Morgunblaðið - 31.10.1992, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Pjetur Hafstein, Þórður Helgason og Árni Ibsen.
Ljóðleikhúsið
Ljóðlistarhátíð í Þjóð-
leikhúskjallaranum
FYRSTA mánudag hvers mánað-
ar í vetur verða Ijóðaupplestrar
í Þjóðleikhúskjallaranum á veg-
um ljóðskálda í samvinnu við
Þjóðleikhúsið. Fyrirhugað er að
átta skáld lesi úr verkum sínum
hveiju sinni.
Fyrsta ljóðakvöldið verður í Þjóð-
leikhúskjallaranum mánudaginn 2.
nóvember kl. 20.30. Þá koma fram
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
Berglind Gunnarsdóttir, Guðlaug
María Bjamadóttir, Jóhann Hjálm-
arsson, Pjetur Hafstein Lárusson,
Þórður Helgason og Þorsteinn frá
Hamri.
Erlingur Gíslason leikari mun lesa
úr þýðingum Njarðar P. Njarðvík á
Ijóðum eftir Tomas Tranströmer,
sem hlaut bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs fyrir tveimur árum.
Hægt verður að kaupa veitingar
og ljóðamarkaður verður á staðnum.
Aðgangseyrir er 250 krónur.
Frá æfingu fyrir tónleikana.
Kennaratónleikar í Kefla-
víkurkirkju á laugardag
Kennarar Tonlistarskólans í
Keflavík halda tónleika á ís-
Tónlistarskóli
Borg-arfjarðar
á 25 ára afmæli
TÓNLISTARSKÓLI Borgar-
fjarðar verður í dag, laugardag-
inn 31. október, með opið hús í
Grunnskólanum í Borgarnesi kl.
14. Einnig munu verða tónfundir
í öðrum grunnskólum héraðsins
næstu daga; í Laugagerðisskóla
þriðjudaginn 3. nóv. kl. 14, í
Kleppjárnsreykjaskóla 4. nóv. kl.
11 og í Andakílsskóia kl. 20.30
og fimmtudaginn 5. nóv. í
Varmalandsskóla kl. 13. Á þess-
um tónfundum munu nemendur
koma fram og eru tónfundirnir
öllum opnir.
Tónlistarskólinn hóf starfemi
sína haustið 1967 og voru nemend-
ur 39 fyrsta árið. Nú, 25 árum síð-
ar, stunda 230 nemendur nám við
skólann. Starf Tónlistarskólans er
samofið grunnskólum héraðsins.
Kennt er á fimm stöðum í héraðinu.
lenskum tónlistardegi, sem er
haldinn hátiðlegur laugardag-
inn 31. október. Tónleikarnir
eru í Keflavíkurkirkju og hefj-
ast kl. 16.00.
Á efnisskrá eru íslensk og er-
lend verk. Kennarar munu koma
fram í ýmsum hópum, stórum og
smáum; einnig munu tveir þeirra
syngja einsöng.
Frumflutt verður hljómsveitar-
verk eftir Eirík Áma Sigtryggs-
son, einn kennara skólans og
margt fleira verður á efnisskrá.
Tónleikarnir eru framlag kennara
skólans til M-hátíðar í Keflavík.
-----♦ ♦ ♦-----
Síðustu sýn-
ingardagar
Nú líður að lokum málverkasýn-
ingar Þórdísar Árnadóttur í
versluninni Borð fyrir tvo í Borg-
arkringlunni.
I fréttatilkynningu segir að sýn-
ingin hafi hafist 12. september og
verið opin á verslunartíma. Henni
lýkur mánudaginn 2. nóvember.
Norræna húsið
Fyrirlestur um
höggmyndalist
í Danmörku
SUNNUDAGINN 1. nóvember
heldur Villads Villadsen, forstöðu-
maður ríkislistasafnsins í Dan-
mörku (Statens museum for
Kunst), fyrirlestur í fundarsal
Norræna hússins. Fyrirlesturinn
nefnist „Omkring billedhugger-
traditionen i Danmark“.
Villads Villadsen kenndi listasögu
við Kaupmannahafnarháskóla frá
1973 til 1979, en þá var hann ráðinn
forstöðumaður listasafnsins í Rand-
ers. Því starfí gegndi hann til 1985
eða þar til hann tók við forstöðu ríkis-
listasafnsins.
Gallerí Borg
Málverka-
uppboðá
Hótel Sögu
GALLERÍ Borg er með mál-
verkauppboð í Súlnasal, Hótel
Sögu, sunnudaginn 1. nóvem-
ber kl. 20.30. Uppboðið er hald-
ið í samvinnu við Listmunaupp-
boð Sigurðar Benediktssonar
hf.
í fréttatilkynningu segir að
boðin verði um 100 verk, flest
eftir þekkta, íslenska listamenn.
Einnig verða boðnar upp grafík-
myndir eftir Picasso og Salvador
Dali, og handlitað íslandskort frá
því um 1640.
Uppboðsverkin verða sýnd í
Gallerí Borg við Austurvöll laug-
ardag og sunnudag frá kl. 14-18
báða dagana.
Leikmynd úr Dunganon.
Frá Leikfélagi Reykjavíkur
Sýningum á Dunganon fækkar
í fréttatilkynningu frá Leikfé- ins 6. og 13. nóvember.
lagi Reykjavíkur segir að sýning- Brynja Benediktsdóttir setti sýn-
um fari að fækka á Dunganon, inguna á svið. Siguijón Jóhannsson
leikriti Björns Th. Björnssonar, gerði leikmynd og búninga, en
um lífsnautna- og listamanninn Hjálmar Ragnarsson tónlist. Alls
Karl Einarsson. Næstu sýningar koma um 30 leikarar fram í sýning-
eru á Stóra sviði Borgarleikhúss- unni.
Myndhöggvarinn Þórir Barð-
dal settist að í norðurhluta
Portúgals fyrir nokkru, þar
sem granít og marmari fást
fyrir lítið fé og fyrirhafnar-
laust. Fyrir skömmu hélt hann
sýningu á verkum sínum nærri
bænum Albufera, og er nú kom-
inn heim til að opna sýningu á
Kjarvalsstöðum sem hefst í
dag. Hann sýnir stílhreina
skúlptúra úr hvítum marmara
sem minna á sólríkar strendur
fyrir vikið, en innblástur verk-
anna er ekki sóttur í ytri heim
náttúrunnar.
Aðeins varanlegt efnið er sótt
út. Þórir vill móta útlínur innri
löngunar; útiínur algildra sann-
inda. í þeim leitar hann duldrar
merkingar formsins. Efnið tekur
á sig margvíslega lögun, en er
yfirleitt upptyppt. Megináherslan
er sjaldan á láréttum línum. Öll
leita þau upp, leita að einhveiju
æðra. „Ég geng ekki út frá trúar-
legu inntaki, en það kemur alltaf
í gegn - er til staðar," segir Þór-
ir. „Frumkraftamir loft, jörð, eld-
ur og vatn renna saman í fléttur
eða togast á. Það er einkennandi
hvemig formið mótast af aðskild-
um kröftum og án innri kraftanna
sem sameinast í efninu myndi
verkin hrynja." Á sýningunni má
finna fléttu úr marmara, lagskipta
stjömu sem virkar gegnsæ, og
mjóan spíral sem bendir á miðju
en snertir samt aldrei miðlínuna.
Og fleiri verk staðfesta að marm-
arinn er leikandi þrátt fyrir þyngd
sína. „Marmarinn býr yfír tæmm
eiginleikum norðursins, fjallanna,
jöklanna og loftsins. Hreinleiki
marmarans stendur nærri ís-
lenskri náttúru, þótt að hann komi
yfírleitt frá suðlægum slóðum.
Og hann er lifandi; engir tveir
steinar eru eins, hver og einn býr
yfír persónuleika með brestum og
kostum. Maður þarf að ræða við
Þórir Barðdal
þá áður en verkið hefst og kynn-
ast eiginleikum þeirra. í raun
kenna verkin mér. Ég fæ hug-
mynd sem kemur innan og aftan
að úr huganum, en síðan þegar
ég er að slípa og höggva í efnið,
útskýrir það smátt og smátt hvað
býr í forminu. Stundum uppgötva
ég hvað býr í verkinu löngu eftir
að það er unnið. Steinninn er
kennari og allt vinnsluferlið skóli.
Marmarinn hentar vel; býr yfír
sígildum eigindum og langlífum.
En hugmyndin bakvið formin er
varanleg þrátt fyrir að verkið leys-
ist kannski upp eftir 500 ár, og
lifír miklu lengur en steinninn.
Aðdráttaraflið brýtur ekki hug-
myndina niður, það virkar ekki á
andann og því leita verkin upp. í
mörg ár hef ég reynt að búa til
Morgunblaðið/Kristinn
verk sem svífa, losa þau úr klafa
aðdráttaraflsins.“
Þórir kveðst í raun setja fram
huglæg myndefni sem hafa engin
form, t.d. vilji: Hvemig liti vilji
út ef hann hefði form? í hans
huga er þetta sannleiksleit. „Ég
held að náin tengsl séu milli feg-
urðar og sannleika og myndlistar-
menn eru oftast í leit að fegurð
í einhverri mynd, eða útlista eigin
sýn á fegurð," segir hann. „Um
eilífðarhugtök eru að ræða, sem
eru jafngild nú og fyrir þúsund
árum og eftir þúsund ár. Hugleið-
ingar um þessa þætti síast inn í
verkin. Hið sígilda er hreinlega
áhugaverðara en eitthvert tísku-
pjátur sem stendur við í nokkra
mánuði og verður að engu að því
loknu." SFr
Kraftmikil rödd hans
hljómar afar fallega
- segir þýskur gagnrýnandi um Keith Reed
Keith Reed barítónsöngvari
kom nýlega fram í fyrsta hlut-
verki sínu við óperuhúsið í Det-
mold í Þýskalandi, sem var hlut-
verk skálkanna íjögurra í Ævin-
týrum Hoffmanns.
í dagblaðinu Lippische Rund-
schau segir: „Keith Reed sem ný-
lega var ráðinn að húsinu var sér-
deilis áhrifamikill í hlutverkum and-
stæðinga Hoffmanns. Kraftmikil
barítónrödd hans hljómar afar fal-
lega og hún er vel skóluð og blæ-
brigðarík. Leikur hans var ekki
síðri. Honum tókst að draga upp
meitlaða mynd af skúrkunum sem
hann lék.
Keith fékk reyndar einnig mjög
góða dóma í sænskum blöðum í
haust fyrir frammistöðu sína í hlut-
verki Jagós í Othello. Þá var sagt
meðal annars: Keith Reed var ekki
þessi venjubundni stóri og drunga-
legi fulltrúi illskunnar, heldur var
túlkun hans á hlutverkinu lipur og
þjál sem gerði hann mun hættulegri.
Keith Reed heldur kveðjutónleika
í íslensku óperunni á laugardag kl.
14.30.
Drög að verkum sem svífa