins. þvott fyrir ríkisspítalana, Borgar- spítalann og ýmar læknastofur. Það er vel búið sérhæfðum tækjum til starfsemi sinnar." Sighvatur segir að með frumvarp- inu sé reiknað með að þvottahúsið sem hlutafélag sé áfram að meiri- hluta í eigu ríkisspítalanna þótt þeim sé ætlað að afla sér 60 milljóna króna með sölu á hlutafé í því. Enda sé þessi upphæð ekki nema um fjórð- ungur af eignum þvottahússins og sé þá viðskiptavild ekki reiknuð þar með. 1 2 C/3 04 'P c UTSALA - UTSALA Síbasti dagur útsölunnar Nýir skór á verksmiöjuveröi beint frá Portúgal. Abeins 4 verb: 990.- 1.490.- 1.990.-2.490.- ATH. Einnig úrval af skóm í litlum númerum kl.18.oo ídag Laugavegi 11 sími: 21675
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.