Morgunblaðið - 31.10.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARUAGUR Str OKTÓBER ' 1992
Hugsanlegt að hækka hlut
sjúklinga í lyfjaverði í 30%
VERÐ lyfja er að sögn heilbrigðisráðherra 20 miHjónum lægra í septem-
ber og október en sömu mánuði í fyrra, vegna aukinnar samkeppni
eftir að lyfseðlum var breytt í haust., Þá hefur lyfsala minnkað, en í
sumum lyfjaflokkum dregur meira úr heildsöluverði en magni þannig
að meira er nú keypt af ódýrari lyfjum. Þetta er til dæmis áberandi
hvað sýklalyf varðar, íslendingar hafa keypt dýrari tegundir og meira
magn en grannþjóðir, en það er að breytast.
Sighvatur Björgvinsson segir að
1.250 milljónir hafí sparast frá miðju
síðasta ári í kostnaði ríkisins af lyfj-
um sem landsmenn kaupa í apótek-
um. Þá var hlutur sjúklings í lyfja-
verði 17-18% en var í haust hækkað-
ur í 25%. Sighvatur segir að 200
millónir til viðbótar hefðu sparast ef
hækkuninni hefði ekki verið frestað
frá apríl fram í ágúst.
Ráðherrann bendir á að í fyrra
hafi Tryggingastofnun borgað rúm-
um 8% minna fyrir lyf en 1990, en
í Danmörku hafi orðið nærri 57%
aukning í kostnaði. „En þótt við
höfum skrúfað lyfjakostnað stofnun-
arinnar til baka um tvö ár,“ segir
hann, „verður ekki komið í veg fyrir
að hann fari nokkuð hækkandi, um
svona 13% árlega þó ekki væri nema
vegna fjölgunar í elstu aldurshópun-
um og þess að sjúkrahús útskrifa
sjúklinga nú snemma. Og ný, dýr lyf
koma áfram á markað.
Meðalverð lyíja af hveijum seðli
var 2.444 krónur í síðasta mánuði,
200 krónum lægra en í ágúst og
tæpum 400 krónum lægra en í júlí.
í þeim mánuði hækkaði það raunar
um hundrað krónur, svo um einhveij-
ar sveiflur hefur verið að ræða. Þess-
ar tölur eru fengnar úr þrem dæmi-
gerðum apótekum og segir heilbrigð-
isráðherra að læknar virðist nú forð-
ast að ávísa óþarflega stórum
skammti og verð lyfja hafí lækkað.
Fyrir þrem mánuðum skyldaði hann
lækna til að tiltaka á lyfseðli hvort
afgreiða eigi lyfíð sem þeir nefna eða
ódýrasta samheitalyfíð. Þannig hafí
samkeppni aukist og að undanfömu
hafi Tryggingastofnun borist margar
beiðnir um verðlækkanir, slíkt hafí
áður þótt tíðindum sæta.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær greiðir stofnunin hátt
í 400 milljónum króna meira fyrir lyf
á árinu, þrátt fyrir aðgerðir heil-
brigðisráðherra, en 2,2 milljarða
áætlun fjárlaga leyfír. En fmmvarp
til frekari lækkunar lyfjakostnaðar
hefur verið í undirbúningi í sumar
og er enn í vinnslu. Sighvatur von-
ast nú til að geta lagt það fram í
ríkisstjóm í næstu viku og segist
meðal annars vilja breyta álagningu
lyíj'a. Þá komi til greina að hækka
hlut sjúklings í lyfjaverði í 30-32%
eins og tíðkast í Evrópubandalag-
slöndum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að ríkið
taki ekki lengur þátt í kostnaði allra
skráðra lyfla, en þannig verður mál-
um háttað á Evrópsku efnahags-
svæði. Sighvatur segir að með EES
leggist einkaumboð lyfja af og það
hljóti að ýta undir samkeppni og
verðlækkanir.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 31. OKTÓBER
YFIRLIT: Yfir iandinu er grunnt lægðardrag sem þokast norðaustur en á sunn-
anverðu Grænlandshafi er að myndast lægð sem mun fara norðaustur.
SPA: Suðvestan gola eða kaldi suðvestantil og skúrir en suðaustan og austan
kaldi og rigning á Noröur- og Austurland en slydda á Vestfjörðum. Síðdegis
fer að létta til á Noröaustur- og Austurlandí með suðvestangolu. Hiti á bilinu
1—6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg breytileg eða vestlæg átt víðast hvar á landinu
og víða næturfrost. Sums staðar slydduól, einkum um vestanvert landið.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæg breytileg átt og fremur kalt. Sums staðar smá-
él vestanlands en annars þurrt opg víðast léttskýjað.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Norðaustanstrekkingur og él á Vestfjöröum en ann-
ars hæg breytileg átt og víðast þurrt. Fremur kalt í veðri.
Nýir veðu rfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30.
Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
T
Heiðskírt
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
y sútd
= Þoka
itifl-.
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl.17.30tgær)
Það er yfirleitt ágæt færð á þjóðvegum landsins, en þó er víða hálka á
vegum svo sem á Heilisheiði, Fróðárheiði, Kerlingarskarði, Bröttubrekku
og Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er hálka og snjór án fyrirstöðu á
heíöum og fjallvegum. Á Norðurlandi er hálka á Vatnsskarði, Siglufjarðar-
leið, Lágheiði, öxnadalsheiði og Víkurskarði. Þá er hálka og snjór án
fyrirstöðu vfða á Norð-Austuriandi og á fjalivegum á Austfjörðum. öxar-
fjarðarheiði og Hellisheiði eystri eru aðeins færar jeppum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin.
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 3 skýjað Reykjavík 4 rignlng
Bergen 2 alskýjað
Helsinki +6 hátfskýjað
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Narssarssuaq 5 úrkoma
Nuuk 4-2 skýjað
Ósló 4-3 léttskýjað
Stokkhólmur 4-2 skýjað
Þórshöfn 4 léttskýjað
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 9 skýjað
Borcelona 17 súld
BeHín 7 skýjað
Chicago 7 alskýjaö
Feneyjar 14 rigning
Frankfurt 6 þokumóða
Glasgow 3 rigning
Hamborg 7 hálfskýjað
London 9 léttskýjað alskýjað
LosAngeles 18
Lúxemborg 3 þoka
Madríd 15 skýjað hálfskýjað
Malaga 23
Mallorca 22 skýjað
Montreal 4-2 skýjað
NewYork 12 aiskýjað
Orlando 18 þokumóða
Parfs 10 léttskýjað
Madeira Róm 20 skur vantar
Vín 8 rigníng
Washlngton 13 þokumóða
Wlnnipeg +6 hrfmþoka
Húnabær er mikið skemmdur, ef ekki ónýtur.
Blönduós
Bílaverkstæði brennur
TÖLUVERT Ijön varð er bOa-
verkstæðið Húnabær
skemmdist í eldi í gærmorg-
un. Tveir bílar voru inni á
verkstæðinu þegar eldsins
varð vart og eru þeir mikið
skemmdir ef ekki ónýtir.
Eldsupptök eru ókunn.
Að sögn Braga Ámasonar,
slökkviliðsstjóra á Blönduósi,
varð íbúi á Brekkunni sem var
á leið til vinnu kl. hálfátta var
við eldinn og gerði slökkviliði
viðvart. Bragi sagði að um kl.
13 hefði verið búið að slökkva
eldinn, sem reyndist mjög erfitt
því húsið var einangrað með
sagi og leyndist glóðin víða.
Eins og fyrr greinir var rekið
þarna bílaverkstæði þar sem
unnið var við réttingar og bíla-
málun.
Jón Sig.
Samvinna Borgarspítala, Stígamóta,
lögreglu og iögfræðinga
Neyðarmóttaka fyrir
fómarlömb nauðgunar
NEYÐARMÓTTAKA fyrir fórnarlömb í nauðgunarmálum verður opn-
uð á slysa- og sjúkravakt Borgarspítalans í byijun næsta árs. Á neyð-
armóttökunni mun standa til boða læknisskoðun og meðferð, réttar-
læknisfræðileg meðferð, taka og varðveisla sönnunargagna, kreppu-
ráðgjöf fyrir fórnarlömb og aðstandendur þeirra, aðhlynning og dvöl
á staðnum í allt að sólarhring, aðgangur að löglærðum talsmanni og
rannsóknarlögreglu og ráðgjöf varðandi eftirmeðferð líkamlegra
áverka og frekari kreppuráðgjöf.
í Hjúkrunartíðindum, sem gefín
eru út af hjúkrunarstjóm Borgarspít-
alans, kemur fram, að árið 1984
skipaði þáverandi dómsmálaráðherra
nefnd til að kanna rannsókn og með-
ferð nauðgunarmála og gera tillögur
til úrbóta. Að fjórum ámm liðnum
skilaði nefndin viðamikilli skýrslu um
málið, en það lá niðri þar til heilbrigð-
ismálaráðuneytið fól Guðrúnu Agn-
arsdóttur lækni að gera tillögur um
staðsetningu og skipulag neyðarmót-
töku fyrir fómarlömb í nauðgunar-
málum. Guðrún lagði til að slysa-
og sjúkravakt Borgarspítalans yrði
valin til að sinna þessu hlutverki.
Undirbúningur á deildinni, sem og
meðal aðila utan hennar, er nú í
fullum gangi og ráðgert er að þjón-
usta þessi hefjist í byijun næsta árs.
í Hjúkmnartíðindum kemur fram,
að markmiðið með starfseminni er
að koma á skipulagðri þjónustu fyrir
fórnarlömb og samhæfa þjónustuna
á einn stað. Hjúkmnarfræðingar á
slysa- og sjúkravakt, ásamt hópi
kvensjúkdómalækna og starfsmanna
frá Stígamótum verða í lykilhlutverk-
um. Margir aðrir aðilar koma einnig
við sögu, rannsóknarlögreglan, lög-
fræðingar, starfsfólk á rannsóknar-
stofum og annað starfsfólk slysa-
og sjúkravaktar. Guðrún Agnars-
dóttir veitir verkefninu forstöðu.
Þjónustan á neyðarmóttökunni
mun standa öllum, eldri en 14 ára,
til boða, hvort sem viðkomandi vill
kæra nauðgun eða ekki.
Samanburður við
1986 á rétt á sér
- segir Hörður Sigurgestsson for-
stjóri um flutningsgjöld Eimskips
HORÐUR Sigurgestsson forsljóri Eimskipafélags íslands segir að sam-
anburður á flutningsgjöldum við árið 1986 eigi fullan rétt á sér og
vísar á bug þeim ummælum Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra að var-
hugavert sé að slá fram tölum með þeim hætti sem Eimskip gerir
þegar það auglýsir 35% lækkun flutningsgjalda frá árinu 1986.
„Við notum tölur til að rökstyðja
mál okkar og til að sýna fram á
hvaða árangri við höfum náð. Eg
dreg mjög í efa að víða hafi jafn
mikil hagræðing átt sér stað,“ sagði
Hörður.
Verðlagsstjóri segir í frétt í Morg-
unblaðinu í gær að gjaldskrá Eim-
skips hafí hækkað á annað hundrað
prósent á sjö árum fyrir þann tíma
sem Eimskip tekur til viðmiðunar í
útreikningum sínum. „Á árunum
1979 hækkuðu flutningsgjöldin veru-
lega enda höfðu þau ekki hækkað
að nokkru marki um margra ára
skeið þar sem þau voru undir hörðu
eftirliti viðskiptaráðuneytisins. En að
mínu mati er það rangt að hækkun-
in hafí verið þetta mikil umfram
verðlagshækkanir," sagði Hörður.
„Ég tel að viðmiðunin frá 1986
eigi fullan rétt á sér. Ég fullyrði að
það var einnig lækkun næstu 3-4
árin þar á undan þó sveiflur væru
milli ára. Égtel ekki að önnur viðmið-
un gefi neitt raunbetri mynd. Allar
þessar upplýsingar eru til á Verð-
lagsstofnun. Viðmiðunin við 1986 er
sjálfsagt orðin til vegna þess að árið
1985 fækkaði fyrirtækjum á flutn-
ingamarkaðnum og eðlilegt að miða
við það,“ sagði Hörður.