Morgunblaðið - 31.10.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
3
Hjúkrunarfræðing-
ar og ljósmæður
7 5% segja
upp á Land-
spítalanum
UM 75% hjúkrunarfræðinga og
ljósmæðra á Landspítalanum
sögðu í gær formlega upp störf-
um sínum frá 1. nóvember.
Ástæða uppsagnanna er, eins og
komið hefur fram, óánægja með
launakjör, bæði vegna betri kjara
sem hjúkrunarfræðingarnir og
ljósmæðurnar segi að bjóðist á
öðrum sjúkrastofnunum og
vegna hærri launa stétta innan
sjúkrahússins, sem hafi sambæri-
lega námslengd að baki.
417 hjúkrunarfræðingar og ljós-
mæður skiluðu í gær inn uppsögn-
um sínum og að sögn Elínborgar
Stefánsdóttur, fulltrúa þeirra, eru
það um 75% starfandi hjúkrunar-
fræðinga og ljósmæðra á sjúkra-
húsinu.
Elínborg sagði að engar viðræður
hefðu átt sér stað milli hjúkrunar-
fræðinga og ljósmæðra annars veg-
ar og stjórnar Ríkisspítalanna hins
vegar vegna uppsagnanna.
♦ ♦ ♦
Ljómandí
síldveiði
— segir Bjarni Bjarna-
son á Súlunni E A.
ÁGÆT sOdveiði hefur verið í
Berufjarðarál undanfarna daga.
Loðnuveiði austur af Langanesi
hefur aftur á móti verið tregari.
Tíu skip eru á loðnuveiðum og
fimmtán á síldveiðum samkvæmt
upplýsingum Tilkynningaskyld-
unnar.
Bjami Bjamason, skipstjóri á
Súlunni EA, sagði að komið yrði á
miðin eftir um það bil klukkustund
þegar í hann náðist seinnipartinn í
gær. Hann sagði að eftir löndun í
fyrrinótt væri stefnt að því að klára
síldarkvótann í nótt en halda síðan
á loðnumiðin.
Aðspurður sagði Bjarni að ljóm-
andi síldveiði hefði verið undan-
fama daga. Menn hefðu verið að
fá upp í 600 tonn í einu kasti. „Við
höfum líka verið að fá fallega sfld.
Verst er að hún fer mest öll í
bræðslu en það er víst lítið við því
að gera. Betra að gera eitthvað við
hana en ekkert," sagði Bjami. Hann
sagði að landað hefði verið á Nes-
kaupsstað og fengjust að meðaltali
5.000 kr. fyrir tonnið.
Hljóðið var ekki eins gott í Helga
Valdimarssyni, skipstjóra á Berki
NK, sem staddur var á loðnumiðun-
um um 40 mflur austur af Langa-
nesi. Hann sagði að veiði hefði ver-
ið treg eiginlega alveg frá byijun
vertíðar og benti á að loðnan væri
mjög dreifð. Börkur kom á miðin
eftir löndun í fyrradag og fékk að-
eins nokkur tonn í fyrrinótt.
----♦ ♦ ♦
Eldur í tveim-
ur bifreiðum
ELDUR kom upp í tveimur bif-
reiðum í Reykjavík í fyrrinótt. f
annað skiptið er talið að um
íkveikju hafi verið að ræða, en
lítið sem ekkert tjón hlaust af.
Eldur kom upp í bifreið sem stóð
við bílapartasölu í Súðarvogi um
15 mínútur eftir miðnættið. Mestar
skemmdir urðu vegna reyks.
Skömmu fyrir kl. 4 um nóttina
kom svo upp eldur í bílgarmi við
Grandagarð, hjá Kaffivagninum.
Slökkviliðið slökkti eldinn á skömm-
um tíma og tjón varð lítið sem ekk-
ert, aðallega vegna reyks, eins og
í fyrra skiptið. Talið er að um
íkveikju hafí verið að ræða.
ilsta og glæsilegasta bókaverslui
opnar aftur í nýjum búningi.
Hlægilegt verð í tilefni dagsins, m.a.
óður kr. nú kr.
Á íslendingaslóðum í Khöfn 3980,- 1980.-
Svartur sjór af síld 3584,- 1780.-
Á besta aldri 1910,- 980.-
íslenskt vœttatal 3480,- 1780.-
Borgfirðingaljóð 4480,- 1980.-
Og þó rigndi blómum 4480,- 1980.-
Klettur í hafi (Tolli-Einar Mór) 3982,- 1980.-
Megas 3400,- 1680.-
50 flogin ór, 1 og II bindi 10328,- 3900.-
íslensk-ensk orðabók (kilja) 2079,- 980.-
Ég vona (Raisa Gorbatsjov) 2980,- 1480.-
Vér íslands böm l-lll (Jón Helgason) 8890,- 4480.-
Guðmundur Daníelsson, ritsafn 17810,- 8980.-
íslandseldar 3903,- 1995.-
Nýir eftirlœtisréttir 1828.- 595.-
Nœring og vinnsla 1836- 995.-
Eins og hafið 1588,- 495.-
Erlendar bœkur - ótrúlegt verð
barnadeildinni spjallar Palli páfagaukur
viö yngstu viöskiptavinina. Nýi bamabókabíllinn
verður stútfullur af tilboðum, m.a.
Jóladraumur 1880,- 980.-
Bláskjár 980,- 580.-
Emil í Kattholti, 3 bœkur saman 2490,- 1480.-
Pollýanna 890- 490.-
Hvar er Valli? 1482- 880.-
Anton og Arnaldur í villta vestrinu 878,- 490.-
VERIÐ VELKOMIN
Eymnndsson ..
Agtarstrw
Símar. 13135- 18880